{"id":2722,"date":"2017-12-18T18:31:33","date_gmt":"2017-12-18T18:31:33","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-30-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:33","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:33","slug":"fyrsta-mosebok-30-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-30-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrsta M\u00f3seb\u00f3k 30. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Sem a\u00f0 Rakel s\u00e1 a\u00f0 h\u00fan \u00e1tti ekki b\u00f6rn vi\u00f0 Jakob \u00fe\u00e1 \u00f6funda\u00f0i h\u00fan s\u00edna systur og sag\u00f0i til Jakobs: &#8222;Gef \u00fe\u00fa m\u00e9r b\u00f6rn ella mun eg deyja.&#8220; Um \u00feetta var\u00f0 Jakob mj\u00f6g rei\u00f0ur vi\u00f0 Rakel og sag\u00f0i: &#8222;Er eg \u00fe\u00e1 Gu\u00f0? S\u00e1 a\u00f0 ekki vill gefa \u00fe\u00e9r \u00e1v\u00f6xt \u00fe\u00edns kvi\u00f0ar?&#8220; \u00de\u00e1 sag\u00f0i h\u00fan: &#8222;Sj\u00e1, \u00fear er m\u00edn amb\u00e1tt B\u00edla, leggstu me\u00f0 henni so h\u00fan megi f\u00e6\u00f0a \u00e1 mitt skaut svo eg megi ver\u00f0a uppbygg\u00f0 af henni.&#8220; Og h\u00fan gaf honum s\u00edna amb\u00e1tt B\u00edla til kvinnu. <span class=\"athugasemd\" title=\"Rakel gefur Jakob s\u00edna amb\u00e1tt til kvinnu\">[<\/span><\/p>\n<p>\tOg Jakob lag\u00f0ist me\u00f0 henni og h\u00fan var\u00f0 \u00f3l\u00e9tt og f\u00e6ddi Jakob einn son. \u00de\u00e1 sag\u00f0i Rakel: &#8222;Drottinn hefur d\u00e6mt m\u00edna s\u00f6k og heyrt m\u00edna raust og gefi\u00f0 m\u00e9r einn son&#8220; og \u00fev\u00ed kalla\u00f0i h\u00fan hann Dan. <span class=\"athugasemd\" title=\"Dan kallast D\u00f3mur\">[<\/span> \u00cd anna\u00f0 sinn var\u00f0 B\u00edla Rakels amb\u00e1tt \u00f3l\u00e9tt og f\u00e6ddi Jakob annan son. \u00de\u00e1 sag\u00f0i Rakel: &#8222;Gu\u00f0 hefur n\u00fa skipt um me\u00f0 m\u00e9r og minni systur a\u00f0 eg geng n\u00fa yfir hana.&#8220; Og kalla\u00f0i h\u00fan hann Neftalim. <span class=\"athugasemd\" title=\"Neftal\u00ed kallast umbreytt, umskipt\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tSem Lea s\u00e1 n\u00fa a\u00f0 h\u00fan l\u00e9t af a\u00f0 eiga b\u00f6rn \u00fe\u00e1 t\u00f3k h\u00fan s\u00edna amb\u00e1tt Silpa og gaf hana Jakob til eiginkvinnu. So f\u00e6ddi Silpa Lea amb\u00e1tt Jakob einn son. \u00de\u00e1 sag\u00f0i Lea: &#8222;Tilrei\u00f0 \u00feig&#8220; og kalla\u00f0i hann Ga\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ga\u00f0 kallast Vopnab\u00fana\u00f0ur\">[<\/span> Og enn f\u00e6ddi Silpa amb\u00e1tt Lea Jakobi einn annan son. \u00de\u00e1 sag\u00f0i Lea: &#8222;S\u00e6l em eg, \u00fev\u00ed <span class=\"athugasemd\" title=\"sword Kvinnurnar\">[<\/span> d\u00e6turnar skulu pr\u00edsa mig s\u00e6la vera.&#8220; Og h\u00fan kalla\u00f0i hann Asser. <span class=\"athugasemd\" title=\"Asser kallast S\u00e6ll\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tOg R\u00faben gekk \u00fat \u00feanga\u00f0 sem menn voru a\u00f0 yrkja hveiti og hann fann d\u00fada\u00edm \u00e1 akrinum. <span class=\"athugasemd\" title=\"(D\u00fada\u00edm) Liljugras e\u00f0ur ber, \u00f3kennd \u00ed nor\u00f0url\u00f6ndum\">[<\/span> \u00dea\u00f0 bar hann heim til sinnar m\u00f3\u00f0ur Lea. \u00de\u00e1 sag\u00f0i Rakel til Lea: &#8222;Gef m\u00e9r nokku\u00f0 af d\u00fada\u00edm \u00fe\u00edns sonar.