{"id":2948,"date":"2017-12-30T21:05:19","date_gmt":"2017-12-30T21:05:19","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/%c2%85nnur-makkabeab%c2%97k-9-kafli\/"},"modified":"2018-01-11T19:44:34","modified_gmt":"2018-01-11T19:44:34","slug":"onnur-makkabeabok-9-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/onnur-makkabeabok-9-kafli\/","title":{"rendered":"\u00d6nnur Makkabeab\u00f3k 9. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Drottinn refsar Ant\u00edokkusi<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Um \u00feessar mundir var Ant\u00edokkus \u00e1 \u00f3skipulegu undanhaldi fr\u00e1 Pers\u00edu. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Hann haf\u00f0i r\u00e1\u00f0ist inn \u00ed Persep\u00f3lis, sem svo er nefnd, til a\u00f0 r\u00e6na musteri\u00f0 og n\u00e1 borginni \u00e1 sitt vald. Borgarb\u00faar brug\u00f0ust vi\u00f0 og gripu til vopna til a\u00f0 verjast. \u00deeim t\u00f3kst a\u00f0 reka Ant\u00edokkus \u00e1 fl\u00f3tta svo a\u00f0 hann var\u00f0 a\u00f0 h\u00f6rfa aftur sneyptur.<br \/> <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Er hann n\u00e1lga\u00f0ist Ekbatana fr\u00e9tti hann hvernig li\u00f0i N\u00edkanors og T\u00edm\u00f3teusar reiddi af. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Var\u00f0 hann \u00e6varei\u00f0ur og \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 l\u00e1ta Gy\u00f0inga l\u00ed\u00f0a fyrir \u00fea\u00f0 og einnig fyrir tj\u00f3ni\u00f0 sem Persep\u00f3lisb\u00faar ollu honum er \u00feeir r\u00e1ku hann \u00e1 fl\u00f3tta. Skipa\u00f0i hann \u00f6kumanni s\u00ednum a\u00f0 aka linnulaust alla lei\u00f0 \u00ed \u00e1fangasta\u00f0.<br \/>D\u00f3mur himinsins var sannarlega me\u00f0 \u00ed \u00feeirri f\u00f6r. Konungur sag\u00f0i nefnilega \u00ed drambi s\u00ednu: \u201e\u00c9g skal gera Jer\u00fasalem a\u00f0 fj\u00f6ldagr\u00f6f Gy\u00f0inga um lei\u00f0 og \u00e9g kem \u00feanga\u00f0.\u201c <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> En Gu\u00f0 \u00cdsraels, sem er alskyggn Drottinn, laust hann \u00f3s\u00fdnilegri og \u00f3l\u00e6knandi meinsemd. Haf\u00f0i konungur vart sleppt \u00feessum or\u00f0um \u00feegar hann gat t\u00e6past af s\u00e9r bori\u00f0 fyrir i\u00f0rakv\u00f6lum og innant\u00f6kum.<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Var \u00fea\u00f0 fyllilega makleg hegning fyrir \u00feann sem haf\u00f0i pynta\u00f0 a\u00f0ra innvortis \u00e1 hr\u00e6\u00f0ilegan h\u00e1tt. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Ekki r\u00e9na\u00f0i \u00fe\u00f3 dramb hans heldur var\u00f0 hann s\u00fdnu hrokafyllri en \u00e1\u00f0ur, brann af heift gegn Gy\u00f0ingum og bau\u00f0 a\u00f0 enn hra\u00f0ar skyldi eki\u00f0. En sem vagninn \u00feaut \u00e1fram \u00e1 fleygifer\u00f0 hentist konungur skyndilega af honum og kom svo harkalega ni\u00f0ur a\u00f0 hann gat hvergi \u00e1 heilum s\u00e9r teki\u00f0 og verkja\u00f0i \u00ed hvert bein.<br \/> <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Hann sem \u00e1\u00f0ur haf\u00f0i s\u00fdnt svo ofurmannlegan hroka a\u00f0 hann taldi vald sitt sl\u00edkt a\u00f0 jafnvel bylgjur hafsins hl\u00fdddu honum og hann g\u00e6ti vegi\u00f0 h\u00e6stu fj\u00f6ll \u00e1 reislu, var n\u00fa lostinn til jar\u00f0ar og borinn \u00e1 b\u00f6rum. \u00d6llum m\u00e1tti \u00fea\u00f0 vera auglj\u00f3s vottur um m\u00e1tt Gu\u00f0s. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00de\u00f3tt hann v\u00e6ri enn \u00e1 l\u00edfi skri\u00f0u ormar \u00far augum hins \u00f3gu\u00f0lega og holdi\u00f0 leystist af honum me\u00f0 mikilli \u00fej\u00e1ningu og kv\u00f6l. Fnykurinn sem lag\u00f0i af rotnandi holdi hans var\u00f0 hernum \u00f3b\u00e6rilegur. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Litlu fyrr haf\u00f0i hann tali\u00f0 sig geta n\u00e1\u00f0 til stjarna himinsins. N\u00fa gat enginn bori\u00f0 hann vegna daunsins sem af honum lag\u00f0i.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Ant\u00edokkus gerir Drottni \u00e1heit<\/h3>\n<p><a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> En n\u00fa, \u00feegar hann l\u00e1 svona h\u00f6rmulega \u00e1 sig kominn, t\u00f3k hroki hans a\u00f0 dv\u00edna og hann a\u00f0 n\u00e1 \u00e1ttum enda gengu kvalirnar, sem hegning Gu\u00f0s olli, s\u00edfellt n\u00e6r honum og \u00e1n afl\u00e1ts. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00deegar hann gat ekki einu sinni afbori\u00f0 lengur \u00f3\u00feefinn af sj\u00e1lfum s\u00e9r sag\u00f0i hann: \u201e\u00dea\u00f0 ber a\u00f0 au\u00f0m\u00fdkja sig fyrir Gu\u00f0i. Dau\u00f0legur ma\u00f0ur skyldi ekki telja sig jafningja Gu\u00f0s.\u201c <br \/> <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Og \u00feetta hrakmenni beindi b\u00e6num s\u00ednum og \u00e1heitum til \u00feess Drottins sem hann gat ekki framar v\u00e6nst neinnar miskunnar af. Hann h\u00e9t \u00fev\u00ed <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> a\u00f0 l\u00fdsa borgina heil\u00f6gu frj\u00e1lsa en \u00feanga\u00f0 haf\u00f0i hann veri\u00f0 a\u00f0 hra\u00f0a s\u00e9r. Hann haf\u00f0i einsett s\u00e9r a\u00f0 jafna borgina vi\u00f0 j\u00f6r\u00f0u og breyta henni \u00ed fj\u00f6ldagr\u00f6f. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Hann haf\u00f0i ekki \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 unna Gy\u00f0ingum legs \u00ed grafreit heldur a\u00f0 varpa \u00feeim og b\u00f6rnum \u00feeirra \u00fat til \u00e6tis fyrir villid\u00fdr og fugl. N\u00fa hug\u00f0ist hann veita \u00feeim s\u00f6mu r\u00e9ttindi og A\u00feenum\u00f6nnum. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Musteri\u00f0 heilaga, sem hann \u00e1\u00f0ur r\u00e6ndi, lofa\u00f0i hann a\u00f0 pr\u00fd\u00f0a me\u00f0 fegurstu gj\u00f6fum og b\u00e6ta margfalt fyrir \u00e1h\u00f6ldin helgu og hann lofa\u00f0i a\u00f0 grei\u00f0a kostna\u00f0 vi\u00f0 f\u00f3rnir \u00far eigin vasa. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Auk \u00feessa \u00e6tla\u00f0i hann a\u00f0 gerast Gy\u00f0ingur og fara um alla heimsbygg\u00f0ina og kunngj\u00f6ra m\u00e1tt Gu\u00f0s.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Br\u00e9f Ant\u00edokkusar til Gy\u00f0inga<\/h3>\n<p><a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> En \u00fear sem \u00ferautirnar linu\u00f0ust ekki hi\u00f0 minnsta, enda var d\u00f3mur Gu\u00f0s maklega \u00e1 hann fallinn, \u00f6rv\u00e6nti hann um sig og sendi Gy\u00f0ingum eftirfarandi br\u00e9f sem var \u00ed formi b\u00e6narskjals og hlj\u00f3\u00f0a\u00f0i svo:<br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u201eKonungurinn og hersh\u00f6f\u00f0inginn Ant\u00edokkus sendir \u00feegnum s\u00ednum, \u00e6ruver\u00f0ugum Gy\u00f0ingum, k\u00e6rar kve\u00f0jur og \u00f3skir um heill og hamingju. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Ef \u00fei\u00f0 og b\u00f6rn ykkar eru\u00f0 vi\u00f0 g\u00f3\u00f0a heilsu og gengur allt a\u00f0 \u00f3skum \u00feakka \u00e9g Gu\u00f0i \u00fea\u00f0 heils hugar me\u00f0 von festa \u00e1 himni. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00c9g ligg hins vegar sj\u00e1lfur sj\u00fakur og minnist hr\u00e6r\u00f0um huga \u00feeirrar vir\u00f0ingar og velvildar sem \u00fei\u00f0 au\u00f0s\u00fdndu\u00f0 m\u00e9r.<br \/>\u00dear sem \u00e9g var\u00f0 f\u00e1rsj\u00fakur \u00e1 lei\u00f0inni heim fr\u00e1 Pers\u00edu tel \u00e9g nau\u00f0synlegt a\u00f0 huga a\u00f0 sameiginlegu \u00f6ryggi okkar allra. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> A\u00f0 s\u00f6nnu er \u00e9g ekki vonlaus um bata, er \u00fevert \u00e1 m\u00f3ti bjarts\u00fdnn \u00e1 a\u00f0 komast \u00e1 f\u00e6tur. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00c9g minnist \u00feess a\u00f0 fa\u00f0ir minn kaus s\u00e9r eftirmann \u00feegar hann h\u00e9lt \u00ed herfer\u00f0ir til upplandanna <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> til \u00feess a\u00f0 menn vissu hverjum stj\u00f3rnin hef\u00f0i veri\u00f0 falin ef eitthva\u00f0 \u00f3v\u00e6nt henti e\u00f0a \u00f3t\u00ed\u00f0indi b\u00e6rust og \u00feyrftu \u00fev\u00ed ekki a\u00f0 \u00f3r\u00f3ast neitt. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00de\u00e1 er m\u00e9r og lj\u00f3st a\u00f0 \u00feeir sem stj\u00f3rna grannr\u00edkjunum og landam\u00e6rah\u00e9ru\u00f0unum fylgjast grannt me\u00f0 gangi m\u00e1la og \u00fev\u00ed hverju fram vindur.<br \/> \u00deess vegna l\u00fdsi \u00e9g \u00fev\u00ed yfir a\u00f0 Ant\u00edokkus sonur minn \u00e1 a\u00f0 taka konungd\u00f3m eftir mig. \u00c9g hef oft fali\u00f0 hann flestum ykkar \u00e1 hendur og tr\u00faa\u00f0 ykkur fyrir honum \u00feegar \u00e9g hef haldi\u00f0 til efri skattlandanna. Hj\u00e1lagt br\u00e9f er \u00e6tla\u00f0 honum.<br \/> <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00c9g \u00e1minni ykkur og bi\u00f0 um a\u00f0 minnast velgj\u00f6r\u00f0a minna vi\u00f0 ykkur, b\u00e6\u00f0i einstaklinga og \u00fej\u00f3\u00f0, og au\u00f0s\u00fdna syni m\u00ednum s\u00f6mu velvild og \u00fei\u00f0 s\u00fdni\u00f0 m\u00e9r. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u00c9g er sannf\u00e6r\u00f0ur um a\u00f0 hann muni koma fram vi\u00f0 ykkur af s\u00f6mu mildi og mann\u00fa\u00f0 og \u00e9g.\u201c<br \/> <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00deannig lauk \u00feessi mor\u00f0ingi og gu\u00f0lastari l\u00edfi s\u00ednu \u00ed framandi landi og m\u00e1tti l\u00ed\u00f0a s\u00e1rustu kvalir, l\u00edkar \u00feeim sem hann baka\u00f0i \u00f6\u00f0rum, og b\u00ed\u00f0a aumkunarver\u00f0asta dau\u00f0daga \u00e1 fj\u00f6llum uppi. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Filippus, \u00e6skuvinur hans, f\u00f3r me\u00f0 l\u00edk hans heim en af \u00f3tta vi\u00f0 son Ant\u00edokkusar f\u00f3r hann \u00far landi og h\u00e9lt til Pt\u00f3lemeusar F\u00edlometors \u00ed Egyptalandi.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Drottinn refsar Ant\u00edokkusi 1 Um \u00feessar mundir var Ant\u00edokkus \u00e1 \u00f3skipulegu undanhaldi fr\u00e1 Pers\u00edu. 2 Hann haf\u00f0i r\u00e1\u00f0ist inn \u00ed Persep\u00f3lis, sem svo er nefnd, til a\u00f0 r\u00e6na musteri\u00f0 og n\u00e1 borginni \u00e1 sitt vald. Borgarb\u00faar brug\u00f0ust vi\u00f0 og gripu til vopna til a\u00f0 verjast. \u00deeim t\u00f3kst a\u00f0 reka Ant\u00edokkus \u00e1 fl\u00f3tta svo a\u00f0 hann var\u00f0 a\u00f0 h\u00f6rfa aftur sneyptur. 3 Er hann n\u00e1lga\u00f0ist Ekbatana fr\u00e9tti hann hvernig li\u00f0i N\u00edkanors og T\u00edm\u00f3teusar reiddi af. 4 Var\u00f0 hann \u00e6varei\u00f0ur og \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 l\u00e1ta Gy\u00f0inga l\u00ed\u00f0a fyrir \u00fea\u00f0 og einnig fyrir tj\u00f3ni\u00f0 sem Persep\u00f3lisb\u00faar ollu honum er \u00feeir r\u00e1ku hann \u00e1 fl\u00f3tta. <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/onnur-makkabeabok-9-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2948","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2948","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2948"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2948\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2948"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}