{"id":2802,"date":"2017-12-30T21:04:44","date_gmt":"2017-12-30T21:04:44","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/opinberunarb%c2%97kin-18-kafli\/"},"modified":"2019-08-26T23:31:18","modified_gmt":"2019-08-26T23:31:18","slug":"opinberunarbok-johannesar-18-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/opinberunarbok-johannesar-18-kafli\/","title":{"rendered":"Opinberunarb\u00f3k J\u00f3hannesar 18. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Fallin er Bab\u00fdlon<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Eftir \u00feetta s\u00e1 \u00e9g annan engil st\u00edga ofan af himni og haf\u00f0i hann miki\u00f0 vald og j\u00f6r\u00f0in lj\u00f3ma\u00f0i af d\u00fdr\u00f0 hans. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Og hann hr\u00f3pa\u00f0i me\u00f0 sterkri r\u00f6ddu: \u201eFallin er, fallin er Bab\u00fdlon hin mikla og or\u00f0in a\u00f0 heimkynni dj\u00f6fla og h\u00e6li alls konar \u00f3hreinna anda og \u00f3hreinna og vi\u00f0bj\u00f3\u00f0slegra fugla. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 h\u00fan hefur l\u00e1ti\u00f0 allar \u00fej\u00f3\u00f0ir drekka af lostav\u00edni saurl\u00edfis s\u00edns sem vekur rei\u00f0i Gu\u00f0s, og konungar jar\u00f0arinnar dr\u00fdg\u00f0u saurlifna\u00f0 me\u00f0 henni og kaupmenn jar\u00f0arinnar au\u00f0gu\u00f0ust af taumlausum muna\u00f0i hennar.\u201c<br \/> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Og \u00e9g heyr\u00f0i a\u00f0ra r\u00f6dd af himni sem sag\u00f0i: \u201eF\u00f3lki\u00f0 mitt, for\u00f0i\u00f0 y\u00f0ur \u00far borginni, svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r eigi\u00f0 engan hlut \u00ed syndum hennar og hreppi\u00f0 ekki pl\u00e1gur hennar. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 syndir hennar n\u00e1\u00f0u allt upp til himins og Gu\u00f0 minntist rangl\u00e6tisverka hennar. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Komi\u00f0 fram vi\u00f0 hana eins og h\u00fan hefur komi\u00f0 fram vi\u00f0 y\u00f0ur og l\u00e1ti\u00f0 hana f\u00e1 tv\u00f6falt fyrir \u00fea\u00f0 sem h\u00fan hefur gert. Byrli\u00f0 henni tv\u00f6falt \u00ed bikarinn sem h\u00fan hefur byrla\u00f0 y\u00f0ur \u00ed. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Veiti\u00f0 henni eins mikla kv\u00f6l og sorg og hennar st\u00e6ril\u00e6ti og \u00f3h\u00f3f hefur veri\u00f0. H\u00fan segir \u00ed hjarta s\u00ednu: H\u00e9r sit \u00e9g og er drottning, ekkja er \u00e9g eigi, sorg mun \u00e9g aldrei sj\u00e1. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00deess vegna munu pl\u00e1gur hennar koma \u00e1 einum degi: Dau\u00f0i, sorg og hungur og \u00ed eldi mun h\u00fan ver\u00f0a brennd \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00e1ttugur er Drottinn Gu\u00f0 sem d\u00e6mdi hana.\u201c<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Konungar jar\u00f0arinnar, sem dr\u00fdg\u00f0u me\u00f0 henni saurlifna\u00f0 og lif\u00f0u \u00ed muna\u00f0i, munu gr\u00e1ta og kveina yfir henni er \u00feeir sj\u00e1 reykinn \u00feegar h\u00fan brennur. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Af \u00f3tta fyrir kv\u00f6l hennar munu \u00feeir standa langt fr\u00e1 og segja: \u201eVei, vei, borgin mikla, Bab\u00fdlon, borgin volduga, \u00e1 einni stundu kom d\u00f3mur \u00feinn.\u201c <br \/> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Og kaupmenn jar\u00f0arinnar gr\u00e1ta og harma yfir henni \u00fev\u00ed a\u00f0 enginn kaupir n\u00fa framar v\u00f6rur \u00feeirra, <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> farma af gulli og silfri, gimsteinum og perlum, d\u00fdru l\u00edni og purpura, silki og skarlati, og alls konar ilmvi\u00f0 og alls konar muni af f\u00edlabeini og e\u00f0alvi\u00f0i, af eiri, j\u00e1rni og marmara, <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> og kanelb\u00f6rk og balsam, ilmjurtir og smyrsl, reykelsi, v\u00edn og ol\u00edu og f\u00ednt mj\u00f6l og hveiti og uxa og sau\u00f0i og hesta og vagna og \u00fer\u00e6la og mannsl\u00edf. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00c1g\u00f3\u00f0inn, sem \u00fe\u00fa \u00fer\u00e1\u00f0ir svo heitt, hefur brug\u00f0ist \u00fe\u00e9r, \u00f6ll s\u00e6ld og glys \u00fe\u00e9r horfi\u00f0 og enginn mun neitt af \u00fev\u00ed finna framar. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Kaupmennirnir, sem seldu \u00feessa hluti og au\u00f0gu\u00f0ust \u00e1 henni, munu standa \u00e1lengdar af \u00f3tta yfir kv\u00f6l hennar, gr\u00e1tandi og harmandi <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> og segja: \u201eVei, vei, borgin mikla, sem kl\u00e6ddist d\u00fdru l\u00edni, purpura og skarlati og var pr\u00fddd gulli og gimsteinum og perlum. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00c1 einni stundu eyddist allur \u00feessi au\u00f0ur.\u201c Og allir skipstj\u00f3rar, allir sj\u00f3farendur og h\u00e1setar og allir \u00feeir sem atvinnu reka \u00e1 sj\u00f3num st\u00f3\u00f0u \u00e1lengdar. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00deegar \u00feeir s\u00e1u reykinn af brennandi borginni hr\u00f3pu\u00f0u \u00feeir: \u201eHva\u00f0a borg jafnast \u00e1 vi\u00f0 borgina miklu?\u201c <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Og \u00feeir jusu mold yfir h\u00f6fu\u00f0 s\u00e9r og hr\u00f3pu\u00f0u gr\u00e1tandi og harmandi: \u201eVei, vei, borgin mikla, sem allir \u00feeir er skip eiga \u00e1 sj\u00f3num au\u00f0gu\u00f0ust \u00e1 vegna au\u00f0\u00e6fa hennar. \u00c1 einni stundu var h\u00fan \u00ed ey\u00f0i l\u00f6g\u00f0.\u201c <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Fagna yfir henni, \u00fe\u00fa himinn og \u00fe\u00e9r heil\u00f6gu, postular og sp\u00e1menn, \u00fev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 hefur hefnt y\u00f0ar \u00e1 henni. <br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Sterkur engill t\u00f3k upp stein, eins og mikinn kvarnarstein, kasta\u00f0i \u00ed hafi\u00f0 og sag\u00f0i: \u201eSvo voveiflega mun Bab\u00fdlon kollvarpast, borgin mikla, svo a\u00f0 engar menjar skulu eftir ver\u00f0a. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Og h\u00f6rpusl\u00e1ttur og s\u00f6nglist, p\u00edpuhlj\u00f3mur og l\u00fa\u00f0ur\u00feytur skal ekki framar heyrast \u00ed \u00fe\u00e9r og engir i\u00f0na\u00f0armenn munu framar stunda i\u00f0n s\u00edna \u00ed \u00fe\u00e9r og kvarnarhlj\u00f3\u00f0 skal eigi framar heyrast \u00ed \u00fe\u00e9r. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Lampalj\u00f3s skal eigi framar \u00ed \u00fe\u00e9r l\u00fdsa og raust br\u00fa\u00f0guma og br\u00fa\u00f0ar skal eigi framar heyrast \u00ed \u00fe\u00e9r. Kaupmenn \u00fe\u00ednir voru h\u00f6f\u00f0ingjar jar\u00f0arinnar og allar \u00fej\u00f3\u00f0ir leiddust \u00ed villu af t\u00f6frum \u00fe\u00ednum. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00cd borginni fannst bl\u00f3\u00f0 sp\u00e1manna og heilagra og allra \u00feeirra sem drepnir hafa veri\u00f0 \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni.\u201c <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fallin er Bab\u00fdlon 1 Eftir \u00feetta s\u00e1 \u00e9g annan engil st\u00edga ofan af himni og haf\u00f0i hann miki\u00f0 vald og j\u00f6r\u00f0in lj\u00f3ma\u00f0i af d\u00fdr\u00f0 hans. 2 Og hann hr\u00f3pa\u00f0i me\u00f0 sterkri r\u00f6ddu: \u201eFallin er, fallin er Bab\u00fdlon hin mikla og or\u00f0in a\u00f0 heimkynni dj\u00f6fla og h\u00e6li alls konar \u00f3hreinna anda og \u00f3hreinna og vi\u00f0bj\u00f3\u00f0slegra fugla. 3 \u00dev\u00ed a\u00f0 h\u00fan hefur l\u00e1ti\u00f0 allar \u00fej\u00f3\u00f0ir drekka af lostav\u00edni saurl\u00edfis s\u00edns sem vekur rei\u00f0i Gu\u00f0s, og konungar jar\u00f0arinnar dr\u00fdg\u00f0u saurlifna\u00f0 me\u00f0 henni og kaupmenn jar\u00f0arinnar au\u00f0gu\u00f0ust af taumlausum muna\u00f0i hennar.\u201c 4 Og \u00e9g heyr\u00f0i a\u00f0ra r\u00f6dd af himni sem sag\u00f0i: \u201eF\u00f3lki\u00f0 mitt, for\u00f0i\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/opinberunarbok-johannesar-18-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2802","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2802","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2802"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2802\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2802"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}