{"id":2774,"date":"2017-12-18T18:31:43","date_gmt":"2017-12-18T18:31:43","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-mosebok-32-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:43","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:43","slug":"onnur-mosebok-32-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-mosebok-32-kafli\/","title":{"rendered":"\u00d6nnur M\u00f3seb\u00f3k 32. kafli"},"content":{"rendered":"<p>En \u00feegar f\u00f3lki\u00f0 s\u00e1 a\u00f0 M\u00f3ses dvaldi a\u00f0 koma a\u00f0 fjallinu s\u00f6fnu\u00f0ust \u00feeir saman m\u00f3t Aron og s\u00f6g\u00f0u til hans: &#8222;Statt upp og gj\u00f6r oss gu\u00f0i sem gangi fyrir oss \u00fev\u00ed v\u00e9r vitum ekki hva\u00f0 af \u00feeim manni M\u00f3se er or\u00f0i\u00f0 sem leiddi oss af Egyptalandi.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Arons fall\">[<\/span> Aron sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Taki\u00f0 eyrnagulli\u00f0 y\u00f0varra kvenna, sona og d\u00e6tra og beri\u00f0 \u00fea\u00f0 hinga\u00f0 til m\u00edn. So reif allt f\u00f3lki\u00f0 eyrnagulli\u00f0 af \u00feeirra eyrum og b\u00e1ru \u00fea\u00f0 til Arons. Og hann me\u00f0t\u00f3k \u00fea\u00f0 af \u00feeirra h\u00f6ndum og uppkasta\u00f0i me\u00f0 einum st\u00edl og gj\u00f6r\u00f0i eirn steyptan k\u00e1lf. Og \u00feeir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;\u00cdsrael, \u00feessir eru \u00fe\u00ednir gu\u00f0ir sem f\u00e6r\u00f0u \u00feig af Egyptalandi.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Steyptur k\u00e1lfur\">[<\/span><\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 Aron s\u00e1 \u00fea\u00f0 bygg\u00f0i hann eitt altari fyrir honum og l\u00e9t \u00fathr\u00f3pa og segja: &#8222;\u00c1 morgin er Drottins h\u00e1t\u00ed\u00f0.&#8220; Og \u00feeir st\u00f3\u00f0u snemma upp um morguninn og offru\u00f0u brennif\u00f3rnir og l\u00f6g\u00f0u til \u00feakkl\u00e6tisf\u00f3rnir. Eftir \u00fea\u00f0 setti f\u00f3lki\u00f0 sig ni\u00f0ur a\u00f0 eta og drekka og st\u00f3\u00f0 so upp a\u00f0 dansa.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i Drottinn til M\u00f3sen: &#8222;Gakk og far ofan \u00fev\u00ed \u00feitt f\u00f3lk \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fa leiddir af Egyptalandi hefur misgj\u00f6rt. \u00deeir eru snart viknir af \u00feeim vegi sem \u00e9g bau\u00f0 \u00feeim. \u00deeir hafa gj\u00f6rt s\u00e9r eirn steyptan k\u00e1lf og hafa tilbe\u00f0i\u00f0 hann og offra\u00f0 honum og sagt: &#8222;\u00cdsrael, \u00feessir eru \u00fe\u00ednir gu\u00f0ir sem leiddu \u00feig af Egyptalandi.&#8220; Og Drottinn sag\u00f0i til M\u00f3sen: &#8222;\u00c9g s\u00e9 a\u00f0 \u00feetta f\u00f3lk er har\u00f0sv\u00edra\u00f0 f\u00f3lk. L\u00e1t mig n\u00fa r\u00e1\u00f0a so m\u00edn rei\u00f0i megi gremjast \u00feeim og svelgja \u00fe\u00e1. So vil \u00e9g gj\u00f6ra \u00feig til eins mikils f\u00f3lks.&#8220;<\/p>\n<p>\tSo ba\u00f0 M\u00f3ses fyrir Drottni s\u00ednum Gu\u00f0i og sag\u00f0i: &#8222;Drottinn, \u00fev\u00ed vill \u00fe\u00edn grimmd rei\u00f0ast \u00fe\u00ednu f\u00f3lki sem \u00fe\u00fa \u00fatleiddir af Egyptalandi me\u00f0 miklum krafti og styrkri hendi? <span class=\"athugasemd\" title=\"M\u00f3ses bi\u00f0ur fyrir f\u00f3lkinu \/ Num. 14\">[<\/span> Hvar fyrir skulu Egyptarnir tala og segja: Hann hefur \u00fatleitt \u00fe\u00e1 \u00feeim til \u00f3lukku so a\u00f0 hann dr\u00e6pi \u00fe\u00e1 \u00e1 