{"id":2954,"date":"2017-12-30T21:05:19","date_gmt":"2017-12-30T21:05:19","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/%c2%85nnur-makkabeab%c2%97k-15-kafli\/"},"modified":"2018-01-02T03:32:08","modified_gmt":"2018-01-02T03:32:08","slug":"onnur-makkabeabok-15-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/onnur-makkabeabok-15-kafli\/","title":{"rendered":"\u00d6nnur Makkabeab\u00f3k 15. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Grimmilegar fyrir\u00e6tlanir N\u00edkanors<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> N\u00edkanor fr\u00e9tti a\u00f0 J\u00fadas og menn hans hef\u00f0ust vi\u00f0 \u00ed bygg\u00f0um Samar\u00edu. Afr\u00e9\u00f0 hann a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast \u00e1 \u00fe\u00e1 \u00e1 hv\u00edldardegi \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 taldi hann s\u00e9r h\u00e6ttulaust. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> En \u00feeir Gy\u00f0ingar sem neyddir h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 til a\u00f0 ganga \u00ed li\u00f0 me\u00f0 honum s\u00f6g\u00f0u: \u201eDeyddu \u00fe\u00e1 fyrir alla muni ekki me\u00f0 sl\u00edkri grimmd og villimennsku heldur skalt \u00fe\u00fa hafa \u00feann dag \u00ed hei\u00f0ri sem Hinn alskyggni hefur hei\u00f0ra\u00f0 og gert helgari \u00f6llum \u00f6\u00f0rum d\u00f6gum.\u201c <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00de\u00e1 spur\u00f0i varmenni\u00f0: \u201eEr s\u00e1 Drottinn til \u00e1 himni sem hefur bo\u00f0i\u00f0 a\u00f0 halda skuli hv\u00edldardag?\u201c <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00deeir sv\u00f6ru\u00f0u: \u201e\u00dea\u00f0 er sj\u00e1lfur lifandi Drottinn sem r\u00edkir \u00e1 himnum sem bau\u00f0 a\u00f0 halda skyldi sj\u00f6unda daginn heilagan.\u201c <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i hann: \u201eEn \u00e9g r\u00edki l\u00edka \u00e1 j\u00f6r\u00f0u og fyrirskipa a\u00f0 gripi\u00f0 skuli til vopna og fari\u00f0 a\u00f0 fyrirm\u00e6lum konungs.\u201c<br \/>Ekki t\u00f3kst honum \u00fe\u00f3 a\u00f0 framkv\u00e6ma \u00feetta sv\u00edvir\u00f0ilega \u00e1form sitt.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">J\u00fadas b\u00fdr li\u00f0 sitt til orrustu<\/h3>\n<p><a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Af yfirtaks drambi haf\u00f0i N\u00edkanor einsett s\u00e9r a\u00f0 reisa s\u00e9r minnismerki me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sigra J\u00fadas og menn hans. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> En J\u00fadas treysti \u00fev\u00ed alltaf fullkomlega og vonardjarfur a\u00f0 Drottinn k\u00e6mi s\u00e9r til hj\u00e1lpar. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Hvatti hann \u00fev\u00ed menn s\u00edna til a\u00f0 missa ekki m\u00f3\u00f0inn frammi fyrir \u00e1r\u00e1s hei\u00f0ingjanna heldur hafa hugfast hvernig himinninn hj\u00e1lpa\u00f0i \u00feeim \u00e1\u00f0ur og vera vong\u00f3\u00f0a um a\u00f0 Hinn alm\u00e1ttugi mundi einnig n\u00fa veita \u00feeim hj\u00e1lp og sigur. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Hann hughreysti \u00fe\u00e1 me\u00f0 or\u00f0um \u00far l\u00f6gm\u00e1linu og sp\u00e1m\u00f6nnunum og minnti \u00fe\u00e1 \u00e1 orrustur sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u unni\u00f0. \u00deetta j\u00f3k \u00feeim dirfsku.