{"id":2727,"date":"2017-12-18T18:31:33","date_gmt":"2017-12-18T18:31:33","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-35-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:33","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:33","slug":"fyrsta-mosebok-35-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-35-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrsta M\u00f3seb\u00f3k 35. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Og Gu\u00f0 sag\u00f0i til Jakob: &#8222;Tak \u00feig upp og far til Betel og b\u00fa \u00fe\u00fa \u00fear og bygg \u00fe\u00fa \u00feeim Gu\u00f0i \u00fear eitt altari sem vitra\u00f0ist \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 \u00fe\u00fa fl\u00fd\u00f0ir fyrir \u00fe\u00ednum br\u00f3\u00f0ur Esa\u00fa.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Bet-El Gen. 28\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i Jakob til sinna heimamanna og til allra \u00feeirra sem me\u00f0 honum voru: &#8222;Kasti\u00f0 burt \u00feeim annarlegum gu\u00f0um sem \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 hj\u00e1 y\u00f0ur og hreinsi\u00f0 y\u00f0ur og skipti\u00f0 um y\u00f0ar kl\u00e6\u00f0na\u00f0. T\u00f6kum oss upp og f\u00f6rum \u00ed Betel so eg megi byggja \u00feeim Gu\u00f0i \u00fear eitt altari sem b\u00e6nheyr\u00f0i mig \u00ed minni m\u00f3tgangst\u00ed\u00f0 og hefur veri\u00f0 me\u00f0 m\u00e9r \u00e1 \u00feeim vegi sem eg hefi fari\u00f0.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Jakob uppbyggir eitt altari eftir Gu\u00f0s skipan\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tSo g\u00e1fu \u00feeir honum \u00ed hendur \u00f6ll s\u00edn sk\u00fargo\u00f0 sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u og svo \u00feeirra <span class=\"athugasemd\" title=\"sword Ennisspengur\">[<\/span> eyrnagull. Og hann gr\u00f3f \u00feau ni\u00f0ur undir eina eik sem st\u00f3\u00f0 hj\u00e1 S\u00fdkem. So fer\u00f0u\u00f0ust \u00feeir. En hr\u00e6\u00f0sla kom af Drottni yfir alla \u00fe\u00e1 sta\u00f0i sem \u00fear voru umhverfis svo \u00feeir s\u00f3ttu ekki eftir Jakobs sonum. So komst Jakob og allt \u00fea\u00f0 f\u00f3lk sem var me\u00f0 honum til L\u00fas \u00ed Kanaanslandi sem kallast Betel. Og hann bygg\u00f0i \u00fear eitt altari og kalla\u00f0i \u00feann sama sta\u00f0 El-Bet-El, \u00fev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 birtist honum \u00fear \u00fe\u00e1 hann fl\u00fd\u00f0i fyrir s\u00ednum br\u00f3\u00f0ur. <span class=\"athugasemd\" title=\"El-Bet-El \u00fea\u00f0 er, Gu\u00f0 \u00ed Betel\">[<\/span> \u00de\u00e1 anda\u00f0ist Deb\u00f3ra, f\u00f3stra Rebekku, og var j\u00f6r\u00f0u\u00f0 fyrir ne\u00f0an Betel undir einni eik sem var k\u00f6llu\u00f0 Gr\u00e1teik. <span class=\"athugasemd\" title=\"Deb\u00f3ra andast\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tOg Gu\u00f0 birtist Jakob \u00ed anna\u00f0 sinn s\u00ed\u00f0an hann var kominn af Mesopotamia og blessa\u00f0i hann og sag\u00f0i til hans: &#8222;\u00de\u00fa kallast Jakob. En \u00fe\u00fa skalt ekki h\u00e9r eftir nefnast Jakob heldur skaltu heita \u00cdsrael.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00cdsrael\">[<\/span> Og s\u00ed\u00f0an kalla\u00f0ist hann \u00cdsrael. Og Gu\u00f0 sag\u00f0i til hans: &#8222;Eg er alm\u00e1ttigur Gu\u00f0, vertu \u00e1vaxtasamur og margfalda \u00feig. \u00dej\u00f3\u00f0ir og f\u00f3lksfj\u00f6ldi skal koma af \u00fe\u00e9r og k\u00f3ngar skulu koma af \u00fe\u00ednum lendum. Og \u00fea\u00f0 land sem eg hefi gefi\u00f0 Abraham og \u00cdsak vil eg gefa \u00fe\u00e9r og so \u00fe\u00ednu s\u00e6\u00f0i eftir \u00feig.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Fyrirheit um Kanaansland\">[<\/span> So f\u00f3r Gu\u00f0 upp fr\u00e1 honum \u00ed \u00feeim sta\u00f0 sem hann tala\u00f0i vi\u00f0 hann. Jakob uppreisti \u00fear einn steinst\u00f3lpa \u00ed \u00feeim sta\u00f0 \u00fear Gu\u00f0 tala\u00f0i vi\u00f0 hann og offra\u00f0i drykkjaroffri \u00fear upp \u00e1 og hellti \u00fear yfir vi\u00f0smj\u00f6ri. Og Jakob kalla\u00f0i \u00feann sta\u00f0 \u00fear Gu\u00f0 tala\u00f0i vi\u00f0 hann Bet-El.