{"id":2953,"date":"2017-12-30T21:05:19","date_gmt":"2017-12-30T21:05:19","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/%c2%85nnur-makkabeab%c2%97k-14-kafli\/"},"modified":"2018-01-02T03:25:31","modified_gmt":"2018-01-02T03:25:31","slug":"onnur-makkabeabok-14-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/onnur-makkabeabok-14-kafli\/","title":{"rendered":"\u00d6nnur Makkabeab\u00f3k 14. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Alk\u00edmus r\u00e6gir J\u00fadas<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00derem \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar fr\u00e9ttu J\u00fadas og menn hans a\u00f0 Demetr\u00edus Selevkusson v\u00e6ri kominn inn \u00e1 Tr\u00edp\u00f3l\u00edh\u00f6fn me\u00f0 mikinn her og flota <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> og hef\u00f0i n\u00e1\u00f0 v\u00f6ldum \u00ed landinu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 myr\u00f0a Ant\u00edokkus og L\u00fds\u00edas, forr\u00e1\u00f0amann hans.<br \/> <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Ma\u00f0ur nokkur, Alk\u00edmus a\u00f0 nafni, sem fyrrum var \u00e6\u00f0sti prestur en haf\u00f0i sj\u00e1lfviljugur saurga\u00f0 sig \u00e1 t\u00edmum tr\u00faarofs\u00f3knanna, vissi sem var a\u00f0 hann \u00e1tti hvorki kost \u00e1 a\u00f0 halda emb\u00e6tti s\u00ednu n\u00e9 hlj\u00f3ta a\u00f0 n\u00fdju a\u00f0gang a\u00f0 hinu heilaga altari. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Hann gekk \u00fev\u00ed fyrir Demetr\u00edus konung \u00e1ri\u00f0 eitt hundra\u00f0 fimmt\u00edu og eitt og f\u00e6r\u00f0i honum gullsveig og p\u00e1lmavi\u00f0argrein og auk \u00feess nokkrar \u00f3l\u00edfuvi\u00f0argreinar sem si\u00f0ur var a\u00f0 hafa \u00ed musterinu. Frekar haf\u00f0ist hann ekki a\u00f0 \u00feann dag.<br \/> <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> En hann f\u00e9kk t\u00e6kif\u00e6ri sem henta\u00f0i f\u00e1r\u00e1nlegu r\u00e1\u00f0abruggi hans \u00feegar Demetr\u00edus kvaddi hann \u00e1 fund me\u00f0 r\u00e1\u00f0gj\u00f6fum s\u00ednum og innti hann eftir \u00fev\u00ed hvernig Gy\u00f0ingar v\u00e6ru sinna\u00f0ir og hva\u00f0 \u00feeir hyg\u00f0ust fyrir. \u00dev\u00ed svara\u00f0i hann:<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u201eGy\u00f0ingar \u00feeir sem nefnast Has\u00eddear og J\u00fadas Makkabeus er foringi fyrir ala st\u00f6\u00f0ugt \u00e1 \u00f3fri\u00f0i og \u00e6sa til uppreisnar. \u00deeir varna \u00fev\u00ed a\u00f0 kyrr\u00f0 komist \u00e1 \u00ed r\u00edkinu. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00deess vegna er \u00e9g hinga\u00f0 kominn \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00e9g hafi veri\u00f0 sviptur \u00feeirri tign sem \u00e9g \u00e1 arfborinn r\u00e9tt \u00e1, \u00fea\u00f0 er \u00e6\u00f0staprestsemb\u00e6ttinu, <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> a\u00f0 \u00e9g er framar \u00f6\u00f0ru kn\u00fainn af hugheilli umhyggju fyrir m\u00e1lefnum konungs og einnig fyrir hag landa minna. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er fyrir f\u00e1visku \u00feessara \u00e1\u00f0urnefndu manna sem \u00fej\u00f3\u00f0in \u00f6ll m\u00e1 l\u00ed\u00f0a st\u00f3rum. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00deegar \u00fe\u00fa, konungur, hefur kanna\u00f0 \u00feetta allt n\u00e1i\u00f0 bi\u00f0 \u00e9g \u00feig a\u00f0 taka land okkar og a\u00f0\u00ferengda \u00fej\u00f3\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00e9r af \u00feeim milda mannk\u00e6rleika sem \u00fe\u00fa au\u00f0s\u00fdnir \u00f6llum. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> En me\u00f0an J\u00fadas er \u00e1 l\u00edfi er \u00f3hugsandi a\u00f0 fri\u00f0ur komist \u00e1 \u00ed r\u00edkinu.\u201c<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Demetr\u00edus sendir N\u00edkanor til \u00e1r\u00e1sar \u00e1 J\u00fadas<\/h3>\n<p><a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00deegar hann haf\u00f0i loki\u00f0 \u00feessum m\u00e1lflutningi s\u00ednum var\u00f0 h\u00e6gara fyrir a\u00f0ra vini konungs, sem h\u00f6f\u00f0u horn \u00ed s\u00ed\u00f0u J\u00fadasar, a\u00f0 \u00e6sa Demetr\u00edus gegn honum. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Setti konungur N\u00edkanor, sem veri\u00f0 haf\u00f0i yfir f\u00edlali\u00f0ssveitinni, herstj\u00f3ra yfir J\u00fadeu og sendi hann \u00feanga\u00f0 <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> me\u00f0 skriflega tilskipun um a\u00f0 dey\u00f0a J\u00fadas, tv\u00edstra li\u00f0i hans og veita Alk\u00edmusi emb\u00e6tti \u00e6\u00f0sta prests vi\u00f0 musteri\u00f0 mikla.<br \/> <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> En hei\u00f0ingjar \u00feeir sem fl\u00fai\u00f0 h\u00f6f\u00f0u fyrir J\u00fadasi \u00ed J\u00fadeu gengu h\u00f3pum saman til li\u00f0s vi\u00f0 N\u00edkanor \u00fear sem \u00feeir h\u00e9ldu a\u00f0 \u00f3g\u00e6fa Gy\u00f0inga og \u00f3farir yr\u00f0u \u00feeim til fars\u00e6ldar.<br \/> <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00deegar Gy\u00f0ingar fr\u00e9ttu af herfer\u00f0 N\u00edkanors og a\u00f0 hei\u00f0ingjar byggjust til \u00e1r\u00e1sar str\u00e1\u00f0u \u00feeir mold yfir sig og \u00e1k\u00f6llu\u00f0u hann sem valdi \u00fej\u00f3\u00f0ina s\u00e9r til eignar a\u00f0 eil\u00edfu og opinberast \u00e6t\u00ed\u00f0 til a\u00f0 annast eign s\u00edna. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> A\u00f0 bo\u00f0i fyrirli\u00f0a s\u00edns t\u00f3ku \u00feeir sig \u00feegar upp \u00fea\u00f0an og lenti \u00feeim saman vi\u00f0 \u00f3vinina n\u00e6rri \u00feorpinu Dessa\u00fa. <br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> S\u00edmon, br\u00f3\u00f0ir J\u00fadasar, lag\u00f0i til orrustu vi\u00f0 N\u00edkanor en f\u00f3r um sinn halloka vegna \u00f3v\u00e6ntra a\u00f0ger\u00f0a \u00f3vinanna. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Samt hika\u00f0i N\u00edkanor vi\u00f0 a\u00f0 berjast til bl\u00f3\u00f0ugra \u00farslita vegna \u00feess or\u00f0s sem f\u00f3r af hugpr\u00fd\u00f0i J\u00fadasar og manna hans og hve hraustlega \u00feeir b\u00f6r\u00f0ust fyrir f\u00f6\u00f0urland sitt. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00deess vegna sendi hann Poseidon\u00edus, Teod\u00f3tus og Mattat\u00edas til \u00feess a\u00f0 koma \u00e1 fri\u00f0arsamningum.<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Eftir \u00edtarlegar umr\u00e6\u00f0ur r\u00e6ddi N\u00edkanor einnig vi\u00f0 li\u00f0 sitt. Er \u00ed lj\u00f3s kom a\u00f0 einhugur haf\u00f0i n\u00e1\u00f0st var samningur sam\u00feykktur.