{"id":5266,"date":"2019-04-22T17:58:56","date_gmt":"2019-04-22T17:58:56","guid":{"rendered":"https:\/\/biblian.is\/fraedsla\/?page_id=5266"},"modified":"2026-04-17T13:01:08","modified_gmt":"2026-04-17T13:01:08","slug":"fyrra-korintubref-inngangur","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/fraedsla\/ritskyring\/fyrra-korintubref-inngangur\/","title":{"rendered":"Fyrra Korintubr\u00e9f &#8211; Inngangur"},"content":{"rendered":"<p><em>Tr\u00fain \u00e1 Jes\u00fa Krist gerir \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum, a\u00f0 vi\u00f0 vingumst ekki a\u00f0eins vi\u00f0 Gu\u00f0 heldur og b\u00f6rn hans, hvar sem \u00feau eiga heima. N\u00fa fr\u00e6\u00f0umst vi\u00f0 um \u00fea\u00f0, hvernig P\u00e1ll s\u00e1\u00f0i ni\u00f0ur frj\u00f3kornum tr\u00faarinnar \u00ed hj\u00f6rtu Korintumanna og hversu vin\u00e1tta hans og \u00feeirra skaut vi\u00f0 \u00fea\u00f0 r\u00f3tum og dafna\u00f0i. <\/em><\/p>\n<h3>Hver eru einkenni Fyrra Korintubr\u00e9fs?<em>\u00a0<\/em><\/h3>\n<p>\u00cd Fyrra Korintubr\u00e9fi kemur gl\u00f6gglega fram, hver \u00farlausnarefni s\u00f6fnu\u00f0ur frumkirkjunnar \u00ed Korintu \u00e1tti vi\u00f0 a\u00f0 eiga. Vi\u00f0horf P\u00e1ls til \u00fdmissa \u00e1litaefna koma \u00fev\u00ed sk\u00fdrt \u00ed lj\u00f3s. Kunnir kaflar \u00ed br\u00e9finu fjalla um n\u00e1\u00f0argjafir heilags anda og \u00ed \u00fev\u00ed er l\u00edka a\u00f0 finna hinn fr\u00e6ga \u00f3\u00f0 P\u00e1ls postula til k\u00e6rleikans (12-14). 15. kap\u00edtulinn hefur me\u00f0al annars inni a\u00f0 halda hin huggunarr\u00edku or\u00f0 P\u00e1ls um sigur Gu\u00f0s yfir dau\u00f0anum. \u00dear r\u00e6\u00f0ir og um l\u00edfi\u00f0 n\u00fdja og hinn &#8222;andlega&#8220; l\u00edkama, sem \u00feeim hlotnast sem \u00e1 Krist Jes\u00fa tr\u00faa.<\/p>\n<h3>Hvert var tilefni Fyrra Korintubr\u00e9fs?<\/h3>\n<p>P\u00e1ll haf\u00f0i komi\u00f0 til Korintu, dvali\u00f0 \u00fear og bo\u00f0a\u00f0 fagna\u00f0arerindi\u00f0 um Jes\u00fa Krist (sj\u00e1 Post 18.1-17). H\u00f6f\u00f0u \u00fev\u00ed tekist g\u00f3\u00f0ir kunnleikar me\u00f0 honum og l\u00e6risveinunum \u00ed Korintu. Hann skrifa\u00f0i \u00feessum vinum s\u00ednum til, af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann haf\u00f0i haft spurnir af \u00e1greiningi \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra og deilum. Einkum haf\u00f0i P\u00e1ll \u00e1hyggjur af \u00fev\u00ed a\u00f0 kristnir menn \u00ed Korintu skyldu skiptast \u00ed flokka (1.10-4.21) og koma fram hver vi\u00f0 annan eins og raun bar vitni (5.1-6.20). \u00cd br\u00e9fi s\u00ednu svarar hann og l\u00edka spurningum \u00feeirra var\u00f0andi hj\u00f3nabandi\u00f0 (7.1-40) og neyslu f\u00f3rnarkj\u00f6ts (8.1-13). Af br\u00e9fi P\u00e1ls m\u00e1 skilja, a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u \u00e1\u00f0ur sent honum fyrirspurnir um \u00feessi efni skriflega (7.1). \u00de\u00e1 vildi P\u00e1ll l\u00edka l\u00e1ta Korintumenn vita, a\u00f0 hann hef\u00f0i \u00ed hyggju a\u00f0 heims\u00e6kja \u00fe\u00e1 aftur og staldra um hr\u00ed\u00f0 (16.5).<\/p>\n<h3>Hvernig var \u00e1statt \u00ed Korintuborg, \u00feegar br\u00e9fi\u00f0 var skrifa\u00f0?<\/h3>\n<p>\u00de\u00f3tt br\u00e9fi\u00f0 s\u00e9 nefnt Fyrra Korintubr\u00e9f, er \u00fea\u00f0 ekki fyrsta br\u00e9fi\u00f0, sem P\u00e1ll skrifa\u00f0i s\u00f6fnu\u00f0inum \u00fear. \u00dea\u00f0 vitum vi\u00f0, af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann segist \u00ed \u00feessu br\u00e9fi hafa rita\u00f0 s\u00f6mu m\u00f3ttakendum anna\u00f0 br\u00e9f \u00e1\u00f0ur (5.9). Sj\u00e1 og innganginn a\u00f0 S\u00ed\u00f0ara Korintubr\u00e9fi.