{"id":2764,"date":"2017-12-18T18:31:40","date_gmt":"2017-12-18T18:31:40","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-mosebok-22-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:40","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:40","slug":"onnur-mosebok-22-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-mosebok-22-kafli\/","title":{"rendered":"\u00d6nnur M\u00f3seb\u00f3k 22. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Ef ma\u00f0ur stelur nauti e\u00f0ur sau\u00f0 og sl\u00e1trar \u00fev\u00ed e\u00f0a selur \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 skal hann gjalda aftur fimm uxa fyrir eirn og fj\u00f3ra sau\u00f0i fyrir eirn sau\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Refsing \u00fej\u00f3fna\u00f0ar \/ 2 Sam. 12\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tEf \u00fej\u00f3fur ver\u00f0ur tekinn \u00fe\u00e1 hann br\u00fdst \u00ed h\u00fas og ver\u00f0ur hann \u00fear lostinn so hann deyr \u00fe\u00e1 skal enginn bl\u00f3\u00f0d\u00f3mur ganga yfir vegandann. En ef hann gj\u00f6rir \u00fea\u00f0 a\u00f0 upprunninni s\u00f3lu \u00fe\u00e1 skal bl\u00f3\u00f0d\u00f3mur yfir veganda ganga.<\/p>\n<p>\t\u00dej\u00f3furinn skal skila \u00fev\u00ed aftur. Hafi hann ekkert \u00fe\u00e1 skal hann seljast fyrir sinn stuld. En ef menn finna \u00fea\u00f0 \u00fej\u00f3fstolna lifanda hj\u00e1 honum, hvort heldur \u00fea\u00f0 er naut, asni e\u00f0ur sau\u00f0ur, \u00fe\u00e1 skal hann gefa \u00fea\u00f0 tvefalt aftur. Ef nokkur spillir akri e\u00f0ur v\u00edngar\u00f0i og l\u00e6tur sinn f\u00e9na\u00f0 gj\u00f6ra ska\u00f0a \u00e1 annars manns akri \u00fe\u00e1 skal hann b\u00e6ta ska\u00f0a aftur af \u00fev\u00ed bestu sem hann hefur \u00e1 s\u00ednum akri e\u00f0a \u00e1 s\u00ednum v\u00edngar\u00f0i.<\/p>\n<p>\tEf eldur kviknar og kemur \u00ed \u00feyrna og brennir bindini e\u00f0a \u00fea\u00f0 korn sem enn stendur \u00e1 akri \u00fe\u00e1 skal s\u00e1 ska\u00f0a b\u00e6ta sem eldinn kveikti.<\/p>\n<p>\tEf nokkur selur s\u00ednum n\u00e1unga f\u00e9 e\u00f0ur ker til var\u00f0veislu og ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 stoli\u00f0 fr\u00e1 honum \u00far hans h\u00fasi \u0096 hittist \u00fej\u00f3furinn \u00fe\u00e1 skal hann tv\u00edgjalda \u00fea\u00f0 aftur, en finnist \u00fej\u00f3furinn ekki \u00fe\u00e1 skal h\u00fasb\u00f3ndinn innlei\u00f0ast fyrir <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (Gu\u00f0ina) \/ Gu\u00f0ir kallast d\u00f3mendur \u00fear fyrir a\u00f0 \u00feeir \u00ed Gu\u00f0s sta\u00f0 eftir Gu\u00f0s l\u00f6gm\u00e1li og or\u00f0i en ei eftir s\u00ednum \u00fe\u00f3tta d\u00e6ma eiga og drottna, so sem Kristus \u00e1v\u00edsar. Job. X\">[<\/span> gu\u00f0ina hvort hann hefur ekki lagt s\u00edna h\u00f6nd \u00e1 eign s\u00edns n\u00e1unga.