{"id":2941,"date":"2017-12-30T21:05:19","date_gmt":"2017-12-30T21:05:19","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/%c2%85nnur-makkabeab%c2%97k-2-kafli\/"},"modified":"2017-12-30T21:05:19","modified_gmt":"2017-12-30T21:05:19","slug":"onnur-makkabeabok-2-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/onnur-makkabeabok-2-kafli\/","title":{"rendered":"\u00d6nnur Makkabeab\u00f3k 2. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Jerem\u00eda felur tjaldb\u00fa\u00f0ina<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00cd heimildum m\u00e1 sj\u00e1 a\u00f0 Jerem\u00eda sp\u00e1ma\u00f0ur hafi skipa\u00f0 \u00feeim sem herleiddir voru a\u00f0 koma nokkru af eldinum undan eins og \u00e1\u00f0ur er fr\u00e1 sagt. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u00dear greinir og fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 sp\u00e1ma\u00f0urinn afhenti hinum herleiddu l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 og lag\u00f0i r\u00edkt \u00e1 vi\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0 gleyma ekki bo\u00f0um Drottins og l\u00e1ta eigi lei\u00f0a sig afvega \u00feegar \u00feeir s\u00e6ju skur\u00f0go\u00f0 af gulli og silfri og skarti\u00f0 \u00e1 \u00feeim. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Me\u00f0 \u00f6\u00f0rum og \u00e1\u00feekkum or\u00f0um \u00e1minnti hann \u00fe\u00e1 a\u00f0 festa s\u00e9r l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 \u00ed hjarta.<br \/> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Einnig er \u00fear skr\u00e1\u00f0 a\u00f0 eftir vitrun hafi sp\u00e1ma\u00f0urinn bo\u00f0i\u00f0 a\u00f0 bera skyldi tjaldi\u00f0 og s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rkina \u00e1 eftir s\u00e9r og a\u00f0 hann hafi fari\u00f0 til fjallsins sem M\u00f3se gekk \u00e1 til a\u00f0 sj\u00e1 landi\u00f0 sem Gu\u00f0 haf\u00f0i gefi\u00f0 fyrirheit um. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00deegar Jerem\u00eda kom \u00feanga\u00f0 fann hann hellissk\u00fata. Hann l\u00e9t bera tjaldi\u00f0, \u00f6rkina og reykelsisaltari\u00f0 \u00feanga\u00f0 og byrgja munnann. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Nokkrir fylgdarmanna hans f\u00f3ru s\u00ed\u00f0ar til a\u00f0 stika \u00fat lei\u00f0ina en g\u00e1tu ekki fundi\u00f0 hana. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00deegar Jerem\u00eda komst a\u00f0 \u00feessu \u00e1v\u00edta\u00f0i hann \u00fe\u00e1 og m\u00e6lti: \u201eSta\u00f0urinn \u00e1 a\u00f0 vera hulinn \u00feanga\u00f0 til Gu\u00f0 safnar l\u00fd\u00f0 s\u00ednum saman og au\u00f0s\u00fdnir honum n\u00e1\u00f0. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00de\u00e1 mun Drottinn lei\u00f0a \u00feessa hluti \u00ed lj\u00f3s og d\u00fdr\u00f0 Drottins mun birtast \u00ed sk\u00fdi eins og h\u00fan opinbera\u00f0ist \u00e1 d\u00f6gum M\u00f3se og \u00feegar Sal\u00f3mon ba\u00f0 a\u00f0 musteri\u00f0 yr\u00f0i helga\u00f0 \u00e1 mikilfenglegan h\u00e1tt.\u201c <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">L\u00fdsing \u00e1 v\u00edgsluh\u00e1t\u00ed\u00f0 Sal\u00f3mons<\/h3>\n<p><a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00dear er og fr\u00e1 \u00fev\u00ed sk\u00fdrt hvernig hinn v\u00edsi Sal\u00f3mon bar fram v\u00edgsluf\u00f3rn \u00feegar musterissm\u00ed\u00f0inni var loki\u00f0. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Eins og M\u00f3se ba\u00f0 til Drottins og eldur f\u00e9ll af himni og brenndi f\u00f3rnina ba\u00f0 Sal\u00f3mon einnig og eldurinn kom ofan og eyddi brennif\u00f3rninni. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> M\u00f3se sag\u00f0i: \u201eSyndaf\u00f3rninni var eytt af \u00fev\u00ed a\u00f0 hennar var ekki neytt.