{"id":2840,"date":"2017-12-30T21:04:53","date_gmt":"2017-12-30T21:04:53","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/esterarb%c2%97k-me_-vi_aukum-4-kafli\/"},"modified":"2018-01-22T01:02:59","modified_gmt":"2018-01-22T01:02:59","slug":"esterarbok-med-vidaukum-4-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/esterarbok-med-vidaukum-4-kafli\/","title":{"rendered":"Esterarb\u00f3k (me\u00f0 vi\u00f0aukum) 4. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Mardoka\u00ed bi\u00f0ur Ester um hj\u00e1lp<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00deegar Mardoka\u00ed komst a\u00f0 raun um \u00fea\u00f0 sem or\u00f0i\u00f0 var reif hann kl\u00e6\u00f0i s\u00edn, bj\u00f3 sig h\u00e6rusekk og str\u00e1\u00f0i yfir sig \u00f6sku. Hann hlj\u00f3p \u00fat og eftir a\u00f0alg\u00f6tu borgarinnar og hr\u00f3pa\u00f0i h\u00e1st\u00f6fum: \u201e\u00deeir \u00e6tla a\u00f0 ey\u00f0a saklausri \u00fej\u00f3\u00f0.\u201c <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Hann h\u00e9lt allt a\u00f0 hli\u00f0i konungs en sta\u00f0n\u00e6mdist \u00fear \u00fev\u00ed a\u00f0 enginn, sem kl\u00e6ddur er sekk og \u00f6sku, m\u00e1 ganga inn \u00ed h\u00f6llina. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00cd \u00f6llum skattl\u00f6ndunum, \u00fear sem bo\u00f0 konungs voru kunngj\u00f6r\u00f0, var\u00f0 gr\u00e1tur, kvein og mikill harmur me\u00f0al allra Gy\u00f0inga og kl\u00e6ddust \u00feeir sekk og \u00f6sku.<br \/> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00deernur og geldingar drottningar komu til Esterar og s\u00f6g\u00f0u henni fr\u00e1. \u00deegar h\u00fan heyr\u00f0i um \u00fea\u00f0 sem or\u00f0i\u00f0 var skelfdist h\u00fan og sendi Mardoka\u00ed f\u00f6t til a\u00f0 kl\u00e6\u00f0ast \u00ed sta\u00f0 h\u00e6rusekksins en hann skeytti \u00fev\u00ed engu. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an kalla\u00f0i Ester Akra\u00feaius fyrir sig, en hann var einn \u00feeirra geldinga sem \u00fej\u00f3nu\u00f0u henni, og sendi hann til a\u00f0 f\u00e1 n\u00e1nari uppl\u00fdsingar hj\u00e1 Mardoka\u00ed.<span class=\"nedan_mal\" title=\" 6. versinu er sleppt \u00ed gr\u00edsku \u00fe\u00fd\u00f0ingunni.\">[<\/span> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Mardoka\u00ed sag\u00f0i honum fr\u00e1 \u00fev\u00ed sem gerst haf\u00f0i og a\u00f0 Haman hef\u00f0i heiti\u00f0 konungi t\u00edu \u00fe\u00fasund talentum \u00ed fj\u00e1rhirsluna fyrir a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 ey\u00f0a Gy\u00f0ingum. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Hann l\u00e9t Akra\u00feaius einnig f\u00e1 afrit af tilskipuninni um ey\u00f0ingu Gy\u00f0inga sem birt haf\u00f0i veri\u00f0 \u00ed S\u00fasa svo a\u00f0 hann g\u00e6ti s\u00fdnt Ester hana. Ba\u00f0 Mardoka\u00ed hann a\u00f0 segja henni a\u00f0 fara b\u00f3narveg a\u00f0 konungi og bi\u00f0ja hann a\u00f0 \u00feyrma \u00fej\u00f3\u00f0inni. