{"id":2860,"date":"2017-12-30T21:04:58","date_gmt":"2017-12-30T21:04:58","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/speki-sal%c2%97mons-14-kafli\/"},"modified":"2018-01-16T02:15:03","modified_gmt":"2018-01-16T02:15:03","slug":"speki-salomons-14-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/speki-salomons-14-kafli\/","title":{"rendered":"Speki Sal\u00f3mons 14. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Svo er annar sem hyggur \u00e1 sj\u00f3fer\u00f0. \u00deegar hann leggur til hafs um \u00fdf\u00f0ar \u00f6ldur, \u00fe\u00e1 \u00e1kallar hann s\u00e9r til hj\u00e1lpar feysknari vi\u00f0 en fari\u00f0 sem ber hann. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Fari\u00f0 hefur gr\u00f3\u00f0af\u00edknin hugsa\u00f0 upp en listin sem sm\u00ed\u00f0a\u00f0i \u00fea\u00f0 var spekin. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Forsj\u00f3n \u00fe\u00edn, fa\u00f0ir, st\u00fdrir f\u00f6r \u00feess. \u00de\u00fa hefur jafnvel lagt veg um hafi\u00f0 og \u00f6ruggan st\u00edg um \u00f6ldurnar. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00deannig s\u00fdnir \u00fe\u00fa a\u00f0 \u00fe\u00fa megnar a\u00f0 bjarga \u00far hverjum h\u00e1ska svo a\u00f0 einnig s\u00e1 sem ekki kann a\u00f0 sigla \u00e1r\u00e6\u00f0i um bor\u00f0. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00de\u00fa vilt ekki a\u00f0 verk speki \u00feinnar s\u00e9u ekki n\u00fdtt. \u00deess vegna treysta menn ves\u00e6lustu fleytum fyrir l\u00edfi s\u00ednu og hafa komist af \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00feeir f\u00e6ru um sollinn s\u00e6 \u00e1 fleka. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00cd fyrndinni, \u00feegar drambl\u00e1tu risarnir f\u00f3rust, s\u00e1st \u00fe\u00fa til \u00feess a\u00f0 von heimsins komst undan \u00e1 fleyi og l\u00e9t framt\u00ed\u00f0inni eftir afkomendur. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Blessa\u00f0ur er s\u00e1 vi\u00f0ur sem stu\u00f0lar a\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti \u00fe\u00ednu <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> en b\u00f6lva\u00f0ur er vi\u00f0urinn, sem ger\u00f0ur er af manna h\u00f6ndum, og s\u00e1 sem ger\u00f0i hann. Hann telgdi myndina og hi\u00f0 forgengilega var kalla\u00f0 gu\u00f0. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Gu\u00f0 hefur s\u00f6mu andstygg\u00f0 \u00e1 gu\u00f0leysingjanum og gu\u00f0vana verkum hans. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> B\u00e1\u00f0um ver\u00f0ur refsa\u00f0, sm\u00ed\u00f0inni og smi\u00f0num. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Hegning mun koma yfir skur\u00f0go\u00f0 hei\u00f0ingjanna. \u00deau heyr\u00f0u til sk\u00f6pun Gu\u00f0s en ur\u00f0u vi\u00f0urstygg\u00f0 og \u00e1steytingarsteinn s\u00e1lum manna og snara um f\u00e6tur f\u00e1v\u00edsra.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Upphaf hj\u00e1gu\u00f0ad\u00fdrkunar<\/h3>\n<p><a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Upphaf hj\u00e1gu\u00f0ad\u00fdrkunar var a\u00f0 menn hugsu\u00f0u upp skur\u00f0go\u00f0. \u00deegar \u00feau ur\u00f0u til spilltu \u00feau l\u00edfi manna. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Enda voru \u00feau hvorki fr\u00e1 upphafi n\u00e9 munu \u00feau vara um aldur. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Fyrir t\u00f3ma \u00edmyndun komu \u00feau \u00ed heiminn og \u00feess vegna er \u00feeim b\u00fainn skj\u00f3tur endir.<br \/> <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Fa\u00f0ir, sem buga\u00f0ist af sorg yfir \u00f3t\u00edmab\u00e6rum missi barns s\u00edns, l\u00e9t gera mynd af \u00fev\u00ed og t\u00f3k n\u00fa a\u00f0 tigna hinn l\u00e1tna sem gu\u00f0. S\u00ed\u00f0an setti hann hj\u00faum s\u00ednum launhelgar og v\u00edgslusi\u00f0i. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Me\u00f0 t\u00edmanum festist \u00feessi gu\u00f0lausi si\u00f0ur og var haldinn sem l\u00f6g.<br \/>Einvaldar bu\u00f0u d\u00fdrkun \u00e1 skur\u00f0l\u00edkneskjum <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00fear sem \u00feeir voru sumir hverjir svo fjarri. Menn g\u00e1tu ekki au\u00f0s\u00fdnt einvaldinum sj\u00e1lfum lotningu s\u00edna. \u00deess vegna ger\u00f0u \u00feeir \u00feekkjanlega mynd af konunginum, sem tigna bar, til \u00feess a\u00f0 \u00feeir g\u00e6tu kappsamlega smja\u00f0ra\u00f0 fyrir honum fjarst\u00f6ddum eins og hann v\u00e6ri n\u00e6rstaddur. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Metna\u00f0argirnd listamannsins la\u00f0a\u00f0i jafnvel f\u00e1v\u00edsa til \u00e1kafrar \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00ed d\u00fdrkuninni, <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> enda neytti hann h\u00e6fni sinnar og fegra\u00f0i myndina, v\u00edsast til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00f3knast valdhafanum. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Yndis\u00feokki myndarinnar hreif menn svo a\u00f0 \u00feeir \u00e1litu \u00feann heilagan sem litlu fyrr haf\u00f0i veri\u00f0 tigna\u00f0ur sem ma\u00f0ur.<br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00deannig beyg\u00f0u \u00feeir sig undir \u00f3g\u00e6fu e\u00f0a har\u00f0stj\u00f3rn me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa stokkum og steinum \u00fea\u00f0 nafn sem a\u00f0eins einum ber. \u00deetta var\u00f0 m\u00f6nnum til falls.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Aflei\u00f0ing hj\u00e1gu\u00f0ad\u00fdrkunar<\/h3>\n<p><a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Ekki sat vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00feeir f\u00e6ru villir vegar um \u00feekkinguna \u00e1 Gu\u00f0i. Van\u00feekking \u00feeirra leiddi af s\u00e9r fri\u00f0vana l\u00edferni en samt nefna \u00feeir sl\u00edkt b\u00f6l fri\u00f0. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00deegar \u00feeir i\u00f0ka barnamor\u00f0 vi\u00f0 helgihald og launhelgar e\u00f0a halda tryllingslegar og annarlegar \u00f3h\u00f3fsveislur, <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00fe\u00e1 er hvorki l\u00edferni \u00feeirra n\u00e9 hj\u00faskapur framar \u00f3flekka\u00f0ur. Hver myr\u00f0ir annan me\u00f0 svikum og sv\u00edvir\u00f0ir hann me\u00f0 hj\u00faskaparbroti. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Alls sta\u00f0ar ve\u00f0ur uppi bl\u00f3\u00f0 og mor\u00f0, \u00fej\u00f3fna\u00f0ur og v\u00e9labr\u00f6g\u00f0, spilling, sviksemi, r\u00f3stur, meins\u00e6ri, <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00e1reitni vi\u00f0 g\u00f3\u00f0a menn, van\u00feakkl\u00e6ti, saurgun s\u00e1lna, kynvilla, hj\u00f3nabandsriftingar, h\u00f3rd\u00f3mur og saurl\u00edfi. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> D\u00fdrkun skur\u00f0go\u00f0a, sem ekki eru nefnandi \u00e1 nafn, er upphaf alls ills, ors\u00f6k og takmark. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Anna\u00f0hvort \u00e6\u00f0a menn \u00ed ofsak\u00e6ti, fara me\u00f0 upplogna sp\u00e1d\u00f3ma, lifa rangl\u00e1tlega e\u00f0a tv\u00edn\u00f3na ekki vi\u00f0 a\u00f0 fremja meins\u00e6ri. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> \u00deeir treysta l\u00edfvana go\u00f0um og b\u00faast ekki vi\u00f0 endurgjaldi fyrir ranga ei\u00f0a. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> En r\u00e9ttl\u00e1ta refsingu munu \u00feeir hlj\u00f3ta fyrir hvort tveggja, b\u00e6\u00f0i rangar hugmyndir um Gu\u00f0 og fyrir a\u00f0 a\u00f0hyllast skur\u00f0go\u00f0in, sverja meins\u00e6ri me\u00f0 svikum og fyrirl\u00edta hi\u00f0 heilaga. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> Enda er \u00fea\u00f0 ekki m\u00e1ttur \u00feeirra sem svari\u00f0 er vi\u00f0 sem \u00e6t\u00ed\u00f0 kemur ni\u00f0ur \u00e1 misgj\u00f6r\u00f0um rangl\u00e1tra, heldur r\u00e9ttv\u00eds d\u00f3mur yfir \u00feeim sem syndga.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1 Svo er annar sem hyggur \u00e1 sj\u00f3fer\u00f0. \u00deegar hann leggur til hafs um \u00fdf\u00f0ar \u00f6ldur, \u00fe\u00e1 \u00e1kallar hann s\u00e9r til hj\u00e1lpar feysknari vi\u00f0 en fari\u00f0 sem ber hann. 2 Fari\u00f0 hefur gr\u00f3\u00f0af\u00edknin hugsa\u00f0 upp en listin sem sm\u00ed\u00f0a\u00f0i \u00fea\u00f0 var spekin. 3 Forsj\u00f3n \u00fe\u00edn, fa\u00f0ir, st\u00fdrir f\u00f6r \u00feess. \u00de\u00fa hefur jafnvel lagt veg um hafi\u00f0 og \u00f6ruggan st\u00edg um \u00f6ldurnar. 4 \u00deannig s\u00fdnir \u00fe\u00fa a\u00f0 \u00fe\u00fa megnar a\u00f0 bjarga \u00far hverjum h\u00e1ska svo a\u00f0 einnig s\u00e1 sem ekki kann a\u00f0 sigla \u00e1r\u00e6\u00f0i um bor\u00f0. 5 \u00de\u00fa vilt ekki a\u00f0 verk speki \u00feinnar s\u00e9u ekki n\u00fdtt. \u00deess vegna treysta menn <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/speki-salomons-14-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2860","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2860","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2860"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2860\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2860"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}