{"id":2834,"date":"2017-12-30T21:04:49","date_gmt":"2017-12-30T21:04:49","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/j%c2%9cd%c2%92tarb%c2%97k-14-kafli\/"},"modified":"2018-01-12T19:21:22","modified_gmt":"2018-01-12T19:21:22","slug":"juditarbok-14-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/juditarbok-14-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00fad\u00edtarb\u00f3k 14. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Ak\u00edor gerist Gy\u00f0ingur<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> J\u00fad\u00edt \u00e1varpa\u00f0i f\u00f3lki\u00f0 og sag\u00f0i: \u201eHl\u00fd\u00f0i\u00f0 \u00e1 mig. Taki\u00f0 \u00feetta h\u00f6fu\u00f0 og hengi\u00f0 \u00fea\u00f0 upp \u00e1 brj\u00f3stv\u00f6rnina \u00e1 borgarm\u00farnum. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Um lei\u00f0 og birtir af degi og s\u00f3lin rennur upp yfir j\u00f6r\u00f0ina, \u00fe\u00e1 skal hver og einn taka vopn s\u00edn og allir vopnf\u00e6rir menn halda \u00fat \u00far borginni. \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 setja \u00feeim foringja og halda ofan \u00e1 sl\u00e9ttuna eins og \u00e6tlunin v\u00e6ri a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast \u00e1 framvar\u00f0arsveit Ass\u00fdr\u00edumanna. \u00deanga\u00f0 skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 samt ekki fara. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00deeir sem \u00fear eru fyrir munu gr\u00edpa til vopna og fara \u00ed herb\u00fa\u00f0irnar til a\u00f0 vekja li\u00f0sforingja Ass\u00fdr\u00edumanna. \u00deegar \u00feeir koma hlaupandi a\u00f0 tjaldi H\u00f3lofernesar og finna hann ekki ver\u00f0a \u00feeir fr\u00e1 s\u00e9r af skelfingu og fl\u00fdja fr\u00e1 ykkur. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 elta \u00fe\u00e1 \u00e1samt \u00f6llum sem b\u00faa \u00ed fjalllendi \u00cdsraels og fella \u00fe\u00e1 \u00e1 fl\u00f3ttanum. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> En kalli\u00f0 fyrir mig \u00e1 Ak\u00edor Amm\u00f3n\u00edta \u00e1\u00f0ur en \u00fei\u00f0 geri\u00f0 \u00feetta svo a\u00f0 hann f\u00e1i a\u00f0 sj\u00e1 og \u00feekkja manninn sem sm\u00e1na\u00f0i \u00cdsraelsmenn og sem sendi Ak\u00edor til okkar til \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 yr\u00f0i hans bani.\u201c<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Sent var eftir Ak\u00edor heim til \u00dass\u00eda. \u00deegar hann kom og s\u00e1 h\u00f6fu\u00f0 H\u00f3lofernesar \u00ed hendi manns nokkurs \u00ed mannfj\u00f6ldanum f\u00e9ll hann fram fyrir sig og hneig \u00ed \u00f3megin. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Um lei\u00f0 og hann var studdur \u00e1 f\u00e6tur f\u00e9ll hann a\u00f0 f\u00f3tum J\u00fad\u00edtar, laut henni \u00ed lotningu og sag\u00f0i: \u201eBlessu\u00f0 s\u00e9rt \u00fe\u00fa \u00ed hverju tjaldi \u00ed J\u00fadeu. Allar \u00fej\u00f3\u00f0ir munu skelfast \u00feegar \u00fe\u00e6r heyra nafn \u00feitt. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Seg\u00f0u m\u00e9r n\u00fa fr\u00e1 \u00f6llu sem \u00fe\u00fa hefur afreka\u00f0 s\u00ed\u00f0ustu dagana.\u201c <br \/>Umkringd f\u00f3lkinu sag\u00f0i J\u00fad\u00edt honum fr\u00e1 \u00f6llu \u00fev\u00ed sem h\u00fan haf\u00f0i gert fr\u00e1 \u00feeim degi sem h\u00fan f\u00f3r \u00far borginni og til \u00feessarar stundar er h\u00fan st\u00f3\u00f0 og sag\u00f0i fr\u00e1. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00deegar J\u00fad\u00edt haf\u00f0i loki\u00f0 fr\u00e1s\u00f6gn sinni fagna\u00f0i f\u00f3lki\u00f0 h\u00e1st\u00f6fum svo a\u00f0 borgin endur\u00f3ma\u00f0i af gle\u00f0ihlj\u00f3mi. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> En er Ak\u00edor var\u00f0 allt \u00fea\u00f0 lj\u00f3st sem Gu\u00f0 \u00cdsraels haf\u00f0i gert t\u00f3k hann \u00f3bifanlega tr\u00fa \u00e1 Gu\u00f0. L\u00e9t hann umskera sig, var tekinn \u00ed t\u00f6lu \u00cdsraelsmanna og heyrir \u00feeim enn til.