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u201eMinnstu \u00feeirra daga er \u00fe\u00fa bj\u00f3st vi\u00f0 al\u00fe\u00fd\u00f0ukj\u00f6r og \u00e9g s\u00e1 fyrir \u00fe\u00e9r,\u201c sag\u00f0i hann. \u201eHaman, sem gengur konungi n\u00e6st a\u00f0 tign, hefur r\u00e6gt okkur og krefst dau\u00f0a okkar. \u00c1kalla \u00fe\u00fa Drottin og tala\u00f0u m\u00e1li okkar vi\u00f0 konung og bjarga okkur fr\u00e1 dau\u00f0a.\u201c<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Akra\u00feaius f\u00f3r og bar Ester \u00feetta allt. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Sag\u00f0i h\u00fan \u00fe\u00e1 vi\u00f0 hann: \u201eFar\u00f0u aftur til Mardoka\u00ed og seg\u00f0u: <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Allir menn \u00ed r\u00edkinu vita a\u00f0 hver s\u00e1 karl e\u00f0a kona sem fer \u00f3tilkvaddur inn \u00ed innri hallargar\u00f0 konungs er glata\u00f0ur. A\u00f0eins s\u00e1 sem konungur r\u00e9ttir gullsprotann a\u00f0 mun l\u00edfi halda. Sj\u00e1lf hef \u00e9g ekki veri\u00f0 k\u00f6llu\u00f0 inn til konungs \u00ed \u00ferj\u00e1t\u00edu daga.\u201c<br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Akra\u00feaius greindi Mardoka\u00ed fr\u00e1 \u00f6llu sem Ester haf\u00f0i sagt. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i Mardoka\u00ed vi\u00f0 hann: \u201eFar\u00f0u og seg\u00f0u vi\u00f0 Ester: \u00cdmynda\u00f0u \u00fe\u00e9r ekki a\u00f0 \u00fe\u00fa ein af \u00f6llum Gy\u00f0ingum \u00ed r\u00edkinu munir bjargast. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Ef \u00fe\u00fa bregst \u00e1 \u00feessari stundu munu Gy\u00f0ingar f\u00e1 hj\u00e1lp og vernd annars sta\u00f0ar fr\u00e1. \u00de\u00fa og \u00e6tt f\u00f6\u00f0ur \u00fe\u00edns munu\u00f0 hins vegar farast. En hver veit nema \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 sakir \u00feessarar stundar sem \u00fe\u00fa var\u00f0st drottning?\u201c <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sendi Ester sendibo\u00f0ann aftur til Mardoka\u00ed me\u00f0 \u00feessi bo\u00f0: <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u201eKveddu alla Gy\u00f0inga \u00ed S\u00fasa saman \u00e1n tafar og fasti\u00f0 m\u00edn vegna. \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 hvorki eta n\u00e9 drekka \u00ed \u00ferj\u00e1 s\u00f3larhringa. Vi\u00f0 \u00feernur m\u00ednar munum einnig fasta. S\u00ed\u00f0an skal \u00e9g fara til konungsins \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 s\u00e9 gegn l\u00f6gunum og \u00fe\u00f3 svo a\u00f0 \u00fea\u00f0 kunni a\u00f0 kosta mig l\u00edfi\u00f0.\u201c<br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Mardoka\u00ed hra\u00f0a\u00f0i s\u00e9r og ger\u00f0i \u00fea\u00f0 sem Ester haf\u00f0i fyrir lagt.<\/p>\n<div class=\"kaflaheiti\">C <\/div>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">B\u00e6n Mardoka\u00ed<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Hann ba\u00f0 til Drottins minnugur allra verka hans: <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u201eDrottinn, Drottinn og alm\u00e1ttugi konungur. Allur alheimur er \u00e1 \u00fe\u00ednu valdi. Enginn getur hindra\u00f0 \u00feig ef \u00fe\u00fa vilt frelsa \u00cdsrael. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00de\u00fa hefur skapa\u00f0 himin og j\u00f6r\u00f0 og allt hi\u00f0 undursamlega undir himninum. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00de\u00fa ert Drottinn alls og enginn getur sta\u00f0i\u00f0 gegn \u00fe\u00e9r, Drottinn. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00de\u00fa \u00feekkir allt. \u00de\u00fa veist, Drottinn, a\u00f0 ekki var \u00fea\u00f0 af hroka, drambsemi e\u00f0a ofmetna\u00f0i a\u00f0 \u00e9g beyg\u00f0i kn\u00e9 m\u00edn ekki fyrir hrokagikknum Haman. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00c9g hef\u00f0i me\u00f0 gl\u00f6\u00f0u ge\u00f0i kysst sk\u00f3s\u00f3la hans til a\u00f0 bjarga \u00cdsrael. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Nei, \u00e9g ger\u00f0i \u00feetta til \u00feess a\u00f0 veita manni ekki meiri lotningu en Gu\u00f0i. \u00c9g mun engan tilbi\u00f0ja nema \u00feig, Drottinn minn, og ekki var \u00fea\u00f0 dramb sem r\u00e9\u00f0 ger\u00f0um m\u00ednum. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> N\u00fa bi\u00f0 \u00e9g \u00feig, Drottinn Gu\u00f0, konungur, Gu\u00f0 Abrahams. \u00deyrm \u00fe\u00fa l\u00fd\u00f0 \u00fe\u00ednum. \u00d3vinir vorir hyggjast ey\u00f0a oss og eru sta\u00f0r\u00e1\u00f0nir \u00ed a\u00f0 granda \u00fev\u00ed sem veri\u00f0 hefur eign \u00fe\u00edn fr\u00e1 upphafi. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Gleym ekki eign \u00feinni sem \u00fe\u00fa endurleystir sj\u00e1lfum \u00fe\u00e9r til handa fr\u00e1 Egyptalandi. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Heyr b\u00e6n m\u00edna, miskunna arfleif\u00f0 \u00feinni og sn\u00fa hrygg\u00f0 vorri \u00ed f\u00f6gnu\u00f0 svo a\u00f0 v\u00e9r megum lifa og syngja nafni \u00fe\u00ednu lof, Drottinn. L\u00e1t eigi munna \u00feeirra sem lofa \u00feig \u00feagna.\u201c<br \/> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Og allur \u00cdsrael hlj\u00f3\u00f0a\u00f0i h\u00e1st\u00f6fum enda horf\u00f0ust allir \u00ed augu vi\u00f0 dau\u00f0ann. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">B\u00e6n Esterar<\/h3>\n<p><a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Ester drottning leita\u00f0i einnig \u00e1 n\u00e1\u00f0ir Drottins \u00ed \u00feeirri dau\u00f0ans angist sem haf\u00f0i gripi\u00f0 hana. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> F\u00e6r\u00f0i h\u00fan sig \u00far tignarb\u00faningi s\u00ednum og kl\u00e6ddist hrygg\u00f0ar- og sorgarkl\u00e6\u00f0um. \u00cd sta\u00f0 d\u00fdrindis ilmvatna og smyrsla bar h\u00fan \u00f6sku og skarn \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 sitt. Ger\u00f0i h\u00fan hva\u00f0 h\u00fan m\u00e1tti til a\u00f0 r\u00fdja l\u00edkama sinn pr\u00fd\u00f0i og l\u00e9t h\u00e1r sitt falla \u00ed \u00f3rei\u00f0u \u00fear sem \u00e1\u00f0ur haf\u00f0i hangi\u00f0 skart. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Og h\u00fan ba\u00f0 til Drottins, Gu\u00f0s \u00cdsraels, og sag\u00f0i: \u201eDrottinn minn, konungur vor, \u00fea\u00f0 einn ert \u00fe\u00fa. Hj\u00e1lpa \u00fe\u00fa m\u00e9r sem er ein og \u00e1 enga hj\u00e1lp a\u00f0 nema \u00feig. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00c9g \u00e6tla a\u00f0 h\u00e6tta l\u00edfi m\u00ednu. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Allt fr\u00e1 f\u00e6\u00f0ingu minni hefur \u00e6tt m\u00edn og \u00fej\u00f3\u00f0 sagt m\u00e9r a\u00f0 \u00fe\u00fa, Drottinn, hafir vali\u00f0 \u00cdsrael \u00far h\u00f3pi allra \u00fej\u00f3\u00f0a og fe\u00f0ur vora fremur en alla forfe\u00f0ur \u00feeirra til \u00feess a\u00f0 ver\u00f0a eil\u00edf eign \u00fe\u00edn og a\u00f0 \u00fe\u00fa hafir uppfyllt \u00f6ll \u00fe\u00edn fyrirheit vi\u00f0 \u00fe\u00e1. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> En n\u00fa h\u00f6fum v\u00e9r syndga\u00f0 gegn \u00fe\u00e9r og \u00fe\u00fa hefur selt oss \u00ed hendur \u00f3vina vorra <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> sakir \u00feess a\u00f0 v\u00e9r d\u00fdrku\u00f0um gu\u00f0i \u00feeirra. \u00de\u00fa ert r\u00e9ttl\u00e1tur, Drottinn. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> En n\u00fa l\u00e1ta \u00feeir s\u00e9r ekki n\u00e6gja a\u00f0 v\u00e9r erum \u00fejaka\u00f0ir \u00fer\u00e6lar heldur hafa \u00feeir lagt hendur s\u00ednar \u00e1 hendur skur\u00f0go\u00f0a sinna og svari\u00f0 \u00feess ei\u00f0 <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> a\u00f0 hafa \u00e1kv\u00e6\u00f0i \u00fe\u00edn og or\u00f0 a\u00f0 engu og afm\u00e1 \u00fe\u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0 sem er arfleif\u00f0 \u00fe\u00edn og sl\u00e1 \u00fe\u00f6gn \u00e1 \u00fe\u00e1 munna sem lofa \u00feig og sl\u00f6kkva lj\u00f3ma h\u00fass \u00fe\u00edns og gl\u00f3\u00f0 altarisins. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00deeir \u00e6tla a\u00f0 lj\u00faka upp munni hei\u00f0ingjanna til \u00feess a\u00f0 \u00feeir lofi d\u00e1\u00f0ir f\u00e1n\u00fdtra skur\u00f0go\u00f0a og d\u00e1sami dau\u00f0legan konung a\u00f0 eil\u00edfu.<br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Drottinn, l\u00e1t \u00fe\u00fa veldissprota \u00feinn ekki af hendi vi\u00f0 \u00fe\u00e1 sem ekki eru til. L\u00e1t \u00f3vinina eigi hlakka yfir \u00f3f\u00f6rum vorum. Sn\u00fa \u00fe\u00fa r\u00e1\u00f0ager\u00f0um \u00feeirra gegn \u00feeim sj\u00e1lfum. L\u00e1t \u00feann sem h\u00f3f andst\u00f6\u00f0u gegn oss ver\u00f0a v\u00edti til varna\u00f0ar. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Minnstu vor, Drottinn. Gj\u00f6r \u00feig kunnan \u00e1 \u00ferengingart\u00edma vorum. Vek m\u00e9r hugm\u00f3\u00f0, konungur gu\u00f0anna sem r\u00edkir yfir \u00f6llu veldi. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Legg m\u00e9r hagleg or\u00f0 \u00ed munn frammi fyrir lj\u00f3ninu og sn\u00fa hjarta hans til haturs \u00e1 manninum sem berst gegn oss svo a\u00f0 hann glatist og allir sem eru sama sinnis og hann. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Frelsa oss me\u00f0 hendi \u00feinni og hj\u00e1lpa \u00fe\u00fa m\u00e9r, einst\u00e6\u00f0ingnum sem engan \u00e1 a\u00f0 nema \u00feig, Drottinn. \u00de\u00fa \u00feekkir allt. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00de\u00fa veist a\u00f0 \u00e9g hef andstygg\u00f0 \u00e1 a\u00f0 vera h\u00f6f\u00f0 \u00ed h\u00e1vegum af gu\u00f0lausum og a\u00f0 m\u00e9r b\u00fd\u00f0ur vi\u00f0 a\u00f0 s\u00e6nga hj\u00e1 \u00f3umskornum eins og \u00f6llum \u00fatlendingum. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u00de\u00fa veist a\u00f0 \u00e9g var tilneydd og hef andstygg\u00f0 \u00e1 t\u00e1kni upphef\u00f0ar minnar sem \u00e9g ber \u00e1 h\u00f6f\u00f0i \u00e1 \u00feeim d\u00f6gum sem m\u00e9r ber a\u00f0 koma fram. \u00c9g hef s\u00f6mu andstygg\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed og sk\u00edtugri dulu og aldrei ber \u00e9g tignarskarti\u00f0 \u00e1 \u00feeim d\u00f6gum er \u00e9g m\u00e1 hv\u00edlast. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Aldrei hefur amb\u00e1tt \u00fe\u00edn neytt neins vi\u00f0 bor\u00f0 Hamans og ekki hef \u00e9g heldur virt drykkjuveislur konungs vi\u00f0lits og ekki drukki\u00f0 f\u00f3rnarv\u00edn. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Ekki hefur amb\u00e1tt \u00fe\u00edn heldur lifa\u00f0 neina gle\u00f0i a\u00f0ra en \u00fe\u00e1 sem \u00fe\u00fa veitir, Drottinn, Abrahams Gu\u00f0, fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e9g var hafin upp til vegsemdar minnar og allt \u00fear til n\u00fa. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> Gu\u00f0, \u00fe\u00fa sem ert m\u00e1ttugri \u00f6llum. Heyr hr\u00f3p \u00feeirra sem eiga enga von og frelsa oss \u00far hendi illvirkjanna og frelsa mig fr\u00e1 \u00fev\u00ed sem skelfir mig.\u201c<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Mardoka\u00ed bi\u00f0ur Ester um hj\u00e1lp 1 \u00deegar Mardoka\u00ed komst a\u00f0 raun um \u00fea\u00f0 sem or\u00f0i\u00f0 var reif hann kl\u00e6\u00f0i s\u00edn, bj\u00f3 sig h\u00e6rusekk og str\u00e1\u00f0i yfir sig \u00f6sku. Hann hlj\u00f3p \u00fat og eftir a\u00f0alg\u00f6tu borgarinnar og hr\u00f3pa\u00f0i h\u00e1st\u00f6fum: \u201e\u00deeir \u00e6tla a\u00f0 ey\u00f0a saklausri \u00fej\u00f3\u00f0.\u201c 2 Hann h\u00e9lt allt a\u00f0 hli\u00f0i konungs en sta\u00f0n\u00e6mdist \u00fear \u00fev\u00ed a\u00f0 enginn, sem kl\u00e6ddur er sekk og \u00f6sku, m\u00e1 ganga inn \u00ed h\u00f6llina. 3 \u00cd \u00f6llum skattl\u00f6ndunum, \u00fear sem bo\u00f0 konungs voru kunngj\u00f6r\u00f0, var\u00f0 gr\u00e1tur, kvein og mikill harmur me\u00f0al allra Gy\u00f0inga og kl\u00e6ddust \u00feeir sekk og \u00f6sku. 4 \u00deernur og geldingar drottningar komu til <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/esterarbok-med-vidaukum-4-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2840","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2840","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2840"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2840\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2840"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}