{"id":2938,"date":"2017-12-30T21:05:19","date_gmt":"2017-12-30T21:05:19","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrsta-makkabeab%c2%97k-15-kafli\/"},"modified":"2017-12-30T21:05:19","modified_gmt":"2017-12-30T21:05:19","slug":"fyrsta-makkabeabok-15-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrsta-makkabeabok-15-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrsta Makkabeab\u00f3k 15. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Ant\u00edokkus VII falast eftir stu\u00f0ningi S\u00edmonar<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Ant\u00edokkus, sonur Demetr\u00edusar konungs, sendi br\u00e9f fr\u00e1 eyjunum \u00ed hafinu til S\u00edmonar, \u00e6\u00f0sta prests og \u00fej\u00f3\u00f0h\u00f6f\u00f0ingja Gy\u00f0inga, og \u00fej\u00f3\u00f0arinnar allrar. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Var br\u00e9fi\u00f0 \u00e1 \u00feessa lei\u00f0:<br \/>\u201eAnt\u00edokkus konungur sendir S\u00edmoni, \u00e6\u00f0sta presti og \u00fej\u00f3\u00f0h\u00f6f\u00f0ingja, og \u00fej\u00f3\u00f0 Gy\u00f0inga kve\u00f0jur. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Nokkrir svikarar hafa s\u00f6lsa\u00f0 undir sig v\u00f6ldin \u00ed r\u00edki fe\u00f0ra vorra. \u00dear sem \u00e9g \u00e6tla m\u00e9r a\u00f0 endurheimta v\u00f6ldin og koma skipan m\u00e1la \u00ed sama horf og var hef \u00e9g dregi\u00f0 a\u00f0 m\u00e9r mikinn herafla og l\u00e1ti\u00f0 sm\u00ed\u00f0a herskip. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00c6tla \u00e9g a\u00f0 st\u00edga \u00e1 land og hafa hendur \u00ed h\u00e1ri \u00feeirra sem spillt hafa landi voru og ey\u00f0ilagt margar borgir \u00ed r\u00edki m\u00ednu. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> H\u00e9r me\u00f0 sta\u00f0festi \u00e9g \u00fe\u00e6r skatta\u00edvilnanir sem fyrirrennarar m\u00ednir \u00ed h\u00e1s\u00e6ti hafa veitt \u00fe\u00e9r og sta\u00f0festi a\u00f0 allt stendur \u00f3breytt um a\u00f0rar \u00edvilnanir \u00fe\u00e9r veittar. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00c9g heimila \u00fe\u00e9r a\u00f0 sl\u00e1 eigin mynt til a\u00f0 nota sem gjaldmi\u00f0il \u00ed landi \u00fe\u00ednu <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> og l\u00fdsi Jer\u00fasalem og helgid\u00f3minn skattfrj\u00e1lsan. \u00d6llum \u00feeim vopnum, sem \u00fe\u00fa hefur l\u00e1ti\u00f0 gera, og virkjum, sem \u00fe\u00fa reistir og r\u00e6\u00f0ur yfir, m\u00e1tt \u00fe\u00fa halda. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Allt sem \u00fe\u00fa skuldar konungi og allt sem konungd\u00e6mi\u00f0 kann a\u00f0 krefja \u00feig s\u00ed\u00f0ar um skal \u00fe\u00e9r upp gefi\u00f0 fr\u00e1 og me\u00f0 \u00feessum degi og til framb\u00fa\u00f0ar. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Er v\u00e9r svo h\u00f6fum n\u00e1\u00f0 v\u00f6ldum \u00ed r\u00edki voru \u00e1 n\u00fd skulum v\u00e9r s\u00e6ma \u00feig og \u00fej\u00f3\u00f0 \u00fe\u00edna og helgid\u00f3m sl\u00edkri vegsemd a\u00f0 tign ykkar mun ver\u00f0a auglj\u00f3s um alla j\u00f6r\u00f0ina.\u201c<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Tr\u00fdfoni velt \u00far sessi<\/h3>\n<p><a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00c1ri\u00f0 eitt hundra\u00f0 sj\u00f6t\u00edu og fj\u00f6gur st\u00e9 Ant\u00edokkus \u00e1 land \u00ed landi fe\u00f0ra sinna. Gengu allar hersveitir honum \u00e1 h\u00f6nd svo a\u00f0 Tr\u00fdfon var\u00f0 f\u00e1li\u00f0a\u00f0ur. