{"id":2770,"date":"2017-12-18T18:31:40","date_gmt":"2017-12-18T18:31:40","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-mosebok-28-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:40","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:40","slug":"onnur-mosebok-28-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-mosebok-28-kafli\/","title":{"rendered":"\u00d6nnur M\u00f3seb\u00f3k 28. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Og \u00fe\u00fa skalt taka \u00feinn br\u00f3\u00f0ir Aron og hans sonu til \u00fe\u00edn af \u00cdsraelssonum, a\u00f0 hann s\u00e9 minn kennima\u00f0ur, sem er Aron og hans synir Nadab, Ab\u00edh\u00fa, Eleasar og \u00cdtamar. <span class=\"athugasemd\" title=\"Arons og hans sona kl\u00e6\u00f0na\u00f0ur\">[<\/span> Og \u00fe\u00fa skalt gj\u00f6ra Aron \u00fe\u00ednum br\u00f3\u00f0ur helgan kl\u00e6\u00f0na\u00f0 sem vera skal vegsamlegur og pr\u00fd\u00f0ilegur. Og tala \u00fe\u00fa vi\u00f0 alla \u00fe\u00e1 sem hafa eitt v\u00edsd\u00f3ms hjarta, hverja \u00e9g hefi uppfyllt me\u00f0 v\u00edsd\u00f3ms anda, a\u00f0 \u00feeir gj\u00f6ri Aroni kl\u00e6\u00f0i til sinnar v\u00edgslu, a\u00f0 hann s\u00e9 kennima\u00f0ur.<\/p>\n<p>\t\u00deessi eru \u00feau kl\u00e6\u00f0i sem \u00feeir skulu gj\u00f6ra: Brj\u00f3stskj\u00f6ld, l\u00edfkyrtil, silkim\u00f6ttul, \u00fer\u00f6ngvan kyrtil, h\u00f6fu\u00f0kl\u00e6\u00f0i og eitt belti. \u00deennan helgan kl\u00e6\u00f0na\u00f0 skulu \u00feeir gj\u00f6ra Aroni \u00fe\u00ednum br\u00f3\u00f0ur og hans sonum, so a\u00f0 \u00feeir s\u00e9u m\u00ednir kennimenn. Og \u00fear til skulu \u00feeir taka gull, gult silki, skarlat, purpura, hv\u00edtt silki. \u00deeir skulu gj\u00f6ra l\u00edfkyrtilinn af gulli, gulu silki, skarlati, purpura og hv\u00edtu tvinnu\u00f0u silki, fagurlega, so a\u00f0 hann s\u00e9 tengdur til samans \u00e1 b\u00e1\u00f0um \u00f6xlunum og so bindist til saman \u00e1 s\u00ed\u00f0unni. <span class=\"athugasemd\" title=\"L\u00edfkyrtillinn\">[<\/span> Og belti\u00f0 \u00fear utan yfir skal vera gj\u00f6rt me\u00f0 \u00feann sama hagleik og sm\u00ed\u00f0i, af gulli, gulu silki, skarlati, purpura og hv\u00edtu tvinnu\u00f0u silki.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt og taka tvo \u00f3nyxsteina og grafa n\u00f6fn \u00cdsraelissona \u00e1 \u00feeim, sex n\u00f6fn \u00e1 hvorum, eftir \u00feeirra aldri, og l\u00e1ta steinsn\u00ed\u00f0ara \u00fe\u00e1 sem innsigli grafa gj\u00f6ra \u00fea\u00f0 og greypa \u00fe\u00e1 \u00ed gull allt um kring. Og \u00fe\u00fa skalt festa \u00fe\u00e1 upp\u00e1 axlirnar \u00e1 l\u00edfkyrtlinum, a\u00f0 \u00feeir steinar s\u00e9 til eirnrar minningar fyrir \u00cdsraelssonum. Aron beri \u00feeirra n\u00f6fn upp \u00e1 b\u00e1\u00f0um s\u00ednum \u00f6xlum fyrir Drottni til minningar.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt og gj\u00f6ra gullspengur og tv\u00e6r ke\u00f0jur af kl\u00e1ru gulli so a\u00f0 hver hringur hangi \u00ed \u00f6\u00f0rum og \u00fe\u00e6r skaltu festa \u00ed spangirnar.