{"id":2724,"date":"2017-12-18T18:31:33","date_gmt":"2017-12-18T18:31:33","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-32-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:33","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:33","slug":"fyrsta-mosebok-32-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-32-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrsta M\u00f3seb\u00f3k 32. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Jakob sendi menn undan fyrir s\u00e9r til m\u00f3ts vi\u00f0 Esa\u00fa br\u00f3\u00f0ur sinn \u00ed landi\u00f0 Se\u00edr \u00ed \u00fev\u00ed h\u00e9ra\u00f0i Ed\u00f3m. Og hann bau\u00f0 \u00feeim og sag\u00f0i: &#8222;Segi\u00f0 so m\u00ednum herra Esa\u00fa: \u00deinn \u00fe\u00e9nari Jakob l\u00e6tur segja \u00fe\u00e9r: Eg hefi til \u00feessa dags veri\u00f0 utanlands me\u00f0 Laban. Eg hefi n\u00fa uxa og asna, sau\u00f0i, \u00fer\u00e6la og amb\u00e1ttir, og sendi eg n\u00fa til fundar vi\u00f0 \u00feig a\u00f0 eg vildi kunngj\u00f6ra \u00feetta m\u00ednum herra so eg m\u00e6tta finna n\u00e1\u00f0 fyrir \u00fe\u00ednu augliti.&#8220;<\/p>\n<p>\tSendimenn komu aftur til Jakobs og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;V\u00e9r komum til \u00fe\u00edns br\u00f3\u00f0ur Esa\u00fa, hann fer \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00e9r me\u00f0 fj\u00f6gur hundru\u00f0 manns.&#8220; \u00de\u00e1 \u00f3tta\u00f0ist Jakob harla mj\u00f6g og var\u00f0 mj\u00f6g hryggur. Og hann skipti \u00ed tvo sta\u00f0i f\u00f6runeyti s\u00ednu og nautum og sau\u00f0um og \u00falf\u00f6ldum og sag\u00f0i: &#8222;Ef Esa\u00fa kemur til eins flokksins og drepur hann \u00fe\u00e1 m\u00e1 s\u00e1 annar flokkurinn komast undan.&#8220; Og enn sag\u00f0i Jakob:<\/p>\n<p>\t&#8222;Drottinn m\u00edns f\u00f6\u00f0urs Abrahams Gu\u00f0 og m\u00edns f\u00f6\u00f0urs \u00cdsaks Gu\u00f0, \u00fe\u00fa sem hefur sagt til m\u00edn: Far aftur \u00ed \u00feitt f\u00f3sturland og til \u00feinnar \u00e6ttar. <span class=\"athugasemd\" title=\"Jakob bi\u00f0ur til Gu\u00f0s \u00ed sinni ney\u00f0\">[<\/span> Eg vil gj\u00f6ra \u00fe\u00e9r gott.<\/p>\n<p>\tMinni er eg allri \u00feeirri miskunn og \u00f6llum \u00feeim sannleika sem \u00fe\u00fa hefur veitt \u00fe\u00ednum \u00fe\u00e9nara (\u00fev\u00ed eg haf\u00f0a ekki meir en \u00feennan staf \u00fe\u00e1 eg f\u00f3r yfir um \u00feessa J\u00f3rdan, en n\u00fa kem eg aftur me\u00f0 tvenna flokka). <span class=\"athugasemd\" title=\"Eftird\u00e6mi einnrar r\u00e9ttrar tr\u00faar\">[<\/span> Frelsa mig fr\u00e1 m\u00edns br\u00f3\u00f0urs hendi, fr\u00e1 hendi Esa\u00fa, \u00fev\u00ed eg hr\u00e6\u00f0unst fyrir honum a\u00f0 hann muni koma og sl\u00e1 mig, m\u00e6\u00f0urnar og so b\u00f6rnin. \u00de\u00fa hefur sagt: Eg vil veita \u00fe\u00e9r velgj\u00f6rninga og gj\u00f6ra \u00feitt s\u00e6\u00f0i so sem sj\u00f3arsand hver a\u00f0 ekki ver\u00f0ur talinn fyrir fj\u00f6lda sakir.