{"id":2943,"date":"2017-12-30T21:05:19","date_gmt":"2017-12-30T21:05:19","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/%c2%85nnur-makkabeab%c2%97k-4-kafli\/"},"modified":"2018-01-11T19:20:11","modified_gmt":"2018-01-11T19:20:11","slug":"onnur-makkabeabok-4-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/onnur-makkabeabok-4-kafli\/","title":{"rendered":"\u00d6nnur Makkabeab\u00f3k 4. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> S\u00edmon \u00e1k\u00e6rir \u00d3n\u00edas<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> S\u00edmon s\u00e1 sem fyrr var nefndur, og sagt haf\u00f0i til fj\u00e1rins og sviki\u00f0 f\u00f6\u00f0urland sitt, t\u00f3k n\u00fa a\u00f0 r\u00e6gja \u00d3n\u00edas og fullyrti a\u00f0 hann hef\u00f0i hr\u00e6tt Hel\u00ed\u00f3d\u00f3rus og sta\u00f0i\u00f0 fyrir ofbeldinu. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Hann dirf\u00f0ist a\u00f0 halda \u00fev\u00ed fram a\u00f0 \u00feessi velgj\u00f6r\u00f0ama\u00f0ur borgarinnar og verndari landa sinna og \u00e1kafi forv\u00edgisma\u00f0ur l\u00f6gm\u00e1lsins s\u00e6ti \u00e1 svikr\u00e1\u00f0um vi\u00f0 stj\u00f3rn r\u00edkisins. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> En er fjandskapurinn magna\u00f0ist svo a\u00f0 einn af tr\u00fana\u00f0arm\u00f6nnum S\u00edmonar var\u00f0 manni a\u00f0 bana <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> var\u00f0 \u00d3n\u00edasi lj\u00f3st hve h\u00e1skalegt sundurlyndi\u00f0 var or\u00f0i\u00f0 og a\u00f0 Appoll\u00f3n\u00edus Menestevsson, landstj\u00f3ri \u00e1 Nor\u00f0ur-S\u00fdrlandi og F\u00f6nik\u00edu, kynti undir heiftarhug S\u00edmonar. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> F\u00f3r \u00d3n\u00edas til konungs, ekki til a\u00f0 \u00e1k\u00e6ra landa s\u00edna, heldur til gagns fyrir alla \u00fej\u00f3\u00f0ina, til heilla fyrir almenning og einstaklinga. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Enda s\u00e1 hann \u00fea\u00f0 fyrir a\u00f0 fri\u00f0ur k\u00e6mist ekki \u00e1 a\u00f0 n\u00fdju ef konungur sk\u00e6rist ekki \u00ed leikinn \u00fev\u00ed a\u00f0 ekki l\u00e9ti S\u00edmon af f\u00e1sinnu sinni. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Jason innlei\u00f0ir gr\u00edska si\u00f0i<\/h3>\n<p><a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> En a\u00f0 Selevkusi l\u00e1tnum er Ant\u00edokkus, a\u00f0 vi\u00f0urnefni Ep\u00edfanes, var kominn til r\u00edkis t\u00f3kst Jason, br\u00f3\u00f0ur \u00d3n\u00edasar, a\u00f0 s\u00f6lsa undir sig \u00e6\u00f0staprestsemb\u00e6tti\u00f0 me\u00f0 sviksamlegum h\u00e6tti. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Hann h\u00e9t konunginum \u00ed b\u00e6narskjali \u00ferj\u00fa hundru\u00f0 og sext\u00edu talentum silfurs og a\u00f0 auki \u00e1ttat\u00edu talentum af \u00f6\u00f0rum tekjum. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Auk \u00feess h\u00e9t hann \u00fev\u00ed a\u00f0 gjalda eitt hundra\u00f0 og fimmt\u00edu talentur ef konungur veitti s\u00e9r umbo\u00f0 til a\u00f0 gera \u00ed\u00fer\u00f3ttav\u00f6ll og stofna ungli\u00f0aflokk og fengi s\u00e9r vald til a\u00f0 skr\u00e1 Jer\u00fasalemb\u00faa borgara \u00ed Ant\u00edokk\u00edu. <br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00deegar konungur haf\u00f0i sam\u00feykkt \u00feetta og Jason teki\u00f0 v\u00f6ldin h\u00f3f hann \u00feegar a\u00f0 sn\u00faa si\u00f0um \u00fej\u00f3\u00f0ar sinnar til gr\u00edskra h\u00e1tta.<br \/> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Hann virti a\u00f0 vettugi r\u00e9ttindi \u00feau sem Gy\u00f0ingar h\u00f6f\u00f0u hloti\u00f0 fyrir n\u00e1\u00f0 konungs og tilstilli J\u00f3hannesar, f\u00f6\u00f0ur Evp\u00f3lemeusar sem sendur var til R\u00f3mar til a\u00f0 gera vin\u00e1ttusamning og bandalag vi\u00f0 R\u00f3mverja. Hann \u00f3gilti hi\u00f0 l\u00f6glega stj\u00f3rnskipulag og t\u00f3k upp n\u00fdja si\u00f0i sem str\u00edddu gegn l\u00f6gm\u00e1linu. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Hann reyndist \u00f3\u00f0f\u00fas til a\u00f0 reisa \u00ed\u00fer\u00f3ttamannvirki undir sj\u00e1lfri h\u00e1borginni og fylkti um sig g\u00f6fugustu \u00e6skum\u00f6nnum, en \u00feeim leyf\u00f0ist n\u00fa a\u00f0 bera hatta. <br \/> <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00c1hugi \u00e1 \u00f6llu sem gr\u00edskt var og eftir\u00f6pun \u00e1 h\u00e1tterni \u00fatlendinga j\u00f3kst n\u00fa til mikilla muna sakir \u00feess a\u00f0 gu\u00f0leysi Jasonar, sem enginn \u00e6\u00f0sti prestur var, voru engin takm\u00f6rk sett. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Var jafnvel svo komi\u00f0 a\u00f0 prestarnir afr\u00e6ktu altaris\u00fej\u00f3nustuna. \u00deeir l\u00e9tu s\u00e9r f\u00e1tt um musteri\u00f0 og afr\u00e6ktu f\u00f3rnirnar. En um lei\u00f0 og klukkur kv\u00f6ddu til leikja, sem \u00fe\u00f3 str\u00edddu gegn l\u00f6gm\u00e1linu, hr\u00f6\u00f0u\u00f0u \u00feeir s\u00e9r til a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed kappleikjum \u00e1 \u00ed\u00fer\u00f3ttaleikvanginum. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00deeir m\u00e1tu \u00fea\u00f0 einskis sem fe\u00f0urnir h\u00f6f\u00f0u haldi\u00f0 \u00ed hei\u00f0ri en s\u00f3ttust eftir gr\u00edskum vegtyllum. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Sakir \u00feessa komust \u00feeir l\u00edka \u00ed \u00e6\u00f0i miklar kr\u00f6ggur \u00fev\u00ed a\u00f0 einmitt \u00feeir sem \u00feeim var svo s\u00fdnt um a\u00f0 apa eftir og reyndu a\u00f0 l\u00edkjast \u00ed \u00f6llu ur\u00f0u \u00f3vinir \u00feeirra og refsiv\u00f6ndur. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Enda er \u00fea\u00f0 enginn h\u00e9g\u00f3mi a\u00f0 breyta \u00ed tr\u00e1ssi vi\u00f0 l\u00f6gm\u00e1l Gu\u00f0s. \u00dea\u00f0 s\u00fdnir framhald s\u00f6gunnar.