{"id":2946,"date":"2017-12-30T21:05:19","date_gmt":"2017-12-30T21:05:19","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/%c2%85nnur-makkabeab%c2%97k-7-kafli\/"},"modified":"2018-01-02T03:14:16","modified_gmt":"2018-01-02T03:14:16","slug":"onnur-makkabeabok-7-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/onnur-makkabeabok-7-kafli\/","title":{"rendered":"\u00d6nnur Makkabeab\u00f3k 7. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> P\u00edslarv\u00e6tti m\u00f3\u00f0ur og sj\u00f6 sona hennar<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Svo bar einnig vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00f6 br\u00e6\u00f0ur voru gripnir \u00e1samt m\u00f3\u00f0ur sinni. Konungurinn lamdi \u00fe\u00e1 me\u00f0 svipum og \u00f3lum til a\u00f0 k\u00faga \u00fe\u00e1 til a\u00f0 eta sv\u00ednakj\u00f6t sem l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 bannar. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Einn br\u00e6\u00f0ranna haf\u00f0i or\u00f0 fyrir \u00feeim og sag\u00f0i: \u201eHvers \u00e6tlar \u00fe\u00fa a\u00f0 ver\u00f0a v\u00edsari hj\u00e1 okkur? Hva\u00f0 \u00e6tlar \u00fe\u00fa a\u00f0 fr\u00e6\u00f0ast um? Vi\u00f0 viljum fremur deyja en brj\u00f3ta l\u00f6g fe\u00f0ra okkar.\u201c<br \/> <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Konungur var\u00f0 \u00e6varei\u00f0ur og bau\u00f0 m\u00f6nnum s\u00ednum a\u00f0 gl\u00f3\u00f0hita p\u00f6nnur og katla. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Jafnskj\u00f3tt og \u00feeir voru or\u00f0nir gl\u00f3andi skipa\u00f0i hann a\u00f0 skera tunguna \u00far \u00feeim sem haf\u00f0i tala\u00f0, fl\u00e1 af honum h\u00f6fu\u00f0le\u00f0ri\u00f0 og aflima hann fyrir augunum \u00e1 br\u00e6\u00f0rum hans og m\u00f3\u00f0ur. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00deegar hann var me\u00f0 \u00f6llu \u00f3sj\u00e1lfbjarga, en l\u00edfsmark enn me\u00f0 honum, skipa\u00f0i konungur a\u00f0 hann skyldi lag\u00f0ur \u00e1 eldinn og steiktur \u00e1 p\u00f6nnu. Er eiminn lag\u00f0i upp af p\u00f6nnunni hv\u00f6ttu br\u00e6\u00f0ur hans og m\u00f3\u00f0ir hvert anna\u00f0 til a\u00f0 deyja hetjulega og s\u00f6g\u00f0u: <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u201e\u00deetta s\u00e9r Drottinn Gu\u00f0 og hann mun vissulega miskunna okkur eins og M\u00f3se bo\u00f0a\u00f0i \u00ed lj\u00f3\u00f0i s\u00ednu sem ford\u00e6mir \u00fe\u00e1 sem sneru baki vi\u00f0 Drottni og segir: Hann mun aumkast yfir \u00fej\u00f3na s\u00edna.\u201c<br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00deegar hinn fyrsti haf\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 l\u00edfi\u00f0 me\u00f0 \u00feessum h\u00e6tti var \u00f6\u00f0rum \u00feeirra mis\u00feyrmt jafn h\u00e1\u00f0ulega. H\u00fa\u00f0 og h\u00e1r var sliti\u00f0 af h\u00f6f\u00f0i hans og s\u00ed\u00f0an var hann spur\u00f0ur: \u201e\u00c6tlar \u00fe\u00fa a\u00f0 eta \u00e1\u00f0ur en \u00fe\u00fa ver\u00f0ur lima\u00f0ur sundur?\u201c <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Hann svara\u00f0i \u00e1 m\u00f3\u00f0urm\u00e1li s\u00ednu: \u201eAldrei.\u201c<br \/>\u00de\u00e1 var hann pynta\u00f0ur \u00e1fram \u00e1 sama h\u00e1tt og hinn fyrsti.<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00cd andarslitrunum sag\u00f0i hann: \u201eGrimmdarhundur. \u00de\u00fa getur svipt okkur \u00feessu l\u00edfi en konungur alheims mun reisa okkur upp a\u00f0 n\u00fdju til eil\u00edfs l\u00edfs af \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 deyjum fyrir l\u00f6gm\u00e1l hans.