{"id":2738,"date":"2017-12-18T18:31:36","date_gmt":"2017-12-18T18:31:36","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-46-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:36","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:36","slug":"fyrsta-mosebok-46-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-46-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrsta M\u00f3seb\u00f3k 46. kafli"},"content":{"rendered":"<p>\u00cdsrael f\u00f3r me\u00f0 \u00f6llu \u00fev\u00ed hann \u00e1tti. <span class=\"athugasemd\" title=\"Jakob fer \u00ed Egyptaland\">[<\/span> Og sem hann kom til Ber-Saba offra\u00f0i hann s\u00edns f\u00f6\u00f0urs \u00cdsraels Gu\u00f0i f\u00f3rnir. Og Gu\u00f0 sag\u00f0i til hans um n\u00f3tt \u00ed einni s\u00fdn: &#8222;Jakob, Jakob.&#8220; Hann svara\u00f0i: &#8222;H\u00e9r er eg.&#8220; Og hann sag\u00f0i: &#8222;Eg er Gu\u00f0, \u00fe\u00edns f\u00f6\u00f0urs Gu\u00f0. \u00d3ttast \u00fe\u00fa ekki a\u00f0 fara \u00ed Egyptaland \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fear vil eg gj\u00f6ra \u00feig a\u00f0 einni mikillri \u00fej\u00f3\u00f0. Eg vil fara ofan me\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00ed Egyptaland og eg vil lei\u00f0a \u00feig upp aftur hinga\u00f0. Og J\u00f3sef skal leggja s\u00ednar hendur yfir \u00fe\u00edn augu.&#8220; Jakob t\u00f3k sig upp fr\u00e1 Ber-Saba og Israelis synir fluttu \u00feeirra f\u00f6\u00f0ur Jakob me\u00f0 s\u00ednum sonum og kvinnum \u00ed v\u00f6gnum \u00feeim sem fara\u00f3 haf\u00f0i sent a\u00f0 flytja \u00fe\u00e1 \u00e1. Og \u00feeir t\u00f3ku sitt kvikf\u00e9 og alla \u00fe\u00e1 fj\u00e1rhluti sem \u00feeim haf\u00f0i aflast \u00ed Kanaanslandi og komu \u00ed Egyptaland, Jakob og allt hans afkv\u00e6mi me\u00f0 honum, hans synir og hans sonasynir me\u00f0 honum, hans d\u00e6tur og hans d\u00e6trab\u00f6rn me\u00f0 honum og allt hans s\u00e6\u00f0i flutti hann me\u00f0 s\u00e9r til Egyptalands. <\/p>\n<p>\t\u00deessi eru \u00cdsraels sona n\u00f6fn sem komu \u00ed Egyptaland: Jakob og hans synir: R\u00faben, Jakobs frumgetinn son. <span class=\"athugasemd\" title=\"Jakobs kynkv\u00edsl Exod. I.6 Num. 26 I Para. 4\">[<\/span> R\u00fabens synir: Hanok, Pall\u00fa, Hesron og Karm\u00ed. S\u00edmeons synir: Jem\u00fael, Jam\u00edn, \u00d3had, Jak\u00edn, J\u00f3har og S\u00e1l, sonur \u00feeirrar kanversku kvinnu. Lev\u00ed synir: Gerson, Gahat og Merar\u00ed. J\u00fada synir: Ger, \u00d3nam, Sela, Peres og Sera. En Ger og \u00d3nan dey\u00f0u \u00ed landi Kanaan. En Peres synir: Hesron og Ham\u00fal. \u00cdsaskar synir: T\u00f3la, P\u00faa, Job og Simron. Seb\u00falons synir: Sered, Elom, Jahleel. \u00deessir eru synir komnir af Lea sem h\u00fan f\u00e6ddi Jakob \u00ed Mesopotamia, me\u00f0 sinni d\u00f3ttir D\u00edna, \u00feessar allar s\u00e1lir voru a\u00f0 t\u00f6lu \u00ferj\u00e1tigu og \u00fer\u00edr me\u00f0 sonum og d\u00e6trum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Synir Jakobs komnir af Lea xxxiij\">[<\/span><\/p>\n<p>\tSynir Ga\u00f0 eru \u00feessir: Sif\u00edon, Hagg\u00ed, S\u00fan\u00ed, Esbon, Er\u00ed, Ar\u00f3d\u00ed og Arel\u00ed. Synir Asser: Jamna, Jes\u00faa, Jes\u00fa\u00ed, Br\u00eda og Sera \u00feeirra systir. En synir Br\u00eda: Heber og Malk\u00edel. \u00deessir eru \u00feeir synir af Silpa sem Laban gaf sinni d\u00f3ttur Lea og h\u00fan f\u00e6ddi Jakob \u00feessar sext\u00e1n s\u00e1lir. <span class=\"athugasemd\" title=\"Synir komnir af Silpa xvi\">[<\/span><\/p>\n<p>\tSynir Rakel, Jakobs kvinnu: J\u00f3sef og