{"id":2701,"date":"2017-12-18T18:31:30","date_gmt":"2017-12-18T18:31:30","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-9-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:30","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:30","slug":"fyrsta-mosebok-9-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-9-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrsta M\u00f3seb\u00f3k 9. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Og Gu\u00f0 blessa\u00f0i N\u00f3a og hans sonu og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Vaxi\u00f0 og margfaldist og uppfylli\u00f0 j\u00f6r\u00f0ina. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gu\u00f0 blessar N\u00f3a\">[<\/span> Y\u00f0ar \u00f3tti og \u00f3gn skal vera yfir \u00f6llum d\u00fdrum \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni og yfir \u00f6llum fuglum loftsins og yfir \u00f6llum skri\u00f0kvikindum \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni og allir fiskar \u00ed sj\u00f3num skulu vera gefnir \u00ed y\u00f0ar hendur. Allt \u00fea\u00f0 sem hr\u00e6rist og lifir skal vera y\u00f0ar matur, so sem gr\u00e6nar jurtir hefi eg gefi\u00f0 y\u00f0ur alla hluti.<\/p>\n<p>\tAlleinasta eti\u00f0 ekki \u00fea\u00f0 kj\u00f6t sem enn n\u00fa lifir \u00ed s\u00ednu bl\u00f3\u00f0i. \u00dev\u00ed eg vil hefna y\u00f0ar l\u00edfs bl\u00f3\u00f0s og eg vil hefna \u00feess \u00e1 \u00f6llum d\u00fdrum. Og eg vil hefna mannsins l\u00edfs \u00e1 hverjum manni, so sem \u00e1 \u00feeim sem a\u00f0 er hans br\u00f3\u00f0ir. <\/p>\n<p>\tOg hver sem \u00fathellir mannsins bl\u00f3\u00f0i, hans bl\u00f3\u00f0 skal og so \u00fathellast fyrir manninn. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00dea\u00f0 veraldlega sver\u00f0i\u00f0\">[<\/span> \u00dev\u00ed Gu\u00f0 hefur skapa\u00f0 manninn eftir sinni mynd. Vaxi\u00f0 og margfaldist og hr\u00e6ri\u00f0 y\u00f0ur \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni so a\u00f0 \u00fe\u00e9r megi\u00f0 ver\u00f0a margir \u00e1 henni.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg Gu\u00f0 sag\u00f0i til N\u00f3a og til hans sona me\u00f0 honum: &#8222;Sj\u00e1i\u00f0: Eg uppset einn s\u00e1ttm\u00e1la vi\u00f0 y\u00f0ur og vi\u00f0 y\u00f0art s\u00e6\u00f0i eftir y\u00f0ur og vi\u00f0 lifandi d\u00fdr hj\u00e1 y\u00f0ur, af fuglum, af f\u00e9 og af \u00f6llum d\u00fdrum \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni hj\u00e1 y\u00f0ur, af \u00f6llu \u00fev\u00ed sem gekk \u00fat af \u00f6rkinni, hva\u00f0 helst d\u00fdr \u00fear eru \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gu\u00f0s s\u00e1ttm\u00e1li eftir fl\u00f3\u00f0i\u00f0 vi\u00f0 N\u00f3a Esa. 45.\">[<\/span> Og eg uppset so minn s\u00e1ttm\u00e1la vi\u00f0 y\u00f0ur a\u00f0 h\u00e9r eftir skal ekki meir allt hold ey\u00f0ileggjast af fl\u00f3\u00f0i vatna og \u00fear skal ekki framar koma vatsfl\u00f3\u00f0 h\u00e9r eftir a\u00f0 fordjarfa j\u00f6r\u00f0ina.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg Gu\u00f0 sag\u00f0i: &#8222;\u00deetta er teikn \u00feess s\u00e1ttm\u00e1la sem eg hefi sett \u00e1 millum m\u00edn og y\u00f0ar og allra lifandi d\u00fdra hj\u00e1 y\u00f0ur h\u00e9r eftir til \u00e6vinlegrar t\u00ed\u00f0ar. Eg hefi sett minn boga \u00ed sk\u00fdjunum, hann skal vera eitt teikn \u00e1 \u00feeim s\u00e1ttm\u00e1la millum m\u00edn og jar\u00f0arinnar. <span class=\"athugasemd\" title=\"Regnboginn\">[<\/span> Og \u00feegar \u00fea\u00f0 sker a\u00f0 eg f\u00e6ri sk\u00fd yfir j\u00f6r\u00f0ina, \u00fe\u00e1 skulu menn sj\u00e1 minn boga \u00ed sk\u00fdjunum og \u00fe\u00e1 vil eg \u00feenkja \u00e1 minn s\u00e1ttm\u00e1la millum m\u00edn og y\u00f0ar og allra lifandi d\u00fdra og allsh\u00e1tta\u00f0s holds, a\u00f0 \u00fear skal ei koma eitt vatsfl\u00f3\u00f0 h\u00e9r eftir a\u00f0 fordjarfa allt hold. \u00dear fyrir skal minn bogi vera \u00ed sk\u00fdjunum so eg kunni sj\u00e1 \u00e1 hann og \u00feenkja \u00e1 \u00feann eil\u00edfa s\u00e1ttm\u00e1la \u00e1 milli Gu\u00f0s og allra lifandi d\u00fdra \u00ed \u00f6llu holdi sem er \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni.