{"id":2861,"date":"2017-12-30T21:04:58","date_gmt":"2017-12-30T21:04:58","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/speki-sal%c2%97mons-15-kafli\/"},"modified":"2018-01-16T02:16:44","modified_gmt":"2018-01-16T02:16:44","slug":"speki-salomons-15-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/speki-salomons-15-kafli\/","title":{"rendered":"Speki Sal\u00f3mons 15. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> F\u00e1n\u00fdti skur\u00f0go\u00f0a<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> En \u00fe\u00fa, Gu\u00f0, ert g\u00f3\u00f0ur og sannur, \u00feolinm\u00f3\u00f0ur og stj\u00f3rnar \u00f6llu me\u00f0 miskunnsemi. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u00de\u00f3tt v\u00e9r syndgum erum v\u00e9r \u00fe\u00ednir \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r \u00feekkjum m\u00e1tt \u00feinn. En v\u00e9r munum ekki syndga \u00fear sem v\u00e9r vitum a\u00f0 v\u00e9r teljumst \u00fe\u00edn eign. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> A\u00f0 \u00feekkja \u00feig er fullkomi\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti, a\u00f0 \u00feekkja m\u00e1tt \u00feinn upphaf \u00f3dau\u00f0leika. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> L\u00e6v\u00edsar upp\u00e1finningar manna hafa ekki leitt oss afvega n\u00e9 gagnslaust strit m\u00e1lara, marglitar eftirl\u00edkingar <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> sem kveikja girnd \u00ed brj\u00f3sti hinna f\u00e1v\u00edsu \u00feegar \u00feeir sj\u00e1 \u00fe\u00e6r svo a\u00f0 \u00feeir f\u00e1 ofur\u00e1st \u00e1 l\u00edflausu sk\u00f6pulagi dau\u00f0rar myndar. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Jafnt \u00feeir sem myndirnar skapa og hinir sem \u00fer\u00e1 \u00fe\u00e6r og \u00feeir sem tilbi\u00f0ja \u00fe\u00e6r, unna allir \u00fev\u00ed sem er illt og ver\u00f0skulda ekkert betra en a\u00f0 festa von s\u00edna \u00e1 \u00fev\u00ed.<br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Leirkerasmi\u00f0urinn erfi\u00f0ar vi\u00f0 a\u00f0 hno\u00f0a mj\u00fakan leirinn og m\u00f3tar hva\u00f0 eina oss til gagns. \u00dar sama efni myndar hann b\u00e6\u00f0i ker sem notu\u00f0 eru til hreinna verka og \u00f6nnur til hins gagnst\u00e6\u00f0a, \u00f6ll me\u00f0 sama h\u00e6tti. Smi\u00f0urinn r\u00e6\u00f0ur til hvers hvert og eitt ver\u00f0ur nota\u00f0. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Hann var fyrir sk\u00f6mmu af j\u00f6r\u00f0u kominn og \u00far sama leir og hann ver\u00f0ur br\u00e1tt \u00e1 n\u00fd, \u00feegar skuld l\u00edfsins ver\u00f0ur af honum krafin, m\u00f3tar hann \u00ed villu sinni einskisver\u00f0an gu\u00f0. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Samt er hann ekki a\u00f0 hugsa um \u00fea\u00f0 a\u00f0 hann eigi a\u00f0 deyja, n\u00e9 a\u00f0 l\u00edf hans s\u00e9 stutt, heldur keppir hann vi\u00f0 gullsmi\u00f0i og silfursmi\u00f0i, st\u00e6lir eirsmi\u00f0i og telur s\u00e9r s\u00e6md a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00edkja eftir verkum \u00feeirra. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Hjarta hans er aska, von hans ves\u00e6lli en mold og l\u00edf hans engu ver\u00f0m\u00e6tara en leir. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 hann \u00feekkir ekki \u00feann sem mynda\u00f0i hann og bl\u00e9s honum l\u00edfsanda \u00ed brj\u00f3st og s\u00e1l sem b\u00fdr yfir sk\u00f6punarm\u00e6tti. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00devert \u00e1 m\u00f3ti telur hann \u00e6vi vora leik og l\u00edfi\u00f0 ar\u00f0v\u00e6nlega kaupstefnu. \u201eMenn ver\u00f0a a\u00f0 gr\u00e6\u00f0a,\u201c er vi\u00f0kv\u00e6\u00f0i\u00f0, \u201e\u00fea\u00f0 er sama hva\u00f0an gott kemur, jafnvel \u00fe\u00f3tt af illu s\u00e9.\u201c <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Hann veit manna best a\u00f0 hann syndgar \u00feegar hann b\u00fdr til broth\u00e6tt ker og l\u00edkneski \u00far jar\u00f0arleir.<br \/> <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00d6llum heimskari og f\u00e1v\u00edsari hverju barni eru \u00feeir allir \u00f3vinir \u00fej\u00f3\u00f0ar \u00feinnar sem undiroka hana. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00deeir halda a\u00f0 \u00f6ll skur\u00f0go\u00f0 hei\u00f0ingjanna s\u00e9u gu\u00f0ir. \u00de\u00f3 hafa \u00feau hvorki augu til a\u00f0 sj\u00e1 me\u00f0, nasir sem geta dregi\u00f0 anda n\u00e9 eyru sem heyra e\u00f0a fingur \u00e1 h\u00f6ndum til a\u00f0 \u00fereifa me\u00f0 og f\u00e6tur \u00feeirra eru \u00f3n\u00fdtir til gangs. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00deau eru af manni ger\u00f0 og s\u00e1 sem \u00feegi\u00f0 hefur andann a\u00f0 l\u00e1ni mynda\u00f0i \u00feau. Enginn ma\u00f0ur getur m\u00f3ta\u00f0 Gu\u00f0 \u00far efni sem hann sj\u00e1lfur er af. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Sj\u00e1lfur er hann dau\u00f0legur ma\u00f0ur og myndar dau\u00f0a hluti me\u00f0 \u00f3fullkomnum h\u00f6ndum. Hann er fremri \u00feeim hlutum sem hann tilbi\u00f0ur \u00fev\u00ed a\u00f0 hann er lifandi en \u00fea\u00f0 hafa \u00feeir aldrei veri\u00f0.<br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00dear a\u00f0 auki tilbi\u00f0ja \u00feeir vi\u00f0urstyggilegustu d\u00fdr sem standa \u00f6\u00f0rum d\u00fdrum a\u00f0 baki a\u00f0 skynsemi <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> og eru ekki einu sinni snotur og \u00feekkileg eins og sumar skepnur, enda f\u00f3ru \u00feau \u00e1 mis vi\u00f0 blessun og vel\u00fe\u00f3knun Gu\u00f0s.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>F\u00e1n\u00fdti skur\u00f0go\u00f0a 1 En \u00fe\u00fa, Gu\u00f0, ert g\u00f3\u00f0ur og sannur, \u00feolinm\u00f3\u00f0ur og stj\u00f3rnar \u00f6llu me\u00f0 miskunnsemi. 2 \u00de\u00f3tt v\u00e9r syndgum erum v\u00e9r \u00fe\u00ednir \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r \u00feekkjum m\u00e1tt \u00feinn. En v\u00e9r munum ekki syndga \u00fear sem v\u00e9r vitum a\u00f0 v\u00e9r teljumst \u00fe\u00edn eign. 3 A\u00f0 \u00feekkja \u00feig er fullkomi\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti, a\u00f0 \u00feekkja m\u00e1tt \u00feinn upphaf \u00f3dau\u00f0leika. 4 L\u00e6v\u00edsar upp\u00e1finningar manna hafa ekki leitt oss afvega n\u00e9 gagnslaust strit m\u00e1lara, marglitar eftirl\u00edkingar 5 sem kveikja girnd \u00ed brj\u00f3sti hinna f\u00e1v\u00edsu \u00feegar \u00feeir sj\u00e1 \u00fe\u00e6r svo a\u00f0 \u00feeir f\u00e1 ofur\u00e1st \u00e1 l\u00edflausu sk\u00f6pulagi dau\u00f0rar myndar. 6 Jafnt \u00feeir sem myndirnar skapa og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/speki-salomons-15-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2861","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2861","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2861"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2861\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2861"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}