{"id":2940,"date":"2017-12-30T21:05:19","date_gmt":"2017-12-30T21:05:19","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/%c2%85nnur-makkabeab%c2%97k-1-kafli\/"},"modified":"2018-01-11T19:10:04","modified_gmt":"2018-01-11T19:10:04","slug":"onnur-makkabeabok-1-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/onnur-makkabeabok-1-kafli\/","title":{"rendered":"\u00d6nnur Makkabeab\u00f3k 1. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Br\u00e9f til Gy\u00f0inga \u00ed Egyptalandi<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Vi\u00f0 Gy\u00f0ingar \u00ed Jer\u00fasalem og J\u00fadeu sendum br\u00e6\u00f0rum okkar \u00ed Egyptalandi kve\u00f0ju og \u00f3skum \u00feeim fri\u00f0ar og velfarna\u00f0ar. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Gu\u00f0 veri ykkur g\u00f3\u00f0ur og minnist s\u00e1ttm\u00e1la s\u00edns vi\u00f0 tr\u00faa \u00fej\u00f3na s\u00edna, Abraham, \u00cdsak og Jakob. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Hann gefi ykkur \u00f6llum \u00fer\u00e1 til a\u00f0 tilbi\u00f0ja sig og gera vilja sinn af \u00f6llu hjarta og f\u00fasu ge\u00f0i. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Hann opni hj\u00f6rtu ykkar fyrir l\u00f6gm\u00e1li s\u00ednu og bo\u00f0um. Megi hann veita ykkur fri\u00f0 <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> og heyra b\u00e6nir ykkar og taka ykkur \u00ed s\u00e1tt. Hann yfirgefi ykkur ekki \u00e1 ney\u00f0art\u00edmum.<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> H\u00e9r erum vi\u00f0 n\u00fa saman komnir til a\u00f0 bi\u00f0ja fyrir ykkur. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00c1 stj\u00f3rnar\u00e1rum Demetr\u00edusar konungs \u00e1ri\u00f0 eitt hundra\u00f0 sext\u00edu og n\u00edu skrifu\u00f0um vi\u00f0 Gy\u00f0ingar til ykkar \u00ed \u00feeirri \u00f3gnar\u00ferengingu sem yfir okkur dundi \u00e1rin eftir a\u00f0 Jason og lagsmenn hans h\u00f6f\u00f0u sviki\u00f0 Landi\u00f0 helga og r\u00edki\u00f0. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00deeir brenndu musterishli\u00f0in og \u00fathelltu saklausu bl\u00f3\u00f0i en vi\u00f0 b\u00e1\u00f0um til Drottins og hann b\u00e6nheyr\u00f0i okkur. Vi\u00f0 f\u00e6r\u00f0um sl\u00e1turf\u00f3rnir og matarf\u00f3rnir, tendru\u00f0um lampana og l\u00f6g\u00f0um sko\u00f0unarbrau\u00f0in fram. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> N\u00fa hvetjum vi\u00f0 ykkur til a\u00f0 halda laufsk\u00e1lah\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed k\u00edslevm\u00e1nu\u00f0i.<br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00deetta er rita\u00f0 \u00e1ri\u00f0 eitt hundra\u00f0 \u00e1ttat\u00edu og \u00e1tta. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Br\u00e9f um uppruna musterisv\u00edgsluh\u00e1t\u00ed\u00f0arinnar<\/h3>\n<p>\u00cdb\u00faar Jer\u00fasalem og J\u00fadeu, \u00f6ldungar\u00e1\u00f0i\u00f0 og J\u00fadas senda kve\u00f0ju Aristob\u00falusi, kennara Pt\u00f3lemeusar konungs, afkomanda smur\u00f0ra presta, og \u00f3ska honum og Gy\u00f0ingum \u00ed Egyptalandi velfarna\u00f0ar.<br \/> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Gu\u00f0 hefur frelsa\u00f0 okkur \u00far miklum h\u00e1ska og \u00fe\u00f6kkum vi\u00f0 honum mikillega og erum \u00feess alb\u00fanir a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast gegn konunginum. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 sj\u00e1lfur Gu\u00f0 hrakti \u00fe\u00e1 \u00e1 brott sem h\u00f6f\u00f0u fylkt s\u00e9r gegn hinni heil\u00f6gu borg.<br \/> <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00deegar herkonungurinn kom til Pers\u00edu me\u00f0 her sinn, sem virtist \u00f3sigrandi, var hann felldur \u00ed hofi Naneu \u00fev\u00ed a\u00f0 prestarnir beittu br\u00f6g\u00f0um. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Ant\u00edokkus kom \u00e1 sta\u00f0inn og vinir hans me\u00f0 honum. Hann l\u00e9t sem hann vildi kv\u00e6nast gy\u00f0junni og hug\u00f0ist hreppa mikinn fj\u00e1rsj\u00f3\u00f0 a\u00f0 heimanmundi. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Prestarnir b\u00e1ru d\u00fdrgripina fram og Ant\u00edokkus gekk me\u00f0 f\u00e1einum f\u00e9l\u00f6gum s\u00ednum inn \u00ed hofgar\u00f0inn. Um lei\u00f0 og hann kom inn \u00ed hofi\u00f0 l\u00e6stu prestarnir \u00fev\u00ed. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00deeir luku upp leynihur\u00f0 \u00e1 hvelfingunni og v\u00f6rpu\u00f0u ni\u00f0ur grj\u00f3ti sem dundi \u00e1 konungi me\u00f0 feiknarafli. \u00deeir brytju\u00f0u fallna ni\u00f0ur og k\u00f6stu\u00f0u h\u00f6f\u00f0unum til \u00feeirra sem \u00fati fyrir st\u00f3\u00f0u. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Lofa\u00f0ur s\u00e9 Gu\u00f0 \u00e1 allan h\u00e1tt sem hegndi gu\u00f0l\u00f6sturunum.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Eldur ey\u00f0ir f\u00f3rn Nehem\u00eda<\/h3>\n<p><a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00dear sem vi\u00f0 h\u00f6fum n\u00fa afr\u00e1\u00f0i\u00f0 a\u00f0 halda hreinsun musterisins h\u00e1t\u00ed\u00f0lega tuttugasta og fimmta dag k\u00edslevm\u00e1na\u00f0ar teljum vi\u00f0 okkur skylt a\u00f0 tilkynna ykkur \u00fea\u00f0 til \u00feess a\u00f0 einnig \u00fei\u00f0 geti\u00f0 haldi\u00f0 helga laufsk\u00e1lah\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00feessa daga og minnst eldsins sem fannst \u00feegar Nehem\u00eda bar fram f\u00f3rnir er hann haf\u00f0i reist musteri\u00f0 og altari\u00f0. <br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> En \u00feegar flytja \u00e1tti fe\u00f0ur okkar til Pers\u00edu t\u00f3ku \u00feeir gu\u00f0hr\u00e6ddir prestar, er \u00fe\u00e1 voru uppi, eld \u00e1 laun af altarinu og komu honum fyrir ni\u00f0ri \u00ed \u00feornu\u00f0um brunni \u00fear sem \u00feeir f\u00f6ldu hann svo tryggilega a\u00f0 enginn gat fundi\u00f0 sta\u00f0inn. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> En eftir fj\u00f6ldam\u00f6rg \u00e1r \u00fe\u00f3kna\u00f0ist Gu\u00f0i a\u00f0 l\u00e1ta Persakonung senda Nehem\u00eda heim. Hann sendi ni\u00f0ja prestanna, sem fali\u00f0 h\u00f6f\u00f0u eldinn, til a\u00f0 s\u00e6kja hann. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00deeir sneru aftur og kv\u00e1\u00f0ust ekki hafa fundi\u00f0 neinn eld heldur a\u00f0eins e\u00f0ju. Nehem\u00eda skipa\u00f0i \u00feeim a\u00f0 ausa nokkru af henni upp og f\u00e6ra s\u00e9r. \u00deegar svo allt \u00fea\u00f0 sem hafa skyldi til f\u00f3rnarinnar var komi\u00f0 \u00e1 sinn sta\u00f0 bau\u00f0 Nehem\u00eda prestunum a\u00f0 hella v\u00f6kvanum yfir vi\u00f0inn og \u00fea\u00f0 sem \u00e1 hann haf\u00f0i veri\u00f0 lagt. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 ger\u00f0u \u00feeir og nokkur t\u00edmi lei\u00f0. \u00de\u00e1 dr\u00f3 sk\u00fd fr\u00e1 s\u00f3lu og \u00f6llum til undrunar kvikna\u00f0i miki\u00f0 b\u00e1l. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Me\u00f0an f\u00f3rnin brann fluttu prestarnir b\u00e6n og allir t\u00f3ku undir. J\u00f3natan leiddi b\u00e6nagj\u00f6r\u00f0ina og a\u00f0rir t\u00f3ku undir og me\u00f0 \u00feeim Nehem\u00eda. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> B\u00e6nin hlj\u00f3\u00f0a\u00f0i \u00feannig:<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">B\u00e6n Nehem\u00eda<\/h3>\n<p>\u201eDrottinn, Drottinn Gu\u00f0, skapari alls, \u00fe\u00fa \u00f3gurlegi, m\u00e1ttugi, r\u00e9ttl\u00e1ti, miskunnsami, \u00fe\u00fa sem einn ert konungur og einn ert g\u00f3\u00f0ur.<br \/> <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00de\u00fa sem einn gefur og einn ert r\u00e9ttl\u00e1tur og alvaldur og eil\u00edfur, \u00fe\u00fa sem frelsar \u00cdsrael fr\u00e1 \u00f6llu illu og hefur \u00fatvali\u00f0 fe\u00f0ur vora og helga\u00f0 \u00fe\u00e1. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Veit \u00feessari f\u00f3rn vi\u00f0t\u00f6ku fyrir gj\u00f6rvallan l\u00fd\u00f0 \u00feinn \u00cdsrael. Var\u00f0veit \u00fe\u00fa eignarl\u00fd\u00f0 \u00feinn og helga hann. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Safna \u00fe\u00fa \u00feeim af oss saman sem tv\u00edstra\u00f0ir eru og frelsa \u00fe\u00e1 sem eru \u00ed \u00e1\u00fej\u00e1n me\u00f0al hei\u00f0ingjanna. L\u00edt til \u00feeirra sem eru sm\u00e1\u00f0ir og \u00fatsk\u00fafa\u00f0ir og l\u00e1t hei\u00f0ingjana komast a\u00f0 raun um a\u00f0 \u00fe\u00fa ert Gu\u00f0 vor. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Refsa \u00fe\u00fa \u00feeim sem \u00ed hroka s\u00ednum k\u00faga oss og mis\u00feyrma.<br \/> <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Gr\u00f3\u00f0urset l\u00fd\u00f0 \u00feinn \u00e1 \u00fe\u00ednum heilaga sta\u00f0 eins og M\u00f3se sag\u00f0i.\u201c <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Persakeisari f\u00e6r fregnir af eldinum<\/h3>\n<p><a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an sungu prestarnir lofs\u00f6ngva. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> \u00deegar f\u00f3rnin var brunnin upp bau\u00f0 Nehem\u00eda a\u00f0 hella \u00fev\u00ed sem eftir var af v\u00f6kvanum yfir st\u00f3ra steina. <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> \u00deegar \u00feetta var gert kvikna\u00f0i logi sem slokkna\u00f0i \u00feegar lj\u00f3si\u00f0 fr\u00e1 altarinu skein \u00e1 hann.<br \/> <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Er \u00feetta spur\u00f0ist var Persakonungi einnig sagt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00f6kvinn hef\u00f0i komi\u00f0 \u00ed lj\u00f3s \u00e1 \u00feeim sta\u00f0 \u00fear sem herleiddu prestarnir f\u00f3lu eldinn og hef\u00f0u Nehem\u00eda og menn hans nota\u00f0 hann s\u00ed\u00f0an til a\u00f0 hreinsa f\u00f3rnargjafirnar. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> Eftir a\u00f0 hafa rannsaka\u00f0 m\u00e1li\u00f0 l\u00e9t konungur gir\u00f0a sta\u00f0inn og l\u00fdsa hann heilagan. <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> Hann og \u00feeir sem hann vildi vel skiptust einnig \u00e1 veglegum gj\u00f6fum.<br \/> <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> \u00deeir Nehem\u00eda k\u00f6llu\u00f0u efni\u00f0 neftar, sem merkir hreinsun, en flestir nefna \u00fea\u00f0 nafta.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Br\u00e9f til Gy\u00f0inga \u00ed Egyptalandi 1 Vi\u00f0 Gy\u00f0ingar \u00ed Jer\u00fasalem og J\u00fadeu sendum br\u00e6\u00f0rum okkar \u00ed Egyptalandi kve\u00f0ju og \u00f3skum \u00feeim fri\u00f0ar og velfarna\u00f0ar. 2 Gu\u00f0 veri ykkur g\u00f3\u00f0ur og minnist s\u00e1ttm\u00e1la s\u00edns vi\u00f0 tr\u00faa \u00fej\u00f3na s\u00edna, Abraham, \u00cdsak og Jakob. 3 Hann gefi ykkur \u00f6llum \u00fer\u00e1 til a\u00f0 tilbi\u00f0ja sig og gera vilja sinn af \u00f6llu hjarta og f\u00fasu ge\u00f0i. 4 Hann opni hj\u00f6rtu ykkar fyrir l\u00f6gm\u00e1li s\u00ednu og bo\u00f0um. Megi hann veita ykkur fri\u00f0 5 og heyra b\u00e6nir ykkar og taka ykkur \u00ed s\u00e1tt. Hann yfirgefi ykkur ekki \u00e1 ney\u00f0art\u00edmum. 6 H\u00e9r erum vi\u00f0 n\u00fa saman komnir til <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/onnur-makkabeabok-1-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2940","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2940","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2940"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2940\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2940"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}