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt og gj\u00f6ra emb\u00e6ttisins brj\u00f3stskj\u00f6ldinn kostulega so sem l\u00edfkyrtilinn, af gulli, gulu silki, skarlati, purpura og gu\u00f0vef. <span class=\"athugasemd\" title=\"Emb\u00e6ttis brj\u00f3stskj\u00f6ldurinn\">[<\/span> Hann skal vera ferskeyttur og tvefaldur, eirnrar \u00feverhandar brei\u00f0ur \u00e1 lengd og so l\u00edka \u00e1 breidd. Hann skaltu setja allansaman me\u00f0 fj\u00f3rum r\u00f6\u00f0um steina. Og \u00ed fyrstu r\u00f6\u00f0inni skal vera sardus, t\u00f3paser og smarag\u00f0us. \u00cd annarri r\u00f6\u00f0inni r\u00fab\u00edn, saf\u00edrus, demant. \u00cd \u00feeirri \u00feri\u00f0ju lyncurer, akat, amet\u00edstus. \u00cd \u00feeirri fj\u00f3r\u00f0u eirn t\u00farkis, \u00f3nyx, jaspis. \u00deeir skulu vera greyptir \u00ed gull \u00ed \u00f6llum r\u00f6\u00f0unum. Og \u00feeir skulu standa eftir t\u00f3lf \u00cdsraelissona n\u00f6fnum, \u00fatgrafi\u00f0 af steinsn\u00ed\u00f0aranum, hver eftir s\u00ednu nafni, eftir \u00feeim t\u00f3lf kynkv\u00edslum.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt og gj\u00f6ra hlekkjarfesti til brj\u00f3stskj\u00f6ldsins me\u00f0 tveimur endum og lykja hvern \u00ed annan, af kl\u00e1ru gulli. Og tvo gullhringa \u00e1 brj\u00f3ststkj\u00f6ldinn, so a\u00f0 \u00fe\u00fa festir \u00fe\u00e1 saman, tvo hringa til \u00feeirra tveggja horna \u00e1 brj\u00f3stskildinum, og set \u00fear tv\u00e6r ke\u00f0jur \u00ed \u00fe\u00e1 s\u00f6mu tvo gullhringa \u00e1 b\u00e6\u00f0i hornin \u00e1 brj\u00f3stskildinum. En \u00fe\u00e1 hina tvo enda af \u00feeim tveimur ke\u00f0jum skaltu setja \u00ed spengurnar og festa \u00fe\u00e6r \u00ed axlirnar \u00e1 l\u00edfkyrtlinum, s\u00ednumegin hv\u00f6rn.<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00fa skalt gj\u00f6ra tvo a\u00f0ra gullhringa og festa \u00fe\u00e1 \u00ed \u00feau \u00f6nnur tv\u00f6 horn \u00e1 brj\u00f3stskildinum, hvorn \u00ed s\u00ednum sta\u00f0, ne\u00f0an til m\u00f3ts vi\u00f0 l\u00edfkyrtilinn. So skaltu gj\u00f6ra tvo gullhringa og festa \u00fe\u00e1 \u00e1 b\u00e6\u00f0i hornin ne\u00f0an til l\u00edfkyrtilsins, hvorn m\u00f3t \u00f6\u00f0rum \u00fear sem l\u00edfkyrtillinn kemur til samans, ofan \u00e1 l\u00edfkyrtilinn me\u00f0 meistarahagleik, so skal mann kn\u00fdta brj\u00f3stskj\u00f6ldinn me\u00f0 s\u00ednum hringum \u00ed hringana \u00e1 l\u00edfkyrtilinn me\u00f0 eirni gulri sn\u00faru so \u00fea\u00f0 s\u00e9 fest vi\u00f0 l\u00edfkyrtilinn sem er kostulega gj\u00f6r\u00f0ur, so a\u00f0 brj\u00f3stskj\u00f6ldurinn s\u00e9 ekki laus vi\u00f0 l\u00edfkyrtilinn.<\/p>\n<p>\tSo skal Aron bera \u00cdsraelssona n\u00f6fn \u00ed emb\u00e6ttisins brj\u00f3stskildinum \u00e1 s\u00ednu brj\u00f3sti \u00feegar hann gengur \u00ed helgid\u00f3minn, allt\u00ed\u00f0 til eirnrar minningar fyrir Drottni. \u00de\u00fa skalt og setja \u00ed emb\u00e6ttisins brj\u00f3stskj\u00f6ldinn <span class=\"athugasemd\" title=\"sword \u00dar\u00edm \/ T\u00fam\u00edm\">[<\/span> lj\u00f3si\u00f0 og r\u00e9ttinn so \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00e1 Arons brj\u00f3sti \u00feegar hann kemur inn fyrir Drottin, a\u00f0 hann \u00e6 og allt\u00ed\u00f0 beri \u00cdsraelssona emb\u00e6tti \u00e1 s\u00ednu brj\u00f3sti fyrir Drottni.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt og gj\u00f6ra silkikyrtil, allansaman af gulu silki, undir kyrtlinum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Silkikyrtillinn\">[<\/span> Og skal vera eitt h\u00e1lsm\u00e1l \u00e1 honum mi\u00f0jum og falda\u00f0 me\u00f0 einum bor\u00f0a, svo \u00fea\u00f0 rifni ekki \u00f3falda\u00f0. Og ne\u00f0anvert \u00e1 faldinum skaltu gj\u00f6ra svo sem granataepli allt um kring, af gulu silki, skarlati, purpura, og gullbj\u00f6llur millum \u00feeirra, so r\u00e9tt um kring, so a\u00f0 \u00fear s\u00e9 ein gullbjalla og eitt granataepli og aftur ein gullbjalla og granataepli allt \u00ed kring um faldinn \u00e1 sama silkikyrtli. \u00deessum kyrtli skal Aron skr\u00fd\u00f0ast \u00fe\u00e1 hann emb\u00e6ttar svo a\u00f0 menn megi heyra hlj\u00f3minn \u00fear af \u00feegar hann gengur \u00fat og inn \u00ed helgid\u00f3minn fyrir Drottni, a\u00f0 hann skuli ekki deyja.