&#8220;<\/p>\n<p>\tJakob var \u00fear um n\u00f3ttina og t\u00f3k af \u00fev\u00ed sem hann haf\u00f0i hj\u00e1 s\u00e9r g\u00e1fur til handa s\u00ednum br\u00f3\u00f0ur Esa\u00fa, sem var tv\u00f6 hundru\u00f0 geitur, tuttugu kjarnhafrar, tv\u00f6 hundru\u00f0 \u00e1sau\u00f0ar, tuttugu hr\u00fatar og \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00falfaldar me\u00f0 fylum, fj\u00f6rut\u00edgi k\u00fdr og t\u00edu tarfar, tuttugu \u00f6snur me\u00f0 t\u00edu fylum. Og hann f\u00e9kk \u00feetta \u00ed hendur s\u00ednum \u00fe\u00e9nurum, j\u00e1 hverja hj\u00f6r\u00f0 s\u00e9r \u00ed lagi og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Fari\u00f0 undan m\u00e9r og l\u00e1ti\u00f0 vera bil \u00ed millum hjar\u00f0anna.&#8220; Og hann bau\u00f0 \u00feeim fyrsta og sag\u00f0i: &#8222;\u00deegar a\u00f0 minn br\u00f3\u00f0ir Esa\u00fa m\u00e6tir \u00fe\u00e9r og spyr: Hverjum heyrir \u00fe\u00fa til? Og hvert vilt \u00fe\u00fa fara? E\u00f0a hver \u00e1 \u00feetta sem \u00fe\u00fa rekur undan \u00fe\u00e9r? \u00de\u00e1 skalt \u00fe\u00fa segja: \u00deetta heyrir til \u00fe\u00ednum \u00fe\u00e9nara Jakob og hann sendir s\u00ednum herra Esa\u00fa \u00feetta til einnrar g\u00e1fu og hann kemur h\u00e9r sj\u00e1lfur eftir oss.&#8220; L\u00edka so skipa\u00f0i hann hinum \u00f6\u00f0rum og so \u00feeim \u00feri\u00f0ja og so \u00f6llum \u00feeim sem fylgdu hj\u00f6r\u00f0unni og sag\u00f0i: &#8222;\u00de\u00e9r skulu\u00f0 segja til Esa\u00fa \u00fe\u00e1 \u00fe\u00e9r m\u00e6ti\u00f0 honum so sem eg hefi bo\u00f0i\u00f0 y\u00f0ur. Segi\u00f0 og einnin so: Sj\u00e1, \u00feinn \u00fe\u00e9nari Jakob fer h\u00e9r eftir oss.&#8220; \u00dev\u00ed hann \u00feenkti: &#8222;Eg vil bl\u00ed\u00f0ka hans auglit me\u00f0 \u00feessum g\u00e1fum sem fara undan m\u00e9r, \u00fear eftir vil eg sj\u00e1 hann, ske m\u00e1 a\u00f0 hann taki \u00ed m\u00f3ti m\u00e9r bl\u00ed\u00f0lega.&#8220;<\/p>\n<p>\tSo f\u00f3ru g\u00e1furnar undan honum. En hann var \u00fe\u00e1 s\u00f6mu n\u00f3tt hj\u00e1 herb\u00fa\u00f0unum. Og hann st\u00f3\u00f0 upp um n\u00f3ttina og t\u00f3k b\u00e1\u00f0ar s\u00ednar eiginkonur og \u00fe\u00e6r tv\u00e6r amb\u00e1ttir og s\u00edna ellefu sonu og f\u00f3r yfir um va\u00f0i\u00f0 Jabok. Og \u00feegar yfir um voru komnir allir fj\u00e1rhlutir Jakobs var\u00f0 hann eftir alleina.<\/p>\n<p>\tOg ma\u00f0ur nokkur <span class=\"athugasemd\" title=\"sword gl\u00edmdi\">[<\/span> f\u00e9kkst vi\u00f0 hann allt til \u00feess a\u00f0 dagur var. Og sem hann s\u00e1 a\u00f0 hann gat ekki yfirunni\u00f0 hann t\u00f3k hann \u00e1 aflsinum hans l\u00e6rs og strax hr\u00f6rnu\u00f0u aflsinar \u00ed l\u00e6ri Jakobs \u00ed \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 hann f\u00e9kkst vi\u00f0 hann. Og hann sag\u00f0i: &#8222;L\u00e1t mig lausan \u00fev\u00ed n\u00fa rennur upp dagsbr\u00fan.