<\/p>\n<p>\tOg \u00feeir fer\u00f0u\u00f0ust fr\u00e1 Bet-El og sem \u00feeir voru komnir hartn\u00e6rri Efrata \u00fe\u00e1 f\u00e6ddi Rakel og h\u00fan komst harla mj\u00f6g vi\u00f0 \u00ed barnsbur\u00f0inum. Og sem h\u00fan \u00fejaka\u00f0ist meir og meir \u00e1 s\u00e6ngarf\u00f6rinni sag\u00f0i lj\u00f3sm\u00f3\u00f0urin til hennar: &#8222;\u00d3ttast \u00fe\u00fa ekki, \u00fev\u00ed \u00feennan son skaltu og hafa.&#8220; Og sem \u00f6ndin gekk upp af henni og h\u00fan hlaut a\u00f0 deyja \u00fe\u00e1 kalla\u00f0i h\u00fan hann Ben \u00d3n\u00ed, en hans fa\u00f0ir kalla\u00f0i hann Ben Jam\u00edn. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ben \u00d3n\u00ed\">[<\/span> So anda\u00f0ist Rakel og var j\u00f6r\u00f0u\u00f0 \u00e1 veginum til Efrata sem n\u00fa kallast Betlehem. <span class=\"athugasemd\" title=\"Rakel andast Betlehem\">[<\/span> En Jakob setti upp eitt merki yfir hennar lei\u00f0i og \u00fea\u00f0 er merki yfir lei\u00f0i Rakel allt til \u00feessa dags.<\/p>\n<p>\tOg \u00cdsrael fer\u00f0a\u00f0ist \u00fea\u00f0an og setti s\u00edna tjaldb\u00fa\u00f0 \u00e1 hina s\u00ed\u00f0u turnsins Eder. Og \u00fea\u00f0 ske\u00f0i \u00fe\u00e1 a\u00f0 \u00cdsrael bj\u00f3 \u00fear \u00ed landinu, \u00fe\u00e1 gekk R\u00faben til og svaf me\u00f0 B\u00edla s\u00edns f\u00f6\u00f0urs frillu. <span class=\"athugasemd\" title=\"R\u00faben liggur me\u00f0 B\u00edla\">[<\/span> Og \u00fea\u00f0 spur\u00f0i \u00cdsrael.<\/p>\n<p>\tJakob \u00e1tti t\u00f3lf sonu. Synir Lea voru \u00feessir: R\u00faben s\u00e1 frumgetni sonur Jakobs, S\u00edmeon, Lev\u00ed, J\u00fada, \u00cdsaskar og Sab\u00falon. Rakels synir voru J\u00f3sef og Ben-Jam\u00edn. Synir B\u00edla, Rakels amb\u00e1ttar: Dan og Neftal\u00ed. Synir Silpa, Lea amb\u00e1ttar voru \u00feeir Ga\u00f0 og Asser. \u00deessir eru synir Jakobs sem honum voru f\u00e6ddir \u00ed Mesopotamia.<\/p>\n<p>\tOg Jakob kom til s\u00edns f\u00f6\u00f0urs \u00cdsak \u00ed Mamre \u00ed \u00feeim h\u00f6fu\u00f0sta\u00f0 sem kallast Hebron \u00fear sem Abraham og \u00cdsak h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 framandi. Og \u00cdsak var\u00f0 hundra\u00f0 og \u00e1ttatigi \u00e1ra gamall og hann veiktist af elli og anda\u00f0ist og safna\u00f0ist til s\u00edns f\u00f3lks, gamall og saddur af \u00feessu l\u00edfi. <span class=\"athugasemd\" title=\"Jakobs aldur clxxx \u00e1r\">[<\/span> Og hans synir Esa\u00fa og Jakob j\u00f6r\u00f0u\u00f0u hann.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Og Gu\u00f0 sag\u00f0i til Jakob: &#8222;Tak \u00feig upp og far til Betel og b\u00fa \u00fe\u00fa \u00fear og bygg \u00fe\u00fa \u00feeim Gu\u00f0i \u00fear eitt altari sem vitra\u00f0ist \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 \u00fe\u00fa fl\u00fd\u00f0ir fyrir \u00fe\u00ednum br\u00f3\u00f0ur Esa\u00fa.&#8220; [ \u00de\u00e1 sag\u00f0i Jakob til sinna heimamanna og til allra \u00feeirra sem me\u00f0 honum voru: &#8222;Kasti\u00f0 burt \u00feeim annarlegum gu\u00f0um sem \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 hj\u00e1 y\u00f0ur og hreinsi\u00f0 y\u00f0ur og skipti\u00f0 um y\u00f0ar kl\u00e6\u00f0na\u00f0. T\u00f6kum oss upp og f\u00f6rum \u00ed Betel so eg megi byggja \u00feeim Gu\u00f0i \u00fear eitt altari sem b\u00e6nheyr\u00f0i mig \u00ed minni m\u00f3tgangst\u00ed\u00f0 og hefur veri\u00f0 me\u00f0 m\u00e9r \u00e1 \u00feeim vegi sem eg hefi <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-35-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2727","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2727","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2727"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2727\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2727"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}