{"id":2862,"date":"2017-12-30T21:04:58","date_gmt":"2017-12-30T21:04:58","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/speki-sal%c2%97mons-16-kafli\/"},"modified":"2017-12-30T21:04:59","modified_gmt":"2017-12-30T21:04:59","slug":"speki-salomons-16-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/speki-salomons-16-kafli\/","title":{"rendered":"Speki Sal\u00f3mons 16. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Egyptum refsa\u00f0, \u00cdsraelsm\u00f6nnum bjarga\u00f0<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00deess vegna var \u00feeim maklega refsa\u00f0 me\u00f0 sl\u00edkum kvikindum og \u00feeir kvaldir me\u00f0 merg\u00f0 \u00feeirra. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u00deeim var refsa\u00f0 \u00feannig en \u00fe\u00fa ger\u00f0ir vel vi\u00f0 l\u00fd\u00f0 \u00feinn. Til a\u00f0 se\u00f0ja hungur hans tilreiddir \u00fe\u00fa honum lyngh\u00e6nsni til matar, \u00f3vanalegt s\u00e6lg\u00e6ti. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00deegar \u00f3vinina hungra\u00f0i misstu \u00feeir jafnvel hina e\u00f0lilegu l\u00f6ngun \u00ed f\u00e6\u00f0u vegna \u00feess hve kvikindin, sem stefnt var gegn \u00feeim, voru vi\u00f0bj\u00f3\u00f0sleg. En l\u00fd\u00f0ur \u00feinn f\u00e9kk lj\u00faffenga sa\u00f0ningu eftir a\u00f0 hann haf\u00f0i \u00feola\u00f0 skort um hr\u00ed\u00f0. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Yfir k\u00fagarana skyldi koma \u00f3umfl\u00fdjanleg ney\u00f0 en l\u00fd\u00f0 \u00fe\u00ednum \u00e1tti a\u00f0eins a\u00f0 s\u00fdna hvernig \u00f3vinir \u00feeirra voru kvaldir.<br \/> <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Jafnvel \u00feegar \u00f3gurleg \u00f3argad\u00fdr \u00e6ddu a\u00f0 \u00feeim og i\u00f0andi h\u00f6ggormar bitu \u00fe\u00e1 og eyddu \u00feeim l\u00e9stu rei\u00f0i \u00fe\u00edna ekki gera \u00fat af vi\u00f0 \u00fe\u00e1. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00deeir voru ger\u00f0ir hr\u00e6ddir um skei\u00f0 til a\u00f0 vara \u00fe\u00e1 vi\u00f0 og hlutu t\u00e1kn um hj\u00e1lp sem minnti \u00fe\u00e1 \u00e1 l\u00f6gm\u00e1lsbo\u00f0 \u00fe\u00edn. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Hver sem leit \u00e1 t\u00e1kni\u00f0 var\u00f0 heill, ekki af \u00fev\u00ed sem hann s\u00e1 heldur hj\u00e1lpa\u00f0ir \u00fe\u00fa sem frelsar alla. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00deannig f\u00e6r\u00f0ir \u00fe\u00fa \u00f3vinum vorum heim sanninn um a\u00f0 \u00fe\u00fa ert s\u00e1 sem frelsar fr\u00e1 \u00f6llu illu. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Bit engisprettna og flugna deyddi \u00fe\u00e1 og ekkert lyf fannst l\u00edfi \u00feeirra til bjargar enda ver\u00f0skuldu\u00f0u \u00feeir hegningu af sl\u00edkum d\u00fdrum.<br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> En \u00e1 b\u00f6rnum \u00fe\u00ednum unnu ekki einu sinni tennur eitra\u00f0ra sn\u00e1ka \u00fev\u00ed a\u00f0 miskunn \u00fe\u00edn kom \u00feeim til hj\u00e1lpar og l\u00e6kna\u00f0i \u00feau. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00deau voru stungin til \u00feess a\u00f0 \u00feau minntust or\u00f0a \u00feinna en hlutu skj\u00f3ta hj\u00e1lp. \u00dea\u00f0 var til \u00feess a\u00f0 \u00feeim gleymdust ekki velgj\u00f6r\u00f0ir \u00fe\u00ednar e\u00f0a \u00feau l\u00e9tu s\u00e9r f\u00e1tt um g\u00e6sku \u00fe\u00edna finnast. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Hvorki gr\u00f6s n\u00e9 smyrsl l\u00e6knu\u00f0u \u00feau heldur or\u00f0 \u00feitt, Drottinn, sem gr\u00e6\u00f0ir allt. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00de\u00fa hefur l\u00edf og dau\u00f0a \u00e1 valdi \u00fe\u00ednu, f\u00e6rir okkur ni\u00f0ur a\u00f0 hli\u00f0um heljar og lei\u00f0ir okkur upp \u00fea\u00f0an. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Ma\u00f0urinn getur a\u00f0 s\u00f6nnu deytt annan \u00ed illsku sinni en andann, sem burt er farinn, getur hann hvorki s\u00f3tt aftur n\u00e9 leyst \u00fat s\u00e1l sem dau\u00f0inn hefur teki\u00f0.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Hagl og manna<\/h3>\n<p><a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Enginn getur komist undan hendi \u00feinni. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00de\u00fa laust hina gu\u00f0lausu m\u00e1ttugum armi \u00fe\u00ednum \u00feegar \u00feeir neitu\u00f0u a\u00f0 \u00feekkja \u00feig. \u00c1 \u00feeim skall firnamiki\u00f0 steypiregn, hagl og sterkvi\u00f0ri, sem ekki var\u00f0 undan fl\u00fai\u00f0, og svo eyddi \u00feeim eldur. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Undarlegast var \u00fe\u00f3 a\u00f0 eldurinn m\u00e1tti s\u00edn mest \u00ed vatninu, sem allt slekkur, \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00e1tt\u00faran berst me\u00f0 hinum r\u00e9ttl\u00e1tu. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Stundum l\u00e6g\u00f0i b\u00e1li\u00f0 sig til \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 eyddi ekki d\u00fdrunum sem send voru gegn hinum gu\u00f0lausu. \u00deeir skyldu sj\u00e1 og j\u00e1ta a\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6tisd\u00f3mur Gu\u00f0s bitna\u00f0i \u00e1 \u00feeim. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Svo \u00e1tti b\u00e1li\u00f0 \u00fea\u00f0 til a\u00f0 funa heitar en annars gerist, umlukt vatni, til \u00feess a\u00f0 spilla \u00fev\u00ed sem rangl\u00e1tt landi\u00f0 gefur af s\u00e9r.<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> En l\u00fd\u00f0 \u00fe\u00ednum gafst \u00fe\u00fa \u00feess \u00ed sta\u00f0 englaf\u00e6\u00f0u a\u00f0 eta. \u00de\u00fa sendir \u00feeim brau\u00f0 af himni sem neyta m\u00e1tti \u00e1n fyrirhafnar og veitti alla una\u00f0ssemd og var a\u00f0 allra smekk. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Efni\u00f0 fr\u00e1 \u00fe\u00e9r opinbera\u00f0i hve mildur \u00fe\u00fa ert b\u00f6rnum \u00fe\u00ednum. \u00dea\u00f0 laga\u00f0i sig a\u00f0 \u00f3skum \u00feess er neytti og breyttist \u00ed \u00fea\u00f0 sem s\u00e9rhver vildi. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 \u00feoldi eld, og snj\u00f3r og \u00eds h\u00e9lst og \u00fei\u00f0na\u00f0i ekki. \u00dea\u00f0 skyldi minna \u00fe\u00e1 \u00e1 a\u00f0 eldurinn, sem brann \u00ed haglhr\u00ed\u00f0inni og sindra\u00f0i \u00ed steypiregninu, eyddi jar\u00f0argr\u00f3\u00f0a \u00f3vinanna <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> en gleymdi jafnvel eigin krafti til \u00feess a\u00f0 hinir r\u00e9ttl\u00e1tu hlytu sa\u00f0ning.