fj\u00f6llum uppi og afm\u00e1\u00f0i \u00fe\u00e1 af j\u00f6r\u00f0unni? Sn\u00fa \u00fe\u00e9r fr\u00e1 \u00feinni grimmri rei\u00f0i og vert n\u00e1\u00f0ugur yfir vondskap \u00fe\u00edns f\u00f3lks. L\u00e1t \u00fe\u00e9r \u00ed hug koma \u00fe\u00edna \u00fe\u00e9nara Abraham, \u00cdsak og \u00cdsrael, hverjum \u00fe\u00fa hefur svari\u00f0 vi\u00f0 \u00feig sj\u00e1lfan og fyrirheiti\u00f0 \u00feeim: \u00c9g vil so margfalda y\u00f0art s\u00e6\u00f0i sem stj\u00f6rnur \u00e1 himninum og allt \u00feetta land sem \u00e9g hefi lofa\u00f0 vil \u00e9g gefa y\u00f0ru s\u00e6\u00f0i og \u00feeir skulu \u00fea\u00f0 eignast \u00e6vinlega.&#8220; So i\u00f0ra\u00f0ist \u00fe\u00e1 Drottin \u00feess hisn vonda sem hann haf\u00f0i h\u00f3ta\u00f0 a\u00f0 gj\u00f6ra s\u00ednu f\u00f3lki. <\/p>\n<p>\tM\u00f3ses sneri s\u00e9r og gekk ofan af fjallinu og haf\u00f0i \u00fe\u00e6r vitnisbur\u00f0art\u00f6flur \u00ed sinni hendi. \u00de\u00e6r voru skrifa\u00f0ar \u00e1 b\u00e1\u00f0ar s\u00ed\u00f0ur og Gu\u00f0 sj\u00e1lfur haf\u00f0i gj\u00f6rt \u00fe\u00e6r og sj\u00e1lfur rita\u00f0 skriftina \u00e1 \u00feeim. Sem n\u00fa a\u00f0 J\u00f3s\u00faa heyr\u00f0i f\u00f3lksins her\u00f3p og \u00feys \u00fe\u00e1 sag\u00f0i hann til M\u00f3se: &#8222;\u00dea\u00f0 er eitt her\u00f3p \u00ed herb\u00fa\u00f0unum l\u00edka sem \u00ed bardaga.&#8220; Hann svara\u00f0i: &#8222;\u00dea\u00f0 er ekki \u00f3p so sem \u00feeirra e\u00f0 falla e\u00f0ur f\u00e1 sigur, heldur heyri \u00e9g r\u00f6dd kve\u00f0anda dans.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg er M\u00f3ses n\u00e1lga\u00f0ist til herb\u00fa\u00f0anna og s\u00e1 k\u00e1lfinn og dansinn \u00fe\u00e1 reiddist hann \u00e1kaflega og kasta\u00f0i t\u00f6flunum af hendi og braut \u00fe\u00e6r sundur undir fjallinu. S\u00ed\u00f0an t\u00f3k hann k\u00e1lfinn sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u gj\u00f6rt og brenndi hann \u00ed eldi, gj\u00f6r\u00f0i hann a\u00f0 \u00f6sku og kasta\u00f0i henni \u00ed vatn og gaf \u00cdsraelis\u00fej\u00f3num a\u00f0 drekka af \u00fev\u00ed vatni.<\/p>\n<p>\tOg hann sag\u00f0i til Arons: &#8222;Hva\u00f0 hefur \u00feetta f\u00f3lk gj\u00f6rt \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00fe\u00fa leiddir svo st\u00f3ra synd yfir \u00fea\u00f0?&#8220; Aron svara\u00f0i: &#8222;Minn herra, rei\u00f0st ekki. \u00de\u00fa veist a\u00f0 \u00feetta f\u00f3lk er illt. \u00deeir s\u00f6g\u00f0u til m\u00edn: Gj\u00f6r oss gu\u00f0i sem a\u00f0 gangi fyrir oss \u00fev\u00ed v\u00e9r vitum ekki hva\u00f0 or\u00f0i\u00f0 er af \u00feessum M\u00f3se sem oss \u00fatleiddi af Egyptalandi. \u00de\u00e1 sag\u00f0i \u00e9g til \u00feeirra: Hver sem hefur gull hann r\u00edfi \u00fea\u00f0 af og f\u00e1i m\u00e9r \u00fea\u00f0. Og \u00e9g kasta\u00f0i \u00fev\u00ed \u00ed eldinn, so var\u00f0 \u00feessi k\u00e1lfur \u00fear af.&#8220;<\/p>\n<p>\tSem M\u00f3ses s\u00e1 n\u00fa a\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 var or\u00f0i\u00f0 fr\u00ed (\u00fev\u00ed a\u00f0 Aron haf\u00f0i gj\u00f6rt \u00fea\u00f0 fr\u00ed, til hneykslunar \u00e1 me\u00f0al \u00f3vinanna) \u00fe\u00e1 gekk hann fram \u00ed herb\u00fa\u00f0arhli\u00f0i\u00f0 og sag\u00f0i: &#8222;Ef nokkur er Gu\u00f0s hann komi hinga\u00f0 til m\u00edn.