{"id":2950,"date":"2017-12-30T21:05:19","date_gmt":"2017-12-30T21:05:19","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/%c2%85nnur-makkabeab%c2%97k-11-kafli\/"},"modified":"2017-12-30T21:05:20","modified_gmt":"2017-12-30T21:05:20","slug":"onnur-makkabeabok-11-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/onnur-makkabeabok-11-kafli\/","title":{"rendered":"\u00d6nnur Makkabeab\u00f3k 11. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> J\u00fadas Makkabeus sigrar L\u00fds\u00edas<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> L\u00fds\u00edas r\u00e1\u00f0sherra, sem var fr\u00e6ndi konungs og forr\u00e1\u00f0ama\u00f0ur hans, undi \u00fev\u00ed sem or\u00f0i\u00f0 var hi\u00f0 versta. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> safna\u00f0i hann um \u00e1ttat\u00edu \u00fe\u00fasund manna li\u00f0i og h\u00e9lt me\u00f0 \u00fea\u00f0, auk alls riddarali\u00f0s s\u00edns, gegn Gy\u00f0ingum. \u00c6tla\u00f0i hann a\u00f0 byggja Jer\u00fasalem Grikkjum, <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> gera musteri\u00f0 skattskylt eins og helgid\u00f3ma hei\u00f0ingja og bj\u00f3\u00f0a \u00e6\u00f0staprestsemb\u00e6tti\u00f0 h\u00e6stbj\u00f3\u00f0anda \u00e1 hverju \u00e1ri. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Ekki leiddi hann hugann a\u00f0 m\u00e6tti Gu\u00f0s, svo sigurviss var hann me\u00f0 f\u00f3tg\u00f6nguli\u00f0 sitt, sem taldi tug\u00fe\u00fasundir, og \u00fe\u00fasundir riddara og \u00e1ttat\u00edu f\u00edla.<br \/> <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00deegar hann var kominn inn \u00ed J\u00fadeu og n\u00e1lga\u00f0ist Bet S\u00far, sem er \u00f6flugt v\u00edgi, n\u00e6rri eitt hundra\u00f0 og fimmt\u00edu skei\u00f0r\u00fam fr\u00e1 Jer\u00fasalem, settist hann um sta\u00f0inn. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00deegar Makkabeus og menn hans fr\u00e9ttu a\u00f0 hann v\u00e6ri sestur um virki \u00feeirra sneru \u00feeir s\u00e9r \u00e1samt \u00f6llum l\u00fd\u00f0num til Drottins, \u00e1k\u00f6llu\u00f0u hann harm\u00ferungnir og gr\u00e1tandi og b\u00e1\u00f0u hann a\u00f0 senda g\u00f3\u00f0an engil til a\u00f0 bjarga \u00cdsrael. <br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Makkabeus sj\u00e1lfur bj\u00f3st fyrstur vopnum og eggja\u00f0i menn s\u00edna a\u00f0 fylgja s\u00e9r \u00fat \u00ed h\u00e1skann til hj\u00e1lpar br\u00e6\u00f0rum \u00feeirra. \u00deeir l\u00f6g\u00f0u allir sem einn f\u00faslega af sta\u00f0.<br \/> <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Ekki voru \u00feeir komnir langt fr\u00e1 Jer\u00fasalem er \u00feeim birtist riddari sem f\u00f3r fyrir li\u00f0i \u00feeirra. Bar hann hv\u00edt kl\u00e6\u00f0i og sveifla\u00f0i gullnum vopnum. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00de\u00e1 vegs\u00f6mu\u00f0u \u00feeir allir samhuga miskunnsaman Gu\u00f0 og fylltust sl\u00edkum kjarki a\u00f0 \u00feeir voru \u00feess alb\u00fanir a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast ekki einungis \u00e1 menn heldur \u00f6rgustu villid\u00fdr og j\u00e1rnm\u00fara. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> S\u00f3ttu \u00feeir s\u00ed\u00f0an fram fylktu li\u00f0i \u00e1samt himneskum li\u00f0smanni s\u00ednum sem Drottinn haf\u00f0i sent \u00feeim \u00ed miskunn sinni. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Steyptu \u00feeir s\u00e9r yfir \u00f3vinina eins og lj\u00f3n og felldu ellefu \u00fe\u00fasundir f\u00f3tg\u00f6nguli\u00f0a \u00feeirra og a\u00f0 auki sext\u00e1n hundru\u00f0 riddara og hr\u00f6ktu alla hina \u00e1 fl\u00f3tta. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Flestir \u00feeirra sem komust undan voru s\u00e1rir og vopnlausir og L\u00fds\u00edas sj\u00e1lfur bjarga\u00f0ist me\u00f0 h\u00e1\u00f0ulegum h\u00e6tti.