&#8220; H\u00fan svara\u00f0i: &#8222;\u00dea\u00f0 er \u00fe\u00e9r ekki n\u00f3g a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur teki\u00f0 minn mann fr\u00e1 m\u00e9r og n\u00fa viltu taka m\u00edns sonar d\u00fada\u00edm?&#8220; Rakel svara\u00f0i: &#8222;N\u00fa vel, l\u00e1ttu hann sofa hj\u00e1 \u00fe\u00e9r \u00ed n\u00f3tt fyrir d\u00fada\u00edm \u00fe\u00edns sonar.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg sem Jakob kom heim a\u00f0 kveldi af akri \u00fe\u00e1 gekk Lea \u00fat \u00ed m\u00f3t honum og sag\u00f0i: &#8222;\u00de\u00fa skalt sofa hj\u00e1 m\u00e9r \u00ed n\u00f3tt \u00fev\u00ed a\u00f0 eg hefi keypt \u00feig fyrir m\u00edns sonar d\u00fada\u00edm.&#8220; Og svo svaf hann hj\u00e1 henni \u00fe\u00e1 n\u00f3tt og Gu\u00f0 b\u00e6nheyr\u00f0i Leam. Og h\u00fan var\u00f0 \u00feungu\u00f0 og f\u00e6ddi Jakob \u00feann fimmta son og sag\u00f0i: &#8222;Gu\u00f0 hefur launa\u00f0 m\u00e9r fyrir \u00fea\u00f0 a\u00f0 eg gaf m\u00edna amb\u00e1tt m\u00ednum manni.&#8220; Og \u00feann kalla\u00f0i h\u00fan \u00cdsaskar. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00cdsaskar kallast Laun\">[<\/span> Og Lea var\u00f0 enn \u00feungu\u00f0 og f\u00e6ddi Jakob \u00feann sj\u00f6tta son og sag\u00f0i: &#8222;Gu\u00f0 hefur vel fors\u00e9\u00f0 mig og n\u00fa skal minn mann b\u00faa vi\u00f0 mig \u00fev\u00ed eg hefi f\u00e6tt honum sex sonu.&#8220; Og h\u00fan nefndi hann Seb\u00falon. <span class=\"athugasemd\" title=\"Seb\u00falon Hj\u00e1b\u00fana\u00f0ur\">[<\/span> Eftir \u00feetta \u00e1tti h\u00fan eina d\u00f3ttur, hana nefndi h\u00fan D\u00edna. Drottinn minntist \u00fe\u00e1 \u00e1 Rakel og b\u00e6nheyr\u00f0i hana og gj\u00f6r\u00f0i hana \u00e1vaxtarsama og h\u00fan var\u00f0 \u00feungu\u00f0 og f\u00e6ddi einn son og sag\u00f0i: &#8222;Gu\u00f0 hefur burt teki\u00f0 mitt brigsli.&#8220; Og h\u00fan nefndi hann J\u00f3sef og sag\u00f0i: &#8222;Drottinn gefi m\u00e9r n\u00fa einn annan son til \u00feessa.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00f3sef kallast Aukning\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tOg sem Rakel haf\u00f0i n\u00fa f\u00e6tt J\u00f3sef \u00fe\u00e1 sag\u00f0i Jakob til Laban: &#8222;L\u00e1t mig n\u00fa fara til m\u00edns heimkynnis og \u00ed mitt land og gef m\u00e9r m\u00ednar kvinnur og b\u00f6rn fyrir hver eg hefi \u00fej\u00f3na\u00f0 \u00fe\u00e9r, a\u00f0 eg megi n\u00fa fer\u00f0ast. \u00dev\u00ed \u00fe\u00fa veist hvernin eg hefi \u00fej\u00f3na\u00f0 \u00fe\u00e9r.&#8220; \u00de\u00e1 svara\u00f0i Laban honum: &#8222;L\u00e1t mig finna n\u00e1\u00f0 fyrir \u00fe\u00ednum augum. Af reynslu hef eg numi\u00f0 a\u00f0 Drottinn hefur blessa\u00f0 mig fyrir \u00fe\u00ednar sakir. En \u00fe\u00fa set sj\u00e1lfur upp\u00e1 hvert verkkaup a\u00f0 eg skuli gefa \u00fe\u00e9r.