\u201c <br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Me\u00f0 sama h\u00e6tti h\u00e9lt Sal\u00f3mon einnig h\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed \u00e1tta daga. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">B\u00f3kasafn Nehem\u00eda<\/h3>\n<p><a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00cd ritum og minnisb\u00f3kum Nehem\u00eda er sagt fr\u00e1 \u00feessu \u00f6llu og \u00fev\u00ed a\u00f0 hann hafi lagt grunn a\u00f0 b\u00f3kasafni \u00fear sem hann kom fyrir b\u00f3kum um konungana og sp\u00e1mennina, ritum Dav\u00ed\u00f0s og br\u00e9fum konunganna um gjafir til musterisins. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> S\u00f6mulei\u00f0is safna\u00f0i J\u00fadas fyrir okkur \u00feeim ritum sem f\u00f3ru \u00e1 fl\u00e6king \u00ed str\u00ed\u00f0inu sem vi\u00f0 h\u00e1\u00f0um og eru \u00feau geymd hj\u00e1 okkur. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Ef \u00fei\u00f0 \u00fearfnist \u00feeirra \u00fe\u00e1 sendi\u00f0 menn eftir \u00feeim.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Bo\u00f0 um h\u00e1t\u00ed\u00f0ah\u00f6ld vegna hreinsunar musterisins<\/h3>\n<p><a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Vi\u00f0 ritum ykkur n\u00fa vegna \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 \u00e6tlum a\u00f0 halda h\u00e1t\u00ed\u00f0lega upp \u00e1 hreinsun musterisins. Hvetjum vi\u00f0 ykkur til a\u00f0 halda einnig \u00feessa h\u00e1t\u00ed\u00f0. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Gu\u00f0 hefur frelsa\u00f0 allan l\u00fd\u00f0 sinn og gefi\u00f0 okkur \u00f6llum arfleif\u00f0ina og konungd\u00f3minn og prestd\u00f3minn og heilagleikann <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> eins og hann h\u00e9t \u00ed l\u00f6gm\u00e1linu. Vi\u00f0 vonum til Gu\u00f0s a\u00f0 hann muni br\u00e1tt miskunna okkur og safna okkur saman \u00far \u00f6llum heimshornum \u00e1 hinn heilaga sta\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann hefur frelsa\u00f0 okkur \u00far mikilli \u00f3g\u00e6fu og hreinsa\u00f0 sta\u00f0inn.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Form\u00e1li h\u00f6fundar<\/h3>\n<p><a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> H\u00e9r segir fr\u00e1 J\u00fadasi Makkabeusi og br\u00e6\u00f0rum hans, hreinsun hins mikla musteris og v\u00edgslu altarisins, <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> enn fremur fr\u00e1 styrj\u00f6ldum gegn Ant\u00edokkusi Ep\u00edfanes og Evpator, syni hans, <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> og fr\u00e1 hinum himnesku vitrunum sem birtust hinum fr\u00e6knu hetjum sem b\u00f6r\u00f0ust fyrir gy\u00f0ingd\u00f3minn og au\u00f0na\u00f0ist a\u00f0 vinna aftur landi\u00f0 allt, \u00fe\u00f3tt f\u00e1li\u00f0a\u00f0ir v\u00e6ru, og hrekja hersveitir \u00fatlendinganna \u00e1 brott. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> T\u00f3kst \u00feeim a\u00f0 n\u00e1 aftur \u00e1 sitt vald musterinu heimsfr\u00e6ga, frelsa borgina og koma \u00e1 n\u00fd \u00e1 l\u00f6gum sem voru n\u00e6r afnumin. \u00dea\u00f0 var vegna \u00feess a\u00f0 Gu\u00f0 var \u00feeim n\u00e1\u00f0ugur \u00ed allri mildi sinni. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Allt \u00feetta rita\u00f0i Jason fr\u00e1 K\u00fdrene \u00ed fimm b\u00f3kum og \u00e6tla \u00e9g a\u00f0 reyna a\u00f0 draga \u00fea\u00f0 saman \u00ed eina b\u00f3k. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> M\u00e9r er fulllj\u00f3st hve \u00f3\u00e1rennilegt hi\u00f0 langa rit hans er. Efnismerg\u00f0in veldur \u00feeim miklum erfi\u00f0leikum sem vilja n\u00e1 t\u00f6kum \u00e1 \u00fev\u00ed sem \u00fear er sagt fr\u00e1. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00deess vegna lag\u00f0i \u00e9g \u00ed \u00feetta \u00feeim til \u00e1n\u00e6gju sem s\u00f6gur lesa og til h\u00e6g\u00f0arauka \u00feeim sem vilja festa s\u00e9r \u00fea\u00f0 \u00ed minni sem \u00feeir lesa og \u00f6llum til gagns sem b\u00f3k \u00feessi berst \u00ed hendur.<br \/> <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> En m\u00e9r, sem gengi\u00f0 hef undir \u00fe\u00e1 byr\u00f0i a\u00f0 semja \u00e1grip \u00feetta, er \u00fea\u00f0 ekki au\u00f0velt verk heldur kostar \u00fea\u00f0 svita og svefnleysi, <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> alveg eins og \u00fea\u00f0 krefur \u00feann mikils sem undirb\u00fdr veislu sem hann \u00e6tlar \u00f6\u00f0rum a\u00f0 nj\u00f3ta. Samt er \u00e9g f\u00fas til a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 \u00feessa \u00feraut til a\u00f0 hlj\u00f3ta \u00feakkl\u00e6ti margra. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00c9g l\u00e6t sagnaritarann um hin einst\u00f6ku efnisatri\u00f0i en geri m\u00e9r far um a\u00f0 a\u00f0alatri\u00f0in komi fram \u00ed \u00e1gripi m\u00ednu. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> S\u00e1 sem reisa vill h\u00fas ver\u00f0ur a\u00f0 hafa yfirs\u00fdn yfir framkv\u00e6md verksins. Hinn, sem tekst \u00e1 hendur a\u00f0 pr\u00fd\u00f0a bygginguna og m\u00e1la, \u00fearf einungis a\u00f0 huga a\u00f0 \u00fev\u00ed sem hentar til skrauts. \u00deannig finnst m\u00e9r \u00fev\u00ed fari\u00f0 um mig. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> Frumh\u00f6fundur s\u00f6gunnar ver\u00f0ur a\u00f0 kynna s\u00e9r efni\u00f0 n\u00e1kv\u00e6mlega og gera \u00f6llu skil \u00ed sm\u00e1atri\u00f0um. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> S\u00e1 sem semur \u00e1grip getur leyft s\u00e9r a\u00f0 fara flj\u00f3tt yfir s\u00f6gu og sleppa \u00fev\u00ed a\u00f0 rekja allt til r\u00f3tar.<br \/> <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> N\u00fa vil \u00e9g hefja fr\u00e1s\u00f6gnina \u00e1n frekari m\u00e1lalenginga um \u00fea\u00f0 sem fyrr var sagt enda er hj\u00e1k\u00e1tlegt a\u00f0 fj\u00f6lyr\u00f0a \u00ed form\u00e1la b\u00f3kar og \u00feurfa fyrir brag\u00f0i\u00f0 a\u00f0 stytta s\u00f6guna.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Jerem\u00eda felur tjaldb\u00fa\u00f0ina 1 \u00cd heimildum m\u00e1 sj\u00e1 a\u00f0 Jerem\u00eda sp\u00e1ma\u00f0ur hafi skipa\u00f0 \u00feeim sem herleiddir voru a\u00f0 koma nokkru af eldinum undan eins og \u00e1\u00f0ur er fr\u00e1 sagt. 2 \u00dear greinir og fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 sp\u00e1ma\u00f0urinn afhenti hinum herleiddu l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 og lag\u00f0i r\u00edkt \u00e1 vi\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0 gleyma ekki bo\u00f0um Drottins og l\u00e1ta eigi lei\u00f0a sig afvega \u00feegar \u00feeir s\u00e6ju skur\u00f0go\u00f0 af gulli og silfri og skarti\u00f0 \u00e1 \u00feeim. 3 Me\u00f0 \u00f6\u00f0rum og \u00e1\u00feekkum or\u00f0um \u00e1minnti hann \u00fe\u00e1 a\u00f0 festa s\u00e9r l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 \u00ed hjarta. 4 Einnig er \u00fear skr\u00e1\u00f0 a\u00f0 eftir vitrun hafi sp\u00e1ma\u00f0urinn bo\u00f0i\u00f0 a\u00f0 bera skyldi tjaldi\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/onnur-makkabeabok-2-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2941","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2941","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2941"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2941\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2941"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}