<br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Dagur var tiltekinn er fyrirli\u00f0arnir skyldu hittast og r\u00e6\u00f0a saman einslega. Kom vagn fr\u00e1 hvorri hli\u00f0 og var st\u00f3lum komi\u00f0 fyrir. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> J\u00fadas kom vopnu\u00f0um m\u00f6nnum fyrir \u00e1 hentugum st\u00f6\u00f0um og \u00e1ttu \u00feeir a\u00f0 vera vi\u00f0b\u00fanir ef \u00f3vinirnir gripu skyndilega til illvirkja. \u00deeir r\u00e9\u00f0u s\u00ed\u00f0an r\u00e1\u00f0um s\u00ednum \u00ed br\u00f3\u00f0erni.<br \/> <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> N\u00edkanor settist s\u00ed\u00f0an a\u00f0 \u00ed Jer\u00fasalem og ger\u00f0i ekkert illt af s\u00e9r heldur sendi \u00e1 brott mannfj\u00f6ldann sem hann haf\u00f0i safna\u00f0 a\u00f0 s\u00e9r. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Hann haf\u00f0i J\u00fadas st\u00f6\u00f0ugt n\u00e6rri s\u00e9r og haf\u00f0i hann \u00ed miklum metum. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Hann hvatti J\u00fadas til a\u00f0 kv\u00e6nast og eignast b\u00f6rn. Festi hann r\u00e1\u00f0 sitt, kom s\u00e9r vel fyrir og naut l\u00edfsins. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">N\u00edkanor sn\u00fdst gegn J\u00fadasi<\/h3>\n<p><a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Alk\u00edmus var\u00f0 \u00feess var hve vel f\u00f3r \u00e1 me\u00f0 \u00feeim J\u00fadasi og N\u00edkanor. F\u00f3r hann til fundar vi\u00f0 Demetr\u00edus konung og haf\u00f0i me\u00f0 s\u00e9r samningana sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u gert me\u00f0 s\u00e9r. Bar hann a\u00f0 N\u00edkanor hef\u00f0i reynst \u00f3tr\u00far r\u00edkinu \u00fev\u00ed a\u00f0 hann hef\u00f0i \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 gera J\u00fadas, sem s\u00e6ti \u00e1 svikr\u00e1\u00f0um vi\u00f0 konungd\u00e6mi\u00f0, a\u00f0 eftirmanni s\u00ednum.<br \/> <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u00deessi r\u00f3gbur\u00f0ur mannhundsins ger\u00f0i konungi heitt \u00ed hamsi og \u00ed br\u00e6\u00f0i sinni rita\u00f0i hann N\u00edkanor br\u00e9f. L\u00fdsti hann \u00f3\u00e1n\u00e6gju sinni me\u00f0 samkomulagi\u00f0 og skipa\u00f0i honum a\u00f0 senda Makkabeus tafarlaust \u00ed b\u00f6ndum til Ant\u00edokk\u00edu. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00deegar \u00feessi bo\u00f0 b\u00e1rust N\u00edkanor var\u00f0 hann st\u00f3rlega mi\u00f0ur s\u00edn og undi \u00fev\u00ed illa a\u00f0 rj\u00fafa samkomulag vi\u00f0 mann sem \u00ed engu haf\u00f0i \u00fat af \u00fev\u00ed brug\u00f0i\u00f0. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> En \u00fear sem ekki var unnt a\u00f0 breyta gegn vilja konungs bei\u00f0 hann hentugs f\u00e6ris til a\u00f0 koma \u00feessu fram me\u00f0 br\u00f6g\u00f0um.<br \/> <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> Makkabeus var\u00f0 var vi\u00f0 a\u00f0 N\u00edkanor var\u00f0 \u00e6 f\u00e1l\u00e1tari vi\u00f0 hann og \u00f3kurteisari en hann var vanur og t\u00f3k a\u00f0 gruna a\u00f0 kuldi hans \u00ed vi\u00f0m\u00f3ti vissi ekki \u00e1 gott. Safna\u00f0i hann \u00fev\u00ed saman allm\u00f6rgum manna sinna og f\u00f3r \u00ed felur fyrir N\u00edkanor.