Ben-Jam\u00edn, og J\u00f3sef gat \u00ed Egyptalandi Manasse og Efra\u00edm, sem Asnat P\u00f3t\u00edfersd\u00f3ttir, kennimannsins \u00ed \u00d3n, f\u00e6ddi honum. Ben-Jam\u00edns synir: Bela, Bekel, Asbel, Gera, Naaman, Eh\u00ed, R\u00f3s, N\u00fap\u00edm, H\u00fap\u00edm og Ard. \u00deessir eru \u00feeir synir af Rakel sem h\u00fan gat Jakob, allir saman fj\u00f3rt\u00e1n s\u00e1lir. <span class=\"athugasemd\" title=\"Synir komnir af Rakel xiiij\">[<\/span><\/p>\n<p>\tSynir Dan: H\u00fas\u00edm. Synir Neftal\u00ed: Jasheel, G\u00fan\u00ed, Jeser og Sillem. \u00deessir eru synir af B\u00edla sem Laban gaf sinni d\u00f3ttur Rakel, og h\u00fan f\u00e6ddi Jakob \u00feessar sj\u00f6 s\u00e1lir. <span class=\"athugasemd\" title=\"Synir B\u00edla vij\">[<\/span> Allar s\u00e1lir sem komu me\u00f0 Jakob \u00ed Egyptaland og komnar voru af hans lendum (a\u00f0 undanteknum hans sonarkonum) eru allarsaman sex og sext\u00edgi s\u00e1lir. En J\u00f3sefs synir sem f\u00e6ddir eru \u00ed Egyptalandi eru tv\u00e6r s\u00e1lir. So a\u00f0 allar s\u00e1lir sem komu \u00ed Egyptaland af Jakobs h\u00fasi voru sj\u00f6tigu.<\/p>\n<p>\tJ\u00f3sef sag\u00f0i til sinna br\u00e6\u00f0ra  og til s\u00edns f\u00f6\u00f0urs h\u00fass: &#8222;Eg vil fara upp til fundar vi\u00f0 fara\u00f3, kunngj\u00f6ra honum og segja til hans: &#8222;M\u00ednir br\u00e6\u00f0ur og mitt f\u00f6\u00f0urs h\u00fas er komi\u00f0 til m\u00edn af landi Kanaan og eru fj\u00e1rhir\u00f0ar. \u00dev\u00ed \u00feeir eru \u00feeir menn sem umgengist hafa me\u00f0 f\u00e9. \u00deeirra kvikf\u00e9, sm\u00e1tt og st\u00f3rt, og allt \u00fea\u00f0 \u00feeir eiga hafa \u00feeir haft hinga\u00f0 me\u00f0 s\u00e9r. Og \u00fe\u00e1 fara\u00f3 kallar n\u00fa y\u00f0ur fyrir sig og segir: Hva\u00f0 er y\u00f0art verklag? \u00de\u00e1 skulu \u00fe\u00e9r segja: \u00de\u00ednir \u00fe\u00e9narar eru \u00feeir menn sem umgangast me\u00f0 kvikf\u00e9 fr\u00e1 vorum ungd\u00f3mi allt til \u00feessa, b\u00e6\u00f0i v\u00e9r og vorir forfe\u00f0ur, so \u00fe\u00e9r megi\u00f0 b\u00faa \u00ed landi G\u00f3sen. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeir egypsku hafa andstygg\u00f0 \u00e1 \u00f6llum fj\u00e1rhir\u00f0urum.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cdsrael f\u00f3r me\u00f0 \u00f6llu \u00fev\u00ed hann \u00e1tti. [ Og sem hann kom til Ber-Saba offra\u00f0i hann s\u00edns f\u00f6\u00f0urs \u00cdsraels Gu\u00f0i f\u00f3rnir. Og Gu\u00f0 sag\u00f0i til hans um n\u00f3tt \u00ed einni s\u00fdn: &#8222;Jakob, Jakob.&#8220; Hann svara\u00f0i: &#8222;H\u00e9r er eg.&#8220; Og hann sag\u00f0i: &#8222;Eg er Gu\u00f0, \u00fe\u00edns f\u00f6\u00f0urs Gu\u00f0. \u00d3ttast \u00fe\u00fa ekki a\u00f0 fara \u00ed Egyptaland \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fear vil eg gj\u00f6ra \u00feig a\u00f0 einni mikillri \u00fej\u00f3\u00f0. Eg vil fara ofan me\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00ed Egyptaland og eg vil lei\u00f0a \u00feig upp aftur hinga\u00f0. Og J\u00f3sef skal leggja s\u00ednar hendur yfir \u00fe\u00edn augu.&#8220; Jakob t\u00f3k sig upp fr\u00e1 Ber-Saba og Israelis synir fluttu <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-46-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2738","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2738","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2738"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2738\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2738"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}