{"id":2696,"date":"2017-12-18T18:31:30","date_gmt":"2017-12-18T18:31:30","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-4-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:30","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:30","slug":"fyrsta-mosebok-4-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-4-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrsta M\u00f3seb\u00f3k 4. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Og Adam kenndi sinnar kvinnu Evu. Og h\u00fan var\u00f0 \u00f3l\u00e9tt og f\u00e6ddi Kain og sag\u00f0i: &#8222;Eg hefi \u00f6\u00f0last \u00feann mann Drottinn.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Kain Abel\">[<\/span> Og h\u00fan var\u00f0 \u00f3l\u00e9tt \u00ed anna\u00f0 sinn og f\u00e6ddi hans br\u00f3\u00f0ur Abel. Og Abel var\u00f0 sau\u00f0ahir\u00f0ir en Kain var\u00f0 einn akurma\u00f0ur. <\/p>\n<p>\tOg \u00fea\u00f0 ske\u00f0i so eftir stundir li\u00f0nar a\u00f0 Kain f\u00e6r\u00f0i Drottni f\u00f3rnir af \u00e1v\u00f6xtum jar\u00f0ar. Abel bar og fram af frumbur\u00f0i sinnar hjar\u00f0ar og af \u00feeirra feiti. Og Drottinn leit n\u00e1\u00f0arsamlega til Abels og til hans f\u00f3rnar. En til Kains og hans f\u00f3rnar leit hann ekki n\u00e1\u00f0arsamlega. \u00de\u00e1 var\u00f0 Kain afar rei\u00f0ur so a\u00f0 hans yfirbrag\u00f0 afmynda\u00f0ist. Og Drottinn sag\u00f0i til Kains: &#8222;\u00dev\u00ed ertu so rei\u00f0ur? Og hvar fyrir afmyndast so \u00feitt yfirbrag\u00f0? Er ekki so? Ef \u00fe\u00fa ert fr\u00f3mur \u00fe\u00e1 ertu \u00feakkn\u00e6mur en s\u00e9rt \u00fe\u00fa ekki fr\u00f3mur \u00fe\u00e1 hv\u00edlist syndin fyrir dyrum, en l\u00e1t \u00fe\u00fa hana ekki hafa sinn vilja heldur drottna yfir henni.&#8220; \u00de\u00e1 tala\u00f0i Kain vi\u00f0 br\u00f3\u00f0ur sinn Abel.<\/p>\n<p>\tOg \u00fea\u00f0 ske\u00f0i so \u00fe\u00e1 \u00feeir voru til samans \u00e1 akrinum a\u00f0 Kain reis upp \u00ed m\u00f3ti s\u00ednum br\u00f3\u00f0ir Abel og sl\u00f3 hann \u00ed hel. <span class=\"athugasemd\" title=\"Kain sl\u00f3 Abel \u00ed hel Math. 23. I. J\u00f3h. I. Sap. 10.\">[<\/span> \u00de\u00e1 m\u00e6lti Drottinn til Kain: &#8222;Hvar er \u00feinn br\u00f3\u00f0ir Abel?&#8220; Hann svara\u00f0i: &#8222;Eg veit ekki. E\u00f0a \u00e1 eg a\u00f0 vakta minn br\u00f3\u00f0ur?&#8220; Og hann sag\u00f0i: &#8222;Hva\u00f0 hefur \u00fe\u00fa gj\u00f6rt? R\u00f6ddin \u00fe\u00edns br\u00f3\u00f0urs bl\u00f3\u00f0s hr\u00f3par til m\u00edn af j\u00f6r\u00f0unni. Og b\u00f6lva\u00f0ur s\u00e9rtu n\u00fa \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni sem upplauk s\u00ednum munni og t\u00f3k \u00fe\u00edns br\u00f3\u00f0urs bl\u00f3\u00f0 af \u00feinni hendi. <span class=\"athugasemd\" title=\"B\u00f6lvan yfir Kain\">[<\/span> N\u00e6r \u00fe\u00fa erjar j\u00f6r\u00f0ina \u00fe\u00e1 skal h\u00fan ekki h\u00e9r eftir gefa \u00fe\u00e9r af <span class=\"athugasemd\" title=\"sword sinni formegan\">[<\/span> s\u00ednum gr\u00f3\u00f0a, r\u00e1fandi og landfl\u00f3tta skalt \u00fe\u00fa vera \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni. <\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i Kain til Drottins: &#8222;M\u00edn synd er st\u00e6rri en \u00fea\u00f0 h\u00fan megi m\u00e9r fyrirgefast. Sj\u00e1: \u00de\u00fa \u00fatsk\u00fafar m\u00e9r \u00ed dag af landinu og eg hl\u00fdt a\u00f0 fela mig fyrir \u00fe\u00ednu augliti og vera so r\u00e1fandi landfl\u00f3tta ma\u00f0ur \u00e1 j\u00f6r\u00f0u. \u00de\u00e1 vill \u00fea\u00f0 m\u00edn ver\u00f0a a\u00f0 hver mig finnur hann mun sl\u00e1 mig \u00ed hel.