{"id":2739,"date":"2017-12-18T18:31:36","date_gmt":"2017-12-18T18:31:36","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-47-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:36","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:36","slug":"fyrsta-mosebok-47-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-47-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrsta M\u00f3seb\u00f3k 47. kafli"},"content":{"rendered":"<p>\u00de\u00e1 kom J\u00f3sef og tala\u00f0i vi\u00f0 fara\u00f3 og sag\u00f0i: &#8222;Minn fa\u00f0ir og m\u00ednir br\u00e6\u00f0ur, \u00feeirra kvikf\u00e9 og hj\u00f6r\u00f0, sm\u00e1 og st\u00f3r, og allt \u00fea\u00f0 \u00feeir eiga er komi\u00f0 af Kanaanslandi og sj\u00e1, \u00feeir eru \u00ed landi G\u00f3sen.&#8220; Og hann t\u00f3k fimm af s\u00ednum yngstum br\u00e6\u00f0rum og skikka\u00f0i \u00fe\u00e1 inn fyrir pharaonem. \u00de\u00e1 tala\u00f0i fara\u00f3 til hans br\u00e6\u00f0ra: &#8222;Hvert er y\u00f0art verklag?&#8220; \u00deeir sv\u00f6ru\u00f0u: &#8222;\u00de\u00ednir \u00fe\u00e9narar eru fj\u00e1rhir\u00f0arar, v\u00e9r og vorir forfe\u00f0ur.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg enn s\u00f6g\u00f0u \u00feeir til fara\u00f3: &#8222;V\u00e9r erum komnir til a\u00f0 b\u00faa hj\u00e1 y\u00f0ur h\u00e9r \u00ed landi. \u00dev\u00ed \u00fe\u00ednir \u00fe\u00e9narar hafa \u00f6ngva f\u00e6\u00f0u til sinnar hjar\u00f0ar, so st\u00f3rlega \u00ferengir hall\u00e6ri Kanaansland. \u00dear fyrir, leyf \u00fe\u00fa \u00fe\u00ednum \u00fe\u00e9nurum a\u00f0 b\u00faa \u00ed landi G\u00f3sen.&#8220; Fara\u00f3 sag\u00f0i til J\u00f3sef: &#8222;\u00deinn fa\u00f0ir og \u00fe\u00ednir br\u00e6\u00f0ur eru komnir til \u00fe\u00edn. Egyptaland stendur opi\u00f0 fyrir \u00fe\u00e9r. L\u00e1t \u00fe\u00e1 b\u00faa \u00ed \u00fev\u00ed besta takmarki landsins, b\u00fai \u00feeir \u00ed landi G\u00f3sen. Og ef \u00fe\u00fa veist nokkra dugna\u00f0armenn vera \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra, \u00fe\u00e1 set \u00fe\u00e1 yfir m\u00ednar hjar\u00f0ir.&#8220;<\/p>\n<p>\tJ\u00f3sef leiddi sinn f\u00f6\u00f0ur Jakob til fundar vi\u00f0 pharaonem og skikka\u00f0i hann fram fyrir hann. <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00f3sef hefur Jakob fyrir pharaonem\">[<\/span> Og Jakob blessa\u00f0i pharaonem. En fara\u00f3 spur\u00f0i Jakob: &#8222;Hversu gamall ert \u00fe\u00fa?&#8220; Jakob sag\u00f0i til pharaonem: &#8222;Minn vegfer\u00f0art\u00edmi er hundra\u00f0 og \u00ferj\u00e1t\u00edgi \u00e1r; f\u00e1ir og illir eru m\u00ednir dagar og n\u00e1 ekki \u00e1rat\u00f6lu minna forfe\u00f0ra \u00e1 d\u00f6gum \u00feeirrar vegfer\u00f0ar.&#8220; Og Jakob blessa\u00f0i pharaonem og gekk \u00fat fr\u00e1 honum.<\/p>\n<p>\tEn J\u00f3sef skikka\u00f0i s\u00ednum f\u00f6\u00f0ur og s\u00ednum br\u00e6\u00f0rum b\u00fasta\u00f0i og gaf \u00feeim eignir \u00ed Egyptalandi \u00fear bestir voru landskostir, sem var \u00ed landi Raemses, so sem fara\u00f3 haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0. Og J\u00f3sef f\u00e6ddi sinn f\u00f6\u00f0ur og s\u00edna br\u00e6\u00f0ur og allt sitt f\u00f6\u00f0urs h\u00fas, s\u00e9rhvern eftir \u00fev\u00ed sem hann haf\u00f0i b\u00f6rn til. En \u00fear var ekkert brau\u00f0 \u00ed \u00f6llum