{"id":2795,"date":"2017-12-30T21:04:39","date_gmt":"2017-12-30T21:04:39","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/opinberunarb%c2%97kin-11-kafli\/"},"modified":"2019-08-26T23:31:17","modified_gmt":"2019-08-26T23:31:17","slug":"opinberunarbok-johannesar-11-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/opinberunarbok-johannesar-11-kafli\/","title":{"rendered":"Opinberunarb\u00f3k J\u00f3hannesar 11. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Vottarnir tveir<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> M\u00e9r var fengin m\u00e6listika, l\u00edk staf, og sagt: \u201eR\u00eds upp, m\u00e6l musteri Gu\u00f0s og altari\u00f0 og tel \u00feau sem tilbi\u00f0ja \u00fear. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> En forgar\u00f0inum fyrir utan musteri\u00f0 skalt \u00fe\u00fa sleppa og m\u00e6l hann ekki \u00fev\u00ed a\u00f0 hann er \u00e6tla\u00f0ur hei\u00f0ingjunum og \u00feeir munu f\u00f3tum tro\u00f0a borgina helgu \u00ed fj\u00f6rut\u00edu og tvo m\u00e1nu\u00f0i. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00c9g mun l\u00e1ta votta m\u00edna tvo flytja sp\u00e1d\u00f3msor\u00f0 \u00ed eitt \u00fe\u00fasund tv\u00f6 hundru\u00f0 og sext\u00edu daga, kl\u00e6dda h\u00e6rusekkjum.\u201c <br \/> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00deetta eru ol\u00eduvi\u00f0irnir tveir og lj\u00f3sastikurnar tv\u00e6r sem standa frammi fyrir Drottni jar\u00f0arinnar. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Og ef einhver vill granda \u00feeim gengur eldur \u00fat \u00far munni \u00feeirra og ey\u00f0ir \u00f3vinum \u00feeirra og \u00feannig skal hver deyja sem vill granda \u00feeim. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00deeir hafa vald til a\u00f0 loka himninum til \u00feess a\u00f0 eigi rigni me\u00f0an \u00feeir flytja bo\u00f0skap sinn. \u00deeir hafa einnig vald til a\u00f0 breyta v\u00f6tnunum \u00ed bl\u00f3\u00f0 og sl\u00e1 j\u00f6r\u00f0ina me\u00f0 hvers kyns pl\u00e1gu svo oft sem \u00feeir vilja. <br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Og er \u00feeir hafa loki\u00f0 vitnisbur\u00f0i s\u00ednum mun d\u00fdri\u00f0, sem upp st\u00edgur \u00far undirdj\u00fapinu, heyja str\u00ed\u00f0 vi\u00f0 \u00fe\u00e1 og mun sigra \u00fe\u00e1 og dey\u00f0a \u00fe\u00e1. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Og l\u00edk \u00feeirra munu liggja \u00e1 str\u00e6tum borgarinnar miklu \u00fear sem Drottinn \u00feeirra var krossfestur. H\u00fan heitir \u00e1 andlegan h\u00e1tt S\u00f3d\u00f3ma og Egyptaland. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Menn af \u00f6llum l\u00fd\u00f0um og kynkv\u00edslum, tungum og \u00fej\u00f3\u00f0um sj\u00e1 l\u00edk \u00feeirra \u00ferj\u00e1 og h\u00e1lfan dag og leyfa ekki a\u00f0 \u00feau ver\u00f0i l\u00f6g\u00f0 \u00ed gr\u00f6f. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Og \u00edb\u00faar jar\u00f0arinnar gle\u00f0jast yfir \u00feeim og fagna og senda hver \u00f6\u00f0rum gjafir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feessir tveir sp\u00e1menn kv\u00f6ldu \u00fe\u00e1 sem \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni b\u00faa. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Eftir dagana \u00ferj\u00e1 og h\u00e1lfan f\u00f3r l\u00edfsandi fr\u00e1 Gu\u00f0i \u00ed \u00fe\u00e1 og \u00feeir risu \u00e1 f\u00e6tur. Mikill \u00f3tti kom yfir alla sem s\u00e1u \u00fe\u00e1. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Og \u00feeir heyr\u00f0u r\u00f6dd mikla af himni sem sag\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u201eSt\u00edgi\u00f0 upp hinga\u00f0.\u201c Og \u00feeir stigu upp til himins \u00ed sk\u00fdi og \u00f3vinir \u00feeirra horf\u00f0u \u00e1 \u00fe\u00e1. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00c1 \u00feeirri stundu var\u00f0 landskj\u00e1lfti mikill og t\u00edundi hluti borgarinnar hrundi. \u00cd landskj\u00e1lftanum f\u00f3rust sj\u00f6 \u00fe\u00fasundir manna en \u00feeir sem eftir voru ur\u00f0u \u00f3tta slegnir og f\u00f3lu sig \u00e1 vald Gu\u00f0s \u00e1 himni. <br \/> <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00d6nnur pl\u00e1gan er li\u00f0in hj\u00e1. Br\u00e1tt kemur \u00feri\u00f0ja pl\u00e1gan.<span class=\"nedan_mal\" title=\" Or\u00f0r\u00e9tt: Anna\u00f0 veii\u00f0 er li\u00f0i\u00f0 hj\u00e1. Br\u00e1tt kemur \u00feri\u00f0ja veii\u00f0.\">[<\/span> <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Sj\u00f6unda b\u00e1s\u00fanan<\/h3>\n<p><a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Sj\u00f6undi engillinn b\u00e1s\u00fana\u00f0i. \u00de\u00e1 heyr\u00f0ust raddir miklar \u00e1 himni er s\u00f6g\u00f0u: \u201eDrottinn og Kristur hans hafa fengi\u00f0 valdi\u00f0 yfir heiminum og hann mun r\u00edkja um aldir alda.\u201c <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Og \u00f6ldungarnir tuttugu og fj\u00f3rir, \u00feeir er sitja frammi fyrir Gu\u00f0i \u00ed h\u00e1s\u00e6tum s\u00ednum, f\u00e9llu fram \u00e1 \u00e1sj\u00f3nur s\u00ednar, tilb\u00e1\u00f0u Gu\u00f0 <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> og s\u00f6g\u00f0u: <br \/> <span class=\"ljodatexti\"> V\u00e9r \u00fe\u00f6kkum \u00fe\u00e9r, Drottinn Gu\u00f0, \u00fe\u00fa alvaldi, <br \/>\u00fe\u00fa sem ert og \u00fe\u00fa sem varst, <br \/>a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur teki\u00f0 valdi\u00f0 \u00feitt hi\u00f0 mikla <br \/>og gerst konungur. <br \/> <\/span> <span class=\"ljodatexti\"> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_ljod\">18<\/span><\/a>\u00dej\u00f3\u00f0irnar reiddust <br \/>og rei\u00f0i \u00fe\u00edn kom <br \/>og t\u00edminn til a\u00f0 d\u00e6ma hina dau\u00f0u og gefa launin \u00fej\u00f3num \u00fe\u00ednum, <br \/>sp\u00e1m\u00f6nnunum og hinum heil\u00f6gu <br \/>og \u00feeim sem \u00f3ttast nafn \u00feitt, sm\u00e1um og st\u00f3rum, <br \/>og til a\u00f0 ey\u00f0a \u00feeim sem j\u00f6r\u00f0ina ey\u00f0a. <\/span> <br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Og musteri Gu\u00f0s opna\u00f0ist, \u00fea\u00f0 sem \u00e1 himni er, og s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rk hans birtist \u00ed musteri hans. Og eldingar komu og dunur og \u00ferumur og landskj\u00e1lfti og hagl miki\u00f0. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Vottarnir tveir 1 M\u00e9r var fengin m\u00e6listika, l\u00edk staf, og sagt: \u201eR\u00eds upp, m\u00e6l musteri Gu\u00f0s og altari\u00f0 og tel \u00feau sem tilbi\u00f0ja \u00fear. 2 En forgar\u00f0inum fyrir utan musteri\u00f0 skalt \u00fe\u00fa sleppa og m\u00e6l hann ekki \u00fev\u00ed a\u00f0 hann er \u00e6tla\u00f0ur hei\u00f0ingjunum og \u00feeir munu f\u00f3tum tro\u00f0a borgina helgu \u00ed fj\u00f6rut\u00edu og tvo m\u00e1nu\u00f0i. 3 \u00c9g mun l\u00e1ta votta m\u00edna tvo flytja sp\u00e1d\u00f3msor\u00f0 \u00ed eitt \u00fe\u00fasund tv\u00f6 hundru\u00f0 og sext\u00edu daga, kl\u00e6dda h\u00e6rusekkjum.\u201c 4 \u00deetta eru ol\u00eduvi\u00f0irnir tveir og lj\u00f3sastikurnar tv\u00e6r sem standa frammi fyrir Drottni jar\u00f0arinnar. 5 Og ef einhver vill granda \u00feeim gengur eldur \u00fat \u00far munni <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/opinberunarbok-johannesar-11-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2795","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2795","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2795"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2795\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2795"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}