&#8220; En Drottinn sag\u00f0i til hans: &#8222;\u00dea\u00f0 skal ekki ske, heldur hver sem Kain \u00ed hel sl\u00e6r, \u00feess skal hefnt ver\u00f0a sj\u00f6faldlega.&#8220; Og Drottinn setti eitt einkenningarmark \u00e1 Kain a\u00f0 enginn skyldi sl\u00e1 hann \u00ed hel, hver sem hann fyndi. So gekk Kain \u00fat fr\u00e1 augliti Drottins og bj\u00f3 \u00ed landinu N\u00f3d fyrir austan Eden.<\/p>\n<p>\tOg Kain kenndi sinnar kvinnu og h\u00fan var\u00f0 \u00f3l\u00e9tt og f\u00e6ddi Henok. <span class=\"athugasemd\" title=\"Kains kynkv\u00edsl\">[<\/span> Og hann uppbygg\u00f0i eina borg og kalla\u00f0i hana eftir s\u00edns sonar nafni Henok. Og Henok gat \u00cdra\u00f0, \u00cdra\u00f0 gat Mah\u00fajael, Mah\u00fajael gat Mat\u00fasael, Mat\u00fasael gat Lamek. <\/p>\n<p>\tEn Lamek t\u00f3k s\u00e9r tv\u00e6r eiginkonur, ein \u00feeirra h\u00e9t Ada en \u00f6nnur Silla. <span class=\"athugasemd\" title=\"Lamek Ada Silla\">[<\/span> Og Ada f\u00e6ddi Jabal. Af honum eru \u00feeir komnir sem bjuggu \u00ed landtj\u00f6ldum og voru fj\u00e1rhir\u00f0arar. Og hans br\u00f3\u00f0ir h\u00e9t J\u00fabal. Hann h\u00f3f fyrstur manna h\u00f6rpusl\u00e1tt og organs leik. Og Silla var\u00f0 \u00f3l\u00e9tt og f\u00e6ddi T\u00fabalkain. Hann var hagleiksma\u00f0ur \u00ed allra handa koparsm\u00ed\u00f0i og j\u00e1rnsm\u00ed\u00f0i. T\u00fabalkains systir h\u00e9t Naema.<\/p>\n<p>\tOg Lamek sag\u00f0i til sinna kvenna: &#8222;Ada og Silla, \u00fei\u00f0 Lameks kvinnur, heyri\u00f0 m\u00edn or\u00f0 og gefi\u00f0 gaum a\u00f0 \u00fev\u00ed eg segi. Eg hefi \u00ed hel slegi\u00f0 einn mann m\u00e9r til \u00e1verka og eitt ungmenni m\u00e9r til s\u00e1rsauka. Kains skal sj\u00f6 sinnum hefnt ver\u00f0a en Lameks sj\u00f6t\u00edgi sinnum sj\u00f6 sinnum.&#8220; <\/p>\n<p>\tOg Adam kenndi sinnar kvinnu a\u00f0 n\u00fdju og h\u00fan f\u00e6ddi einn son. <span class=\"athugasemd\" title=\"Set\">[<\/span> \u00deann kalla\u00f0i h\u00fan Set. &#8222;\u00dev\u00ed Gu\u00f0 hefur (sag\u00f0i h\u00fan) s\u00e9\u00f0 mig og gefi\u00f0 m\u00e9r n\u00fa anna\u00f0 s\u00e6\u00f0i \u00ed sta\u00f0inn Abels sem Kain sl\u00f3 \u00ed hel.&#8220; Og Set \u00e1tti einn son. \u00deann kalla\u00f0i hann Enos. Og \u00e1 \u00feeim t\u00edma h\u00f3fu menn a\u00f0 predika \u00fat af nafni Drottins.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Og Adam kenndi sinnar kvinnu Evu. Og h\u00fan var\u00f0 \u00f3l\u00e9tt og f\u00e6ddi Kain og sag\u00f0i: &#8222;Eg hefi \u00f6\u00f0last \u00feann mann Drottinn.&#8220; [ Og h\u00fan var\u00f0 \u00f3l\u00e9tt \u00ed anna\u00f0 sinn og f\u00e6ddi hans br\u00f3\u00f0ur Abel. Og Abel var\u00f0 sau\u00f0ahir\u00f0ir en Kain var\u00f0 einn akurma\u00f0ur. Og \u00fea\u00f0 ske\u00f0i so eftir stundir li\u00f0nar a\u00f0 Kain f\u00e6r\u00f0i Drottni f\u00f3rnir af \u00e1v\u00f6xtum jar\u00f0ar. Abel bar og fram af frumbur\u00f0i sinnar hjar\u00f0ar og af \u00feeirra feiti. Og Drottinn leit n\u00e1\u00f0arsamlega til Abels og til hans f\u00f3rnar. En til Kains og hans f\u00f3rnar leit hann ekki n\u00e1\u00f0arsamlega. \u00de\u00e1 var\u00f0 Kain afar rei\u00f0ur so a\u00f0 hans yfirbrag\u00f0 afmynda\u00f0ist. <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-mosebok-4-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2696","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2696","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2696"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2696\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2696"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}