<br \/> <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> \u00deegar N\u00edkanor var\u00f0 \u00feess \u00e1skynja a\u00f0 J\u00fadas haf\u00f0i s\u00e9\u00f0 listilega vi\u00f0 honum h\u00e9lt hann inn \u00ed hi\u00f0 mikla og heilaga musteri, einmitt \u00feegar prestarnir voru a\u00f0 bera fram \u00fe\u00e6r f\u00f3rnir sem bar, og skipa\u00f0i \u00feeim a\u00f0 framselja manninn. <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> \u00deeir s\u00f3ru og s\u00e1rt vi\u00f0 l\u00f6g\u00f0u a\u00f0 \u00feeir hef\u00f0u ekki hugmynd um hvar s\u00e1 v\u00e6ri sem hann leita\u00f0i a\u00f0. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> \u00de\u00e1 r\u00e9tti N\u00edkanor h\u00e6gri h\u00f6nd s\u00edna \u00ed \u00e1ttina a\u00f0 musterinu og s\u00f3r me\u00f0 \u00feessum or\u00f0um: \u201eEf \u00fei\u00f0 framselji\u00f0 m\u00e9r ekki J\u00fadas \u00ed fj\u00f6trum skal \u00e9g jafna \u00feennan helgid\u00f3m Gu\u00f0s vi\u00f0 j\u00f6r\u00f0u og r\u00edfa altari\u00f0 ni\u00f0ur og reisa s\u00ed\u00f0an D\u00edon\u00fdsosi veglegt musteri \u00ed hans sta\u00f0.\u201c<br \/> <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> A\u00f0 \u00feessu m\u00e6ltu f\u00f3r hann. En prestarnir h\u00f3fu hendur s\u00ednar til himins og \u00e1k\u00f6llu\u00f0u hann sem verndar \u00fej\u00f3\u00f0 okkar og s\u00f6g\u00f0u: <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> \u201eDrottinn, \u00fe\u00f3tt \u00fe\u00fa \u00fearfnist einskis hefur \u00fe\u00e9r \u00fe\u00f3knast a\u00f0 setja musteri n\u00e6rveru \u00feinnar me\u00f0al okkar. <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> Heilagur Drottinn, \u00e6\u00f0ri \u00f6llu heil\u00f6gu. Var\u00f0veit \u00fe\u00fa n\u00fa \u00f3flekka\u00f0 og a\u00f0 eil\u00edfu \u00feetta h\u00fas sem fyrir sk\u00f6mmu var hreinsa\u00f0.\u201c <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Ras\u00eds deyr fyrir \u00fej\u00f3\u00f0 s\u00edna<\/h3>\n<p><a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> N\u00edkanor var v\u00edsa\u00f0 \u00e1 Ras\u00eds nokkurn sem var \u00ed h\u00f3pi \u00f6ldunganna \u00ed Jer\u00fasalem. Hann unni l\u00f6ndum s\u00ednum, haf\u00f0i mj\u00f6g g\u00f3\u00f0an or\u00f0st\u00edr og var svo g\u00f3\u00f0vilja\u00f0ur a\u00f0 hann var kalla\u00f0ur \u201efa\u00f0ir Gy\u00f0inga\u201c. <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> \u00cd upphafi tr\u00faarofs\u00f3knanna haf\u00f0i hann veri\u00f0 \u00e1k\u00e6r\u00f0ur fyrir gy\u00f0inglega tr\u00fa s\u00edna og h\u00e6tt b\u00e6\u00f0i l\u00edfi og limum fyrir sta\u00f0festu s\u00edna og trygg\u00f0 vi\u00f0 gy\u00f0ingd\u00f3m.<br \/> <a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> \u00dear sem N\u00edkanor vildi gera l\u00fd\u00f0um lj\u00f3st hve mj\u00f6g hann fjandskapa\u00f0ist vi\u00f0 Gy\u00f0inga sendi hann meira en fimm hundru\u00f0 hermenn til a\u00f0 taka Ras\u00eds h\u00f6ndum <a name=\"40\"><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span><\/a> enda \u00e1leit hann sig gera \u00feeim miki\u00f0 til miska me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 handtaka \u00feennan mann.