{"id":2726,"date":"2017-12-18T18:31:33","date_gmt":"2017-12-18T18:31:33","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-34-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:33","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:33","slug":"fyrsta-mosebok-34-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-34-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrsta M\u00f3seb\u00f3k 34. kafli"},"content":{"rendered":"<p>D\u00edna, d\u00f3ttir Lea, hverja h\u00fan f\u00e6ddi Jakob, gekk \u00fat a\u00f0 sj\u00e1 \u00feess h\u00e9ra\u00f0s d\u00e6tur. <span class=\"athugasemd\" title=\"D\u00edna d\u00f3ttir Jakobs ver\u00f0ur legin\">[<\/span> En sem a\u00f0 S\u00edkem, sonur Hemor Hevitei, \u00feess lands h\u00f6f\u00f0ingja, s\u00e1 hana t\u00f3k hann hana me\u00f0 valdi og haf\u00f0i samr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 hana. Og hans hugur hneig\u00f0ist mj\u00f6g til hennar og haf\u00f0i hana harla k\u00e6ra og tala\u00f0i vinsamlega vi\u00f0 hana. Og S\u00edkem sag\u00f0i til s\u00edns f\u00f6\u00f0urs Hemor a\u00f0 hann skyldi bi\u00f0ja hennar honum til handa. <\/p>\n<p>\tSem Jakob fornam a\u00f0 hans d\u00f3ttir D\u00edna var \u00f3s\u00e6md, en hans synir voru \u00e1 akri me\u00f0 s\u00ednar hjar\u00f0ir, \u00fe\u00e1 var Jakob hlj\u00f3\u00f0ur um \u00feetta \u00fear til \u00feeir komu heim. \u00de\u00e1 gekk Hemor, fa\u00f0ir S\u00edkems, \u00fat og fann Jakob og tala\u00f0i vi\u00f0 hann. Og \u00ed \u00fev\u00ed bili komu Jakobs synir af akri og sem \u00feeir heyr\u00f0u hva\u00f0 ske\u00f0 haf\u00f0i stygg\u00f0ust \u00feeir vi\u00f0 \u00fea\u00f0 og ur\u00f0u mj\u00f6g rei\u00f0ir a\u00f0 hann haf\u00f0i frami\u00f0 soddan eitt lj\u00f3tt verk \u00ed \u00cdsrael og \u00f3s\u00e6mt Jakobs d\u00f3ttir, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 var ekki h\u00e6filegt. <\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 tala\u00f0i Hemor vi\u00f0 \u00fe\u00e1 og sag\u00f0i: &#8222;S\u00edkem sonur minn hefur mikla \u00e1st \u00e1 y\u00f0ar d\u00f3ttir. Eg bi\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00e9r gefi\u00f0 honum hana til eiginkonu. Gj\u00f6rum m\u00e6g\u00f0ir vor \u00e1 milli, gifti\u00f0 oss y\u00f0ar d\u00e6tur og taki\u00f0 y\u00f0ur til handa vorar d\u00e6tur og b\u00fai\u00f0 hj\u00e1 oss. Landi\u00f0 skal vera opi\u00f0 fyrir y\u00f0ur. Veri\u00f0 h\u00e9r, kaupi\u00f0 og selji\u00f0 og eignist landi\u00f0.&#8220; Og S\u00edkem sag\u00f0i til hennar f\u00f6\u00f0ur og hennar br\u00e6\u00f0ra: &#8222;L\u00e1ti\u00f0 mig finna n\u00e1\u00f0 hj\u00e1 y\u00f0ur, eg vil gefa y\u00f0ur hva\u00f0 \u00fe\u00e9r upp \u00e1 setji\u00f0, \u00e6ski\u00f0 a\u00f0 eins fr\u00edlega af m\u00e9r b\u00e6\u00f0i tilgjafar og skenkinga, eg vil gefa y\u00f0ur hva\u00f0 \u00fe\u00e9r hafa vilji\u00f0, gefi\u00f0 a\u00f0eins st\u00falku \u00feessa \u00ed mitt vald m\u00e9r til eiginkvinnu.