l\u00f6ndum, \u00fev\u00ed a\u00f0 hall\u00e6ri\u00f0 \u00ferengdi mj\u00f6g fast a\u00f0, so a\u00f0 Egyptaland og Kanaan \u00ferengdist af \u00fev\u00ed hall\u00e6ri. Og J\u00f3sef safna\u00f0i \u00f6llum peningum til samans sem fundust \u00ed Egyptalandi og Kanaan fyrir \u00fea\u00f0 korn sem \u00feeir keyptu. Og hann lag\u00f0i \u00fe\u00e1 alla peninga \u00ed pharaonis h\u00fas. <\/p>\n<p>\tN\u00fa sem \u00fe\u00e1 \u00feraut peninga \u00ed Egyptalandi og Kanaan \u00fe\u00e1 komu allir egypskir til J\u00f3sefs og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Gef oss brau\u00f0. \u00dev\u00ed l\u00e6tur \u00fe\u00fa oss deyja fyrir \u00fe\u00e9r \u00fe\u00f3 a\u00f0 v\u00e9r h\u00f6fum ei peninga?&#8220; J\u00f3sef svara\u00f0i: &#8222;Hafi\u00f0 hinga\u00f0 y\u00f0ar kvikf\u00e9, so vil eg gefa y\u00f0ur f\u00e6\u00f0slur fyrir kvikf\u00e9\u00f0 fyrst a\u00f0 \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 ekki til peninga.&#8220; So f\u00e6r\u00f0u \u00feeir \u00fea\u00f0 til J\u00f3sefs. Og hann gaf \u00feeim korn fyrir \u00feeirra hesta, sau\u00f0i, uxa og asna. So hj\u00e1lpa\u00f0i hann \u00feeim me\u00f0 brau\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00e1r \u00ed gegnum fyrir allt \u00feeirra kvikf\u00e9.<\/p>\n<p>\tEn sem \u00fea\u00f0 \u00e1ri\u00f0 var \u00fati komu \u00feeir \u00fea\u00f0 anna\u00f0 \u00e1r til hans og s\u00f6g\u00f0u honum: &#8222;V\u00e9r viljum ekki dylja \u00feess fyrir herra vorum a\u00f0 ei alleinasta peningar heldur og so kvikf\u00e9\u00f0 er \u00ed burt og v\u00e9r h\u00f6fum ekki meira eftir handa herranum, utan vora l\u00edkami og vorar jar\u00f0ir. \u00dev\u00ed l\u00e6tur \u00fe\u00fa oss deyja og vora akra ver\u00f0a \u00ed ey\u00f0i? Kaup \u00fe\u00fa oss og vorar jar\u00f0ir fyrir brau\u00f0, a\u00f0 v\u00e9r og jar\u00f0ir vorar s\u00e9um pharaonis \u00fer\u00e6lar. Gef oss s\u00e6\u00f0i so a\u00f0 v\u00e9r megum lifa og ekki deyja og a\u00f0 akrarnir ekki ey\u00f0ist.&#8220;<\/p>\n<p>\tSo keypti J\u00f3sef allt Egyptaland til handa pharaone \u00fev\u00ed \u00feeir egypsku seldu hver s\u00ednar jar\u00f0ir fyrir sultar sakir. Og me\u00f0 \u00feessu var\u00f0 landi\u00f0 pharaonis eign. Og hann \u00fatskipa\u00f0i f\u00f3lkinu um borgirnar fr\u00e1 \u00feeim einum Egyptalands enda til annars, a\u00f0 undanteknum prestanna j\u00f6r\u00f0um, \u00fe\u00e6r keypti hann ekki. <span class=\"athugasemd\" title=\"Prestanna fr\u00edheit\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 fara\u00f3 haf\u00f0i skikka\u00f0 prestunum hvar af \u00feeir skyldu n\u00e6ra sig, af hans eign sem hann haf\u00f0i gefi\u00f0 \u00feeim. \u00dear fyrir \u00feurftu \u00feeir ekki a\u00f0 selja s\u00ednar jar\u00f0ir. <\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i J\u00f3sef til f\u00f3lksins: &#8222;Sj\u00e1, eg hefi \u00ed dag keypt y\u00f0ur og y\u00f0ar akra pharaone til handa, taki \u00fe\u00e9r n\u00fa korn til s\u00e1\u00f0s. En af \u00e1vextinum skulu \u00fe\u00e9r gefa pharaone \u00feann fimmta hlut. \u00deeir fj\u00f3rir hlutir skulu vera y\u00f0ar til s\u00e1\u00f0s og f\u00e6\u00f0slu fyrir y\u00f0ar h\u00fas og heimkynni.&#8220; \u00deeir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;L\u00e1t oss a\u00f0eins lifa og finna n\u00e1\u00f0 fyrir \u00fe\u00e9r, vorum herra. V\u00e9r viljum gjarnan vera pharaonis \u00fer\u00e6lar.