<\/p>\n<p>\tEf nokkur gefur \u00f6\u00f0rum s\u00f6k fyrir nokkurskonar \u00f3r\u00e9tt, s\u00e9 \u00fea\u00f0 fyrir uxa e\u00f0a asna e\u00f0ur sau\u00f0 e\u00f0a kl\u00e6\u00f0i e\u00f0a fyrir nokkurn annan hlut \u00feann e\u00f0 horfi\u00f0 hefur, \u00fe\u00e1 skal beggja \u00feeirra m\u00e1lefni koma inn fyrir gu\u00f0ina og hvorn sem gu\u00f0irnir d\u00e6ma saka\u00f0an, s\u00e1 skal tv\u00edgilda \u00fea\u00f0 aftur s\u00ednum n\u00e1unga.<\/p>\n<p>\tEf nokkur ma\u00f0ur selur s\u00ednum n\u00e1unga til var\u00f0veislu anna\u00f0hvort asna, uxa, sau\u00f0 e\u00f0ur nokku\u00f0 anna\u00f0 kvikf\u00e9 og \u00fea\u00f0 deyr fyrir honum e\u00f0a lestist e\u00f0a hverfur burt fr\u00e1 honum svo enginn s\u00e9r \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 skal \u00fea\u00f0 koma til eins ei\u00f0s fyrir Drottni \u00feeirra \u00e1 millum a\u00f0 hann hafi ekki lagt s\u00edna h\u00f6nd \u00e1 eign n\u00e1unga s\u00edns. Og \u00feann ei\u00f0 skal eignarma\u00f0urinn taka og s\u00e1 annar skal ekki betala \u00fea\u00f0. En ef f\u00e9 er stoli\u00f0 \u00ed burt \u00fe\u00e1 skal hann betala eignarmanninum ska\u00f0ann. En ef d\u00fdr b\u00edtur \u00ed hel \u00fe\u00e1 skal hann koma \u00fear a\u00f0 vitnum og ekki betala.<\/p>\n<p>\tEf ma\u00f0ur hefur f\u00e9 til l\u00e1ns af s\u00ednum n\u00e1unga og \u00fea\u00f0 lemst e\u00f0ur deyr so eignarma\u00f0urinn er ekki hj\u00e1, \u00fea\u00f0 skal hann betala. En s\u00e9 eignarma\u00f0urinn \u00fear hj\u00e1 \u00fe\u00e1 skal hann ekki betala \u00fea\u00f0 \u00fev\u00ed hann leig\u00f0i \u00fea\u00f0 fyrir s\u00edna peninga.<\/p>\n<p>\tEf nokkur lokkar eina jungfr\u00fa, sem ekki er enn nokkrum manni handfest, og liggur hann hana, \u00fe\u00e1 skal hann gefa henni hennar mund og taka hana s\u00e9r til eiginkvinnu. <span class=\"athugasemd\" title=\"Deutrono. 22\">[<\/span> En vilji hennar fa\u00f0ir ekki gifta honum hana \u00fe\u00e1 skal hann vega henni \u00fat so miki\u00f0 f\u00e9 sem meyjanna mundur plagar a\u00f0 vera.<\/p>\n<p>\tEkki skaltu l\u00e1ta galdrakonu lifa. Hver sem samblandast f\u00e9na\u00f0i hann skal vissilega deyja. <span class=\"athugasemd\" title=\"Levit. 20 \/ Deutrono. 27\">[<\/span> Hver sem f\u00f3rnir f\u00e6rir \u00f6\u00f0rum gu\u00f0um en alleinasta Drottni hann skal dey\u00f0ast. <\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt ekki f\u00e9fletta n\u00e9 undir\u00ferykkja \u00feann \u00fatlenda \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 og veri\u00f0 \u00fatlendir \u00ed Egyptalandi.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e9r skulu\u00f0 ekki mein gj\u00f6ra ekkjum og f\u00f6\u00f0urlausum b\u00f6rnum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Levit. 19 \/ Deutro. 24 \/ Sak. 7\">[<\/span> Ef \u00fe\u00fa gj\u00f6rir \u00feeim mein \u00fe\u00e1 munu \u00feau kalla til m\u00edn og \u00e9g vil b\u00e6nheyra \u00feeirra kall. \u00de\u00e1 mun grimmd m\u00edn rei\u00f0ast so a\u00f0 \u00e9g mun lj\u00f3sta y\u00f0ur \u00ed hel me\u00f0 sver\u00f0i og mun \u00e9g l\u00e1ta y\u00f0ar kvinnur ver\u00f0a ekkjur og y\u00f0ar b\u00f6rn f\u00f6\u00f0urlaus.