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sv\u00f6ru\u00f0u Jakobs synir S\u00edkem og hans f\u00f6\u00f0ur Hemor me\u00f0 undirhyggju s\u00f6kum \u00feess a\u00f0 \u00feeirra systir D\u00edna var \u00f3s\u00e6md og s\u00f6g\u00f0u til \u00feeirra: &#8222;Eigi megum v\u00e9r \u00fea\u00f0 gj\u00f6ra a\u00f0 gifta nokkrum manni vora systir \u00feeim sem ekki er umskorinn, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er oss vanvir\u00f0a. En \u00fe\u00f3 viljum v\u00e9r \u00fe\u00e1 vera y\u00f0ur til vilja ef \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 ver\u00f0a oss l\u00edkir og l\u00e1ta umskera allt kallkyns y\u00f0ar \u00e1 millum, \u00fe\u00e1 viljum v\u00e9r gifta y\u00f0ur vorar d\u00e6tur en taka oss til handa y\u00f0ar d\u00e6tur og b\u00faa hj\u00e1 y\u00f0ur og v\u00e9r viljum vera so allir einn l\u00fd\u00f0ur. En vilji \u00fe\u00e9r ekki viljuglega l\u00e1ta umskera y\u00f0ur \u00fe\u00e1 viljum v\u00e9r taka vora d\u00f3ttir og fara \u00ed burtu.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00deessi r\u00e6\u00f0a l\u00edka\u00f0i Hemor og hans syni vel. Og sveinnin taf\u00f0i ekki a\u00f0 gj\u00f6ra \u00fea\u00f0 \u00fev\u00ed hann haf\u00f0i st\u00f3ra \u00e1st \u00e1 d\u00f3ttur Jakobs. En hann var \u00e1g\u00e6tastur allra \u00ed s\u00edns f\u00f6\u00f0urs h\u00fasi.<\/p>\n<p>\tSo komu \u00feeir n\u00fa Hemor og hans sonur S\u00edkem til borgarhli\u00f0sins og t\u00f6lu\u00f0u vi\u00f0 borgarmenn s\u00edna og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;\u00deessir menn eru fri\u00f0samlegir hj\u00e1 oss og vilja b\u00faa \u00ed \u00feessu landi, kaupa og selja, en \u00fe\u00e9r viti\u00f0 a\u00f0 landi\u00f0 er n\u00f3gu v\u00edtt fyrir \u00fe\u00e1. V\u00e9r viljum taka \u00feeirra d\u00e6tur oss til eiginkvenna og gifta \u00feeim vorar d\u00e6tur. En \u00ed \u00feann m\u00e1ta vilja \u00feeir vera oss til vilja a\u00f0 b\u00faa hj\u00e1 oss og vera eitt f\u00f3lk me\u00f0 oss ef v\u00e9r viljum umskera allt kallkyns \u00e1 me\u00f0al vor l\u00edka so sem \u00feeir eru umskornir. \u00deeirra f\u00e9 og fj\u00e1rhlutir og allt \u00fea\u00f0 \u00feeir hafa ver\u00f0ur vort ef v\u00e6r einskostar viljum gj\u00f6ra \u00feeim \u00feetta til vilja so a\u00f0 \u00feeir b\u00fai hj\u00e1 oss.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg \u00feeir hl\u00fdddu Hemor og S\u00edkem hans syni, allir \u00feeir sem gengu \u00fat og inn um \u00feess sta\u00f0ar borgarhli\u00f0. Og \u00feeir umsk\u00e1ru allt kallkyns sem gekk \u00fat og inn um \u00feess sta\u00f0ar borgarhli\u00f0.