{"id":2699,"date":"2017-12-18T18:31:30","date_gmt":"2017-12-18T18:31:30","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-7-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:30","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:30","slug":"fyrsta-mosebok-7-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-7-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrsta M\u00f3seb\u00f3k 7. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Og Drottinn sag\u00f0i til N\u00f3a: &#8222;Gakk inn \u00ed \u00f6rkina, \u00fe\u00fa og allt \u00feitt <span class=\"athugasemd\" title=\"sword heimkynni I. P\u00e9t. 2.\">[<\/span> h\u00fas, \u00fev\u00ed a\u00f0 eg hefi s\u00e9\u00f0 \u00feig r\u00e9ttl\u00e1tan fyrir m\u00e9r \u00e1 \u00feessum t\u00edma. Tak inn til \u00fe\u00edn af allsh\u00e1ttu\u00f0um hreinum kvikindum sj\u00f6 og sj\u00f6, kallkyns og kvenkyns. En af \u00f3hreinum kvikindum ei meira en eitt par, kallkyns og kvenkyns. L\u00edka so af fuglum loftsins sj\u00f6 og sj\u00f6, kallkyns og kvenkyns, so a\u00f0 s\u00e6\u00f0i bl\u00edfi lifandi \u00e1 allri j\u00f6r\u00f0u. \u00dev\u00ed a\u00f0 eftir sj\u00f6 daga vil eg l\u00e1ta rigna \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina \u00ed fj\u00f6rut\u00edgir daga og fj\u00f6rut\u00edgir  n\u00e6tur og afm\u00e1 af j\u00f6r\u00f0unni allt \u00fea\u00f0 sem nokkra veru hefur og eg hefi gj\u00f6rt. <\/p>\n<p>\tOg N\u00f3i gj\u00f6r\u00f0i alla hluti so sem Drottinn bau\u00f0 honum. <span class=\"athugasemd\" title=\"N\u00f3i gengur \u00ed \u00f6rkina Math. 24. L\u00fak. 17 1 P\u00e9t 3.\">[<\/span> N\u00f3i var sex hundru\u00f0 \u00e1ra gamall \u00feegar vatsfl\u00f3\u00f0i\u00f0 kom yfir j\u00f6r\u00f0ina. Og hann inngekk \u00ed \u00f6rkina og hans synir, hans kvinna og hans sonarkvinnur, fyrir vatsfl\u00f3\u00f0i\u00f0. Svo og gengu inn \u00ed \u00f6rkina til N\u00f3a af hreinum og \u00f3hreinum kvikindum, af fuglum og allsh\u00e1ttu\u00f0um skri\u00f0kvikindum sem voru \u00e1 j\u00f6r\u00f0u p\u00f6rum saman, kallkyns og kvenkyns, eftir \u00fev\u00ed sem Gu\u00f0 Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 honum. Og \u00fe\u00e1 \u00feeir sj\u00f6 dagar voru li\u00f0nir \u00fe\u00e1 kom vatsfl\u00f3\u00f0i\u00f0 yfir j\u00f6r\u00f0ina.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 N\u00f3i var sex hundru\u00f0 \u00e1ra gamall, \u00e1 \u00feeim seytj\u00e1nda degi \u00ed \u00f6\u00f0rum m\u00e1nu\u00f0i, \u00e1 \u00feeim degi uppspruttu allir uppsprettubrunnar hins mikla undirdj\u00faps og <span class=\"athugasemd\" title=\"sword Himna gluggarnir\">[<\/span> himnaraufarnar opnu\u00f0ust og \u00fear rigndi \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina \u00ed fj\u00f6rut\u00edgir daga og fj\u00f6rut\u00edgir n\u00e1tta. <\/p>\n<p>\tR\u00e9tt \u00e1 \u00feeim sama degi gekk N\u00f3i inn \u00ed \u00f6rkina me\u00f0 s\u00ednum sonum, Sem, Kam og Jafet, og me\u00f0 sinni kvinnu og s\u00ednum \u00feremur sonarkvinnum, \u00fear me\u00f0 allra handa d\u00fdr, hvert eftir s\u00ednu kyni, og allra handa skri\u00f0kvikindi jar\u00f0ar og allra handa f\u00e9na\u00f0ur eftir s\u00ednu kyni og allra handa fuglar eftir \u00feeirra kyni, allt \u00fea\u00f0 sem flogi\u00f0 gat og v\u00e6ngi haf\u00f0i, \u00feetta gekk allt inn \u00ed \u00f6rkina til N\u00f3a p\u00f6rum saman af \u00f6llu holdi \u00ed hverju a\u00f0 l\u00edfs andi var. Og \u00fea\u00f0 var kallkyns og kvenkyns af allskyns holdi sem inngekk \u00ed \u00f6rkina, so sem Gu\u00f0 haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 honum. Og Drottinn l\u00e9t aftur eftir honum.