{"id":2839,"date":"2017-12-30T21:04:53","date_gmt":"2017-12-30T21:04:53","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/esterarb%c2%97k-me_-vi_aukum-3-kafli\/"},"modified":"2018-01-22T00:54:21","modified_gmt":"2018-01-22T00:54:21","slug":"esterarbok-med-vidaukum-3-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/esterarbok-med-vidaukum-3-kafli\/","title":{"rendered":"Esterarb\u00f3k (me\u00f0 vi\u00f0aukum) 3. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Nokkru s\u00ed\u00f0ar hei\u00f0ra\u00f0i Artaxerxes konungur Haman Hamadatsson og veitti honum mikinn frama. Hann var B\u00faga\u00edti og ger\u00f0i konungur hann \u00f6llum vinum s\u00ednum fremri a\u00f0 tign. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Skipa\u00f0i konungur a\u00f0 allir vi\u00f0 hir\u00f0ina \u00e6ttu a\u00f0 l\u00fata Haman til a\u00f0 au\u00f0s\u00fdna honum lotningu. Mardoka\u00ed laut honum hins vegar ekki. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Hir\u00f0menn konungs spur\u00f0u hann: \u201eMardoka\u00ed, hvers vegna \u00f3hl\u00fd\u00f0nast \u00fe\u00fa bo\u00f0i konungs?\u201c <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Dag eftir dag f\u00e6r\u00f0u \u00feeir \u00feetta \u00ed tal vi\u00f0 hann en hann skeytti \u00fev\u00ed engu. S\u00f6g\u00f0u \u00feeir \u00fe\u00e1 Haman fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Mardoka\u00ed \u00f3hl\u00fd\u00f0na\u00f0ist skipun konungs og a\u00f0 hann hef\u00f0i sagst vera Gy\u00f0ingur. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00deegar Haman komst a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 Mardoka\u00ed laut honum ekki var\u00f0 hann ofsarei\u00f0ur. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00c1kva\u00f0 hann a\u00f0 dey\u00f0a alla Gy\u00f0inga me\u00f0al \u00feegna Artaxerxesar.<br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00c1 t\u00f3lfta stj\u00f3rnar\u00e1ri Artaxerxesar varpa\u00f0i Haman hlutkesti. Varpa\u00f0i hann hlut um \u00fea\u00f0 \u00e1 hva\u00f0a degi og \u00ed hva\u00f0a m\u00e1nu\u00f0i hann \u00e6tti a\u00f0 ey\u00f0a allri \u00fej\u00f3\u00f0 Mardoka\u00ed \u00e1 einum og sama degi. Kom upp hlutur fj\u00f3rt\u00e1nda dagsins \u00ed m\u00e1nu\u00f0i \u00feeim sem heitir adar.<br \/> <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Haman kom a\u00f0 m\u00e1li vi\u00f0 Artaxerxes konung og sag\u00f0i: \u201eEin er s\u00fa \u00fej\u00f3\u00f0 sem b\u00fdr dreif\u00f0 me\u00f0al annarra \u00fej\u00f3\u00f0a um \u00fevert og endilangt r\u00edki \u00feitt. L\u00f6g hennar eru fr\u00e1brug\u00f0in l\u00f6gum allra annarra \u00fej\u00f3\u00f0a og h\u00fan \u00f3hl\u00fd\u00f0nast l\u00f6gum konungsins. \u00dea\u00f0 samr\u00e6mist ekki hagsmunum konungs a\u00f0 umbera \u00fe\u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Ef konungi \u00fe\u00f3knast \u00fe\u00e1 skal hann gefa \u00fat tilskipun um a\u00f0 ey\u00f0a henni. \u00c9g skal \u00fe\u00e1 grei\u00f0a t\u00edu \u00fe\u00fasund talentur silfurs \u00ed fj\u00e1rhirslu konungs.\u201c <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Konungur t\u00f3k \u00fe\u00e1 af s\u00e9r hring og afhenti Haman svo a\u00f0 hann g\u00e6ti sett innsigli \u00e1 \u00fea\u00f0 sem skrifa\u00f0 yr\u00f0i gegn Gy\u00f0ingum. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Einnig sag\u00f0i konungur vi\u00f0 Haman: \u201eHaltu silfrinu og far\u00f0u me\u00f0 \u00feessa \u00fej\u00f3\u00f0 eins og \u00fe\u00e9r s\u00fdnist.\u201c<br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00c1 \u00ferett\u00e1nda degi fyrsta m\u00e1na\u00f0ar voru skrifarar konungs kvaddir saman. Samkv\u00e6mt fyrirm\u00e6lum Hamans ritu\u00f0u \u00feeir \u00f6llum landstj\u00f3rum og h\u00e9ra\u00f0sh\u00f6f\u00f0ingjum \u00ed skattl\u00f6ndunum allt fr\u00e1 Indlandi til E\u00fe\u00ed\u00f3p\u00edu. Skrifu\u00f0u \u00feeir s\u00e9rhverjum h\u00e9ra\u00f0sh\u00f6f\u00f0ingja \u00ed skattl\u00f6ndunum hundra\u00f0 tuttugu og sj\u00f6 \u00e1 hans eigin tungu og \u00ed nafni Artaxerxesar konungs. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Hra\u00f0bo\u00f0ar voru sendir um r\u00edki Artaxerxesar me\u00f0 bo\u00f0 um a\u00f0 dey\u00f0a skyldi alla Gy\u00f0inga \u00e1 einum og sama degi \u00ed t\u00f3lfta m\u00e1nu\u00f0i \u00e1rsins, sem nefnist adar, og gera allar eigur \u00feeirra uppt\u00e6kar.<\/p>\n<div class=\"kaflaheiti\">B <\/div>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Tilskipun Artaxerxesar gegn Gy\u00f0ingum<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> H\u00e9r fer \u00e1 eftir afrit af br\u00e9finu:<br \/>\u201eSt\u00f3rkonungurinn Artaxerxes sendir landstj\u00f3rum og \u00feeim sem h\u00e9ru\u00f0um st\u00fdra \u00ed skattl\u00f6ndunum eitt hundra\u00f0 tuttugu og sj\u00f6, fr\u00e1 Indlandi til E\u00fe\u00ed\u00f3p\u00edu, \u00feessa tilskipun:<br \/> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Eftir a\u00f0 \u00e9g t\u00f3k a\u00f0 r\u00edkja yfir m\u00f6rgum \u00fej\u00f3\u00f0um og f\u00e9kk vald yfir \u00f6llum heimi hef \u00e9g kappkosta\u00f0 a\u00f0 tryggja \u00feegnum m\u00ednum fri\u00f0samt l\u00edf. Ekki er \u00fea\u00f0 af hroka vegna valds m\u00edns heldur sakir mildi minnar og g\u00f3\u00f0vildar. \u00c9g vil reyna a\u00f0 skapa r\u00f3 \u00ed r\u00edki m\u00ednu og tryggja g\u00f3\u00f0ar samg\u00f6ngur allt til endimarka \u00feess og stu\u00f0la \u00feannig a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00e1 fri\u00f0ur komist \u00e1 sem allir menn \u00fer\u00e1. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> En \u00feegar \u00e9g spur\u00f0i r\u00e1\u00f0gjafa m\u00edna hvernig \u00feessu yr\u00f0i til vegar komi\u00f0 kvaddi Haman s\u00e9r hlj\u00f3\u00f0s. Hann er ma\u00f0ur sem \u00ed \u00fej\u00f3nustu vorri hefur s\u00fdnt mikla vitsmuni, \u00f3brig\u00f0ula g\u00f3\u00f0vild og \u00f3rofa trygg\u00f0 vi\u00f0 oss og gengur oss n\u00e6st a\u00f0 tign \u00ed r\u00edkinu. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Tj\u00e1\u00f0i hann oss a\u00f0 me\u00f0al allra \u00fej\u00f3\u00f0a jar\u00f0arinnar hef\u00f0i illa innr\u00e6ttur l\u00fd\u00f0ur komi\u00f0 s\u00e9r fyrir. \u00deeir fylgja l\u00f6gum sem eru andsn\u00fain \u00f6llum \u00fej\u00f3\u00f0um og vir\u00f0a tilskipanir konungs st\u00f6\u00f0ugt a\u00f0 vettugi. \u00dea\u00f0 spillir \u00feeirri einingu sem v\u00e9r \u00fer\u00e1um einl\u00e6glega a\u00f0 haldist \u00ed r\u00edkinu. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Oss er n\u00fa or\u00f0i\u00f0 lj\u00f3st a\u00f0 \u00feessi eina \u00fej\u00f3\u00f0 \u00e1 \u00ed s\u00edfelldum \u00fatist\u00f6\u00f0um vi\u00f0 alla menn. H\u00fan hefur annarlega si\u00f0i, fer a\u00f0 eigin l\u00f6gum, fjandskapast vi\u00f0 stj\u00f3rnarh\u00e1ttu vora og dr\u00fdgir hin verstu \u00f3d\u00e6\u00f0i svo a\u00f0 \u00f6ryggi r\u00edkisins stafar mikil h\u00e6tta af. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> V\u00e9r m\u00e6ltum \u00fev\u00ed svo fyrir: \u00d6llum \u00feeim sem Haman, r\u00e1\u00f0sherra vor og annar fa\u00f0ir, hefur bent \u00e1 \u00ed br\u00e9fi s\u00ednu, sem og konum \u00feeirra og b\u00f6rnum, skal fullkomlega, \u00e1n miskunnar og v\u00e6g\u00f0arlaust gereytt me\u00f0 sver\u00f0i \u00f3vina sinna hinn fj\u00f3rt\u00e1nda dag \u00ed adar, t\u00f3lfta m\u00e1nu\u00f0i yfirstandandi \u00e1rs. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00de\u00e1 mun fri\u00f0ur og r\u00f3 r\u00edkja um alla framt\u00ed\u00f0 \u00feegar \u00feetta f\u00f3lk, sem fyrr og s\u00ed\u00f0ar hefur veri\u00f0 fjandsamlegt, hefur v\u00e6g\u00f0arlaust veri\u00f0 sent til heljar \u00e1 einum og sama degi.\u201c<br \/> <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Afrit br\u00e9fsins var sett upp \u00ed \u00f6llum skattl\u00f6ndunum og \u00f6llum \u00fej\u00f3\u00f0um gert a\u00f0 vera vi\u00f0b\u00fanar \u00feegar dagurinn rynni. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Skj\u00f3tlega var\u00f0 \u00feetta einnig l\u00fd\u00f0um lj\u00f3st \u00ed S\u00fasa og var\u00f0 mikill \u00f3r\u00f3i \u00ed borginni, en konungur og Haman s\u00e1tu saman a\u00f0 drykkju. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1 Nokkru s\u00ed\u00f0ar hei\u00f0ra\u00f0i Artaxerxes konungur Haman Hamadatsson og veitti honum mikinn frama. Hann var B\u00faga\u00edti og ger\u00f0i konungur hann \u00f6llum vinum s\u00ednum fremri a\u00f0 tign. 2 Skipa\u00f0i konungur a\u00f0 allir vi\u00f0 hir\u00f0ina \u00e6ttu a\u00f0 l\u00fata Haman til a\u00f0 au\u00f0s\u00fdna honum lotningu. Mardoka\u00ed laut honum hins vegar ekki. 3 Hir\u00f0menn konungs spur\u00f0u hann: \u201eMardoka\u00ed, hvers vegna \u00f3hl\u00fd\u00f0nast \u00fe\u00fa bo\u00f0i konungs?\u201c 4 Dag eftir dag f\u00e6r\u00f0u \u00feeir \u00feetta \u00ed tal vi\u00f0 hann en hann skeytti \u00fev\u00ed engu. S\u00f6g\u00f0u \u00feeir \u00fe\u00e1 Haman fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Mardoka\u00ed \u00f3hl\u00fd\u00f0na\u00f0ist skipun konungs og a\u00f0 hann hef\u00f0i sagst vera Gy\u00f0ingur. 5 \u00deegar Haman komst a\u00f0 \u00fev\u00ed <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/esterarbok-med-vidaukum-3-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2839","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2839","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2839"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2839\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2839"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}