{"id":2756,"date":"2017-12-18T18:31:40","date_gmt":"2017-12-18T18:31:40","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-mosebok-14-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:40","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:40","slug":"onnur-mosebok-14-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-mosebok-14-kafli\/","title":{"rendered":"\u00d6nnur M\u00f3seb\u00f3k 14. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Og Drottinn m\u00e6lti vi\u00f0 M\u00f3sen og sag\u00f0i: &#8222;Tala \u00fe\u00fa til \u00cdsraelssona og seg \u00fe\u00fa \u00feeim a\u00f0 \u00feeir sn\u00fai aftur og setji s\u00ednar herb\u00fa\u00f0ir hj\u00e1 \u00feeim dal H\u00edr\u00f3t sem liggur millum M\u00edgd\u00f3l og sj\u00e1varins gegnt Baal-Sef\u00f3n og setji s\u00ednar herb\u00fa\u00f0ir \u00fear \u00fevert yfir hj\u00e1 sj\u00f3num. \u00dev\u00ed fara\u00f3 mun segja um \u00cdsraelssonu: \u00deeir fara villt \u00ed landinu, ey\u00f0im\u00f6rkin hefur innibyrgt \u00fe\u00e1. Og \u00e9g vil forher\u00f0a hans hjarta so a\u00f0 hann skal fara eftir \u00feeim. Og \u00e9g vil vinna pr\u00eds \u00e1 fara\u00f3ne og allri hans magt. Og egypskir skulu vita a\u00f0 \u00e9g er Drottinn.&#8220; Og \u00feeir gj\u00f6r\u00f0u so.<\/p>\n<p>\tOg sem k\u00f3ngur Egyptalands fr\u00e9tti \u00fea\u00f0 a\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 var burtfl\u00fai\u00f0 \u00fe\u00e1 umsnerist hjarta hans og hans \u00fe\u00e9nara vi\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 og sag\u00f0i: &#8222;\u00dev\u00ed h\u00f6fum v\u00e9r \u00feetta gj\u00f6rt a\u00f0 v\u00e9r leyf\u00f0um \u00cdsrael a\u00f0 fara \u00ed burt so a\u00f0 hann \u00fej\u00f3ni oss ekki?&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Fara\u00f3 s\u00e6kir eftir \u00cdsrael\">[<\/span> Og hann l\u00e9t spenna fyrir s\u00edna vagna og safna\u00f0i li\u00f0i a\u00f0 s\u00e9r. Hann t\u00f3k sex hundru\u00f0 \u00fatvaldra vagna og so l\u00edka a\u00f0ra vagna sem voru \u00ed Egyptalandi og hersh\u00f6f\u00f0ingjana yfir allan sinn her. \u00dev\u00ed Drottinn herti fara\u00f3nis hjarta, k\u00f3ngsins af Egyptalandi, so a\u00f0 hann f\u00f3r eftir \u00cdsraelssonum. En \u00cdsraelssynir voru \u00fatgengnir me\u00f0 einum h\u00e1vum armlegg. So s\u00f3ttu n\u00fa \u00feeir egypsku eftir \u00feeim me\u00f0 hestum, v\u00f6gnum og riddarali\u00f0i og me\u00f0 allan fara\u00f3nis her og n\u00e1\u00f0u \u00feeim vi\u00f0 Hafi\u00f0 rau\u00f0a \u00fear sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u sett s\u00ednar herb\u00fa\u00f0ir \u00ed dalnum H\u00edr\u00f3t gegnt Baal-Sef\u00f3n.<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e1 fara\u00f3 n\u00e1lga\u00f0ist \u00fe\u00e1 \u00fe\u00e1 upph\u00f3fu \u00cdsraelssynir s\u00edn augu og sj\u00e1, \u00fe\u00e1 komu \u00feeir egypsku s\u00e6kjandi eftir \u00feeim. Og \u00feeir \u00f3ttu\u00f0ust harla mj\u00f6g og k\u00f6llu\u00f0u til Drottins og s\u00f6g\u00f0u til M\u00f3sen: &#8222;Voru \u00fear ekki grafir \u00ed Egyptalandi? <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00cdsrael m\u00f6glar \u00ed gegn M\u00f3se\">[<\/span> \u00deurftir \u00fe\u00fa a\u00f0 lei\u00f0a oss \u00ed burt til \u00feess a\u00f0 deyja h\u00e9r \u00ed ey\u00f0im\u00f6rku? \u00dev\u00ed gj\u00f6r\u00f0ir \u00fe\u00fa oss \u00feetta a\u00f0 \u00fe\u00fa leiddir oss af Egyptalandi? Hvort er n\u00fa ekki \u00fear komi\u00f0 sem v\u00e9r s\u00f6g\u00f0um til \u00fe\u00edn \u00ed Egyptalandi: L\u00e1t oss vera kyrra og l\u00e1t oss \u00fej\u00f3na heldur egypskum, \u00fev\u00ed a\u00f0 betra er a\u00f0 v\u00e9r \u00fej\u00f3num \u00feeim en a\u00f0 v\u00e9r deyjum \u00ed ey\u00f0im\u00f6rku.&#8220; \u00de\u00e1 sag\u00f0i M\u00f3ses til l\u00fd\u00f0sins: &#8222;\u00d3ttist ekki, standi\u00f0 st\u00f6\u00f0ugir og sj\u00e1i\u00f0 hj\u00e1lp Drottins \u00fe\u00e1 sem hann mun veita y\u00f0ur \u00ed dag. \u00dev\u00ed a\u00f0 egypska menn \u00feessa sem \u00fe\u00e9r sj\u00e1i\u00f0 \u00ed dag \u00fe\u00e1 munu\u00f0 \u00fe\u00e9r eki sj\u00e1 meir a\u00f0 eil\u00edfu. Drottinn mun berjast fyrir y\u00f0ur, \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 vera kyrrir.&#8220;<\/p>\n<p>\tDrottinn m\u00e6lti vi\u00f0 M\u00f3sen: &#8222;\u00dev\u00ed kallar \u00fe\u00fa til m\u00edn? Seg \u00fe\u00fa til \u00cdsraelssona a\u00f0 \u00feeir fari lei\u00f0 s\u00edna. En \u00fe\u00fa, hef upp \u00feinn v\u00f6nd og r\u00e9tt h\u00f6nd \u00fe\u00edna yfir sj\u00f3inn og skiptu honum \u00ed sundur so a\u00f0 \u00cdsraelssynir megi ganga \u00fear \u00ed gegnum me\u00f0 \u00feurrum f\u00f3tum. Sj\u00e1, \u00e9g vil forher\u00f0a hjarta egypskra manna so a\u00f0 \u00feeir skulu fara eftir y\u00f0ur. So vil \u00e9g vinna pr\u00eds \u00e1 fara\u00f3ne og \u00e1 allri hans magt, v\u00f6gnum og riddarali\u00f0i, svo a\u00f0 egypskir skulu vita a\u00f0 \u00e9g er Drottinn, n\u00e6r \u00e9g hefi unni\u00f0 pr\u00eds \u00e1 fara\u00f3ne og hans v\u00f6gnum og riddarali\u00f0i.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 uppt\u00f3k sig Gu\u00f0s engill s\u00e1 sem gekk undan \u00cdsraelis her og hann f\u00f3r til baka vi\u00f0 \u00fe\u00e1 og s\u00e1 sk\u00fdst\u00f3lpi h\u00f3fst upp fr\u00e1 \u00feeirra augliti og settist ni\u00f0ur \u00e1 bak vi\u00f0 \u00fe\u00e1 og var milli herb\u00fa\u00f0a \u00feeirra egypsku og \u00cdsraels hers og var eirn myrkur sk\u00fdst\u00f3lpi uppl\u00fdsandi n\u00f3ttina so a\u00f0 \u00feeir og \u00feessir kunnu ei a\u00f0 komast til samans alla \u00fe\u00e1 n\u00f3tt. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gu\u00f0s engill \/ S\u00e1l. 78; 105\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tN\u00fa sem M\u00f3ses \u00fatr\u00e9tti s\u00edna h\u00f6nd yfir hafi\u00f0 \u00fe\u00e1 l\u00e9t Drottinn \u00fea\u00f0 burthverfa fyrir eirn sterkan austanvind alla \u00fe\u00e1 n\u00f3tt so a\u00f0 sj\u00f3rinn var\u00f0 \u00feurr og vatni\u00f0 brast \u00ed sundur. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00cdsraelssynir ganga \u00ed gegnum Hafi\u00f0 rau\u00f0a \/ S\u00e1l. 78; 106\">[<\/span> Og \u00cdsraelssynir gengu mitt \u00ed hafi\u00f0 \u00feurrum f\u00f3tum. Og vatni\u00f0 var \u00feeim sem m\u00farveggur til h\u00e6gri og vinstri handar. \u00deeir egypsku s\u00f3ttu eftir og gengu mitt \u00ed hafi\u00f0 eftir \u00feeim, allur r\u00ed\u00f0andi her fara\u00f3nis, vagnar hans og riddarali\u00f0.