<\/p>\n<p>\tEf \u00fe\u00fa l\u00e1nar m\u00ednu f\u00f3lki peninga \u00fev\u00ed sem f\u00e1t\u00e6kt er hj\u00e1 \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 skaltu ekki \u00ferengja \u00fev\u00ed til ska\u00f0a e\u00f0a leggja nokkurt okkur upp\u00e1 \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>\tEf \u00fe\u00fa tekur kl\u00e6\u00f0i \u00ed ve\u00f0 af \u00fe\u00ednum n\u00e1unga \u00fe\u00e1 f\u00e1 \u00fe\u00fa honum \u00fea\u00f0 aftur fyrir s\u00f3larfall \u00fev\u00ed a\u00f0 hans kl\u00e6\u00f0i er alleinasta hulning hans l\u00edkama sem hann sefur \u00ed. <span class=\"athugasemd\" title=\"Deutro. 24\">[<\/span> S\u00e9 \u00fea\u00f0 so a\u00f0 hann kallar til m\u00edn \u00fe\u00e1 skal \u00e9g heyra hann \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er miskunnsamur.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt ekki gu\u00f0\u00f6num b\u00f6ls bi\u00f0ja og ekki lasta h\u00f6f\u00f0ingjann \u00e1 me\u00f0al \u00fe\u00edns f\u00f3lks. <span class=\"athugasemd\" title=\"Act. 23\">[<\/span> \u00de\u00ednar t\u00edundir og fyrstu f\u00f3rnir skaltu ekki l\u00e1ta undan dragast.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt gefa m\u00e9r \u00feinn frumgetinn son. \u00dea\u00f0 sama skaltu og gj\u00f6ra af \u00fe\u00ednum nautum og sau\u00f0um. Sj\u00f6 daga skal \u00fea\u00f0 vera hj\u00e1 sinni m\u00f3\u00f0ur en \u00feann \u00e1ttunda dag skaltu gefa m\u00e9r \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e9r skulu\u00f0 vera eitt heilagt f\u00f3lk fyrir m\u00e9r. <span class=\"athugasemd\" title=\"Levit. 22 \/ Esek\u00ed. 44\">[<\/span> \u00dear fyrir skulu \u00fe\u00e9r ekkert kj\u00f6t eta sem sliti\u00f0 er af d\u00fdrum \u00e1 akrinum heldur kasti\u00f0 \u00fev\u00ed fyrir hunda.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Ef ma\u00f0ur stelur nauti e\u00f0ur sau\u00f0 og sl\u00e1trar \u00fev\u00ed e\u00f0a selur \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 skal hann gjalda aftur fimm uxa fyrir eirn og fj\u00f3ra sau\u00f0i fyrir eirn sau\u00f0. [ Ef \u00fej\u00f3fur ver\u00f0ur tekinn \u00fe\u00e1 hann br\u00fdst \u00ed h\u00fas og ver\u00f0ur hann \u00fear lostinn so hann deyr \u00fe\u00e1 skal enginn bl\u00f3\u00f0d\u00f3mur ganga yfir vegandann. En ef hann gj\u00f6rir \u00fea\u00f0 a\u00f0 upprunninni s\u00f3lu \u00fe\u00e1 skal bl\u00f3\u00f0d\u00f3mur yfir veganda ganga. \u00dej\u00f3furinn skal skila \u00fev\u00ed aftur. Hafi hann ekkert \u00fe\u00e1 skal hann seljast fyrir sinn stuld. En ef menn finna \u00fea\u00f0 \u00fej\u00f3fstolna lifanda hj\u00e1 honum, hvort heldur \u00fea\u00f0 er naut, asni e\u00f0ur sau\u00f0ur, \u00fe\u00e1 skal <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-mosebok-22-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2764","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2764","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2764"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2764\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2764"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}