<br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00deegar hann haf\u00f0i vaki\u00f0 me\u00f0 \u00feeim bardagam\u00f3\u00f0 gaf hann \u00feeim fyrirm\u00e6li og l\u00fdsti einnig fyrir \u00feeim sviksemi hei\u00f0ingjanna og ei\u00f0rofum. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Hann v\u00edgbj\u00f3 hvern og einn manna sinna, ekki a\u00f0eins me\u00f0 skj\u00f6ldum og spj\u00f3tum heldur umfram allt me\u00f0 vel v\u00f6ldum hvatningaror\u00f0um. Loks sag\u00f0i hann \u00feeim draum sem var alls trausts ver\u00f0ur og l\u00e9tti \u00f6llum st\u00f3rlega \u00ed sinni.<br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> S\u00fdnin sem honum haf\u00f0i vitrast var \u00feessi: \u00d3n\u00edas, sem fyrrum var \u00e6\u00f0sti prestur, g\u00f6fugur ma\u00f0ur og g\u00f3\u00f0ur, kurteis og vinsamlegur \u00ed fasi, h\u00f3gv\u00e6r og einkar vel m\u00e1li farinn, og haf\u00f0i fr\u00e1 bernsku lagt r\u00e6kt vi\u00f0 fegurstu dyg\u00f0ir, st\u00f3\u00f0 me\u00f0 upplyftar hendur og ba\u00f0 fyrir allri \u00fej\u00f3\u00f0 Gy\u00f0inga. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Auk hans birtist J\u00fadasi ma\u00f0ur, st\u00f3rfenglegur \u00e1s\u00fdndum, hv\u00edtur fyrir h\u00e6rum og tignarlegur og fr\u00e1 honum stafa\u00f0i undursamlegum \u00e1hrifam\u00e6tti. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00d3n\u00edas m\u00e6lti: \u201eMa\u00f0ur \u00feessi, sem ann br\u00e6\u00f0rum s\u00ednum og bi\u00f0ur st\u00f6\u00f0ugt fyrir \u00fej\u00f3\u00f0inni og borginni helgu, er Jerem\u00eda, sp\u00e1ma\u00f0ur Gu\u00f0s.\u201c <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00de\u00e1 hef\u00f0i Jerem\u00eda r\u00e9tt fram h\u00e6gri h\u00f6ndina og fengi\u00f0 J\u00fadasi sver\u00f0 af gulli og sagt um lei\u00f0: <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u201eTaktu vi\u00f0 \u00feessu heilaga sver\u00f0i. \u00dea\u00f0 er Gu\u00f0s gj\u00f6f og me\u00f0 \u00fev\u00ed munt \u00fe\u00fa fella \u00f3vinina.\u201c<br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> F\u00f6gur or\u00f0 J\u00fadasar hresstu alla enda voru \u00feau vel fallin til a\u00f0 stappa \u00ed menn st\u00e1linu og vekja karlmennsku\u00fer\u00f3tt \u00ed hj\u00f6rtum ungra manna. \u00c1kv\u00e1\u00f0u \u00feeir a\u00f0 setja ekki upp herb\u00fa\u00f0ir heldur ganga djarflega fram og berjast til \u00farslita \u00fev\u00ed a\u00f0 borgin, tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0in og musteri\u00f0 voru \u00ed h\u00e6ttu. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00c1hyggja \u00feeirra af konum, b\u00f6rnum, br\u00e6\u00f0rum og \u00e6ttingjum l\u00e1 \u00feeim l\u00e9ttar \u00ed r\u00fami \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir \u00f3ttu\u00f0ust umfram allt um musteri\u00f0 heilaga.<br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00deeir sem skildir h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 eftir \u00ed borginni voru einnig mj\u00f6g kv\u00ed\u00f0nir yfir lyktum orrustunnar sem h\u00e1\u00f0 var utan borgarinnar.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">\u00d3sigur og dau\u00f0i N\u00edkanors<\/h3>\n<p><a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Allir bi\u00f0u \u00farslitanna \u00ed ofv\u00e6ni. \u00d3vinirnir h\u00f6f\u00f0u fylkt li\u00f0i og skipa\u00f0 hernum til \u00e1r\u00e1sar me\u00f0 riddarali\u00f0i beggja vegna fylkinganna og var f\u00edlum komi\u00f0 fyrir \u00e1 mikilv\u00e6gum st\u00f6\u00f0um. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00deegar Makkabeus s\u00e1 hinn mikla herafla sem stefndi a\u00f0 og hve vel hann var b\u00fainn alls kyns vopnum og hve \u00f3lmir f\u00edlarnir voru, h\u00f3f hann hendur s\u00ednar til himins og \u00e1kalla\u00f0i Drottin sem gerir m\u00e1ttarverk. Hann vissi l\u00edka vel a\u00f0 sigur byggist ekki \u00e1 vopnum heldur veitir Drottinn, samkv\u00e6mt r\u00e1\u00f0s\u00e1lyktun sinni, \u00feeim sigur sem hann ver\u00f0skulda. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Og hann ba\u00f0 me\u00f0 \u00feessum or\u00f0um: \u201e\u00de\u00fa, Drottinn, sendir engil \u00feinn \u00e1 d\u00f6gum Hisk\u00eda konungs \u00ed J\u00fadeu og hann felldi n\u00e6r hundra\u00f0 \u00e1ttat\u00edu og fimm \u00fe\u00fasund \u00ed herb\u00fa\u00f0um Sanher\u00edbs konungs. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Send \u00fev\u00ed n\u00fa, \u00fe\u00fa sem r\u00edkir \u00e1 himni, g\u00f3\u00f0an engil til a\u00f0 fara fyrir oss og valda \u00f3tta og ofbo\u00f0i. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> L\u00e1t \u00fe\u00fa voldugan arm \u00feinn fella \u00fe\u00e1 sem s\u00e6kja me\u00f0 gu\u00f0lasti fram gegn heil\u00f6gum l\u00fd\u00f0 \u00fe\u00ednum!\u201c \u00deannig lauk hann b\u00e6n sinni.<br \/> <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> N\u00fa s\u00f3ttu menn N\u00edkanors fram me\u00f0 l\u00fa\u00f0rabl\u00e6stri og her\u00f3pum <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> en J\u00fadas og menn hans h\u00e9ldu gegn \u00f3vinunum me\u00f0 \u00e1kalli og b\u00e6num.<br \/> <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u00deeir b\u00f6r\u00f0ust me\u00f0 h\u00f6ndunum en \u00e1k\u00f6llu\u00f0u Gu\u00f0 \u00ed hj\u00f6rtum s\u00ednum og felldu ekki f\u00e6rri en \u00ferj\u00e1t\u00edu og fimm \u00fe\u00fasund menn. \u00deeir f\u00f6gnu\u00f0u st\u00f3rum yfir auglj\u00f3sri opinberun Gu\u00f0s. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00deegar orrustunni lauk og \u00feeir yfirg\u00e1fu v\u00edgv\u00f6llinn fagnandi b\u00e1ru \u00feeir kennsl \u00e1 N\u00edkanor \u00fear sem hann l\u00e1 fallinn \u00ed \u00f6llum herkl\u00e6\u00f0um.<br \/> <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Ur\u00f0u \u00fe\u00e1 k\u00f6ll mikil og kli\u00f0ur og vegs\u00f6mu\u00f0u \u00feeir Drottin \u00e1 m\u00f3\u00f0urm\u00e1li s\u00ednu. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> Og J\u00fadas, sem \u00e1vallt haf\u00f0i me\u00f0 s\u00e1l og l\u00edkama barist feti framar \u00f6\u00f0rum fyrir hag landa sinna og var\u00f0veitt \u00e1st \u00e1 l\u00f6ndum s\u00ednum fr\u00e1 \u00e6sku, bau\u00f0 a\u00f0 h\u00f6fu\u00f0 N\u00edkanors og armleggur me\u00f0 \u00f6xl skyldi afh\u00f6ggvinn og fluttur til Jer\u00fasalem.<br \/> <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> Er \u00feanga\u00f0 kom kalla\u00f0i hann landa s\u00edna saman og l\u00e9t prestana ra\u00f0a s\u00e9r fyrir framan altari\u00f0. Hann l\u00e9t og s\u00e6kja setuli\u00f0i\u00f0 \u00ed virki\u00f0 <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> og s\u00fdndi h\u00f6fu\u00f0 hins illa N\u00edkanors og armlegg gu\u00f0lastarans sem hann haf\u00f0i r\u00e9tt me\u00f0 g\u00edfuryr\u00f0um gegn heil\u00f6gum b\u00fasta\u00f0 Hins alm\u00e1ttuga. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Hann l\u00e9t skera tunguna \u00far hinum gu\u00f0lausa N\u00edkanor og bau\u00f0 a\u00f0 kasta henni fyrir fugla \u00ed sm\u00e1bitum og hengja handlegginn fyrir framan musteri\u00f0 sem refsingu fyrir heimsku hans.