<\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00e1 morgunvakan kom \u00fe\u00e1 leit Dottinn yfir her egypskra af eldst\u00f3lpanum og sk\u00fdinu og skaut skelk \u00ed herli\u00f0 \u00feeirra og velti um hj\u00f3lv\u00f6gnum \u00feeirra og kollkasta\u00f0i \u00feeim. \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u egypskir: &#8222;Fl\u00fdjum fr\u00e1 \u00cdsrael, Drottinn str\u00ed\u00f0ir fyrir \u00fe\u00e1 m\u00f3ti egypskum.&#8220; \u00de\u00e1 sag\u00f0i Drottinn til M\u00f3sen: &#8222;R\u00e9tt \u00fat \u00fe\u00edna h\u00f6nd yfir hafi\u00f0 so a\u00f0 vatni\u00f0 falli aftur yfir \u00fe\u00e1 egypsku, yfir \u00feeirra vagna og riddarali\u00f0.&#8220; Svo \u00fatr\u00e9tti M\u00f3ses s\u00edna h\u00f6nd yfir sj\u00f3inn og sj\u00f3rinn f\u00e9ll aftur \u00ed sinn farveg \u00e1\u00f0ur en daga\u00f0i og kom \u00ed m\u00f3t \u00feeim egypsku \u00fe\u00e1 \u00feeir fl\u00fd\u00f0u. So steypti Drottinn \u00feeim mitt \u00ed mi\u00f0ju hafi og vatni\u00f0 kom aftur og huldi b\u00e6\u00f0i vagna og riddara og alla fara\u00f3nis magt, sem fari\u00f0 haf\u00f0i eftir \u00feeim \u00ed hafi\u00f0, so \u00fear var\u00f0 ekki einn eftir af \u00feeim.<\/p>\n<p>\tEn \u00cdsraelssynir gengu \u00feurrum f\u00f3tum mitt \u00ed gegnum hafi\u00f0 og vatni\u00f0 st\u00f3\u00f0 \u00feeim sem m\u00farveggur til h\u00e6gri og vinstri handar. <span class=\"athugasemd\" title=\"Fara\u00f3 og allur hans her drukknar \u00ed Hafinu rau\u00f0a\">[<\/span> So leysti Drottinn \u00cdsrael \u00e1 \u00feeim degi fr\u00e1 egypskra manna hendi. Og \u00feeir s\u00e1u \u00fe\u00e1 egypsku liggja dau\u00f0a \u00ed fj\u00f6runni. Og \u00cdsrael leit \u00fe\u00e1 voldugu h\u00f6nd sem Drottinn haf\u00f0i au\u00f0s\u00fdnt \u00e1 \u00feeim egypsku og f\u00f3lki\u00f0 \u00f3tta\u00f0ist Drottin og tr\u00fa\u00f0i honum og hans \u00fej\u00f3n M\u00f3se.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Og Drottinn m\u00e6lti vi\u00f0 M\u00f3sen og sag\u00f0i: &#8222;Tala \u00fe\u00fa til \u00cdsraelssona og seg \u00fe\u00fa \u00feeim a\u00f0 \u00feeir sn\u00fai aftur og setji s\u00ednar herb\u00fa\u00f0ir hj\u00e1 \u00feeim dal H\u00edr\u00f3t sem liggur millum M\u00edgd\u00f3l og sj\u00e1varins gegnt Baal-Sef\u00f3n og setji s\u00ednar herb\u00fa\u00f0ir \u00fear \u00fevert yfir hj\u00e1 sj\u00f3num. \u00dev\u00ed fara\u00f3 mun segja um \u00cdsraelssonu: \u00deeir fara villt \u00ed landinu, ey\u00f0im\u00f6rkin hefur innibyrgt \u00fe\u00e1. Og \u00e9g vil forher\u00f0a hans hjarta so a\u00f0 hann skal fara eftir \u00feeim. Og \u00e9g vil vinna pr\u00eds \u00e1 fara\u00f3ne og allri hans magt. Og egypskir skulu vita a\u00f0 \u00e9g er Drottinn.&#8220; Og \u00feeir gj\u00f6r\u00f0u so. Og sem k\u00f3ngur Egyptalands fr\u00e9tti <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-mosebok-14-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2756","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2756","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2756"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2756\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2756"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}