<br \/> <a name=\"41\"><span class=\"versanumer_2007\">41<\/span><\/a> Er hermennirnir voru a\u00f0 \u00fev\u00ed komnir a\u00f0 hertaka turninn reyndu \u00feeir a\u00f0 sprengja upp dyrnar a\u00f0 forgar\u00f0inum. K\u00f6llu\u00f0u \u00feeir \u00e1 eld til a\u00f0 kveikja \u00ed dyrunum. \u00dear sem Ras\u00eds \u00e1tti s\u00e9r enga undankomulei\u00f0 beindi hann sver\u00f0i a\u00f0 sj\u00e1lfum s\u00e9r <a name=\"42\"><span class=\"versanumer_2007\">42<\/span><\/a> \u00fev\u00ed a\u00f0 hann vildi heldur deyja hetjulega en falla \u00ed hendur \u00f3gu\u00f0legra og s\u00e6ta au\u00f0m\u00fdkingu sem ekki h\u00e6f\u00f0i svo g\u00f6fugum manni. <a name=\"43\"><span class=\"versanumer_2007\">43<\/span><\/a> En svo skj\u00f3tt bar \u00feetta a\u00f0 a\u00f0 sver\u00f0i\u00f0 geiga\u00f0i og \u00fear sem hersveitin var a\u00f0 ry\u00f0jast inn um dyrnar st\u00f6kk hann \u00f3ttalaus upp \u00e1 virkism\u00farinn og varpa\u00f0i s\u00e9r djarfur ofan \u00e1 mannfj\u00f6ldann fyrir ne\u00f0an. <a name=\"44\"><span class=\"versanumer_2007\">44<\/span><\/a> F\u00f3lki\u00f0 v\u00e9k s\u00e9r \u00ed fl\u00fdti undan svo a\u00f0 hann f\u00e9ll ni\u00f0ur \u00e1 autt sv\u00e6\u00f0i sem mynda\u00f0ist milli \u00feess. <a name=\"45\"><span class=\"versanumer_2007\">45<\/span><\/a> Hann var enn \u00e1 l\u00edfi og \u00e6stur af rei\u00f0i. St\u00f3\u00f0 hann upp og hlj\u00f3p \u00ed gegnum mann\u00feyrpinguna, \u00fe\u00f3tt bl\u00f3\u00f0i\u00f0 rynni \u00ed l\u00e6kjum og s\u00e1rin v\u00e6ru mikil, og nam sta\u00f0ar uppi \u00e1 \u00feverhn\u00edptum hamri. <a name=\"46\"><span class=\"versanumer_2007\">46<\/span><\/a> \u00de\u00f3 a\u00f0 honum v\u00e6ri n\u00e6stum bl\u00e6tt \u00fat dr\u00f3 hann sj\u00e1lfur innyflin \u00fat, tv\u00edhenti \u00feau og varpa\u00f0i \u00feeim \u00e1 mannfj\u00f6ldann. \u00c1kalla\u00f0i hann Drottin l\u00edfs og anda og ba\u00f0 hann a\u00f0 gefa s\u00e9r \u00fea\u00f0 a\u00f0 n\u00fdju sem hann n\u00fa missti. Me\u00f0 \u00feessum h\u00e6tti l\u00e9t hann l\u00edfi\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Alk\u00edmus r\u00e6gir J\u00fadas 1 \u00derem \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar fr\u00e9ttu J\u00fadas og menn hans a\u00f0 Demetr\u00edus Selevkusson v\u00e6ri kominn inn \u00e1 Tr\u00edp\u00f3l\u00edh\u00f6fn me\u00f0 mikinn her og flota 2 og hef\u00f0i n\u00e1\u00f0 v\u00f6ldum \u00ed landinu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 myr\u00f0a Ant\u00edokkus og L\u00fds\u00edas, forr\u00e1\u00f0amann hans. 3 Ma\u00f0ur nokkur, Alk\u00edmus a\u00f0 nafni, sem fyrrum var \u00e6\u00f0sti prestur en haf\u00f0i sj\u00e1lfviljugur saurga\u00f0 sig \u00e1 t\u00edmum tr\u00faarofs\u00f3knanna, vissi sem var a\u00f0 hann \u00e1tti hvorki kost \u00e1 a\u00f0 halda emb\u00e6tti s\u00ednu n\u00e9 hlj\u00f3ta a\u00f0 n\u00fdju a\u00f0gang a\u00f0 hinu heilaga altari. 4 Hann gekk \u00fev\u00ed fyrir Demetr\u00edus konung \u00e1ri\u00f0 eitt hundra\u00f0 fimmt\u00edu og eitt og f\u00e6r\u00f0i honum gullsveig og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/onnur-makkabeabok-14-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2953","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2953","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2953"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2953\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2953"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}