<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00feeim \u00feri\u00f0ja degi \u00fe\u00e1 er s\u00e1r \u00feeirra voru sollin \u00fe\u00e1 t\u00f3ku \u00feeir tveir synir Jakobs, S\u00edmeon og Lev\u00ed, br\u00e6\u00f0ur D\u00edna, hvor sitt sver\u00f0 og gengu djarflega \u00ed sta\u00f0inn og dr\u00e1pu alla kallmenn. Og \u00feeir dr\u00e1pu einnin Hemor og hans son S\u00edkem me\u00f0 sver\u00f0seggjum og h\u00f6f\u00f0u burt Dinam s\u00edna systir af h\u00fasi S\u00edkem og gengu \u00ed burt. <span class=\"athugasemd\" title=\"Grimmdar hreystiverk \u00feeirra S\u00edmeon og Lev\u00ed\">[<\/span><\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 komu Jakobs synir yfir \u00fe\u00e1 sem slegnir voru og r\u00e6ntu borgina, s\u00f6kum \u00feess a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u \u00f3s\u00e6mt \u00feeirra systur. \u00deeir t\u00f3ku \u00fear naut \u00feeirra og sau\u00f0i, asna og allt hva\u00f0 \u00fear var \u00ed borginni og \u00e1 \u00f6krunum og allt \u00feeirra g\u00f3ss og \u00f6ll b\u00f6rn og kvinnur t\u00f3ku \u00feeir a\u00f0 herfangi og r\u00e6ntu \u00f6llu \u00fev\u00ed sem var \u00ed \u00feeirra h\u00fasum.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i Jakob til S\u00edmeon og Lev\u00ed: &#8222;\u00dei\u00f0 hafi\u00f0 stofna\u00f0 m\u00e9r til \u00f3lukku og gj\u00f6rt mig <span class=\"athugasemd\" title=\"sword \u00f3vins\u00e6lan\">[<\/span> illa lyktandi vi\u00f0 \u00feessa lands innbyggjara sem eru Kananei og Peresei. V\u00e9r erum f\u00e1ir, n\u00e6r sem \u00feeir samansafnast \u00ed m\u00f3ti m\u00e9r \u00fe\u00e1 sl\u00e1 \u00feeir mig \u00ed hel so eg ver\u00f0 afm\u00e1\u00f0ur og mitt h\u00fas.&#8220; \u00deeir sv\u00f6ru\u00f0u: &#8222;Skyldu \u00feeir hafa \u00fe\u00e1 breytt vi\u00f0 vora systur so sem vi\u00f0 a\u00f0ra portkonu?&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>D\u00edna, d\u00f3ttir Lea, hverja h\u00fan f\u00e6ddi Jakob, gekk \u00fat a\u00f0 sj\u00e1 \u00feess h\u00e9ra\u00f0s d\u00e6tur. [ En sem a\u00f0 S\u00edkem, sonur Hemor Hevitei, \u00feess lands h\u00f6f\u00f0ingja, s\u00e1 hana t\u00f3k hann hana me\u00f0 valdi og haf\u00f0i samr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 hana. Og hans hugur hneig\u00f0ist mj\u00f6g til hennar og haf\u00f0i hana harla k\u00e6ra og tala\u00f0i vinsamlega vi\u00f0 hana. Og S\u00edkem sag\u00f0i til s\u00edns f\u00f6\u00f0urs Hemor a\u00f0 hann skyldi bi\u00f0ja hennar honum til handa. Sem Jakob fornam a\u00f0 hans d\u00f3ttir D\u00edna var \u00f3s\u00e6md, en hans synir voru \u00e1 akri me\u00f0 s\u00ednar hjar\u00f0ir, \u00fe\u00e1 var Jakob hlj\u00f3\u00f0ur um \u00feetta \u00fear til \u00feeir komu heim. \u00de\u00e1 gekk <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-34-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2726","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2726","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2726"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2726\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2726"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}