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Hellen\u00edsk \u00e1hrif \u00ed Jer\u00fasalem<\/h3>\n<p><a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Eitt sinn vi\u00f0 kappleika, sem haldnir voru fj\u00f3r\u00f0a hvert \u00e1r \u00ed T\u00fdrus a\u00f0 konungi vi\u00f0st\u00f6ddum, <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> sendi hrakmenni\u00f0 Jason menn \u00feanga\u00f0 fr\u00e1 Jer\u00fasalem. H\u00f6f\u00f0u \u00feeir borgarar\u00e9tt \u00ed Ant\u00edokk\u00edu og \u00e1ttu a\u00f0 f\u00e6ra \u00ferj\u00fa hundru\u00f0 dr\u00f6kmur silfurs a\u00f0 f\u00f3rn til Heraklesar. En \u00feeir sem komu me\u00f0 f\u00e9\u00f0 f\u00e6r\u00f0ust undan \u00fev\u00ed a\u00f0 nota \u00fea\u00f0 til f\u00f3rnar \u00fear sem \u00fea\u00f0 v\u00e6ri ekki vi\u00f0 h\u00e6fi og b\u00e1\u00f0u um a\u00f0 f\u00e9\u00f0 yr\u00f0i nota\u00f0 til annars.<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Sendandinn haf\u00f0i \u00e6tla\u00f0 Heraklesi \u00feetta f\u00e9 en vegna \u00feeirra sem fluttu \u00fea\u00f0 var \u00fev\u00ed vari\u00f0 til a\u00f0 b\u00faa galei\u00f0ur. <br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00deegar Appoll\u00f3n\u00edus Menestevsson var sendur til Egyptalands til a\u00f0 vera vi\u00f0 kr\u00fdningu F\u00edlometors konungs var\u00f0 Ant\u00edokkus \u00feess \u00e1skynja a\u00f0 F\u00edlometor var or\u00f0inn m\u00f3tsn\u00fainn stj\u00f3rn hans. Vildi hann \u00fev\u00ed tryggja st\u00f6\u00f0u s\u00edna og f\u00f3r \u00ed \u00fev\u00ed skyni til Joppe og h\u00e9lt \u00fea\u00f0an til Jer\u00fasalem. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Jason og borgarb\u00faar t\u00f3ku h\u00f6f\u00f0inglega \u00e1 m\u00f3ti honum og var hann hylltur me\u00f0 hr\u00f3pum er blysf\u00f6r var farin fyrir honum inn \u00ed borgina. S\u00ed\u00f0an h\u00e9lt hann me\u00f0 li\u00f0 sitt til F\u00f6nik\u00edu.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Menelaus ver\u00f0ur \u00e6\u00f0sti prestur<\/h3>\n<p><a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> A\u00f0 \u00feremur \u00e1rum li\u00f0num sendi Jason Menelaus, sem var br\u00f3\u00f0ir S\u00edmonar sem fyrr gat, til a\u00f0 gjalda konunginum skatt og r\u00e1\u00f0a nokkur mikilv\u00e6g m\u00e1l til lykta. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00c1 fundum s\u00ednum me\u00f0 konungi smja\u00f0ra\u00f0i hann fyrir honum og l\u00e9t sem hann \u00e6tti miki\u00f0 undir s\u00e9r. Komst hann yfir \u00e6\u00f0staprestsemb\u00e6tti\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 borga \u00ferj\u00fa hundru\u00f0 talentum silfurs meira en Jason. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Sneri hann aftur til Jer\u00fasalem me\u00f0 konunglega skipan \u00ed emb\u00e6tti\u00f0 en var engan veginn h\u00e6fur til a\u00f0 gegna \u00fev\u00ed enda ofsafenginn har\u00f0stj\u00f3ri og hamslaus sem villid\u00fdr.<br \/> <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Jason, sem sj\u00e1lfur haf\u00f0i bola\u00f0 br\u00f3\u00f0ur s\u00ednum fr\u00e1 me\u00f0 svikum, var n\u00fa hrakinn burt af br\u00f6g\u00f0um annars og h\u00e9lt landfl\u00f3tta til Amm\u00f3n. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Menelaus h\u00e9lt emb\u00e6ttinu en st\u00f3\u00f0 konungi engin skil \u00e1 \u00fev\u00ed f\u00e9 sem hann haf\u00f0i heiti\u00f0 honum, <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00fe\u00f3 svo a\u00f0 S\u00f3strates, sem var yfirma\u00f0ur setuli\u00f0sins \u00ed virkinu, kref\u00f0i hann \u00feess, en hann \u00e1tti a\u00f0 innheimta skatta. Sakir \u00feessa stefndi konungur \u00feeim b\u00e1\u00f0um \u00e1 sinn fund. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Menelaus l\u00e9t L\u00fdsimakkus, br\u00f3\u00f0ur sinn, gegna \u00e6\u00f0staprestsemb\u00e6ttinu fyrir sig en S\u00f3strates f\u00e9kk Krates, sem var h\u00f6fu\u00f0sma\u00f0ur li\u00f0s K\u00fdpurmanna, fyrir sig.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">\u00d3n\u00edas myrtur<\/h3>\n<p><a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> Me\u00f0an \u00feessu f\u00f3r fram h\u00f3fu Tarsusb\u00faar og Mell\u00f3tar uppreisn vegna \u00feess a\u00f0 borgir \u00feeirra h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 gefnar Ant\u00edokk\u00edu, hj\u00e1konu konungs. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> Konungur h\u00e9lt samstundis \u00feanga\u00f0 til a\u00f0 stilla til fri\u00f0ar og l\u00e9t stj\u00f3rnina eftir \u00ed h\u00f6ndum Andron\u00edkusar sem var einn af tignustu m\u00f6nnum r\u00edkisins.<br \/> <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> Menelausi fannst n\u00fa bera vel \u00ed vei\u00f0i og hnupla\u00f0i hann nokkrum gullkerum \u00far musterinu og f\u00e6r\u00f0i \u00feau Andron\u00edkusi a\u00f0 gj\u00f6f. Nokkur \u00f6nnur haf\u00f0i hann selt \u00ed T\u00fdrus og borgunum \u00fear \u00ed grennd. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Er \u00d3n\u00edas komst a\u00f0 raun um \u00feetta ford\u00e6mdi hann \u00fea\u00f0 har\u00f0lega en hann haf\u00f0i leita\u00f0 h\u00e6lis \u00ed gri\u00f0asta\u00f0num \u00ed Dafne, n\u00e6rri Ant\u00edokk\u00edu.<br \/> <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> Sakir \u00feess t\u00f3k Menelaus Andron\u00edkus \u00e1 eintal og hvatti hann til a\u00f0 r\u00e1\u00f0a \u00d3n\u00edas af d\u00f6gum.<br \/>Andron\u00edkus f\u00f3r til \u00d3n\u00edasar og beitti hann br\u00f6g\u00f0um. Hann h\u00e9t honum vin\u00e1ttu sinni og gri\u00f0um og lag\u00f0i ei\u00f0 a\u00f0 og \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00d3n\u00edas gruna\u00f0i hann um gr\u00e6sku gat Andron\u00edkus t\u00e6lt hann til a\u00f0 yfirgefa gri\u00f0asta\u00f0inn. Jafnskj\u00f3tt r\u00e9\u00f0 hann \u00d3n\u00edasi bana \u00e1n alls tillits til laga og r\u00e9ttar. <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> \u00deessu reiddust ekki Gy\u00f0ingar einir heldur einnig menn af \u00f6\u00f0ru \u00fej\u00f3\u00f0erni og undu illa sv\u00edvir\u00f0ilegu mor\u00f0i \u00feessa manns.