&#8220; Og Gu\u00f0 sag\u00f0i \u00fea\u00f0 sama til N\u00f3a: &#8222;\u00deetta skal vera teikni\u00f0 \u00e1 \u00feeim s\u00e1ttm\u00e1la sem eg hefi uppreist millum m\u00edn og alls holds \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00deessir eru N\u00f3a synir sem gengu \u00fat af \u00f6rkinni: Sem, Kam, Jafet. En Kam er Kanaans fa\u00f0ir. \u00deessir eru \u00feeir \u00fer\u00edr synir N\u00f3a af hverjum \u00f6ll l\u00f6nd bygg\u00f0ust. <span class=\"athugasemd\" title=\"Synir N\u00f3a\">[<\/span><\/p>\n<p>\tEn N\u00f3i t\u00f3k til a\u00f0 f\u00e1ga j\u00f6r\u00f0ina me\u00f0 s\u00ednu erfi\u00f0i og planta\u00f0i v\u00edngar\u00f0a. Og sem hann drakk af v\u00edni var\u00f0 hann drukkinn og l\u00e1 nakinn \u00ed sinni tjaldb\u00fa\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"N\u00f3i var\u00f0 drukkinn\">[<\/span> Og sem Kam Kanaans fa\u00f0ir s\u00e1 s\u00edns f\u00f6\u00f0urs leyndarlim, \u00fe\u00e1 sag\u00f0i hann \u00fea\u00f0 b\u00e1\u00f0um s\u00ednum br\u00e6\u00f0rum sem \u00fati st\u00f3\u00f0u. En \u00feeir Sem og Jafet t\u00f3ku eitt kl\u00e6\u00f0i og l\u00f6g\u00f0u upp\u00e1 s\u00ednar b\u00e1\u00f0ar her\u00f0ar og gengu \u00e1 bak aftur \u00fear til \u00feeir huldu \u00feeirra f\u00f6\u00f0urs sm\u00e1n. Og \u00feeir sneru s\u00ednum andlitum \u00fear fr\u00e1 so a\u00f0 \u00feeir s\u00e6ju ei \u00feeirra f\u00f6\u00f0urs blyg\u00f0an. <\/p>\n<p>\tEn sem N\u00f3i vakna\u00f0i af s\u00ednu v\u00edni og f\u00e9kk a\u00f0 vita hva\u00f0 hans yngsti son haf\u00f0i gj\u00f6rt honum, \u00fe\u00e1 sag\u00f0i hann: &#8222;B\u00f6lva\u00f0ur ver\u00f0i Kanaan, hann skal vera \u00fer\u00e6ll allra \u00fer\u00e6la me\u00f0al sinna br\u00e6\u00f0ra.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"B\u00f6lvan yfir Kanaan\">[<\/span> Og enn sag\u00f0i hann framar meir: &#8222;Lofa\u00f0ur ver\u00f0i Drottinn, Sems Gu\u00f0, og Kanaan skal vera hans \u00fer\u00e6ll. Gu\u00f0 \u00fatbrei\u00f0i Jafet og l\u00e1ti hann b\u00faa \u00ed Sems tjaldb\u00fa\u00f0um, og Kanaan skal vera hans \u00fer\u00e6ll. <\/p>\n<p>\tOg N\u00f3i lif\u00f0i eftir vatsfl\u00f3\u00f0i\u00f0 \u00ferj\u00fahundru\u00f0 og fimmtigu \u00e1r so a\u00f0 hans allur aldur var\u00f0 n\u00edu hundru\u00f0 og fimmt\u00edu \u00e1r og hann anda\u00f0ist. <span class=\"athugasemd\" title=\"Aldur N\u00f3a 950 \u00e1r\">[<\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Og Gu\u00f0 blessa\u00f0i N\u00f3a og hans sonu og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Vaxi\u00f0 og margfaldist og uppfylli\u00f0 j\u00f6r\u00f0ina. [ Y\u00f0ar \u00f3tti og \u00f3gn skal vera yfir \u00f6llum d\u00fdrum \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni og yfir \u00f6llum fuglum loftsins og yfir \u00f6llum skri\u00f0kvikindum \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni og allir fiskar \u00ed sj\u00f3num skulu vera gefnir \u00ed y\u00f0ar hendur. Allt \u00fea\u00f0 sem hr\u00e6rist og lifir skal vera y\u00f0ar matur, so sem gr\u00e6nar jurtir hefi eg gefi\u00f0 y\u00f0ur alla hluti. Alleinasta eti\u00f0 ekki \u00fea\u00f0 kj\u00f6t sem enn n\u00fa lifir \u00ed s\u00ednu bl\u00f3\u00f0i. \u00dev\u00ed eg vil hefna y\u00f0ar l\u00edfs bl\u00f3\u00f0s og eg vil hefna \u00feess \u00e1 \u00f6llum d\u00fdrum. Og eg <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-9-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2701","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2701","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2701"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2701\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2701"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}