\u201c<br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00de\u00e1 m\u00e1tti hinn \u00feri\u00f0ji s\u00e6ta s\u00f6mu afarkostum. \u00deegar \u00feeir \u00e6tlu\u00f0u a\u00f0 skera \u00far honum tunguna teyg\u00f0i hann hana strax fram, r\u00e9tti \u00fat hendurnar \u00e1n alls hiks <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> og sag\u00f0i fullur hugm\u00f3\u00f0s: \u201e\u00deetta \u00fe\u00e1\u00f0i \u00e9g af himni. L\u00f6gm\u00e1lsins vegna afsala \u00e9g m\u00e9r \u00feessu \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g veit a\u00f0 Gu\u00f0 mun gefa m\u00e9r \u00fea\u00f0 aftur.\u201c<br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> B\u00e6\u00f0i konungurinn sj\u00e1lfur og menn hans undru\u00f0ust s\u00e1larstyrk unga mannsins og hve hann l\u00e9t s\u00e9r f\u00e1tt um kvalirnar.<br \/> <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00deegar hann haf\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 l\u00edfi\u00f0 pyntu\u00f0u \u00feeir og mis\u00feyrmdu hinum fj\u00f3r\u00f0a \u00e1 sama h\u00e1tt, <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> en er hann var a\u00f0 bana kominn sag\u00f0i hann: \u201e\u00deegar ma\u00f0ur l\u00e6tur l\u00edfi\u00f0 af mannav\u00f6ldum er gott a\u00f0 geta fest von s\u00edna \u00e1 fyrirheit Gu\u00f0s um a\u00f0 hann muni reisa okkur upp a\u00f0 n\u00fdju. En \u00fe\u00edn b\u00ed\u00f0ur engin upprisa til l\u00edfs.\u201c<br \/> <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> N\u00fa kom r\u00f6\u00f0in a\u00f0 \u00feeim fimmta. Var hann leiddur fram og teki\u00f0 a\u00f0 mis\u00feyrma honum. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Leit hann \u00e1 konunginn og sag\u00f0i: \u201e\u00de\u00fa hefur vald me\u00f0al manna \u00fe\u00f3tt \u00fe\u00fa s\u00e9rt dau\u00f0legur ma\u00f0ur og \u00feess vegna gerir \u00fe\u00fa \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00e9r \u00fe\u00f3knast. En \u00fe\u00fa skalt ekki halda a\u00f0 Gu\u00f0 hafi sleppt hendi sinni af \u00fej\u00f3\u00f0 okkar. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> B\u00edddu bara. \u00de\u00fa munt sj\u00e1 mikinn m\u00e1tt hans og hann mun \u00fejaka \u00feig og ni\u00f0ja \u00fe\u00edna.\u201c<br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Eftir hann var hinn sj\u00f6tti tekinn og er hann var a\u00f0 dau\u00f0a kominn sag\u00f0i hann: \u201e\u00dea\u00f0 er ekki allt sem s\u00fdnist. Vi\u00f0 eigum skili\u00f0 a\u00f0 l\u00ed\u00f0a \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt vegna \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum syndga\u00f0 gegn Gu\u00f0i okkar. \u00dea\u00f0 er undursamlegt sem or\u00f0i\u00f0 er. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> En \u00edmynda\u00f0u \u00fe\u00e9r ekki a\u00f0 \u00fe\u00fa munir komast hj\u00e1 hegningu fyrir a\u00f0 hefja bar\u00e1ttu gegn Drottni.\u201c<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> M\u00f3\u00f0irin var \u00fe\u00f3 a\u00f0d\u00e1unarver\u00f0ust og maklegt a\u00f0 hennar s\u00e9 minnst me\u00f0 vir\u00f0ingu. H\u00fan horf\u00f0i \u00e1 sj\u00f6 syni b\u00ed\u00f0a bana \u00e1 einum og sama degi. \u00dea\u00f0 bar h\u00fan af hugpr\u00fd\u00f0i vegna vonarinnar sem h\u00fan festi \u00e1 Drottni. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Af miklum kjarki stappa\u00f0i h\u00fan st\u00e1linu \u00ed hvern og einn sona sinna \u00e1 m\u00f3\u00f0urm\u00e1linu og br\u00fdndi kvenlund s\u00edna me\u00f0 karlmannshuga. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u201e\u00c9g veit ekki hvernig \u00fei\u00f0 ur\u00f0u\u00f0 til \u00ed l\u00edfi m\u00ednu,\u201c sag\u00f0i h\u00fan vi\u00f0 \u00fe\u00e1. \u201eEkki var \u00fea\u00f0 \u00e9g sem gaf ykkur l\u00edf og anda og ekki kom \u00e9g skipan \u00e1 frumefnin sem \u00fei\u00f0 eru\u00f0 \u00far. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 er skapari heimsins sem m\u00f3tar manninn \u00feegar hann ver\u00f0ur til og \u00e1kvar\u00f0ar tilur\u00f0 allra hluta. \u00deess vegna mun hann \u00ed miskunn sinni gefa ykkur anda og l\u00edf a\u00f0 n\u00fdju fyrir \u00fea\u00f0 a\u00f0 f\u00f3rna ykkur fyrir l\u00f6gm\u00e1l sitt.\u201c <br \/> <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Ant\u00edokkus h\u00e9lt a\u00f0 konan v\u00e6ri a\u00f0 s\u00fdna s\u00e9r l\u00edtilsvir\u00f0ingu og gera gys a\u00f0 s\u00e9r. Hann lag\u00f0i sig fram um a\u00f0 f\u00e1 yngsta soninn, sem einn var eftir \u00e1 l\u00edfi, til a\u00f0 sn\u00faa baki vi\u00f0 l\u00f6gm\u00e1li fe\u00f0ra sinna. Hann h\u00e9t honum au\u00f0i og hamingju og a\u00f0 taka hann \u00ed h\u00f3p vina sinna og skipa hann \u00ed valdast\u00f6\u00f0u ef hann l\u00e9ti a\u00f0 vilja s\u00ednum.<br \/> <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> En sveinninn l\u00e9t s\u00e9r f\u00e1tt um finnast. Konungur kalla\u00f0i \u00fe\u00e1 \u00e1 m\u00f3\u00f0ur hans og hvatti hana til a\u00f0 gefa unga manninum \u00feau r\u00e1\u00f0 sem m\u00e6ttu ver\u00f0a honum til bjargar.<br \/> <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Eftir langar fort\u00f6lur sam\u00feykkti h\u00fan a\u00f0 gera \u00feetta. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Laut h\u00fan ofan a\u00f0 honum en \u00fea\u00f0 sem h\u00fan sag\u00f0i \u00e1 m\u00f3\u00f0urm\u00e1linu var til h\u00e1\u00f0ungar grimmum har\u00f0stj\u00f3ranum: \u201eSonur minn, vertu miskunnsamur vi\u00f0 mig. \u00cd n\u00edu m\u00e1nu\u00f0i bar \u00e9g \u00feig undir hjarta og haf\u00f0i \u00feig \u00e1 brj\u00f3sti \u00ed \u00ferj\u00fa \u00e1r. \u00c9g anna\u00f0ist \u00feig og veitti \u00fe\u00e9r allt sem \u00fe\u00fa \u00fearfna\u00f0ist \u00fear til \u00fe\u00fa n\u00e1\u00f0ir \u00feessum aldri.<br \/> <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00c9g bi\u00f0 \u00feig, barni\u00f0 mitt: L\u00edttu upp til himins og horf\u00f0u \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina og allt sem \u00e1 henni er. Hugsa\u00f0u um \u00fea\u00f0 a\u00f0 Gu\u00f0 skapa\u00f0i \u00feetta af engu og a\u00f0 mannkyni\u00f0 allt var\u00f0 til \u00e1 sama h\u00e1tt. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Vertu \u00f3hr\u00e6ddur vi\u00f0 \u00feennan b\u00f6\u00f0ul. Gakktu f\u00fas \u00fat \u00ed dau\u00f0ann svo a\u00f0 \u00fe\u00fa reynist br\u00e6\u00f0rum \u00fe\u00ednum sambo\u00f0inn og \u00e9g f\u00e1i \u00feig aftur \u00e1samt \u00feeim fyrir Gu\u00f0s n\u00e1\u00f0.\u201c <br \/> <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> Um lei\u00f0 og h\u00fan haf\u00f0i loki\u00f0 m\u00e1li s\u00ednu sag\u00f0i sveinninn: \u201eEftir hverju b\u00ed\u00f0i\u00f0 \u00fei\u00f0? Ekki hl\u00fd\u00f0i \u00e9g bo\u00f0um konungs. \u00c9g hl\u00fd\u00f0i bo\u00f0um l\u00f6gm\u00e1lsins sem M\u00f3se mi\u00f0la\u00f0i fe\u00f0rum okkar. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> En \u00fe\u00fa, sem hefur beitt \u00fe\u00e9r fyrir svo m\u00f6rgu n\u00ed\u00f0ingsverki \u00e1 Hebreum, munt ekki umfl\u00fdja hegningu Gu\u00f0s. <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> Vi\u00f0 l\u00ed\u00f0um vegna okkar eigin synda. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> En \u00fe\u00f3tt hinn lifandi Drottinn hafi um sinn beitt rei\u00f0i sinni til a\u00f0 aga okkur og hirta mun hann a\u00f0 n\u00fdju s\u00e6ttast vi\u00f0 \u00fej\u00f3na s\u00edna. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> En \u00fe\u00fa, gu\u00f0lausa afhrak og andstyggilegastur allra manna. \u00de\u00fa skalt ekki ofmetnast af f\u00e1fengilegum \u00f3rum. \u00dea\u00f0 eru \u00fej\u00f3nar himinsins sem \u00fe\u00fa leggur hendur \u00e1 <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> og enn hefur \u00fe\u00fa ekki umfl\u00fai\u00f0 d\u00f3m hins alm\u00e1ttuga og alskyggna Gu\u00f0s. <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> Br\u00e6\u00f0ur okkar m\u00e1ttu \u00feola kvalir skamma hr\u00ed\u00f0. \u00deeir hafa n\u00fa hloti\u00f0 fyllingu fyrirheits Gu\u00f0s um eil\u00edft l\u00edf en \u00fe\u00fa munt hlj\u00f3ta maklega hegningu \u00ed d\u00f3mi Gu\u00f0s fyrir hroka \u00feinn. <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> Eins og br\u00e6\u00f0ur m\u00ednir legg \u00e9g n\u00fa l\u00edkama minn og s\u00e1l \u00ed s\u00f6lurnar fyrir l\u00f6gm\u00e1l fe\u00f0ranna og bi\u00f0 Gu\u00f0 a\u00f0 hann reynist br\u00e1tt n\u00e1\u00f0ugur l\u00fd\u00f0 s\u00ednum en a\u00f0 raunir og kvalir ney\u00f0i \u00feig til a\u00f0 vi\u00f0urkenna a\u00f0 hann einn s\u00e9 Gu\u00f0. <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> \u00c9g bi\u00f0 \u00feess a\u00f0 rei\u00f0i Hins alm\u00e1ttuga, sem me\u00f0 r\u00e9ttu kom yfir alla \u00fej\u00f3\u00f0 okkar, muni sefast vegna \u00feess sem henti mig og br\u00e6\u00f0ur m\u00edna.\u201c<br \/> <a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> \u00deessi h\u00e1\u00f0syr\u00f0i ger\u00f0u konunginn svo \u00e6fan af rei\u00f0i a\u00f0 hann l\u00e9t leika drenginn enn verr en hina. <a name=\"40\"><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span><\/a> \u00deannig l\u00e9t einnig hann l\u00edfi\u00f0 \u00f3flekka\u00f0ur og \u00ed fullu trausti til Gu\u00f0s.<br \/> <a name=\"41\"><span class=\"versanumer_2007\">41<\/span><\/a> Eftir dau\u00f0a sonanna l\u00e9t m\u00f3\u00f0irin l\u00edfi\u00f0.<br \/> <a name=\"42\"><span class=\"versanumer_2007\">42<\/span><\/a> \u00de\u00e1 er n\u00f3g sagt um bl\u00f3tveislurnar og hinar grimmilegu mis\u00feyrmingar. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>P\u00edslarv\u00e6tti m\u00f3\u00f0ur og sj\u00f6 sona hennar 1 Svo bar einnig vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00f6 br\u00e6\u00f0ur voru gripnir \u00e1samt m\u00f3\u00f0ur sinni. Konungurinn lamdi \u00fe\u00e1 me\u00f0 svipum og \u00f3lum til a\u00f0 k\u00faga \u00fe\u00e1 til a\u00f0 eta sv\u00ednakj\u00f6t sem l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 bannar. 2 Einn br\u00e6\u00f0ranna haf\u00f0i or\u00f0 fyrir \u00feeim og sag\u00f0i: \u201eHvers \u00e6tlar \u00fe\u00fa a\u00f0 ver\u00f0a v\u00edsari hj\u00e1 okkur? Hva\u00f0 \u00e6tlar \u00fe\u00fa a\u00f0 fr\u00e6\u00f0ast um? Vi\u00f0 viljum fremur deyja en brj\u00f3ta l\u00f6g fe\u00f0ra okkar.\u201c 3 Konungur var\u00f0 \u00e6varei\u00f0ur og bau\u00f0 m\u00f6nnum s\u00ednum a\u00f0 gl\u00f3\u00f0hita p\u00f6nnur og katla. 4 Jafnskj\u00f3tt og \u00feeir voru or\u00f0nir gl\u00f3andi skipa\u00f0i hann a\u00f0 skera tunguna \u00far \u00feeim sem haf\u00f0i tala\u00f0, fl\u00e1 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/onnur-makkabeabok-7-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2946","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2946","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2946"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2946\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2946"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}