<\/p>\n<p>Korintuborg st\u00f3\u00f0 um 80 km. vestur af A\u00feenu, \u00e1 mj\u00f3u ei\u00f0i milli Eyjahafs og Adr\u00edahafs, en \u00fea\u00f0 tengir meginland Grikklands vi\u00f0 Pelopsskaga. \u00dear var skipal\u00e6gi b\u00e6\u00f0i til austurs og vesturs. Um borgina l\u00e9ku \u00fev\u00ed margir menningarstraumar og var f\u00f3lk \u00fear flest mj\u00f6g veraldlega sinna\u00f0. Mikil helgi haf\u00f0i lengi veri\u00f0 \u00e1 Afrodite, gy\u00f0ju fegur\u00f0ar og \u00e1sta. P\u00e1ll r\u00e6\u00f0ir \u00ed br\u00e9fi s\u00ednu um \u00fdmis \u00feau vandr\u00e6\u00f0i, sem hinir kristnu \u00ed Korintu \u00feurftu a\u00f0 klj\u00e1st vi\u00f0 vegna \u00e1standsins sem \u00fear r\u00edkti \u00ed si\u00f0fer\u00f0ism\u00e1lum.<\/p>\n<h3>Efnisskipan br\u00e9fsins<\/h3>\n<p>Fyrra Korintubr\u00e9f er a\u00f0 l\u00edkindum eitt, \u00f3sliti\u00f0 sendibr\u00e9f fr\u00e1 upphafi til enda. \u00de\u00f3 er tali\u00f0 hugsanlegt a\u00f0 auki\u00f0 hafi veri\u00f0 \u00ed \u00fea\u00f0 \u00f6\u00f0rum br\u00e9fum P\u00e1ls til Korintumanna. Hva\u00f0 sem \u00fev\u00ed l\u00ed\u00f0ur hefst br\u00e9fi\u00f0 me\u00f0 heilsun og l\u00fdkur \u00e1 kve\u00f0jum svo sem t\u00edtt var um tilskrif \u00ed \u00feennan t\u00edma. Mestallt efni br\u00e9fsins l\u00fdtur a\u00f0 vanda- og \u00e1litam\u00e1lum, sem uppi voru \u00ed s\u00f6fnu\u00f0inum \u00ed Korintu. Undir lok br\u00e9fsins r\u00e6\u00f0ir P\u00e1ll fyrir\u00e6tlanir sj\u00e1lfs s\u00edn. Br\u00e9fi\u00f0 skiptist a\u00f0 efni til svona:<\/p>\n<ul>\n<li><strong>Heilsun og inngangur (1.1-9)<\/strong><\/li>\n<li><strong>Veri\u00f0 samhuga vegna Krists (1.10-2.16)<\/strong><\/li>\n<li><strong>Rei\u00f0i\u00f0 ykkur \u00e1 kenningu postulanna (3.1-4.21)<\/strong><\/li>\n<li><strong>\u00d3si\u00f0legur lifna\u00f0ur &#8211; Hj\u00f3nabandi\u00f0 (5.1-7.40)<\/strong><\/li>\n<li><strong>Hei\u00f0ri\u00f0 Gu\u00f0 og ekki skur\u00f0go\u00f0 (8.1-11.1)<\/strong><\/li>\n<li><strong>Gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustan og n\u00e1\u00f0argjafirnar (11.2-14.40)<\/strong><\/li>\n<li><strong>Upprisan \u2013 Kristur hefur sigra\u00f0 dau\u00f0ann (15.1-58).<\/strong><\/li>\n<li><strong>Fyrir\u00e6tlanir P\u00e1ls og kve\u00f0jur (16.1-24).<\/strong><\/li>\n<\/ul>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Tr\u00fain \u00e1 Jes\u00fa Krist gerir \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum, a\u00f0 vi\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/fraedsla\/ritskyring\/fyrra-korintubref-inngangur\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":4829,"menu_order":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-5266","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/fraedsla\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/5266","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/fraedsla\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/fraedsla\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/fraedsla\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/fraedsla\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=5266"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/fraedsla\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/5266\/revisions"}],"up":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/fraedsla\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/4829"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/fraedsla\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=5266"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}