&#8220; \u00de\u00e1 s\u00f6fn\u00f0u\u00f0ust allir Lev\u00ed synir til hans. Og hann sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;So segir Drottinn \u00cdsraels Gu\u00f0: Hver eirn bindi sitt sver\u00f0 vi\u00f0 s\u00ed\u00f0u og gangi \u00ed gegnum herb\u00fa\u00f0irnar fram og aftur, fr\u00e1 einu hli\u00f0i til annars, og hver sl\u00e1i sinn br\u00f3\u00f0ir, vin og n\u00e1unga \u00ed hel.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Hefnd sk\u00fargo\u00f0ad\u00fdrkunar\">[<\/span> Lev\u00ed synir gj\u00f6r\u00f0u sem M\u00f3ses haf\u00f0i sagt \u00feeim. Og \u00fear f\u00e9llu \u00e1 \u00feeim degi \u00ferj\u00e1r \u00fe\u00fasundir manns af f\u00f3lkinu. \u00de\u00e1 sag\u00f0i M\u00f3ses: &#8222;\u00de\u00e9r hafi\u00f0 <span class=\"athugasemd\" title=\"sword helga\u00f0\">[<\/span> fyllt y\u00f0ar hendur \u00ed dag fyrir Drottni, hv\u00f6r eirn \u00e1 s\u00ednum syni og br\u00f3\u00f0ur, so \u00fear gefist blessan yfir y\u00f0ur \u00ed dag.&#8220;<\/p>\n<p>\tAnnars dags \u00fear eftir sag\u00f0i M\u00f3ses til f\u00f3lksins: &#8222;\u00de\u00e9r hafi\u00f0 gj\u00f6rt eina mestu synd. \u00c9g vil n\u00fa uppfara til Drottins ef ske m\u00e6tti \u00e9g g\u00e6ti forl\u00edkt y\u00f0ar synd.&#8220; Og sem M\u00f3ses kom aftur til Drottins sag\u00f0i hann: &#8222;\u00deetta f\u00f3lk hefur frami\u00f0 eina st\u00f3ra synd og gj\u00f6rt s\u00e9r gu\u00f0i af gulli. Fyrirgef \u00feeim n\u00fa \u00feeirra synd \u0096 en viljir \u00fe\u00fa \u00fea\u00f0 ekki, \u00fe\u00e1 afm\u00e1\u00f0u mig af \u00feinni b\u00f3k sem \u00fe\u00fa hefur skrifa\u00f0.&#8220;<\/p>\n<p>\tDrottinn sag\u00f0i til M\u00f3sen: &#8222;Hva\u00f0? \u00c9g vil afm\u00e1 \u00feann af minni b\u00f3k sem syndgast \u00e1 m\u00f3ti m\u00e9r. Far \u00fe\u00fa n\u00fa og lei\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 \u00feanga\u00f0 sem \u00e9g sag\u00f0i \u00fe\u00e9r. Sj\u00e1, minn engill skal fara fyrir \u00fe\u00e9r. <span class=\"athugasemd\" title=\"Engill \/ Exo. 13\">[<\/span> \u00c9g vil vel vitja \u00feeirra synda \u00fe\u00e1 minn vitjunart\u00edmi kemur.&#8220; So sl\u00f3 Drottinn f\u00f3lki\u00f0 vegna k\u00e1lfsins hv\u00f6rn Aron haf\u00f0i gj\u00f6rt.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>En \u00feegar f\u00f3lki\u00f0 s\u00e1 a\u00f0 M\u00f3ses dvaldi a\u00f0 koma a\u00f0 fjallinu s\u00f6fnu\u00f0ust \u00feeir saman m\u00f3t Aron og s\u00f6g\u00f0u til hans: &#8222;Statt upp og gj\u00f6r oss gu\u00f0i sem gangi fyrir oss \u00fev\u00ed v\u00e9r vitum ekki hva\u00f0 af \u00feeim manni M\u00f3se er or\u00f0i\u00f0 sem leiddi oss af Egyptalandi.&#8220; [ Aron sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Taki\u00f0 eyrnagulli\u00f0 y\u00f0varra kvenna, sona og d\u00e6tra og beri\u00f0 \u00fea\u00f0 hinga\u00f0 til m\u00edn. So reif allt f\u00f3lki\u00f0 eyrnagulli\u00f0 af \u00feeirra eyrum og b\u00e1ru \u00fea\u00f0 til Arons. Og hann me\u00f0t\u00f3k \u00fea\u00f0 af \u00feeirra h\u00f6ndum og uppkasta\u00f0i me\u00f0 einum st\u00edl og gj\u00f6r\u00f0i eirn steyptan k\u00e1lf. Og \u00feeir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;\u00cdsrael, \u00feessir eru <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-mosebok-32-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2774","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2774","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2774"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2774\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2774"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}