<br \/> <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 sk\u00f6punin \u00fej\u00f3nar \u00fe\u00e9r, skapara s\u00ednum, og beitir s\u00e9r gegn hinum rangl\u00e1tu til a\u00f0 refsa \u00feeim en mildast til a\u00f0 gera vel vi\u00f0 \u00fe\u00e1 sem \u00fe\u00e9r treysta. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00deess vegna \u00fej\u00f3na\u00f0i sk\u00f6punin \u00fe\u00e9r einnig \u00feegar \u00fe\u00fa sendir gj\u00f6fina sem se\u00f0ur alla. H\u00fan t\u00f3k \u00e1 sig hverja \u00fe\u00e1 mynd sem \u00fe\u00f6rf kraf\u00f0i <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> til \u00feess a\u00f0 b\u00f6rn \u00fe\u00edn, sem \u00fe\u00fa, Drottinn, elskar, k\u00e6must a\u00f0 raun um a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki gr\u00f3\u00f0ur jar\u00f0ar sem mettar manninn heldur er \u00fea\u00f0 or\u00f0 \u00feitt sem n\u00e6rir \u00fe\u00e1 sem \u00e1 \u00feig tr\u00faa. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Jafnvel \u00fea\u00f0 sem eldur vann ekki \u00e1 br\u00e1\u00f0na\u00f0i \u00f3\u00f0ar fyrir skammvinnum s\u00f3largeisla <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> svo a\u00f0 l\u00fd\u00f0um yr\u00f0i lj\u00f3st a\u00f0 \u00fe\u00e9r ber a\u00f0 \u00feakka fyrir s\u00f3laruppkomu og \u00feig ber a\u00f0 tilbi\u00f0ja \u00feegar l\u00fdsir af degi. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Von hins van\u00feakkl\u00e1ta br\u00e1\u00f0nar eins og vetrarhr\u00edm og skolast burt l\u00edkt og sk\u00f3lp.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Egyptum refsa\u00f0, \u00cdsraelsm\u00f6nnum bjarga\u00f0 1 \u00deess vegna var \u00feeim maklega refsa\u00f0 me\u00f0 sl\u00edkum kvikindum og \u00feeir kvaldir me\u00f0 merg\u00f0 \u00feeirra. 2 \u00deeim var refsa\u00f0 \u00feannig en \u00fe\u00fa ger\u00f0ir vel vi\u00f0 l\u00fd\u00f0 \u00feinn. Til a\u00f0 se\u00f0ja hungur hans tilreiddir \u00fe\u00fa honum lyngh\u00e6nsni til matar, \u00f3vanalegt s\u00e6lg\u00e6ti. 3 \u00deegar \u00f3vinina hungra\u00f0i misstu \u00feeir jafnvel hina e\u00f0lilegu l\u00f6ngun \u00ed f\u00e6\u00f0u vegna \u00feess hve kvikindin, sem stefnt var gegn \u00feeim, voru vi\u00f0bj\u00f3\u00f0sleg. En l\u00fd\u00f0ur \u00feinn f\u00e9kk lj\u00faffenga sa\u00f0ningu eftir a\u00f0 hann haf\u00f0i \u00feola\u00f0 skort um hr\u00ed\u00f0. 4 Yfir k\u00fagarana skyldi koma \u00f3umfl\u00fdjanleg ney\u00f0 en l\u00fd\u00f0 \u00fe\u00ednum \u00e1tti a\u00f0eins a\u00f0 s\u00fdna hvernig \u00f3vinir \u00feeirra voru <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/speki-salomons-16-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2862","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2862","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2862"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2862\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2862"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}