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Andron\u00edkusi hegnt<\/h3>\n<p><a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> \u00deegar svo konungur sneri aftur fr\u00e1 Kil\u00edk\u00edu b\u00e1ru Gy\u00f0ingar \u00ed borginni fram \u00e1k\u00e6ru vegna r\u00e9ttarmor\u00f0sins \u00e1 \u00d3n\u00edasi og jafnvel Grikkir t\u00f3ku upp \u00feykkjuna me\u00f0 \u00feeim. <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> Ant\u00edokkus var\u00f0 harmi sleginn, fann til s\u00e1rrar me\u00f0aumkunar og gr\u00e9t er hann minntist breytni og dyg\u00f0a hins l\u00e1tna. <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> Svo var\u00f0 hann gripinn heift og l\u00e9t \u00f3\u00f0ara svipta Andron\u00edkus purpuraskikkjunni, r\u00edfa af honum kl\u00e6\u00f0in og lei\u00f0a hann um alla borgina og a\u00f0 sta\u00f0num \u00fear sem hann framdi \u00f3d\u00e6\u00f0i\u00f0 \u00e1 \u00d3n\u00edasi. \u00dear l\u00e9t hann dey\u00f0a mor\u00f0ingjann sem hlaut \u00feannig r\u00e9ttl\u00e1ta refsingu af Drottni.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Musterisr\u00e6ninginn L\u00fdsimakkus deyddur<\/h3>\n<p><a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> L\u00fdsimakkus haf\u00f0i \u00edtreka\u00f0 r\u00e6nt musteri\u00f0 \u00ed Jer\u00fasalem me\u00f0 sam\u00feykki Menelausar. \u00deegar \u00feetta var\u00f0 heyrinkunnugt safna\u00f0ist f\u00f3lki\u00f0 til m\u00f3tm\u00e6laa\u00f0ger\u00f0a gegn L\u00fdsimakkusi sem \u00feegar haf\u00f0i haft \u00e1 brott fj\u00f6lmarga gullmuni.<br \/> <a name=\"40\"><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span><\/a> Er rei\u00f0i mannfj\u00f6ldans magna\u00f0ist og \u00e6singar jukust deildi L\u00fdsimakkus \u00fat vopnum til n\u00e6r \u00feriggja \u00fe\u00fasunda manna og \u00e1tti \u00fev\u00ed upphafi\u00f0 a\u00f0 ofbeldisverkum. Fyrir li\u00f0inu f\u00f3r \u00c1ranus nokkur. Hann var kominn til \u00e1ra sinna og gl\u00f3pska hans engu minni aldrinum.<br \/> <a name=\"41\"><span class=\"versanumer_2007\">41<\/span><\/a> \u00deegar menn s\u00e1u hverju L\u00fdsimakkus f\u00f3r fram gripu sumir grj\u00f3t, a\u00f0rir digra lurka e\u00f0a handfylli af \u00f6sku sem hendi var n\u00e6st og l\u00e9tu \u00feetta hva\u00f0 me\u00f0 \u00f6\u00f0ru dynja \u00e1 m\u00f6nnum L\u00fdsimakkusar. <a name=\"42\"><span class=\"versanumer_2007\">42<\/span><\/a> Af \u00feessu ur\u00f0u margir manna hans s\u00e1rir og nokkrir f\u00e9llu en allir a\u00f0rir voru reknir \u00e1 fl\u00f3tta. Musterisr\u00e6ningjann sj\u00e1lfan dr\u00e1pu \u00feeir hj\u00e1 fj\u00e1rhirslunni.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Menelausi stefnt<\/h3>\n<p><a name=\"43\"><span class=\"versanumer_2007\">43<\/span><\/a> Sakir \u00feessa var Menelausi stefnt fyrir r\u00e9tt <a name=\"44\"><span class=\"versanumer_2007\">44<\/span><\/a> og er konungurinn kom til T\u00fdrusar fluttu \u00fer\u00edr menn, sem r\u00e1\u00f0i\u00f0 sendi, m\u00e1li\u00f0 fyrir honum. <a name=\"45\"><span class=\"versanumer_2007\">45<\/span><\/a> Menelaus var \u00feegar