{"id":2744,"date":"2017-12-18T18:31:36","date_gmt":"2017-12-18T18:31:36","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-mosebok-2-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:36","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:36","slug":"onnur-mosebok-2-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-mosebok-2-kafli\/","title":{"rendered":"\u00d6nnur M\u00f3seb\u00f3k 2. kafli"},"content":{"rendered":"<p>\u00dear var eirn ma\u00f0ur af h\u00fasi Lev\u00ed, hann gekk a\u00f0 eiga eina af Lev\u00ed d\u00e6trum. Og kvinnan var\u00f0 \u00f3l\u00e9tt og f\u00e6ddi eirn son. <span class=\"athugasemd\" title=\"M\u00f3ses f\u00e6\u00f0ist lxiiy \u00e1rum eftir andl\u00e1t J\u00f3sefs, anno mundi Mmccc lxxiy, fyrir Krist\u00ed hinga\u00f0bur\u00f0 Mdlxxx viy \u00e1r \/ Act. 7 \/ Ebr. 11\">[<\/span> Og sem h\u00fan s\u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 var eitt v\u00e6nt sveinbarn geymdi h\u00fan \u00fea\u00f0 \u00ed \u00ferj\u00e1 m\u00e1nu\u00f0i. En \u00fe\u00e1 h\u00fan gat eigi lengur leynt \u00fev\u00ed gj\u00f6r\u00f0i h\u00fan eirn kistil af reyr og br\u00e6ddi me\u00f0 leir og biki og lag\u00f0i \u00fear \u00ed barni\u00f0 og l\u00e9t kistilinn \u00ed sefi\u00f0 \u00fat me\u00f0 \u00e1rbakkanum. En hans systir st\u00f3\u00f0 langt fr\u00e1 og vildi sj\u00e1 hvernin \u00feetta mundi ganga.<\/p>\n<p>\tOg fara\u00f3nis d\u00f3ttir gekk ofan a\u00f0 \u00fevo s\u00e9r \u00ed \u00e1nni og hennar jungfr\u00far gengu eftir \u00e1rbakkanum. En sem h\u00fan s\u00e1 kistilinn \u00ed sefinu sendi h\u00fan s\u00ednar amb\u00e1ttir \u00feanga\u00f0 og l\u00e9t f\u00e6ra s\u00e9r hann. Og er h\u00fan lauk honum upp s\u00e1 h\u00fan barni\u00f0 og sj\u00e1, \u00fea\u00f0 gr\u00e9t. H\u00fan s\u00e1 aumur \u00e1 \u00fev\u00ed og sag\u00f0i: &#8222;\u00dea\u00f0 er eitt af \u00feeim ebresku b\u00f6rnunum.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i barnsins systir til fara\u00f3nis d\u00f3ttur: &#8222;Vilt \u00fe\u00fa a\u00f0 \u00e9g fari og kalli eina af \u00feeim ebresku kvinnum sem barni\u00f0 f\u00e6\u00f0i \u00e1 brj\u00f3sti s\u00e9r?&#8220; Fara\u00f3nis d\u00f3ttir sag\u00f0i til hennar: &#8222;Far \u00fe\u00fa.&#8220; Jungfr\u00fain f\u00f3r af sta\u00f0 og kalla\u00f0i \u00e1 m\u00f3\u00f0ur barnsins. \u00de\u00e1 sag\u00f0i fara\u00f3nis d\u00f3ttir til hennar: &#8222;Tak \u00feetta barn til \u00fe\u00edn og f\u00f3stra m\u00e9r \u00fea\u00f0 upp, \u00e9g mun launa \u00fe\u00e9r.&#8220; Kvinnan t\u00f3k barni\u00f0 og f\u00f3stra\u00f0i \u00fea\u00f0 upp. Og \u00fe\u00e1 sveirninn var vaxinn leiddi h\u00fan hann til fara\u00f3nis d\u00f3ttur og h\u00fan hlt hann fyrir sinn son og kalla\u00f0i hann M\u00f3ses, \u00fev\u00ed h\u00fan sag\u00f0i: &#8222;\u00c9g hefi teki\u00f0 hann \u00far vatni.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg \u00e1 \u00feeim t\u00edma \u00fe\u00e1 M\u00f3ses var fullt\u00ed\u00f0a gekk hann \u00fat til sinna br\u00e6\u00f0ra og s\u00e1 kv\u00f6l \u00feeirra. <span class=\"athugasemd\" title=\"M\u00f3ses var \u00fe\u00e1 xl \u00e1ra gamall \/ Act. 7\">[<\/span> Og hann s\u00e1 eirn egypskan lj\u00f3sta hans br\u00f3\u00f0ur sem var eirn af \u00feeim ebreskum. \u00de\u00e1 lita\u00f0ist M\u00f3ses um og er hann s\u00e1 \u00f6ngvan mann \u00ed n\u00e1nd \u00feeim v\u00f3 hann \u00feann hinn egypska og gr\u00f3f hann \u00ed sandi. Annars dags gekk hann \u00fat aftur og s\u00e1 tvo ebreska menn \u00fer\u00e1tta s\u00edn \u00e1 milli og hann sag\u00f0i til hans sem \u00f3r\u00e9tt gj\u00f6r\u00f0i: &#8222;\u00dev\u00ed sl\u00e6r \u00fe\u00fa \u00feinn n\u00e1unga?&#8220; En hann sag\u00f0i: &#8222;Hver hefur sett \u00feig til h\u00f6f\u00f0ingja e\u00f0ur d\u00f3mara yfir oss? Viltu vega mig sem \u00fe\u00fa draps \u00feann egypska \u00ed g\u00e6r?&#8220; \u00de\u00e1 var\u00f0 M\u00f3ses hr\u00e6ddur og sag\u00f0i: &#8222;Hvernin er \u00fea\u00f0 or\u00f0i\u00f0 opinbert?