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt og gj\u00f6ra eina ennissp\u00f6ng af kl\u00e1ru gulli og \u00fatgrafinn &#8222;Drottins helgid\u00f3mur&#8220; \u00fear \u00e1, sem menn \u00fatgrafa innsigli. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ennissp\u00f6ngin\">[<\/span> \u00dea\u00f0 skaltu festa framan \u00e1 m\u00edtri\u00f0 me\u00f0 einum gulum silfurdregli yfir Arons enni, so skal Aron bera misgj\u00f6r\u00f0ir \u00feess helga\u00f0a sem \u00cdsraelssynir heilagt gj\u00f6ra me\u00f0 \u00f6lum \u00feeirra g\u00e1fum og \u00fea\u00f0 skal allt\u00ed\u00f0 vera yfir hans enni til a\u00f0 forl\u00edka \u00fe\u00e1 fyrir Drottni.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt og gj\u00f6ra eirn mj\u00f3an kyrtil af hv\u00edtu silki og eitt m\u00edtur af hv\u00edtu silki og eitt stanga\u00f0 belti. <span class=\"athugasemd\" title=\"S\u00e1 \u00fer\u00f6ngi kyrtillinn\">[<\/span><\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt og gj\u00f6ra Arons sonum kyrtla og belti og m\u00edtur, vegsamleg og f\u00f6gur, og f\u00e6ra Aron \u00feinn br\u00f3\u00f0ir og hans syni \u00fear \u00ed og smyrja \u00fe\u00e1 og fylla \u00feeirra hendur og v\u00edgja \u00fe\u00e1 til a\u00f0 vera m\u00ednir kennimenn. \u00de\u00fa skalt og gj\u00f6ra \u00feeim l\u00ednbr\u00e6kur af l\u00edni, fr\u00e1 lendunum og til hn\u00e9sb\u00f3tar, a\u00f0 hylja \u00feeirra blyg\u00f0anarhold me\u00f0. \u00de\u00e6r skal Aron og hans synir hafa \u00fe\u00e1 \u00feeir ganga inn \u00ed tjaldb\u00fa\u00f0 vitnisbur\u00f0arins e\u00f0ur til altarisins a\u00f0 \u00fej\u00f3na \u00ed helgid\u00f3minum so a\u00f0 \u00feeir beri eigi s\u00edna misgj\u00f6rninga og deyi. \u00deetta skal vera honum og hans s\u00e6\u00f0i eftir hann ein eil\u00edf skikkan.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Og \u00fe\u00fa skalt taka \u00feinn br\u00f3\u00f0ir Aron og hans sonu til \u00fe\u00edn af \u00cdsraelssonum, a\u00f0 hann s\u00e9 minn kennima\u00f0ur, sem er Aron og hans synir Nadab, Ab\u00edh\u00fa, Eleasar og \u00cdtamar. [ Og \u00fe\u00fa skalt gj\u00f6ra Aron \u00fe\u00ednum br\u00f3\u00f0ur helgan kl\u00e6\u00f0na\u00f0 sem vera skal vegsamlegur og pr\u00fd\u00f0ilegur. Og tala \u00fe\u00fa vi\u00f0 alla \u00fe\u00e1 sem hafa eitt v\u00edsd\u00f3ms hjarta, hverja \u00e9g hefi uppfyllt me\u00f0 v\u00edsd\u00f3ms anda, a\u00f0 \u00feeir gj\u00f6ri Aroni kl\u00e6\u00f0i til sinnar v\u00edgslu, a\u00f0 hann s\u00e9 kennima\u00f0ur. \u00deessi eru \u00feau kl\u00e6\u00f0i sem \u00feeir skulu gj\u00f6ra: Brj\u00f3stskj\u00f6ld, l\u00edfkyrtil, silkim\u00f6ttul, \u00fer\u00f6ngvan kyrtil, h\u00f6fu\u00f0kl\u00e6\u00f0i og eitt belti. \u00deennan helgan kl\u00e6\u00f0na\u00f0 skulu \u00feeir gj\u00f6ra Aroni <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-mosebok-28-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2770","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2770","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2770"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2770\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2770"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}