{"id":2826,"date":"2017-12-30T21:04:49","date_gmt":"2017-12-30T21:04:49","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/j%c2%9cd%c2%92tarb%c2%97k-6-kafli\/"},"modified":"2018-01-12T19:03:00","modified_gmt":"2018-01-12T19:03:00","slug":"juditarbok-6-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/juditarbok-6-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00fad\u00edtarb\u00f3k 6. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> R\u00e6\u00f0a H\u00f3lofernesar<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00deegar \u00f3\u00e1n\u00e6gjuraddir mannanna sem st\u00f3\u00f0u umhverfis fundarsta\u00f0inn hlj\u00f3\u00f0nu\u00f0u t\u00f3k H\u00f3lofernes yfirhersh\u00f6f\u00f0ingi Ass\u00fdr\u00edumanna til m\u00e1ls. \u00c1varpa\u00f0i hann Ak\u00edor \u00ed \u00e1heyrn allra \u00fatlendinganna en beindi or\u00f0um s\u00ednum s\u00e9rstaklega til M\u00f3ab\u00edta og sag\u00f0i: <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u201eHver heldur \u00fe\u00fa a\u00f0 \u00fe\u00fa s\u00e9rt, Ak\u00edor, \u00fe\u00fa og m\u00e1lali\u00f0arnir fr\u00e1 Efra\u00edm? Hva\u00f0 ert \u00fe\u00fa a\u00f0 flytja sp\u00e1d\u00f3ma \u00ed okkar h\u00f3pi \u00ed dag og r\u00e1\u00f0a okkur fr\u00e1 a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast \u00e1 \u00cdsraelsmenn \u00fev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 \u00feeirra muni koma \u00feeim til bjargar? Hver er Gu\u00f0 nema Neb\u00fakadnesar? Hann mun senda herafla sinn og afm\u00e1 \u00cdsraelsmenn af yfirbor\u00f0i jar\u00f0ar. Ekki mun Gu\u00f0 \u00feeirra bjarga \u00feeim. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Vi\u00f0, sem erum \u00fej\u00f3nar Neb\u00fakadnesars, munum fella \u00fe\u00e1 alla eins og \u00feeir v\u00e6ru einn ma\u00f0ur. Ekki munu \u00feeir f\u00e1 sta\u00f0ist afl hesta okkar. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Vi\u00f0 munum steypa \u00feeim yfir \u00fe\u00e1. Fj\u00f6ll \u00cdsraelsmanna munu ver\u00f0a \u00f6lvu\u00f0 af bl\u00f3\u00f0i \u00feeirra og sl\u00e9tturnar metta\u00f0ar af l\u00edkum \u00feeirra. \u00deeir munu alls enga m\u00f3tspyrnu geta veitt okkur heldur mun \u00feeim tort\u00edmt gj\u00f6rsamlega. Svo segir Neb\u00fakadnesar konungur, drottinn allrar jar\u00f0arinnar. Hann hefur tala\u00f0 og \u00fea\u00f0 sem hann b\u00fd\u00f0ur mun ekki reynast or\u00f0in t\u00f3m. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> En \u00fe\u00fa, Ak\u00edor, amm\u00f3n\u00edski m\u00e1lali\u00f0inn \u00feinn. \u00dea\u00f0 sem \u00fe\u00fa sag\u00f0ir n\u00fa hefur gert \u00feig a\u00f0 svikara. H\u00e9\u00f0an \u00ed fr\u00e1 skalt \u00fe\u00fa mig ekki l\u00edta fyrr en \u00e9g hef refsa\u00f0 \u00feessum l\u00fd\u00f0 sem kom fr\u00e1 Egyptalandi. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00deegar \u00e9g svo sn\u00fd aftur munu sver\u00f0 hermanna minna og spj\u00f3t \u00fej\u00f3na minna leggja brj\u00f3st \u00feitt \u00ed gegn og munt \u00fe\u00fa falla \u00e1 valk\u00f6st \u00f3vinanna. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> N\u00fa munu \u00fej\u00f3nar m\u00ednir fara me\u00f0 \u00feig upp \u00ed fj\u00f6llin og koma \u00fe\u00e9r fyrir \u00ed einhverri borginni vi\u00f0 sk\u00f6r\u00f0in. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Ekki muntu l\u00edfinu t\u00fdna fyrr en \u00fe\u00e9r ver\u00f0ur tort\u00edmt um lei\u00f0 og \u00feeim sem \u00fear b\u00faa. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Ef \u00fe\u00fa ber\u00f0 \u00fe\u00e1 von \u00ed brj\u00f3sti a\u00f0 \u00feeir muni sleppa \u00fe\u00e1 \u00fearft \u00fe\u00fa ekki heldur a\u00f0 vera ni\u00f0urdreginn. \u00c9g hef tala\u00f0 og ekkert or\u00f0a minna mun m\u00e1ttlaust falla.\u201c<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Ak\u00edor fluttur \u00ed b\u00f6ndum til Bet\u00fal\u00fau<\/h3>\n<p><a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an skipa\u00f0i H\u00f3lofernes \u00fej\u00f3num s\u00ednum, sem hj\u00e1 honum voru \u00ed tjaldinu, a\u00f0 gr\u00edpa Ak\u00edor og fara me\u00f0 hann til Bet\u00fal\u00fau og afhenda hann \u00cdsraelsm\u00f6nnum. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00dej\u00f3narnir t\u00f3ku hann h\u00f6ndum, leiddu hann \u00far herb\u00fa\u00f0unum og \u00fat \u00e1 sl\u00e9ttuna. \u00dea\u00f0an h\u00e9ldu \u00feeir me\u00f0 hann upp \u00ed fj\u00f6llin og a\u00f0 lindunum fyrir ne\u00f0an Bet\u00fal\u00fau. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00deegar Bet\u00fal\u00faub\u00faar s\u00e1u \u00fe\u00e1 n\u00e1lgast fjallshnj\u00fakinn gripu \u00feeir til vopna, h\u00e9ldu \u00fat \u00far borginni og upp \u00e1 tindinn. Allir sem b\u00fanir voru va\u00f0sl\u00f6ngvum komu s\u00e9r fyrir vi\u00f0 skar\u00f0i\u00f0 og hindru\u00f0u uppg\u00f6ngu \u00f3vinanna me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e1ta steinum rigna yfir \u00fe\u00e1. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00d3vinirnir leitu\u00f0u s\u00e9r skj\u00f3ls ne\u00f0st \u00ed hl\u00ed\u00f0inni, bundu Ak\u00edor og skildu hann eftir liggjandi vi\u00f0 r\u00e6tur fjallsins. S\u00ed\u00f0an sneru \u00feeir aftur til h\u00fasb\u00f3nda s\u00edns.<br \/> <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00deegar \u00cdsraelsmenn komu ofan \u00far borg sinni fundu \u00feeir Ak\u00edor. \u00deeir leystu hann \u00far fj\u00f6trum, f\u00f3ru me\u00f0 hann til Bet\u00fal\u00fau og leiddu hann fyrir yfirmenn borgarinnar. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Um \u00fe\u00e6r mundir voru \u00fea\u00f0 \u00dass\u00eda M\u00edkason af \u00e6ttkv\u00edsl S\u00edmons, Kabr\u00eds G\u00f3t\u00f3n\u00edelsson og Karm\u00eds Melk\u00edelsson. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Stefndu \u00feeir saman \u00f6llum \u00f6ldungum borgarinnar. Yngri menn og konur hr\u00f6\u00f0u\u00f0u s\u00e9r einnig til fundarins. Ak\u00edor var leiddur inn \u00ed mi\u00f0ja mann\u00feyrpinguna og innti \u00dass\u00eda hann eftir \u00fev\u00ed sem vi\u00f0 hef\u00f0i bori\u00f0. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Sk\u00fdr\u00f0i hann \u00feeim fr\u00e1 \u00fev\u00ed sem sagt haf\u00f0i veri\u00f0 \u00ed herr\u00e1\u00f0i H\u00f3lofernesar og fr\u00e1 \u00f6llu sem hann haf\u00f0i sj\u00e1lfur sagt vi\u00f0 herforingja Ass\u00fdr\u00edumanna og fr\u00e1 g\u00edfuryr\u00f0um H\u00f3lofernesar gegn \u00cdsraelsm\u00f6nnum. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00de\u00e1 f\u00e9ll f\u00f3lki\u00f0 fram fyrir Gu\u00f0, \u00e1kalla\u00f0i hann og sag\u00f0i: <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u201eDrottinn, Gu\u00f0 himinsins, l\u00edt ofurdramb \u00feeirra. Miskunna \u00fe\u00fa au\u00f0m\u00fdktri \u00fej\u00f3\u00f0 vorri. Sn\u00fa \u00fe\u00e9r \u00ed dag til vor sem erum helga\u00f0ir \u00fe\u00e9r.\u201c <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00deeir st\u00f6ppu\u00f0u st\u00e1linu \u00ed Ak\u00edor og h\u00e6ldu honum mj\u00f6g. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00dass\u00eda t\u00f3k hann heim me\u00f0 s\u00e9r fr\u00e1 samkomunni og h\u00e9lt \u00f6ldungunum veislu. S\u00ed\u00f0an \u00e1k\u00f6llu\u00f0u \u00feeir Gu\u00f0 \u00cdsraels og b\u00e1\u00f0u hann hj\u00e1lpar alla n\u00f3ttina. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>R\u00e6\u00f0a H\u00f3lofernesar 1 \u00deegar \u00f3\u00e1n\u00e6gjuraddir mannanna sem st\u00f3\u00f0u umhverfis fundarsta\u00f0inn hlj\u00f3\u00f0nu\u00f0u t\u00f3k H\u00f3lofernes yfirhersh\u00f6f\u00f0ingi Ass\u00fdr\u00edumanna til m\u00e1ls. \u00c1varpa\u00f0i hann Ak\u00edor \u00ed \u00e1heyrn allra \u00fatlendinganna en beindi or\u00f0um s\u00ednum s\u00e9rstaklega til M\u00f3ab\u00edta og sag\u00f0i: 2 \u201eHver heldur \u00fe\u00fa a\u00f0 \u00fe\u00fa s\u00e9rt, Ak\u00edor, \u00fe\u00fa og m\u00e1lali\u00f0arnir fr\u00e1 Efra\u00edm? Hva\u00f0 ert \u00fe\u00fa a\u00f0 flytja sp\u00e1d\u00f3ma \u00ed okkar h\u00f3pi \u00ed dag og r\u00e1\u00f0a okkur fr\u00e1 a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast \u00e1 \u00cdsraelsmenn \u00fev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 \u00feeirra muni koma \u00feeim til bjargar? Hver er Gu\u00f0 nema Neb\u00fakadnesar? Hann mun senda herafla sinn og afm\u00e1 \u00cdsraelsmenn af yfirbor\u00f0i jar\u00f0ar. Ekki mun Gu\u00f0 \u00feeirra bjarga \u00feeim. 3 Vi\u00f0, sem erum <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/juditarbok-6-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2826","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2826","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2826"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2826\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2826"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}