&#8220;<\/p>\n<p>\tJakob svara\u00f0i honum: &#8222;\u00de\u00fa veist hversu eg hefi \u00fej\u00f3na\u00f0 \u00fe\u00e9r og hversu mikil hefur or\u00f0i\u00f0 eign \u00fe\u00edn \u00ed m\u00ednum h\u00f6ndum. \u00de\u00fa \u00e1ttir l\u00edti\u00f0 f\u00e9 \u00e1\u00f0ur eg kom hinga\u00f0 en n\u00fa er \u00fea\u00f0 margfaldlega \u00fatbreitt. Og Drottinn hefur blessa\u00f0 \u00feig fyrir m\u00ednar f\u00e6tur. Og n\u00fa, n\u00e6r skal eg hafa forsj\u00e1 fyrir m\u00ednu h\u00fasi?&#8220; Hann svara\u00f0i: &#8222;Hvert kaup skal eg gefa \u00fe\u00e9r?&#8220; Jakob m\u00e6lti: &#8222;\u00de\u00fa skalt ekki gefa m\u00e9r neitt. En ef \u00fe\u00fa vilt gj\u00f6ra \u00fea\u00f0 sem eg segi \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 vil eg enn framvegis f\u00e6\u00f0a og geyma hj\u00f6r\u00f0 \u00fe\u00edna.&#8220;<\/p>\n<p>\tEg vil \u00ed dag ganga \u00ed gegnum alla \u00fe\u00edna hj\u00f6r\u00f0 og \u00ed sundur skilja allt <span class=\"athugasemd\" title=\"a L\u00e1t \u00feig h\u00e9r ei villa a\u00f0 M\u00f3ses kallar sm\u00e1f\u00e9na\u00f0inn stundum geitur, stundum l\u00f6mb, stundum hr\u00fata, eftir ebreskri m\u00e1ll\u00fdsku. \u00dev\u00ed a\u00f0 hann vildi so miki\u00f0 sagt hafa a\u00f0 Jakob hafi hj\u00e1 s\u00e9r haft allt hv\u00edtt f\u00e9 en svart og mislitt allt f\u00e9kk hann Laban. Og \u00fea\u00f0 sem flekk\u00f3tt yr\u00f0i undan einlitum berf\u00e9na\u00f0i \u00fea\u00f0 skyldi vera hans laun. \u00deessum skilm\u00e1la var\u00f0 Laban feginn og haf\u00f0i n\u00e1tt\u00faruna fyrir s\u00e9r a\u00f0 ei mundi margt flekk\u00f3tt f\u00e6\u00f0ast af einlitum eftir n\u00e1tt\u00faru e\u00f0li. En Jakob styrkti n\u00e1tt\u00faruna me\u00f0 list so a\u00f0 einlitar \u00e6r \u00e1ttu fj\u00f6lda flekk\u00f3ttra lamba\">[<\/span> flekk\u00f3tt og mislitt f\u00e9 fr\u00e1 einlitu og alla svarta sau\u00f0i \u00e1 me\u00f0al lambanna og \u00fe\u00e6r flekk\u00f3ttu og mislitu geitur. Hva\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00fear eftir ver\u00f0ur flekk\u00f3tt og mislitt, \u00fea\u00f0 skal vera mitt verkkaup. So skal m\u00edn r\u00e9ttv\u00edsi vitni bera m\u00e9r \u00ed dag e\u00f0a \u00e1 morgun \u00feegar \u00fear kemur a\u00f0 eg skal taka mitt verkkaup af \u00fe\u00e9r, so a\u00f0 hva\u00f0 sem ekki er flekk\u00f3tt e\u00f0a mislitt e\u00f0a ekki ver\u00f0ur svart \u00e1 me\u00f0al fj\u00e1rins og geitanna, \u00fe\u00e1 skal \u00fea\u00f0 vera stuldur hj\u00e1 m\u00e9r.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i Laban: &#8222;Sj\u00e1, \u00fea\u00f0 skal so vera sem \u00fe\u00fa hefur sagt.&#8220; Og \u00feann sama dag skildi hann fr\u00e1 alla flekk\u00f3tta og mislita hr\u00fata og alla flekk\u00f3tta og mislita geitsau\u00f0i, \u00fear sem nokkurs sta\u00f0ar fannst hv\u00edtur flekkur upp\u00e1 og allt \u00fea\u00f0 sem var svart \u00e1 me\u00f0al lambanna. \u00deetta afhenti hann s\u00ednum sonum \u00ed hendur. Og hann l\u00e9t \u00feriggja daga lei\u00f0 vera \u00ed millum s\u00edn og Jakobs. So geymdi Jakob Labans hj\u00f6r\u00f0, \u00fea\u00f0 sem afgangs var.