<br \/> <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> Allir lofu\u00f0u Drottin, sem haf\u00f0i opinbera\u00f0 sig, beindu lofs\u00f6ngvum til himins og s\u00f6g\u00f0u: \u201eLofa\u00f0ur s\u00e9 hann sem var\u00f0veitt hefur musteri sitt \u00f3flekka\u00f0.\u201c <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> \u00de\u00e1 l\u00e9t J\u00fadas festa h\u00f6fu\u00f0 N\u00edkanors \u00e1 virkisvegginn sem auglj\u00f3st t\u00e1kn fyrir alla um hj\u00e1lp Drottins.<br \/> <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> \u00cd almennum kosningum var \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 l\u00e1ta \u00feessa dags alls eigi \u00f3minnst heldur halda upp \u00e1 \u00ferett\u00e1nda dag t\u00f3lfta m\u00e1na\u00f0arins, sem heitir adar \u00e1 s\u00fdrlenskri tungu, en \u00fea\u00f0 er dagurinn fyrir Mordeka\u00eddaginn. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Ni\u00f0urlag<\/h3>\n<p><a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> \u00deannig f\u00f3r fyrir N\u00edkanor. Og \u00fear sem borgin hefur \u00e6 s\u00ed\u00f0an veri\u00f0 \u00e1 valdi Hebrea l\u00e6t \u00e9g fr\u00e1s\u00f6gninni h\u00e9r loki\u00f0. <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> Hafi \u00e9g sagt vel fr\u00e1 og fari\u00f0 skipulega me\u00f0 efni\u00f0 hefur m\u00e9r or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 \u00f3sk minni. S\u00e9 h\u00fan illa skrifu\u00f0 og mi\u00f0ur ger\u00f0 gat \u00e9g ekki gert betur.<br \/> <a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> \u00d3blanda\u00f0 v\u00edn er \u00f3hollur drykkur og s\u00f6mulei\u00f0is eint\u00f3mt vatn. En v\u00edn vatni blandi\u00f0 er lystugasti drykkur og veldur vell\u00ed\u00f0an. \u00c1 sama h\u00e1tt r\u00e6\u00f0ur efnisskipan \u00fev\u00ed hvort sagan vekur \u00feeim \u00e1n\u00e6gju sem hana lesa. H\u00e9r skal svo sta\u00f0ar numi\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Grimmilegar fyrir\u00e6tlanir N\u00edkanors 1 N\u00edkanor fr\u00e9tti a\u00f0 J\u00fadas og menn hans hef\u00f0ust vi\u00f0 \u00ed bygg\u00f0um Samar\u00edu. Afr\u00e9\u00f0 hann a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast \u00e1 \u00fe\u00e1 \u00e1 hv\u00edldardegi \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 taldi hann s\u00e9r h\u00e6ttulaust. 2 En \u00feeir Gy\u00f0ingar sem neyddir h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 til a\u00f0 ganga \u00ed li\u00f0 me\u00f0 honum s\u00f6g\u00f0u: \u201eDeyddu \u00fe\u00e1 fyrir alla muni ekki me\u00f0 sl\u00edkri grimmd og villimennsku heldur skalt \u00fe\u00fa hafa \u00feann dag \u00ed hei\u00f0ri sem Hinn alskyggni hefur hei\u00f0ra\u00f0 og gert helgari \u00f6llum \u00f6\u00f0rum d\u00f6gum.\u201c 3 \u00de\u00e1 spur\u00f0i varmenni\u00f0: \u201eEr s\u00e1 Drottinn til \u00e1 himni sem hefur bo\u00f0i\u00f0 a\u00f0 halda skuli hv\u00edldardag?\u201c 4 \u00deeir sv\u00f6ru\u00f0u: \u201e\u00dea\u00f0 er sj\u00e1lfur <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/onnur-makkabeabok-15-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2954","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2954","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2954"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2954\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2954"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}