{"id":2709,"date":"2017-12-18T18:31:30","date_gmt":"2017-12-18T18:31:30","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-17-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:30","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:30","slug":"fyrsta-mosebok-17-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-17-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrsta M\u00f3seb\u00f3k 17. kafli"},"content":{"rendered":"<p>\u00de\u00e1 Abram var n\u00edu og n\u00edut\u00edgir \u00e1ra gamall birtist Drottinn honum og sag\u00f0i til hans: &#8222;Eg er alm\u00e1ttugur Gu\u00f0, gakk fyrir m\u00e9r og vertu algj\u00f6r\u00f0ur. Eg vil gj\u00f6ra minn s\u00e1ttm\u00e1la \u00ed millum m\u00edn og \u00fe\u00edn og eg vil margfalda \u00feig harla mj\u00f6g.&#8220; \u00de\u00e1 f\u00e9ll Abram fram \u00e1 sitt andlit.<\/p>\n<p>\tOg Gu\u00f0 tala\u00f0i framar meir vi\u00f0 hann og sag\u00f0i: &#8222;Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, eg em hann og eg vil setja mitt s\u00e1ttm\u00e1l vi\u00f0 \u00feig og \u00fe\u00fa skalt ver\u00f0a margra \u00fej\u00f3\u00f0a fa\u00f0ir. <span class=\"athugasemd\" title=\"Abram kallast h\u00e1r fa\u00f0ir en Abraham fa\u00f0ir fj\u00f6lmennis\">[<\/span> \u00dear fyrir skaltu ekki lengur heita Abram heldur skal \u00feitt nafn kallast Abraham, \u00fev\u00ed eg hefi gj\u00f6rt \u00feig a\u00f0 f\u00f6\u00f0ur margra \u00fej\u00f3\u00f0a. Og eg vil gj\u00f6ra \u00feig mj\u00f6g margfaldlegan og eg vil l\u00e1ta koma fj\u00f6lda f\u00f3lks af \u00fe\u00e9r, \u00fear skulu og einnin k\u00f3ngar koma af \u00fe\u00e9r.<\/p>\n<p>\tOg eg vil uppreisa minn s\u00e1ttm\u00e1la \u00ed millum m\u00edn og \u00fe\u00edn og \u00fe\u00edns s\u00e6\u00f0is eftir \u00feig, hj\u00e1 \u00feeirra eftirkomendum me\u00f0 einum eil\u00edfum s\u00e1ttm\u00e1la, a\u00f0 eg s\u00e9 \u00feinn Gu\u00f0 og \u00fe\u00edns s\u00e6\u00f0is eftir \u00feig. <span class=\"athugasemd\" title=\"S\u00e1ttm\u00e1li Gu\u00f0s vi\u00f0 Abraham\">[<\/span> Og eg vil gefa \u00fe\u00e9r og \u00fe\u00ednu s\u00e6\u00f0i eftir \u00feig \u00fea\u00f0 land \u00ed hverju \u00fe\u00fa ert framandi, sem er \u00fea\u00f0 allt landi\u00f0 Kanaan til einnrar eil\u00edfrar eignar. Og eg vil vera \u00feeirra Gu\u00f0.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg Gu\u00f0 sag\u00f0i til Abrahams: &#8222;So halt n\u00fa mitt s\u00e1ttm\u00e1l, \u00fe\u00fa og \u00feitt s\u00e6\u00f0i eftir \u00feig hj\u00e1 \u00feeirra eftirkomendum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Umskur\u00f0arsk\u00edrnin var innsett\">[<\/span> \u00deetta er mitt s\u00e1ttm\u00e1l sem \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 halda milli m\u00edn og y\u00f0ar og \u00fe\u00edns s\u00e6\u00f0is eftir \u00feig. Allt kallkyns sem er \u00e1 me\u00f0al y\u00f0ar skal umskerast. Og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 umskera yfirh\u00fa\u00f0 y\u00f0vars holds. \u00dea\u00f0 skal vera s\u00e1ttm\u00e1lsteikn \u00e1 millum m\u00edn og y\u00f0ar. <span class=\"athugasemd\" title=\"Mmxlvij \u00e1rum eftir heims sk\u00f6pun, fyrir hinga\u00f0bur\u00f0inn McMxv, \u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1ri afm\u00e1\u00f0ist S\u00f3d\u00f3m og G\u00f3morra, \u00fe\u00e1 kom \u00cdsak til \u00e1ri seinna\">[<\/span> \u00de\u00e9r skulu\u00f0 umskera hvert sveinbarn \u00fe\u00e1 \u00fea\u00f0 er \u00e1tta daga gamalt hj\u00e1 y\u00f0ar eftirkomendum. L\u00edka og einnin hvern heimaf\u00e6ddan \u00fer\u00e6l e\u00f0a tilkeyptan, af hvers kyns \u00fatlendingi sem ekki eru af y\u00f0ar s\u00e6\u00f0i. So skal minn s\u00e1ttm\u00e1li vera \u00e1 y\u00f0ar holdi til eins eil\u00edfs s\u00e1ttm\u00e1la. Og hv\u00f6rt \u00fea\u00f0 sveinbarn sem ekki er umskori\u00f0 \u00e1 yfirh\u00fa\u00f0 s\u00edns holds, \u00feess s\u00e1l skal afm\u00e1st fr\u00e1 hans f\u00f3lki, \u00fev\u00ed a\u00f0 hann forl\u00e9t minn s\u00e1ttm\u00e1la.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg Gu\u00f0 sag\u00f0i \u00ed anna\u00f0 sinn til Abrahams: &#8222;\u00de\u00edna kvinnu Sara\u00ed skaltu ekki h\u00e9\u00f0an af kalla Sara\u00ed heldur skal hennar nafn vera Sara. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sara\">[<\/span> \u00dev\u00ed eg vil blessa hana og af henni vil eg gefa \u00fe\u00e9r einn son. \u00dev\u00ed eg vil blessa hana og \u00fear skulu koma \u00fej\u00f3\u00f0ir af henni og svo konungar margra \u00fej\u00f3\u00f0a.&#8220; \u00de\u00e1 f\u00e9ll Abraham fram \u00e1 sitt andlit og brosti, segjandi \u00ed s\u00ednu hjarta: &#8222;Skal eg eiga barn hundra\u00f0 \u00e1ra gamall og skal Sara n\u00edr\u00e6\u00f0 barn f\u00e6\u00f0a?&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Gen. 18.12\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tOg Abraham sag\u00f0i til Drottins: &#8222;Eg vildi \u00cdsmael m\u00e6tti lifa fyrir \u00fe\u00e9r.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Vi\u00f0 mynd \u00ed 17. kafla stendur \u00e1 sp\u00e1ss\u00edu: Arca Noe, og \u00feessi f\u00edg\u00fara \u00e1 a\u00f0 standa \u00ed hinum vij Kap. Genesis\">[<\/span> \u00de\u00e1 sag\u00f0i Gu\u00f0: &#8222;A\u00f0 v\u00edsu, Sara \u00fe\u00edn kvinna skal f\u00e6\u00f0a \u00fe\u00e9r einn son, \u00feann skaltu kalla \u00cdsak, \u00fev\u00ed vi\u00f0 hann vil eg uppreisa minn eil\u00edfan s\u00e1ttm\u00e1la og vi\u00f0 hans s\u00e6\u00f0i eftir hann. \u00dear me\u00f0 hefi eg og b\u00e6nheyrt \u00feig um \u00cdsmael. Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, eg hefi blessa\u00f0 hann og eg vil auka hann og gj\u00f6ra hann mj\u00f6g margfaldan. Hann skal og geta t\u00f3lf h\u00f6f\u00f0ingja og eg vil gj\u00f6ra hann a\u00f0 einni mikilli \u00fej\u00f3\u00f0. En minn s\u00e1ttm\u00e1la vil eg uppreisa vi\u00f0 \u00cdsak, hvern Sara skal f\u00e6\u00f0a \u00fe\u00e9r \u00ed \u00feetta mund \u00e1 \u00f6\u00f0ru \u00e1ri.&#8220; Og hann l\u00e9t af a\u00f0 tala vi\u00f0 hann og Gu\u00f0 f\u00f3r upp fr\u00e1 Abraham.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 t\u00f3k Abraham sinn son \u00cdsmael og alla \u00fe\u00e1 \u00fe\u00e9nara sem f\u00e6ddir voru \u00ed hans h\u00fasi og alla \u00fe\u00e1 sem til voru keyptir og alla a\u00f0ra sem voru kallkyns \u00ed hans h\u00fasi og umskar yfirh\u00fa\u00f0 \u00e1 \u00feeirra holdi strax \u00e1 \u00feeim sama degi sem Gu\u00f0 haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 honum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Abraham og \u00cdsmael taka umskur\u00f0arsk\u00edrn\">[<\/span> Og Abraham var n\u00edu og n\u00edut\u00edgir \u00e1ra gamall \u00fe\u00e1 hann umskar yfirh\u00fa\u00f0ina \u00e1 s\u00ednu holdi, en \u00cdsmael var \u00ferett\u00e1n \u00e1ra gamall \u00fe\u00e1 hans holds yfirh\u00fa\u00f0 var umskorin. \u00c1 einum degi voru \u00feeir allir umskornir, Abraham, hans son \u00cdsmael og allt kallkyns sem var \u00ed hans h\u00fasi, heimaf\u00e6ddir og annarlegir, \u00feeir voru allir umskornir me\u00f0 honum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00de\u00e1 Abram var n\u00edu og n\u00edut\u00edgir \u00e1ra gamall birtist Drottinn honum og sag\u00f0i til hans: &#8222;Eg er alm\u00e1ttugur Gu\u00f0, gakk fyrir m\u00e9r og vertu algj\u00f6r\u00f0ur. Eg vil gj\u00f6ra minn s\u00e1ttm\u00e1la \u00ed millum m\u00edn og \u00fe\u00edn og eg vil margfalda \u00feig harla mj\u00f6g.&#8220; \u00de\u00e1 f\u00e9ll Abram fram \u00e1 sitt andlit. Og Gu\u00f0 tala\u00f0i framar meir vi\u00f0 hann og sag\u00f0i: &#8222;Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, eg em hann og eg vil setja mitt s\u00e1ttm\u00e1l vi\u00f0 \u00feig og \u00fe\u00fa skalt ver\u00f0a margra \u00fej\u00f3\u00f0a fa\u00f0ir. [ \u00dear fyrir skaltu ekki lengur heita Abram heldur skal \u00feitt nafn kallast Abraham, \u00fev\u00ed eg hefi gj\u00f6rt \u00feig a\u00f0 f\u00f6\u00f0ur margra <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-17-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2709","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2709","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2709"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2709\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2709"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}