<\/p>\n<p>\tEn Jakob t\u00f3k s\u00e9r v\u00f6ndu af gr\u00e6nu popeltr\u00e9 og platanusvi\u00f0i og so harslvi\u00f0i og sk\u00f3f af \u00feeim b\u00f6rkinn \u00ed sumum st\u00f6\u00f0um og gj\u00f6r\u00f0i \u00fe\u00e1 flekk\u00f3tta og lag\u00f0i so vendina sem hann haf\u00f0i skafi\u00f0 \u00ed vats\u00fer\u00f3arnar fyrir hj\u00f6r\u00f0ina \u00fear sem h\u00fan skyldi drekka af og a\u00f0 h\u00fan skyldi f\u00e1 lamba \u00ed \u00fev\u00ed bili n\u00e6r h\u00fan k\u00e6mi a\u00f0 drekka. Og \u00fea\u00f0 ske\u00f0i a\u00f0 \u00e6rnar horf\u00f0u \u00e1 flekk\u00f3tta v\u00f6ndu \u00fe\u00e1 \u00fe\u00e6r fengu lambanna og f\u00e6ddu flekk\u00f3tt, d\u00edl\u00f3tt og mislitt f\u00e9. Og fr\u00e1skildi Jakob l\u00f6mbin og skikka\u00f0i \u00fe\u00e1 fr\u00e1skildu hj\u00f6r\u00f0 til \u00feeirrar flekk\u00f3ttu og sv\u00f6rtu \u00ed Labans hj\u00f6r\u00f0 og gj\u00f6r\u00f0i s\u00e9r sj\u00e1lfum eina s\u00e9rdeilis hj\u00f6r\u00f0 og l\u00e9t hana ekki koma saman vi\u00f0 Labans hj\u00f6r\u00f0. En \u00fe\u00e1 s\u00e1 r\u00e9tti t\u00edminn kom a\u00f0 \u00e6rnar skyldu f\u00e1 lambanna \u00fe\u00e1 lag\u00f0i hann stafina \u00ed rennurnar fyrir augu \u00feeirra so a\u00f0 \u00fe\u00e6r skyldu f\u00e1 lamba \u00ed \u00fev\u00ed bili er \u00fe\u00e6r horf\u00f0u \u00e1 v\u00f6nduna. En \u00fe\u00e6r sem ofs\u00ed\u00f0 fengu lambanna \u00fe\u00e1 lag\u00f0i hann ekki v\u00f6nduna fyrir \u00fe\u00e6r. So var\u00f0 Labans \u00fea\u00f0 sem s\u00ed\u00f0bori\u00f0 var en Jakobs \u00fea\u00f0 sem snemmbori\u00f0 var. Og af \u00feessu var\u00f0 hann mj\u00f6g st\u00f3rau\u00f0igur so a\u00f0 hann haf\u00f0i fj\u00f6lda sau\u00f0a, amb\u00e1ttir og \u00fer\u00e6la, \u00falfalda og asna.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sem a\u00f0 Rakel s\u00e1 a\u00f0 h\u00fan \u00e1tti ekki b\u00f6rn vi\u00f0 Jakob \u00fe\u00e1 \u00f6funda\u00f0i h\u00fan s\u00edna systur og sag\u00f0i til Jakobs: &#8222;Gef \u00fe\u00fa m\u00e9r b\u00f6rn ella mun eg deyja.&#8220; Um \u00feetta var\u00f0 Jakob mj\u00f6g rei\u00f0ur vi\u00f0 Rakel og sag\u00f0i: &#8222;Er eg \u00fe\u00e1 Gu\u00f0? S\u00e1 a\u00f0 ekki vill gefa \u00fe\u00e9r \u00e1v\u00f6xt \u00fe\u00edns kvi\u00f0ar?&#8220; \u00de\u00e1 sag\u00f0i h\u00fan: &#8222;Sj\u00e1, \u00fear er m\u00edn amb\u00e1tt B\u00edla, leggstu me\u00f0 henni so h\u00fan megi f\u00e6\u00f0a \u00e1 mitt skaut svo eg megi ver\u00f0a uppbygg\u00f0 af henni.&#8220; Og h\u00fan gaf honum s\u00edna amb\u00e1tt B\u00edla til kvinnu. [ Og Jakob lag\u00f0ist me\u00f0 henni og h\u00fan var\u00f0 \u00f3l\u00e9tt og f\u00e6ddi Jakob einn <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-30-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2722","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2722","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2722"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2722\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2722"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}