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Ant\u00edokkus veitti honum eftirf\u00f6r og fl\u00fd\u00f0i hann til D\u00f3r sem er vi\u00f0 str\u00f6ndina. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> S\u00e1 hann l\u00edka a\u00f0 hann var heillum horfinn \u00fear sem hersveitirnar h\u00f6f\u00f0u yfirgefi\u00f0 hann. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Ant\u00edokkus setti herb\u00fa\u00f0ir vi\u00f0 D\u00f3r. Hann haf\u00f0i eitt hundra\u00f0 og tuttugu \u00fe\u00fasundir hermanna og \u00e1tta \u00fe\u00fasund riddara. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Hann umkringdi borgina og skip ger\u00f0u \u00e1r\u00e1s sj\u00e1varmegin svo a\u00f0 \u00ferengt var a\u00f0 henni fr\u00e1 sj\u00f3 og landi og \u00fev\u00ed var alls engum f\u00e6rt a\u00f0 komast inn e\u00f0a \u00fat \u00far borginni.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">R\u00f3mverjar l\u00fdsa yfir stu\u00f0ningi vi\u00f0 Gy\u00f0inga<\/h3>\n<p><a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> N\u00famen\u00edus og fylgdarmenn hans komu fr\u00e1 R\u00f3m me\u00f0 svohlj\u00f3\u00f0andi br\u00e9f til hinna \u00fdmsu konunga og landa:<br \/> <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u201eL\u00fas\u00edus, r\u00e6\u00f0isma\u00f0ur R\u00f3mverja, sendir Pt\u00f3lemeusi konungi kve\u00f0ju. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Fulltr\u00faar Gy\u00f0inga, vina okkar og bandamanna, vitju\u00f0u okkar til a\u00f0 endurn\u00fdja forna vin\u00e1ttu og bandalag. Var \u00feeim fali\u00f0 \u00fea\u00f0 af S\u00edmoni \u00e6\u00f0sta presti og \u00fej\u00f3\u00f0 Gy\u00f0inga. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00deeir f\u00e6r\u00f0u okkur gullskj\u00f6ld, \u00fe\u00fasund m\u00edna vir\u00f0i. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Vi\u00f0 afr\u00e9\u00f0um \u00fev\u00ed a\u00f0 skrifa hinum \u00fdmsu konungum og l\u00f6ndum og hvetja til \u00feess a\u00f0 leitast ver\u00f0i vi\u00f0 a\u00f0 Gy\u00f0ingum s\u00e9 ekki unni\u00f0 tj\u00f3n, hvorki \u00e1 \u00fe\u00e1 r\u00e1\u00f0ist, borgir \u00feeirra og land n\u00e9 \u00feeim veitt v\u00edgsgengi sem \u00e1 \u00fe\u00e1 herja. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00c1kv\u00e1\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 \u00feiggja skj\u00f6ldinn af \u00feeim. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Hafi einhverjir afbrotamenn fr\u00e1 landi \u00feeirra leita\u00f0 h\u00e6lis \u00ed landi ykkar hvetjum vi\u00f0 ykkur til a\u00f0 framselja \u00fe\u00e1 S\u00edmoni \u00e6\u00f0sta presti svo a\u00f0 hann geti refsa\u00f0 \u00feeim samkv\u00e6mt l\u00f6gm\u00e1li Gy\u00f0inga.\u201c<br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Hi\u00f0 sama skrifa\u00f0i L\u00fas\u00edus Demetr\u00edusi konungi og Attalusi, Ar\u00edarates og Arsakes <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> og Sampsame og Sp\u00f6rtu og til hinna \u00fdmsu landa: Delos, Myndus, S\u00fdk\u00edon, Kar\u00edu, Samos, Pamfyl\u00edu, L\u00fdk\u00edu, Hal\u00edkarnassus, R\u00f3dos, Faselis, Kos, S\u00edde, Aradus, Gort\u00fdna, Kn\u00eddus, K\u00fdpur og K\u00fdrene. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Afrit af br\u00e9funum var sent S\u00edmoni \u00e6\u00f0sta presti.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Ant\u00edokkus VII sn\u00fdr baki vi\u00f0 S\u00edmoni<\/h3>\n<p><a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Ant\u00edokkus konungur settist \u00f6\u00f0ru sinni um D\u00f3r. S\u00f3tti her hans s\u00edfellt fastar a\u00f0 borginni. L\u00e9t Ant\u00edokkus sm\u00ed\u00f0a ums\u00e1tursv\u00e9lar og loka\u00f0i \u00f6llum a\u00f0komu- og \u00fatg\u00f6ngulei\u00f0um fyrir Tr\u00fdfoni. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> S\u00edmon sendi Ant\u00edokkusi tv\u00f6 \u00fe\u00fasund \u00farvalshermenn til hj\u00e1lpar \u00ed str\u00ed\u00f0inu, silfur, gull og gn\u00f3tt vopna. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u00deetta vildi Ant\u00edokkus ekki \u00feiggja heldur br\u00e1 \u00f6llu sem hann haf\u00f0i sami\u00f0 um \u00e1\u00f0ur vi\u00f0 S\u00edmon og var\u00f0 fjandsamlegur honum. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Sendi hann Aten\u00f3b\u00edus, einn vina sinna, til a\u00f0 semja vi\u00f0 S\u00edmon og skila \u00feessu til hans:<br \/>\u201e\u00dei\u00f0 hafi\u00f0 herteki\u00f0 Joppe og Geser og virki\u00f0 \u00ed Jer\u00fasalem sem eru borgir \u00ed r\u00edki voru. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 hafi\u00f0 lagt h\u00e9ru\u00f0 \u00feeirra \u00ed au\u00f0n, baka\u00f0 landinu mikinn ska\u00f0a og s\u00f6lsa\u00f0 undir ykkur margan sta\u00f0inn \u00ed r\u00edki voru. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> Skili\u00f0 \u00feegar aftur borgum \u00feeim sem \u00fei\u00f0 t\u00f3ku\u00f0 og gjaldi\u00f0 skatta af h\u00e9ru\u00f0unum sem \u00fei\u00f0 l\u00f6g\u00f0u\u00f0 undir ykkur utan landam\u00e6ra J\u00fadeu. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> A\u00f0 \u00f6\u00f0rum kosti skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 grei\u00f0a fimm hundru\u00f0 talentur silfurs fyrir tj\u00f3ni\u00f0 sem \u00fei\u00f0 ollu\u00f0 og a\u00f0rar fimm hundru\u00f0 \u00ed sta\u00f0 skattsins af borgunum. Ella komum v\u00e9r og f\u00f6rum me\u00f0 her \u00e1 hendur ykkur.\u201c<br \/> <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> \u00deegar Aten\u00f3b\u00edus, vinur konungs, kom til Jer\u00fasalem og s\u00e1 vegsemd S\u00edmonar, st\u00f3rfenglegan gl\u00e6sileik hir\u00f0ar hans, bor\u00f0b\u00fana\u00f0 af gulli og silfri og fj\u00f6lmennt \u00fej\u00f3nali\u00f0i\u00f0 var\u00f0 hann agndofa. \u00deegar hann s\u00ed\u00f0an flutti S\u00edmoni bo\u00f0 konungs <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> svara\u00f0i hann:<br \/>\u201eVi\u00f0 h\u00f6fum hvorki teki\u00f0 land, sem \u00f6\u00f0rum tilheyrir, n\u00e9 slegi\u00f0 eign okkar \u00e1 neitt sem annarra er. Vi\u00f0 t\u00f3kum einungis arf fe\u00f0ra okkar sem \u00f3vinir okkar h\u00f6f\u00f0u \u00e1\u00f0ur s\u00f6lsa\u00f0 undir sig me\u00f0 rangindum.<br \/> <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> N\u00fa, \u00feegar f\u00e6ri er til, \u00e6tlum vi\u00f0 a\u00f0 halda arfi fe\u00f0ra okkar. <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> Hva\u00f0 Joppe og Geser \u00e1hr\u00e6rir, sem \u00fe\u00fa gerir kr\u00f6fu til, \u00fe\u00e1 hafa \u00edb\u00faar \u00feeirra borga valdi\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0 okkar og landi st\u00f3rtj\u00f3ni. Fyrir \u00fe\u00e6r skulum vi\u00f0 \u00fe\u00f3 grei\u00f0a eitt hundra\u00f0 talentur.