{"id":2828,"date":"2017-12-30T21:04:49","date_gmt":"2017-12-30T21:04:49","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/j%c2%9cd%c2%92tarb%c2%97k-8-kafli\/"},"modified":"2018-01-12T19:11:51","modified_gmt":"2018-01-12T19:11:51","slug":"juditarbok-8-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/juditarbok-8-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00fad\u00edtarb\u00f3k 8. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Ekkjan J\u00fad\u00edt<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Um \u00feessar mundir b\u00e1rust J\u00fad\u00edt fregnir af \u00feessu. H\u00fan var d\u00f3ttir Merari Oxsonar, sonar J\u00f3sefs Os\u00edelssonar sem var sonur Elk\u00eda Anan\u00edassonar, G\u00eddeonssonar, Rafajasonar, Akitovssonar, El\u00edasonar, Kelk\u00edasonar, El\u00edabssonar, Natanaelssonar, Sel\u00fam\u00edelssonar, S\u00far\u00edsadda\u00edsonar, S\u00edmeonssonar, \u00cdsraelssonar. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Ma\u00f0ur hennar var Manasse af s\u00f6mu \u00e6ttkv\u00edsl og \u00e6tt og h\u00fan. Haf\u00f0i hann d\u00e1i\u00f0 um byggskur\u00f0art\u00edmann. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> F\u00e9kk hann s\u00f3lsting er hann stj\u00f3rna\u00f0i \u00feeim sem bundu kornknippi \u00e1 akrinum. Lag\u00f0ist hann sj\u00fakur og l\u00e9st \u00ed borg sinni Bet\u00fal\u00fau og var grafinn hj\u00e1 fe\u00f0rum s\u00ednum \u00e1 akrinum milli D\u00f3tan og Balamon. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an haf\u00f0i J\u00fad\u00edt b\u00fai\u00f0 ekkja \u00ed h\u00fasi s\u00ednu \u00ed \u00ferj\u00fa \u00e1r og fj\u00f3ra m\u00e1nu\u00f0i. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> H\u00fan haf\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 gera s\u00e9r sk\u00fdli \u00e1 \u00feaki h\u00fass s\u00edns og haf\u00f0i sekk um lendar s\u00e9r og bar ekkjukl\u00e6\u00f0i. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Auk \u00feess fasta\u00f0i h\u00fan hvern dag ekkjud\u00f3ms s\u00edns a\u00f0 fr\u00e1t\u00f6ldum a\u00f0fangad\u00f6gum hv\u00edldardaga og hv\u00edldard\u00f6gum og d\u00f6gum fyrir tunglkomudaginn og tunglkomud\u00f6gum og h\u00e1t\u00ed\u00f0um og \u00f6\u00f0rum fagna\u00f0ard\u00f6gum \u00cdsraels. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> H\u00fan var kona f\u00f6gur \u00e1s\u00fdndum og g\u00e6dd miklum yndis\u00feokka. Manasse ma\u00f0ur hennar haf\u00f0i eftirl\u00e1ti\u00f0 henni gull og silfur, \u00fej\u00f3na og \u00feernur, f\u00e9na\u00f0 og akra sem h\u00fan r\u00e9\u00f0 yfir. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Enginn gat bori\u00f0 henni neitt misjafnt enda var h\u00fan gu\u00f0hr\u00e6dd mj\u00f6g.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Fundur J\u00fad\u00edtar og borgarr\u00e1\u00f0smanna<\/h3>\n<p><a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> J\u00fad\u00edt heyr\u00f0i af bituryr\u00f0um f\u00f3lksins vi\u00f0 lei\u00f0toga sinn \u00feegar \u00fea\u00f0 \u00f6rv\u00e6nti af vatnsskorti. Fr\u00e9tti h\u00fan einnig hverju \u00dass\u00eda haf\u00f0i svara\u00f0 og a\u00f0 hann hef\u00f0i lagt ei\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed lofor\u00f0i a\u00f0 gefa borgina \u00e1 vald Ass\u00fdr\u00edum\u00f6nnum eftir fimm daga. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sendi J\u00fad\u00edt \u00feernu, sem h\u00fan haf\u00f0i sett yfir allar eigur s\u00ednar, me\u00f0 bo\u00f0 til \u00dass\u00eda, Kabr\u00eds og Karm\u00eds, \u00f6ldunga borgarinnar, um a\u00f0 finna sig. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00deegar \u00feeir komu til hennar sag\u00f0i h\u00fan: \u201eHl\u00fd\u00f0i\u00f0 \u00e1 mig, \u00fei\u00f0 sem eru\u00f0 lei\u00f0togar Bet\u00fal\u00faub\u00faa. Ekki ger\u00f0u\u00f0 \u00fei\u00f0 r\u00e9tt a\u00f0 tala \u00feannig til f\u00f3lksins \u00ed dag og sverja Gu\u00f0i \u00feann ei\u00f0 a\u00f0 gefa \u00f3vinunum borgina \u00e1 vald ef Drottinn veitir okkur ekki hj\u00e1lp innan \u00feessa tiltekna t\u00edma. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Hverjir haldi\u00f0 \u00fei\u00f0 a\u00f0 \u00fei\u00f0 s\u00e9u\u00f0 a\u00f0 freista Gu\u00f0s eins og \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 gert \u00ed dag og setja ykkur sj\u00e1lfa \u00ed Gu\u00f0s sta\u00f0 me\u00f0al mannanna? <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 eru\u00f0 a\u00f0 reyna a\u00f0 rannsaka alm\u00e1ttugan Drottin. Aldrei a\u00f0 eil\u00edfu munu\u00f0 \u00fei\u00f0 ver\u00f0a nokkru n\u00e6r. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Ekki geti\u00f0 \u00fei\u00f0 einu sinni komist a\u00f0 raun um hva\u00f0 leynist \u00ed dj\u00fapi hjarta mannsins n\u00e9 heldur skili\u00f0 hugrenningar hans. Hvernig hyggist \u00fei\u00f0 rannsaka Gu\u00f0 sem allt \u00feetta hefur skapa\u00f0, skilja hugsanir hans og komast a\u00f0 \u00fev\u00ed sem hann \u00e6tlast fyrir? \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur aldrei. Veki\u00f0 ekki rei\u00f0i Drottins Gu\u00f0s. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00de\u00f3tt hann vilji ekki hj\u00e1lpa okkur \u00e1 fimm d\u00f6gum hefur hann samt m\u00e1tt til a\u00f0 vernda okkur \u00e1 hva\u00f0a degi sem hann k\u00fds og l\u00edka m\u00e1tt til a\u00f0 tort\u00edma okkur fyrir augunum \u00e1 \u00f3vinum okkar. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 ekki reyna a\u00f0 \u00fevinga fram \u00e1kv\u00f6r\u00f0un Drottins, Gu\u00f0s okkar. \u00dev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 l\u00e6tur h\u00f3tanir ekki hnika s\u00e9r eins og hann s\u00e9 ma\u00f0ur og l\u00e6tur ekki tala um fyrir s\u00e9r eins og ma\u00f0urinn. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00deess vegna skulum vi\u00f0 v\u00e6nta hj\u00e1lpar hans \u00feolinm\u00f3\u00f0 og \u00e1kalla hann um hj\u00e1lp. Hann mun heyra b\u00e6n okkar ef honum \u00fe\u00f3knast. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Enda hefur hvorki komi\u00f0 fyrir \u00ed manna minnum, n\u00e9 mun \u00fea\u00f0 heldur ver\u00f0a \u00ed dag, a\u00f0 nein \u00e6ttkv\u00edsl, \u00e6tt e\u00f0a nokkur bygg\u00f0 okkar e\u00f0a b\u00e6r tilbi\u00f0ji gu\u00f0i sem ger\u00f0ir eru af manna h\u00f6ndum eins og fyrir kom \u00e1 fyrri t\u00edmum. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 var fyrir \u00fe\u00e1 s\u00f6k a\u00f0 fe\u00f0ur okkar voru seldir \u00e1 vald sver\u00f0i og r\u00e1num og li\u00f0u miklar h\u00f6rmungar af \u00f3vinum okkar. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> En vi\u00f0 \u00feekkjum engan annan Gu\u00f0 en Drottin. \u00deess vegna vonum vi\u00f0 a\u00f0 hann yfirgefi okkur ekki n\u00e9 neinn af \u00fej\u00f3\u00f0 okkar. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Ef vi\u00f0 ver\u00f0um hertekin \u00fe\u00e1 mun \u00f6ll J\u00fadea unnin og helgid\u00f3mur okkar r\u00e6ndur. Gu\u00f0 mun l\u00e1ta okkur gjalda me\u00f0 l\u00edfinu fyrir vanhelgun hans.<span class=\"nedan_mal\" title=\" Annar lesh\u00e1ttur: Gu\u00f0 mun krefja okkur reikningsskapar fyrir vanhelgun hans.\">[<\/span> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Dau\u00f0a br\u00e6\u00f0ra okkar og herlei\u00f0ingu \u00fej\u00f3\u00f0arinnar og ey\u00f0ingu arfleif\u00f0ar okkar mun Drottinn l\u00e1ta koma okkur \u00ed koll me\u00f0al hei\u00f0ingjanna \u00fear sem vi\u00f0 munum hneppt \u00ed \u00fer\u00e6ld\u00f3m og vekja andstygg\u00f0 og h\u00e1\u00f0ung \u00feeirra sem kaupa okkur. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00der\u00e6ld\u00f3mur okkar mun ekki sn\u00faast til blessunar heldur mun Drottinn Gu\u00f0 gera hann a\u00f0 ni\u00f0url\u00e6gingu okkar. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> L\u00e1tum okkur \u00fev\u00ed n\u00fa, br\u00e6\u00f0ur, s\u00fdna br\u00e6\u00f0rum okkar a\u00f0 l\u00edf \u00feeirra er undir okkur komi\u00f0 sem og \u00fea\u00f0 hvort helgid\u00f3murinn, musteri\u00f0 og f\u00f3rnaraltari\u00f0 f\u00e6r sta\u00f0ist. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Sakir \u00feessa alls skulum vi\u00f0 \u00feakka Drottni Gu\u00f0i sem reynir okkur eins og hann reyndi fe\u00f0ur okkar. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Minnist \u00feess hva\u00f0 hann ger\u00f0i vi\u00f0 Abraham og hvernig hann reyndi \u00cdsak og minnist \u00feess sem kom fyrir Jakob \u00ed s\u00fdrlensku Mes\u00f3p\u00f3tam\u00edu er hann g\u00e6tti fj\u00e1r Labans m\u00f3\u00f0urbr\u00f3\u00f0ur s\u00edns. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Drottinn mun ekki refsa okkur me\u00f0 sl\u00edkri eldraun sem hann setti \u00fe\u00e1 \u00ed til a\u00f0 reyna hj\u00f6rtu \u00feeirra. Nei. \u00deegar Drottinn hirtir \u00fe\u00e1 sem halda sig a\u00f0 honum \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 til \u00feess a\u00f0 lei\u00f0beina \u00feeim.\u201c<br \/> <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00dass\u00eda svara\u00f0i henni: \u201eAllt sem \u00fe\u00fa sag\u00f0ir m\u00e6ltir \u00fe\u00fa af g\u00f3\u00f0um huga og enginn getur hraki\u00f0 or\u00f0 \u00fe\u00edn. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 er ekki heldur \u00ed fyrsta sinn \u00ed dag a\u00f0 \u00fe\u00fa s\u00fdnir a\u00f0 \u00fe\u00fa ert vitur kona \u00fev\u00ed a\u00f0 hyggindi \u00fe\u00edn hafa veri\u00f0 \u00e1 allra vitor\u00f0i fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa varst barn a\u00f0 aldri og e\u00f0lisl\u00e6g hjartag\u00e6ska \u00fe\u00edn. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00dear sem f\u00f3lki\u00f0 var kvali\u00f0 af \u00feorsta neyddumst vi\u00f0 til a\u00f0 fara a\u00f0 tilm\u00e6lum \u00feess og gangast undir ei\u00f0 sem vi\u00f0 munum ekki rj\u00fafa. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> En bi\u00f0 \u00fe\u00fa, sem ert gu\u00f0hr\u00e6dd kona, fyrir okkur. \u00de\u00e1 mun Drottinn senda regn sem fylla mun vatns\u00fer\u00e6r okkar. \u00de\u00e1 ver\u00f0um vi\u00f0 ekki lengur \u00f6rmagna af \u00feorsta.\u201c<br \/> <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> J\u00fad\u00edt sag\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u201eHl\u00fd\u00f0i\u00f0 \u00e1 mig. \u00dea\u00f0 verk \u00e6tla \u00e9g a\u00f0 vinna sem \u00fej\u00f3\u00f0 okkar mun minnast kynsl\u00f3\u00f0 eftir kynsl\u00f3\u00f0. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Standi\u00f0 \u00ed n\u00f3tt vi\u00f0 hli\u00f0i\u00f0. \u00c9g mun ganga \u00fat um \u00fea\u00f0 me\u00f0 \u00feernu minni og \u00e1\u00f0ur en s\u00e1 dagur rennur sem \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 heiti\u00f0 a\u00f0 selja borgina \u00ed hendur \u00f3vinunum mun Drottinn vitja \u00cdsraels me\u00f0 tilstu\u00f0lan handar minnar. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> En reyni\u00f0 ekki a\u00f0 komast a\u00f0 raun um hva\u00f0 \u00e9g hyggst fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g mun ekki greina fr\u00e1 \u00fev\u00ed fyrr en \u00e9g hef framkv\u00e6mt \u00fea\u00f0 sem \u00e9g \u00e6tla a\u00f0 gera.\u201c<br \/> <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> \u00dass\u00eda og hinir lei\u00f0togarnir s\u00f6g\u00f0u vi\u00f0 hana: \u201eFar \u00fe\u00fa \u00ed fri\u00f0i. Drottinn Gu\u00f0 fari fyrir \u00fe\u00e9r til a\u00f0 hegna \u00f3vinum okkar.\u201c <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> F\u00f3ru \u00feeir s\u00ed\u00f0an \u00far sk\u00fdli hennar og sneru aftur til var\u00f0st\u00f6\u00f0va sinna.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Ekkjan J\u00fad\u00edt 1 Um \u00feessar mundir b\u00e1rust J\u00fad\u00edt fregnir af \u00feessu. H\u00fan var d\u00f3ttir Merari Oxsonar, sonar J\u00f3sefs Os\u00edelssonar sem var sonur Elk\u00eda Anan\u00edassonar, G\u00eddeonssonar, Rafajasonar, Akitovssonar, El\u00edasonar, Kelk\u00edasonar, El\u00edabssonar, Natanaelssonar, Sel\u00fam\u00edelssonar, S\u00far\u00edsadda\u00edsonar, S\u00edmeonssonar, \u00cdsraelssonar. 2 Ma\u00f0ur hennar var Manasse af s\u00f6mu \u00e6ttkv\u00edsl og \u00e6tt og h\u00fan. Haf\u00f0i hann d\u00e1i\u00f0 um byggskur\u00f0art\u00edmann. 3 F\u00e9kk hann s\u00f3lsting er hann stj\u00f3rna\u00f0i \u00feeim sem bundu kornknippi \u00e1 akrinum. Lag\u00f0ist hann sj\u00fakur og l\u00e9st \u00ed borg sinni Bet\u00fal\u00fau og var grafinn hj\u00e1 fe\u00f0rum s\u00ednum \u00e1 akrinum milli D\u00f3tan og Balamon. 4 S\u00ed\u00f0an haf\u00f0i J\u00fad\u00edt b\u00fai\u00f0 ekkja \u00ed h\u00fasi s\u00ednu \u00ed \u00ferj\u00fa \u00e1r og fj\u00f3ra <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/juditarbok-8-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2828","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2828","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2828"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2828\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2828"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}