<\/p>\n<p>\tOg vatsfl\u00f3\u00f0i\u00f0 kom yfir j\u00f6r\u00f0ina \u00ed fj\u00f6rut\u00edgir daga. <span class=\"athugasemd\" title=\"Vatsfl\u00f3\u00f0i\u00f0 kom xxvij dag j\u00fan\u00ed \u0096 Eftir heimsins sk\u00f6pun mdclvi \u00e1r Fyrir Christi hinga\u00f0bur\u00f0 mmcccvi \u00e1r P\u00e9t. 3\">[<\/span> Og vatni\u00f0 \u00f3x og upplyfti \u00f6rkinni h\u00e1tt yfir j\u00f6r\u00f0ina. So uxu n\u00fa v\u00f6tnin og gengu yfir allt \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni, svo a\u00f0 \u00f6rkin flaut \u00e1 vatninu. Og v\u00f6tnin gengu yfir alla j\u00f6r\u00f0ina og ur\u00f0u so mikil a\u00f0 \u00f6ll st\u00f3r fj\u00f6ll undir \u00f6llum himninum voru \u00ed kafi. Fimmt\u00e1n \u00e1lnum gekk vatni\u00f0 h\u00e6rra yfir fj\u00f6llin \u00feau sem \u00ed kafi voru. \u00de\u00e1 fyrirf\u00f3rst allt hold \u00fea\u00f0 sem hr\u00e6r\u00f0ist \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni af fuglum og f\u00e9na\u00f0i, sk\u00f3gd\u00fdrum og af \u00f6llum skri\u00f0kvikindum jar\u00f0arinnar, og allir menn. Og allt \u00fea\u00f0 sem haf\u00f0i lifandi anda \u00e1 \u00feurru, \u00fea\u00f0 drapst. \u00deannin var\u00f0 afm\u00e1\u00f0 allt \u00fea\u00f0 sem \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni var, b\u00e6\u00f0i menn og f\u00e9na\u00f0ur, skri\u00f0kvikindi og fuglar loftsins, \u00fea\u00f0 var\u00f0 alltsaman afm\u00e1\u00f0 af j\u00f6r\u00f0unni. N\u00f3i alleina var\u00f0 eftir og \u00fea\u00f0 hva\u00f0 \u00ed \u00f6rkinni var me\u00f0ur honum. Og vatni\u00f0 st\u00f3\u00f0 yfir j\u00f6r\u00f0unni \u00ed hundra\u00f0 og fimmt\u00edgir daga.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Og Drottinn sag\u00f0i til N\u00f3a: &#8222;Gakk inn \u00ed \u00f6rkina, \u00fe\u00fa og allt \u00feitt [ h\u00fas, \u00fev\u00ed a\u00f0 eg hefi s\u00e9\u00f0 \u00feig r\u00e9ttl\u00e1tan fyrir m\u00e9r \u00e1 \u00feessum t\u00edma. Tak inn til \u00fe\u00edn af allsh\u00e1ttu\u00f0um hreinum kvikindum sj\u00f6 og sj\u00f6, kallkyns og kvenkyns. En af \u00f3hreinum kvikindum ei meira en eitt par, kallkyns og kvenkyns. L\u00edka so af fuglum loftsins sj\u00f6 og sj\u00f6, kallkyns og kvenkyns, so a\u00f0 s\u00e6\u00f0i bl\u00edfi lifandi \u00e1 allri j\u00f6r\u00f0u. \u00dev\u00ed a\u00f0 eftir sj\u00f6 daga vil eg l\u00e1ta rigna \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina \u00ed fj\u00f6rut\u00edgir daga og fj\u00f6rut\u00edgir n\u00e6tur og afm\u00e1 af j\u00f6r\u00f0unni allt \u00fea\u00f0 sem nokkra veru hefur og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-7-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2699","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2699","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2699"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2699\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2699"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}