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">L\u00fds\u00edas semur fri\u00f0 vi\u00f0 Gy\u00f0inga<\/h3>\n<p><a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> En hann var ekki \u00f3skynsamur og \u00feegar hann velti \u00f3f\u00f6rum s\u00ednum fyrir s\u00e9r rann upp fyrir honum a\u00f0 Hebrear mundu \u00f3sigrandi af \u00fev\u00ed a\u00f0 alm\u00e1ttugur Gu\u00f0 ber\u00f0ist me\u00f0 \u00feeim. Kom hann bo\u00f0um til \u00feeirra <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> og t\u00f3kst a\u00f0 telja \u00fe\u00e1 \u00e1 a\u00f0 ganga a\u00f0 samkomulagi sem um margt var sanngjarnt. Hann sannf\u00e6r\u00f0i \u00fe\u00e1 einnig um a\u00f0 hann g\u00e6ti komi\u00f0 konunginum til a\u00f0 ver\u00f0a vinur \u00feeirra.<br \/> <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Makkabeus sam\u00feykkti allt sem L\u00fds\u00edas stakk upp \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feannig taldi hann hag allra best borgi\u00f0 enda haf\u00f0i konungur fallist \u00e1 allar \u00f3skir Gy\u00f0ingum til handa sem J\u00fadas haf\u00f0i lagt skriflega fyrir L\u00fds\u00edas.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Br\u00e9f L\u00fds\u00edasar til Gy\u00f0inga<\/h3>\n<p><a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Br\u00e9fin, sem Gy\u00f0ingar h\u00f6f\u00f0u fengi\u00f0 fr\u00e1 L\u00fds\u00edasi, voru \u00e1 \u00feessa lei\u00f0:<br \/> \u201eL\u00fds\u00edas sendir \u00f6llum Gy\u00f0ingum kve\u00f0ju. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> J\u00f3hannes og Absalon, fulltr\u00faar ykkar, hafa afhent m\u00e9r eftirfarandi br\u00e9f og hafa \u00f3ska\u00f0 eftir sam\u00feykki \u00feess sem \u00fear er fari\u00f0 fram \u00e1. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00d6llu sem nau\u00f0syn bar til a\u00f0 skj\u00f3ta til konungs hef \u00e9g greint honum fr\u00e1. Hann hefur sam\u00feykkt \u00fea\u00f0 sem m\u00f6gulegt var.<br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Ef \u00fei\u00f0 haldi\u00f0 \u00e1fram a\u00f0 vera hli\u00f0hollir stj\u00f3rninni mun \u00e9g h\u00e9r eftir leitast vi\u00f0 a\u00f0 stu\u00f0la a\u00f0 heill ykkar. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Um einst\u00f6k efnisatri\u00f0i hef \u00e9g fali\u00f0 \u00e1\u00f0urnefndum m\u00f6nnum og m\u00ednum eigin fulltr\u00faum a\u00f0 r\u00e1\u00f0gast n\u00e1nar vi\u00f0 ykkur. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Lifi\u00f0 heilir.<br \/>Rita\u00f0 \u00e1 tuttugasta og fj\u00f3r\u00f0a degi m\u00e1na\u00f0ar Seifs Korintumanna \u00e1ri\u00f0 eitt hundra\u00f0 fj\u00f6rut\u00edu og \u00e1tta.\u201c <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Br\u00e9f konungs til L\u00fds\u00edasar<\/h3>\n<p><a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Br\u00e9f konungsins var sem h\u00e9r segir:<br \/>\u201eAnt\u00edokkus konungur sendir L\u00fds\u00edasi br\u00f3\u00f0ur s\u00ednum kve\u00f0ju. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Allt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 fa\u00f0ir vor var hafinn til gu\u00f0anna hefur \u00fea\u00f0 veri\u00f0 \u00f3sk vor a\u00f0 \u00feegnar r\u00edkisins geti seti\u00f0 a\u00f0 s\u00ednu \u00ed fri\u00f0i. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> V\u00e9r h\u00f6fum fregna\u00f0 a\u00f0 Gy\u00f0ingar uni illa \u00feeirri breytingu til gr\u00edskra si\u00f0a sem fa\u00f0ir vor reyndi a\u00f0 koma \u00e1 og a\u00f0 \u00feeir vilji fremur halda s\u00ednum h\u00e1ttum og hafi \u00f3ska\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 lifa a\u00f0 si\u00f0um s\u00ednum og l\u00f6gum.<br \/> <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00dear sem \u00fea\u00f0 er vilji vor a\u00f0 \u00feessi \u00fej\u00f3\u00f0 f\u00e1i einnig lifa\u00f0 \u00ed fri\u00f0i, \u00fe\u00e1 kunngj\u00f6rum v\u00e9r h\u00e9r me\u00f0 a\u00f0 musteri Gy\u00f0inga skuli afhent \u00feeim og a\u00f0 \u00feeim s\u00e9 heimilt a\u00f0 lifa a\u00f0 h\u00e6tti og si\u00f0um fe\u00f0ra sinna. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Geri\u00f0 \u00fev\u00ed svo vel a\u00f0 senda \u00feeim bo\u00f0 um velvilja vorn og semja fri\u00f0 vi\u00f0 \u00fe\u00e1 svo a\u00f0 \u00feeim ver\u00f0i hugarh\u00e6gra og \u00feeir geti gla\u00f0ir gengi\u00f0 a\u00f0 st\u00f6rfum s\u00ednum.\u201c<br \/> <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Br\u00e9f konungs til \u00fej\u00f3\u00f0arinnar var \u00e1 \u00feessa lei\u00f0: <br \/>\u201eAnt\u00edokkus konungur sendir \u00f6ldungar\u00e1\u00f0i Gy\u00f0inga og \u00f6\u00f0rum Gy\u00f0ingum kve\u00f0ju. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Ef ykkur vegnar vel \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 a\u00f0 vorum \u00f3skum. Sj\u00e1lfir erum v\u00e9r vi\u00f0 g\u00f3\u00f0a heilsu. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Menelaus hefur tj\u00e1\u00f0 oss a\u00f0 \u00fei\u00f0 vilji\u00f0 sn\u00faa heim og sinna eigin m\u00e1lum. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00deeim sem sn\u00faa heim fyrir \u00fer\u00edtugasta xant\u00edkkusm\u00e1na\u00f0ar eru h\u00e9r me\u00f0 trygg\u00f0 eftirtalin r\u00e9ttindi: <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> Gy\u00f0ingum er frj\u00e1lst a\u00f0 fara a\u00f0 eigin forskriftum um f\u00e6\u00f0u og a\u00f0 l\u00f6gum s\u00ednum a\u00f0 fyrri h\u00e6tti. Enginn \u00feeirra skal heldur \u00ed neinu gjalda fyrir dr\u00fdg\u00f0ar yfirsj\u00f3nir. <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> V\u00e9r h\u00f6fum einnig sent Menelaus til a\u00f0 koma r\u00f3 \u00e1 hugi ykkar. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Lifi\u00f0 heilir.<br \/>Rita\u00f0 \u00e1ri\u00f0 eitt hundra\u00f0 fj\u00f6rut\u00edu og \u00e1tta, fimmt\u00e1nda xant\u00edkkusm\u00e1na\u00f0ar.\u201c <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Br\u00e9f R\u00f3mverja til Gy\u00f0inga<\/h3>\n<p><a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> R\u00f3mverjar sendu \u00feeim einnig br\u00e9f sem hlj\u00f3\u00f0ar \u00feannig: <br \/>\u201eKvintus Memm\u00edus og T\u00edtus Man\u00edus, fulltr\u00faar R\u00f3mverja, senda \u00fej\u00f3\u00f0 Gy\u00f0inga kve\u00f0ju. <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> Vi\u00f0 sam\u00feykkjum \u00fea\u00f0 sem L\u00fds\u00edas fr\u00e6ndi konungsins hefur veitt ykkur. <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 sem hann \u00e1leit r\u00e9tt a\u00f0 bera undir konunginn \u00feurfi\u00f0 \u00fei\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a og senda okkur hi\u00f0 fyrsta bo\u00f0 svo a\u00f0 vi\u00f0 getum lagt erindi\u00f0 \u00feannig fyrir a\u00f0 \u00fea\u00f0 komi ykkur sem best. Vi\u00f0 erum \u00e1 f\u00f6rum til Ant\u00edokk\u00edu. <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> Sendi\u00f0 \u00fev\u00ed til okkar svo skj\u00f3tt sem ver\u00f0a m\u00e1 einhverja sem geta greint okkur fr\u00e1 afst\u00f6\u00f0u ykkar. <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> Me\u00f0 heilla\u00f3skum. <br \/>Rita\u00f0 \u00e1ri\u00f0 eitt hundra\u00f0 fj\u00f6rut\u00edu og \u00e1tta, fimmt\u00e1nda xant\u00edkkusm\u00e1na\u00f0ar.\u201c<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>J\u00fadas Makkabeus sigrar L\u00fds\u00edas 1 L\u00fds\u00edas r\u00e1\u00f0sherra, sem var fr\u00e6ndi konungs og forr\u00e1\u00f0ama\u00f0ur hans, undi \u00fev\u00ed sem or\u00f0i\u00f0 var hi\u00f0 versta. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar 2 safna\u00f0i hann um \u00e1ttat\u00edu \u00fe\u00fasund manna li\u00f0i og h\u00e9lt me\u00f0 \u00fea\u00f0, auk alls riddarali\u00f0s s\u00edns, gegn Gy\u00f0ingum. \u00c6tla\u00f0i hann a\u00f0 byggja Jer\u00fasalem Grikkjum, 3 gera musteri\u00f0 skattskylt eins og helgid\u00f3ma hei\u00f0ingja og bj\u00f3\u00f0a \u00e6\u00f0staprestsemb\u00e6tti\u00f0 h\u00e6stbj\u00f3\u00f0anda \u00e1 hverju \u00e1ri. 4 Ekki leiddi hann hugann a\u00f0 m\u00e6tti Gu\u00f0s, svo sigurviss var hann me\u00f0 f\u00f3tg\u00f6nguli\u00f0 sitt, sem taldi tug\u00fe\u00fasundir, og \u00fe\u00fasundir riddara og \u00e1ttat\u00edu f\u00edla. 5 \u00deegar hann var kominn inn \u00ed J\u00fadeu og n\u00e1lga\u00f0ist Bet S\u00far, sem er <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/onnur-makkabeabok-11-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2950","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2950","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2950"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2950\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2950"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}