&#8220; Hann svara\u00f0i: &#8222;Ekki mun eg l\u00e1ta \u00feig lausan nema \u00fe\u00fa blessir mig.&#8220; Hann sag\u00f0i: &#8222;Hva\u00f0 heitir \u00fe\u00fa?&#8220; Hann svara\u00f0i: &#8222;Jakob.&#8220; Hann sag\u00f0i: &#8222;Eigi skaltu lengur kallast Jakob heldur <span class=\"athugasemd\" title=\"a (\u00cdsrael) \u00fe\u00fd\u00f0ist H\u00f6f\u00f0ingi e\u00f0ur Yfirvinnari Gu\u00f0s\">[<\/span> \u00cdsrael. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa varst styrkur \u00ed gegn Gu\u00f0i og manni og f\u00e9kkst sigur.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg Jakob spur\u00f0i hann a\u00f0 og sag\u00f0i: &#8222;Seg \u00fe\u00fa m\u00e9r, hva\u00f0 heitir \u00fe\u00fa?&#8220; Hann svara\u00f0i: &#8222;\u00dev\u00ed spyr \u00fe\u00fa eftir m\u00ednu heiti?&#8220; Og hann blessa\u00f0i hann \u00ed \u00feeim sama sta\u00f0. Og Jakob kalla\u00f0i \u00feann sta\u00f0 <span class=\"athugasemd\" title=\"b (Pn\u00edel) merkir Gu\u00f0s auglit e\u00f0ur vi\u00f0urkenning\">[<\/span> Pn\u00edel: &#8222;\u00dev\u00ed a\u00f0 eg hefi s\u00e9\u00f0 Gu\u00f0 fr\u00e1 andliti til andlits og m\u00edn \u00f6nd er heil.&#8220; Og er hann kom yfir um fr\u00e1 Pn\u00edel \u00fe\u00e1 rann s\u00f3l upp. Og hann var haltur \u00ed l\u00e6rinu. \u00dear fyrir eta ekki \u00cdsraels synir aflsinar (\u00far kvikindum) allt til \u00feessa dags, \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 hr\u00f6rnu\u00f0u aflsinar \u00ed l\u00e6ri Jakobs.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Jakob sendi menn undan fyrir s\u00e9r til m\u00f3ts vi\u00f0 Esa\u00fa br\u00f3\u00f0ur sinn \u00ed landi\u00f0 Se\u00edr \u00ed \u00fev\u00ed h\u00e9ra\u00f0i Ed\u00f3m. Og hann bau\u00f0 \u00feeim og sag\u00f0i: &#8222;Segi\u00f0 so m\u00ednum herra Esa\u00fa: \u00deinn \u00fe\u00e9nari Jakob l\u00e6tur segja \u00fe\u00e9r: Eg hefi til \u00feessa dags veri\u00f0 utanlands me\u00f0 Laban. Eg hefi n\u00fa uxa og asna, sau\u00f0i, \u00fer\u00e6la og amb\u00e1ttir, og sendi eg n\u00fa til fundar vi\u00f0 \u00feig a\u00f0 eg vildi kunngj\u00f6ra \u00feetta m\u00ednum herra so eg m\u00e6tta finna n\u00e1\u00f0 fyrir \u00fe\u00ednu augliti.&#8220; Sendimenn komu aftur til Jakobs og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;V\u00e9r komum til \u00fe\u00edns br\u00f3\u00f0ur Esa\u00fa, hann fer \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00e9r me\u00f0 fj\u00f6gur hundru\u00f0 manns.&#8220; <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-32-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2724","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2724","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2724"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2724\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2724"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}