\u201c<br \/>Aten\u00f3b\u00edus svara\u00f0i honum engu or\u00f0i <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> heldur sneri s\u00e1rrei\u00f0ur aftur til konungs og greindi honum fr\u00e1 \u00fev\u00ed sem S\u00edmon haf\u00f0i sagt. Hann l\u00fdsti vegsemd S\u00edmonar fyrir honum og \u00f6llu sem bori\u00f0 haf\u00f0i fyrir augu hans og fylltist konungur heift.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Herf\u00f6r Kendebeusar<\/h3>\n<p><a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> Tr\u00fdfoni t\u00f3kst a\u00f0 komast \u00e1 skip og fl\u00fdja til Ortos\u00edu. <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> Konungur setti \u00fe\u00e1 Kendebeus yfir herinn vi\u00f0 strandlengjuna og f\u00e9kk honum b\u00e6\u00f0i f\u00f3tg\u00f6nguli\u00f0 og riddara. <a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> Gaf konungur honum fyrirm\u00e6li um a\u00f0 koma her s\u00ednum fyrir vi\u00f0 landam\u00e6ri J\u00fadeu, v\u00edggir\u00f0a Kedron, styrkja hli\u00f0 borgarinnar og herja \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0ina. Sj\u00e1lfur veitti konungur Tr\u00fdfoni eftirf\u00f6r. <a name=\"40\"><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span><\/a> \u00deegar Kendebeus kom til Jabne t\u00f3k hann strax a\u00f0 hrella \u00fej\u00f3\u00f0ina. F\u00f3r hann \u00e1r\u00e1sarfer\u00f0ir inn \u00ed J\u00fadeu og t\u00f3k fanga og myrti. <a name=\"41\"><span class=\"versanumer_2007\">41<\/span><\/a> Hann v\u00edggirti Kedron og kom \u00fear fyrir riddurum og \u00f6\u00f0ru li\u00f0i svo a\u00f0 \u00feeir g\u00e6tu haldi\u00f0 \u00fea\u00f0an til \u00e1r\u00e1sa me\u00f0 fram vegum J\u00fadeu eins og konungur haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Ant\u00edokkus VII falast eftir stu\u00f0ningi S\u00edmonar 1 Ant\u00edokkus, sonur Demetr\u00edusar konungs, sendi br\u00e9f fr\u00e1 eyjunum \u00ed hafinu til S\u00edmonar, \u00e6\u00f0sta prests og \u00fej\u00f3\u00f0h\u00f6f\u00f0ingja Gy\u00f0inga, og \u00fej\u00f3\u00f0arinnar allrar. 2 Var br\u00e9fi\u00f0 \u00e1 \u00feessa lei\u00f0:\u201eAnt\u00edokkus konungur sendir S\u00edmoni, \u00e6\u00f0sta presti og \u00fej\u00f3\u00f0h\u00f6f\u00f0ingja, og \u00fej\u00f3\u00f0 Gy\u00f0inga kve\u00f0jur. 3 Nokkrir svikarar hafa s\u00f6lsa\u00f0 undir sig v\u00f6ldin \u00ed r\u00edki fe\u00f0ra vorra. \u00dear sem \u00e9g \u00e6tla m\u00e9r a\u00f0 endurheimta v\u00f6ldin og koma skipan m\u00e1la \u00ed sama horf og var hef \u00e9g dregi\u00f0 a\u00f0 m\u00e9r mikinn herafla og l\u00e1ti\u00f0 sm\u00ed\u00f0a herskip. 4 \u00c6tla \u00e9g a\u00f0 st\u00edga \u00e1 land og hafa hendur \u00ed h\u00e1ri \u00feeirra sem spillt hafa <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrsta-makkabeabok-15-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2938","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2938","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2938"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2938\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2938"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}