or\u00f0inn sannur a\u00f0 s\u00f6k en hann h\u00e9t Pt\u00f3lemeusi D\u00f3r\u00fdmenessyni miklu f\u00e9 ef hann ger\u00f0i konung vilhallan s\u00e9r. <a name=\"46\"><span class=\"versanumer_2007\">46<\/span><\/a> Pt\u00f3lemeus t\u00f3k \u00fe\u00e1 konunginn me\u00f0 s\u00e9r inn \u00ed s\u00falnag\u00f6ng, undir \u00fev\u00ed yfirskini a\u00f0 \u00fear v\u00e6ri svala a\u00f0 finna, og taldi honum hughvarf. <a name=\"47\"><span class=\"versanumer_2007\">47<\/span><\/a> S\u00fdkna\u00f0i konungur Menelaus, sem \u00e1tti s\u00f6k \u00e1 allri \u00feessari \u00f3g\u00e6fu, en vesalings sendimennina d\u00e6mdi hann til dau\u00f0a en \u00fe\u00e1 hef\u00f0i jafnvel d\u00f3mst\u00f3ll setinn Sk\u00fd\u00feum s\u00fdkna\u00f0. <a name=\"48\"><span class=\"versanumer_2007\">48<\/span><\/a> \u00deessir menn m\u00e1ttu \u00e1n tafar \u00feola rangl\u00e1ta refsingu en \u00feeir h\u00f6f\u00f0u bori\u00f0 borgina og \u00edb\u00faa hennar og \u00e1h\u00f6ldin helgu fyrir brj\u00f3sti. <a name=\"49\"><span class=\"versanumer_2007\">49<\/span><\/a> En sumum T\u00fdrusb\u00faum ofbau\u00f0 svo n\u00ed\u00f0ingsverk \u00feetta a\u00f0 \u00feeir kostu\u00f0u veglega \u00fatf\u00f6r mannanna.<br \/> <a name=\"50\"><span class=\"versanumer_2007\">50<\/span><\/a> Menelaus h\u00e9lt hins vegar emb\u00e6ttinu og \u00e1tti \u00fea\u00f0 \u00e1girnd valdhafanna a\u00f0 \u00feakka. Ger\u00f0ist hann s\u00edfellt illskeyttari og sat \u00e1 svikr\u00e1\u00f0um vi\u00f0 landa s\u00edna.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>S\u00edmon \u00e1k\u00e6rir \u00d3n\u00edas 1 S\u00edmon s\u00e1 sem fyrr var nefndur, og sagt haf\u00f0i til fj\u00e1rins og sviki\u00f0 f\u00f6\u00f0urland sitt, t\u00f3k n\u00fa a\u00f0 r\u00e6gja \u00d3n\u00edas og fullyrti a\u00f0 hann hef\u00f0i hr\u00e6tt Hel\u00ed\u00f3d\u00f3rus og sta\u00f0i\u00f0 fyrir ofbeldinu. 2 Hann dirf\u00f0ist a\u00f0 halda \u00fev\u00ed fram a\u00f0 \u00feessi velgj\u00f6r\u00f0ama\u00f0ur borgarinnar og verndari landa sinna og \u00e1kafi forv\u00edgisma\u00f0ur l\u00f6gm\u00e1lsins s\u00e6ti \u00e1 svikr\u00e1\u00f0um vi\u00f0 stj\u00f3rn r\u00edkisins. 3 En er fjandskapurinn magna\u00f0ist svo a\u00f0 einn af tr\u00fana\u00f0arm\u00f6nnum S\u00edmonar var\u00f0 manni a\u00f0 bana 4 var\u00f0 \u00d3n\u00edasi lj\u00f3st hve h\u00e1skalegt sundurlyndi\u00f0 var or\u00f0i\u00f0 og a\u00f0 Appoll\u00f3n\u00edus Menestevsson, landstj\u00f3ri \u00e1 Nor\u00f0ur-S\u00fdrlandi og F\u00f6nik\u00edu, kynti undir heiftarhug S\u00edmonar. 5 F\u00f3r \u00d3n\u00edas <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/onnur-makkabeabok-4-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2943","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2943","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2943"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2943\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2943"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}