&#8220; Og \u00fea\u00f0 kom fyrir fara\u00f3nem og hann leita\u00f0i eftir a\u00f0 l\u00e1ta drepa M\u00f3sen. En M\u00f3ses fl\u00fd\u00f0i fr\u00e1 fara\u00f3ne og h\u00e9lt sig \u00ed \u00fev\u00ed landi Mad\u00edan og dvaldist hj\u00e1 einum brunni. <span class=\"athugasemd\" title=\"M\u00f3ses fl\u00fdr fyrir faran\u00f3i\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tOg \u00fear var eirn kennima\u00f0ur \u00ed Mad\u00edan, hann \u00e1tti sj\u00f6 d\u00e6tur, \u00fe\u00e6r komu \u00feanga\u00f0 a\u00f0 ausa upp vatn og fylltu vatsrennurnar a\u00f0 vatna \u00feeirra f\u00f6\u00f0urs sau\u00f0um. \u00de\u00e1 komu hir\u00f0arar a\u00f0 og r\u00e1ku \u00fe\u00e6r \u00ed burt. En M\u00f3ses reis upp og hj\u00e1lpa\u00f0i \u00feeim og vatna\u00f0i sau\u00f0unum. Og \u00fe\u00e1 \u00fe\u00e6r komu heim til s\u00edns f\u00f6\u00f0urs Rag\u00fael spur\u00f0i hann \u00fe\u00e6r a\u00f0: &#8222;\u00dev\u00ed komu \u00fe\u00e9r svo snart aftur \u00ed dag?&#8220; \u00de\u00e6r s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Eirn egypskur ma\u00f0ur leysti oss fr\u00e1 fj\u00e1rhir\u00f0aranna hendi og j\u00f3s vatni\u00f0 upp fyrir oss og vatna\u00f0i sau\u00f0unum.&#8220; Hann sag\u00f0i til sinna d\u00e6tra: &#8222;Hvar er s\u00e1 ma\u00f0ur? \u00dev\u00ed l\u00e9tu \u00fe\u00e9r hann fara \u00ed burt og bu\u00f0u\u00f0 honum ekki inn a\u00f0 eta me\u00f0 oss?&#8220;<\/p>\n<p>\tOg M\u00f3ses l\u00e9t s\u00e9r vel l\u00edka a\u00f0 vera hj\u00e1 \u00feeim manni. Og hann gekk a\u00f0 eiga hans d\u00f3ttur Sipp\u00f3ra. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sipp\u00f3ra M\u00f3ses kvinna\">[<\/span> H\u00fan gat vi\u00f0 honum eirn son, \u00feann kalla\u00f0i hann Gerson. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gerson \/ \u00fe\u00fd\u00f0ist \u00fatlendingur\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 hann sag\u00f0i: &#8222;\u00c9g er or\u00f0inn eirn \u00fatlendingur \u00ed annarlegu landi.&#8220; Og h\u00fan \u00f3l eirn annan son, \u00feann nefndi hann El\u00edeser og sag\u00f0i: &#8222;M\u00edns f\u00f6\u00f0urs Gu\u00f0 er minn hj\u00e1lpari og hann frelsti mig af hendi fara\u00f3nis.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"El\u00edeser \/ \u00fe\u00fd\u00f0ist Gu\u00f0 minn hj\u00e1lpari\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tEftir langa t\u00edma anda\u00f0ist k\u00f3ngurinn af Egyptalandi. En \u00cdsraelssynir andv\u00f6rpu\u00f0u undir \u00feeirra \u00e1nau\u00f0 og k\u00f6llu\u00f0u. Og \u00feeirra kall undir erfi\u00f0i \u00feeirra kom upp fyrir Gu\u00f0. Og Gu\u00f0 heyr\u00f0i \u00feeirra andvarpan og minntist \u00e1 sinn s\u00e1ttm\u00e1la sem hann haf\u00f0i gj\u00f6rt vi\u00f0 Abraham, \u00cdsak og Jakob. Og hann leit til \u00feeirra og t\u00f3k \u00fe\u00e1 a\u00f0 s\u00e9r.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dear var eirn ma\u00f0ur af h\u00fasi Lev\u00ed, hann gekk a\u00f0 eiga eina af Lev\u00ed d\u00e6trum. Og kvinnan var\u00f0 \u00f3l\u00e9tt og f\u00e6ddi eirn son. [ Og sem h\u00fan s\u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 var eitt v\u00e6nt sveinbarn geymdi h\u00fan \u00fea\u00f0 \u00ed \u00ferj\u00e1 m\u00e1nu\u00f0i. En \u00fe\u00e1 h\u00fan gat eigi lengur leynt \u00fev\u00ed gj\u00f6r\u00f0i h\u00fan eirn kistil af reyr og br\u00e6ddi me\u00f0 leir og biki og lag\u00f0i \u00fear \u00ed barni\u00f0 og l\u00e9t kistilinn \u00ed sefi\u00f0 \u00fat me\u00f0 \u00e1rbakkanum. En hans systir st\u00f3\u00f0 langt fr\u00e1 og vildi sj\u00e1 hvernin \u00feetta mundi ganga. Og fara\u00f3nis d\u00f3ttir gekk ofan a\u00f0 \u00fevo s\u00e9r \u00ed \u00e1nni og hennar jungfr\u00far gengu <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-mosebok-2-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2744","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2744","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2744"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2744\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2744"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}