&#8220; So skikka\u00f0i J\u00f3sef \u00feeim ein l\u00f6g, inn til \u00feessa dags yfir allt Egyptaland, a\u00f0 hver ma\u00f0ur skyldi gefa pharaone \u00feann fimmta hlut. <span class=\"athugasemd\" title=\"L\u00f6gm\u00e1l um fimmtung k\u00f3ngi til handa\">[<\/span> Undanteknum prestanna j\u00f6r\u00f0um, \u00fe\u00e6r komu ekki undir pharaonem. <\/p>\n<p>\tSo var \u00cdsrael b\u00faandi \u00ed Egyptalandi \u00ed landi G\u00f3sen og eigna\u00f0ist \u00fea\u00f0. Og \u00feeir uxu og margfj\u00f6lgu\u00f0ust mj\u00f6g. Og Jakob lif\u00f0i seytj\u00e1n \u00e1r \u00ed Egyptalandi so a\u00f0 hans allur aldur var\u00f0 hundra\u00f0 sj\u00f6 og fj\u00f6rut\u00edi \u00e1r. <span class=\"athugasemd\" title=\"147. \u00e1r.\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tN\u00fa sem n\u00e1lga\u00f0ist andl\u00e1tst\u00ed\u00f0 \u00cdsrael \u00fe\u00e1 kalla\u00f0i hann sinn son J\u00f3sef til s\u00edn og sag\u00f0i til hans: &#8222;Hafi eg fundi\u00f0 n\u00e1\u00f0 fyrir \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 legg \u00fe\u00edna h\u00f6nd undir m\u00ednar lendar og s\u00fdn m\u00e9r k\u00e6rleika og tr\u00fa, so a\u00f0 \u00fe\u00fa jar\u00f0ir mig ekki \u00ed Egyptalandi, heldur vil eg liggja hj\u00e1 m\u00ednum forfe\u00f0rum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Jakob vill jar\u00f0ast hj\u00e1 s\u00ednum fe\u00f0rum\">[<\/span> Og \u00fe\u00fa skalt flytja mig af Egyptalandi og jar\u00f0a mig hj\u00e1 lei\u00f0um \u00feeirra.&#8220; Hann sag\u00f0i: &#8222;Eg vil gj\u00f6ra so sem \u00fe\u00fa hefur sagt.&#8220; En hann sag\u00f0i: &#8222;So sver m\u00e9r \u00fear ei\u00f0 upp\u00e1.&#8220; Og hann s\u00f3r honum. \u00de\u00e1 hneig\u00f0i \u00cdsrael sig \u00ed s\u00e6nginni a\u00f0 h\u00f6f\u00f0alaginu.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00de\u00e1 kom J\u00f3sef og tala\u00f0i vi\u00f0 fara\u00f3 og sag\u00f0i: &#8222;Minn fa\u00f0ir og m\u00ednir br\u00e6\u00f0ur, \u00feeirra kvikf\u00e9 og hj\u00f6r\u00f0, sm\u00e1 og st\u00f3r, og allt \u00fea\u00f0 \u00feeir eiga er komi\u00f0 af Kanaanslandi og sj\u00e1, \u00feeir eru \u00ed landi G\u00f3sen.&#8220; Og hann t\u00f3k fimm af s\u00ednum yngstum br\u00e6\u00f0rum og skikka\u00f0i \u00fe\u00e1 inn fyrir pharaonem. \u00de\u00e1 tala\u00f0i fara\u00f3 til hans br\u00e6\u00f0ra: &#8222;Hvert er y\u00f0art verklag?&#8220; \u00deeir sv\u00f6ru\u00f0u: &#8222;\u00de\u00ednir \u00fe\u00e9narar eru fj\u00e1rhir\u00f0arar, v\u00e9r og vorir forfe\u00f0ur.&#8220; Og enn s\u00f6g\u00f0u \u00feeir til fara\u00f3: &#8222;V\u00e9r erum komnir til a\u00f0 b\u00faa hj\u00e1 y\u00f0ur h\u00e9r \u00ed landi. \u00dev\u00ed \u00fe\u00ednir \u00fe\u00e9narar hafa \u00f6ngva f\u00e6\u00f0u til sinnar hjar\u00f0ar, so st\u00f3rlega \u00ferengir <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-47-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2739","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2739","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2739"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2739\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2739"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}