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">\u00d6ng\u00feveiti \u00ed herb\u00fa\u00f0um H\u00f3lofernesar<\/h3>\n<p><a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00deegar daga\u00f0i var h\u00f6fu\u00f0 H\u00f3lofernesar hengt \u00e1 borgarm\u00farinn. T\u00f3ku allir vopn s\u00edn og h\u00e9ldu fylktir \u00ed sveitir \u00fat \u00e1 vegina sem l\u00e1gu ofan af fjallinu. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Er Ass\u00fdr\u00edumenn s\u00e1u \u00fe\u00e1 sendu \u00feeir til li\u00f0sforingja sinna sem f\u00f3ru til herforingjanna og \u00feeir aftur til h\u00f6fu\u00f0smannanna sem s\u00f6g\u00f0u hersh\u00f6f\u00f0ingjum s\u00ednum fr\u00e1. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00deeir h\u00e9ldu a\u00f0 tjaldi H\u00f3lofernesar og s\u00f6g\u00f0u vi\u00f0 \u00feann sem g\u00e6tti alls sem hann \u00e1tti: \u201eVektu herra okkar. \u00deessir \u00fer\u00e6lar \u00fearna hafa voga\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 koma ni\u00f0ur eftir til a\u00f0 leggja til atl\u00f6gu vi\u00f0 okkur. En \u00feeim mun ver\u00f0a eytt til s\u00ed\u00f0asta manns.\u201c<br \/> <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Bag\u00f3as gekk inn og klappa\u00f0i \u00e1 tjalddyrnar. Hann taldi a\u00f0 H\u00f3lofernes sv\u00e6fi hj\u00e1 J\u00fad\u00edt. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00deegar enginn svara\u00f0i lauk hann upp tjaldinu og gekk inn a\u00f0 r\u00faminu. \u00dear fann hann H\u00f3lofernes liggjandi dau\u00f0an og h\u00f6fu\u00f0lausan fyrir framan r\u00fami\u00f0. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Bag\u00f3as rak upp miki\u00f0 hlj\u00f3\u00f0, gr\u00e9t og kveina\u00f0i og hr\u00f3pa\u00f0i h\u00e1st\u00f6fum og reif kl\u00e6\u00f0i s\u00edn. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> F\u00f3r hann s\u00ed\u00f0an inn \u00ed tjaldi\u00f0, sem J\u00fad\u00edt haf\u00f0i b\u00fai\u00f0 \u00ed, en fann hana ekki. \u00deaut hann \u00fat til f\u00f3lksins og hr\u00f3pa\u00f0i: <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u201e\u00deeir hafa beitt okkur br\u00f6g\u00f0um, \u00fer\u00e6larnir! Ein s\u00edns li\u00f0s hefur hebresk kona leitt hneisu yfir h\u00fas Neb\u00fakadnesars konungs. H\u00f3lofernes liggur fallinn \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni og h\u00f6fu\u00f0laus.\u201c<br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00deegar fyrirli\u00f0ar herja Ass\u00fdr\u00edumanna heyr\u00f0u \u00feessi t\u00ed\u00f0indi rifu \u00feeir kl\u00e6\u00f0i s\u00edn skelfingu lostnir og herb\u00fa\u00f0irnar kv\u00e1\u00f0u vi\u00f0 af harmakveini \u00feeirra og h\u00e1um hlj\u00f3\u00f0um.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Ak\u00edor gerist Gy\u00f0ingur 1 J\u00fad\u00edt \u00e1varpa\u00f0i f\u00f3lki\u00f0 og sag\u00f0i: \u201eHl\u00fd\u00f0i\u00f0 \u00e1 mig. Taki\u00f0 \u00feetta h\u00f6fu\u00f0 og hengi\u00f0 \u00fea\u00f0 upp \u00e1 brj\u00f3stv\u00f6rnina \u00e1 borgarm\u00farnum. 2 Um lei\u00f0 og birtir af degi og s\u00f3lin rennur upp yfir j\u00f6r\u00f0ina, \u00fe\u00e1 skal hver og einn taka vopn s\u00edn og allir vopnf\u00e6rir menn halda \u00fat \u00far borginni. \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 setja \u00feeim foringja og halda ofan \u00e1 sl\u00e9ttuna eins og \u00e6tlunin v\u00e6ri a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast \u00e1 framvar\u00f0arsveit Ass\u00fdr\u00edumanna. \u00deanga\u00f0 skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 samt ekki fara. 3 \u00deeir sem \u00fear eru fyrir munu gr\u00edpa til vopna og fara \u00ed herb\u00fa\u00f0irnar til a\u00f0 vekja li\u00f0sforingja Ass\u00fdr\u00edumanna. \u00deegar \u00feeir koma hlaupandi <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/juditarbok-14-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2834","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2834","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2834"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2834\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2834"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}