{"id":2784,"date":"2017-12-30T21:04:39","date_gmt":"2017-12-30T21:04:39","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/j%c2%9cdasarbr%c2%8efi_-1-kafli\/"},"modified":"2019-08-26T23:06:19","modified_gmt":"2019-08-26T23:06:19","slug":"judasarbrefid-1-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/judasarbrefid-1-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00fadasarbr\u00e9fi\u00f0 1. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Kve\u00f0ja<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> J\u00fadas, \u00fej\u00f3nn Jes\u00fa Krists, br\u00f3\u00f0ir Jakobs, heilsar \u00feeim sem Gu\u00f0 fa\u00f0ir elskar og hefur kalla\u00f0 og Jes\u00fas Kristur var\u00f0veitir.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">A\u00f0 misnota n\u00e1\u00f0 Gu\u00f0s<\/h3>\n<p><a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Miskunn, fri\u00f0ur og k\u00e6rleiki margfaldist me\u00f0 ykkur. <br \/> <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 elsku\u00f0u, m\u00e9r var \u00fea\u00f0 r\u00edkt \u00ed huga a\u00f0 rita ykkur um sameiginlegt hj\u00e1lpr\u00e6\u00f0i okkar. En n\u00fa kemst \u00e9g ekki hj\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 skrifa og hvetja ykkur til a\u00f0 berjast fyrir \u00feeirri tr\u00fa sem heil\u00f6gum hefur \u00ed eitt skipti fyrir \u00f6ll veri\u00f0 \u00ed hendur seld. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Nokkrir menn hafa laumast inn \u00ed s\u00f6fnu\u00f0inn. \u00dea\u00f0 eru \u00f3gu\u00f0legir menn sem misnota n\u00e1\u00f0 Gu\u00f0s okkar til taumleysis og afneita okkar eina l\u00e1var\u00f0i og Drottni, Jes\u00fa Kristi. Fyrir l\u00f6ngu var rita\u00f0 um \u00feann d\u00f3m sem bi\u00f0i \u00feeirra. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00c9g vil minna ykkur \u00e1, \u00fe\u00f3tt \u00fei\u00f0 viti\u00f0 \u00fea\u00f0 allt, a\u00f0 Drottinn<span class=\"nedan_mal\" title=\" Annar lesh\u00e1ttur: Jes\u00fas, rita\u00f0 \u00e1 sama h\u00e1tt \u00e1 gr\u00edsku og or\u00f0i\u00f0 J\u00f3s\u00faa.\">[<\/span> frelsa\u00f0i l\u00fd\u00f0inn \u00far Egyptalandi en tort\u00edmdi samt s\u00ed\u00f0ar \u00feeim sem ekki tr\u00fa\u00f0u. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Minnist englanna sem ekki g\u00e6ttu tignar sinnar heldur yfirg\u00e1fu eigin b\u00fasta\u00f0. Gu\u00f0 hefur geymt \u00fe\u00e1 \u00ed myrkri \u00ed \u00e6varandi fj\u00f6trum til d\u00f3msins \u00e1 deginum mikla. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Gleymi\u00f0 ekki heldur S\u00f3d\u00f3mu og G\u00f3morru og borgunum umhverfis \u00fe\u00e6r sem dr\u00fdgt h\u00f6f\u00f0u saurlifna\u00f0, \u00e1 l\u00edkan h\u00e1tt og englarnir, og stundu\u00f0u \u00f3leyfilegt kynl\u00edf. Gu\u00f0 setti \u00fe\u00e6r til vi\u00f0v\u00f6runar og refsa\u00f0i \u00feeim me\u00f0 eil\u00edfum eldi.<br \/> <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00c1 sama h\u00e1tt saurga og \u00feessir draumvilltu menn l\u00edkamann, meta a\u00f0 engu drottinvald og lastm\u00e6la himnaverum. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Eigi dirf\u00f0ist einu sinni h\u00f6fu\u00f0engillinn Mikael a\u00f0 saka dj\u00f6fulinn um gu\u00f0last, er hann \u00e1tti \u00ed or\u00f0adeilu vi\u00f0 hann um l\u00edkama M\u00f3se, heldur sag\u00f0i: \u201eDrottinn refsi \u00fe\u00e9r!\u201c <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> En \u00feessir menn lastm\u00e6la \u00f6llu \u00fev\u00ed sem \u00feeir \u00feekkja ekki en \u00fea\u00f0 sem \u00feeir skilja af e\u00f0lis\u00e1v\u00edsun sinni eins og skynlausar skepnur ver\u00f0ur \u00feeim til falls. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Vei \u00feeim, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feessir menn hafa gengi\u00f0 \u00e1 vegi Kains og s\u00f6kkt s\u00e9r \u00ed villu B\u00edleams af gr\u00f3\u00f0af\u00edkn, gert uppreisn gegn Gu\u00f0i eins og K\u00f3ra og tort\u00edmst. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00deeir eru sm\u00e1narblettur \u00e1 k\u00e6rleiksm\u00e1lt\u00ed\u00f0um ykkar er \u00feeir sitja a\u00f0 veislum me\u00f0 ykkur og h\u00e1ma \u00ed sig blyg\u00f0unarlaust og hugsa a\u00f0eins um eigin hag. \u00deeir eru eins og vatnslaus sk\u00fd sem rekast fyrir vindum, eins og tr\u00e9 sem bera ekki \u00e1v\u00f6xt a\u00f0 hausti, steindau\u00f0 og rifin upp me\u00f0 r\u00f3tum. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00deeir eru eins og ofsalegar hafsbylgjur sem frey\u00f0a eigin sm\u00e1narverkum og stj\u00f6rnur sem fari\u00f0 hafa \u00fat af braut sinni og eiga d\u00fdpsta myrkur \u00ed v\u00e6ndum til eil\u00edf\u00f0ar. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Um \u00feessa menn sp\u00e1\u00f0i Enok l\u00edka, sj\u00f6undi ma\u00f0ur fr\u00e1 Adam, er hann segir: \u201eSj\u00e1, Drottinn er kominn me\u00f0 s\u00ednum \u00fe\u00fasundum heilagra <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> til a\u00f0 halda d\u00f3m yfir \u00f6llum, og til a\u00f0 sanna alla \u00f3gu\u00f0lega menn seka um \u00f6ll \u00feau \u00f3gu\u00f0legu verk sem \u00feeir hafa dr\u00fdgt og um \u00f6ll \u00feau h\u00f6r\u00f0u or\u00f0 sem \u00f3gu\u00f0legir syndarar hafa tala\u00f0 gegn honum.\u201c <br \/> <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00deessir menn eru s\u00edkvartandi og kenna \u00f6\u00f0rum um \u00f6rl\u00f6g s\u00edn og lifa eftir girndum s\u00ednum. Munnur \u00feeirra m\u00e6lir ofstopaor\u00f0 og \u00feeir smja\u00f0ra fyrir \u00f6\u00f0rum, s\u00e9r til \u00e1vinnings.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Varna\u00f0aror\u00f0<\/h3>\n<p><a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> En \u00fei\u00f0 elsku\u00f0u, minnist \u00feeirra or\u00f0a sem postular Drottins vors Jes\u00fa Krists hafa \u00e1\u00f0ur tala\u00f0. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00deeir s\u00f6g\u00f0u vi\u00f0 ykkur: \u201e\u00c1 s\u00ed\u00f0asta t\u00edma munu koma spottarar sem stj\u00f3rnast af s\u00ednum eigin \u00f3gu\u00f0legu girndum.\u201c <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 eru \u00feeir sem valda sundrungu, \u00feeir eru bundnir vi\u00f0 \u00feennan heim og hafa eigi andann. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> En \u00fei\u00f0 elsku\u00f0u, byggi\u00f0 ykkur sj\u00e1lf upp \u00ed helgustu tr\u00fa ykkar. Bi\u00f0ji\u00f0 \u00ed heil\u00f6gum anda. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> L\u00e1ti\u00f0 k\u00e6rleika Gu\u00f0s var\u00f0veita ykkur sj\u00e1lf og b\u00ed\u00f0i\u00f0 eftir a\u00f0 Drottinn vor Jes\u00fas Kristur s\u00fdni ykkur n\u00e1\u00f0 og veiti ykkur eil\u00edft l\u00edf. <br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Sumir eru efablandnir, s\u00fdni\u00f0 \u00feeim mildi, <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> suma skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 frelsa me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hr\u00edfa \u00fe\u00e1 \u00fat \u00far eldinum, s\u00fdni\u00f0 sumum \u00f3ttablandna mildi og for\u00f0ist jafnvel kl\u00e6\u00f0i \u00feeirra sem flekku\u00f0 eru af synd. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">B\u00e6n<\/h3>\n<p><a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> En Gu\u00f0i, sem megnar a\u00f0 var\u00f0veita y\u00f0ur fr\u00e1 hr\u00f6sun og l\u00e1ta y\u00f0ur koma fram fyrir d\u00fdr\u00f0 s\u00edna l\u00fdtalaus \u00ed f\u00f6gnu\u00f0i, <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> einum Gu\u00f0i sem frelsar oss fyrir Jes\u00fa Krist, Drottin vorn, s\u00e9 d\u00fdr\u00f0, h\u00e1tign, m\u00e1ttur og vald fr\u00e1 alda \u00f6\u00f0li, n\u00fa og um allar aldir. Amen. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Kve\u00f0ja 1 J\u00fadas, \u00fej\u00f3nn Jes\u00fa Krists, br\u00f3\u00f0ir Jakobs, heilsar \u00feeim sem Gu\u00f0 fa\u00f0ir elskar og hefur kalla\u00f0 og Jes\u00fas Kristur var\u00f0veitir. A\u00f0 misnota n\u00e1\u00f0 Gu\u00f0s 2 Miskunn, fri\u00f0ur og k\u00e6rleiki margfaldist me\u00f0 ykkur. 3 \u00dei\u00f0 elsku\u00f0u, m\u00e9r var \u00fea\u00f0 r\u00edkt \u00ed huga a\u00f0 rita ykkur um sameiginlegt hj\u00e1lpr\u00e6\u00f0i okkar. En n\u00fa kemst \u00e9g ekki hj\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 skrifa og hvetja ykkur til a\u00f0 berjast fyrir \u00feeirri tr\u00fa sem heil\u00f6gum hefur \u00ed eitt skipti fyrir \u00f6ll veri\u00f0 \u00ed hendur seld. 4 Nokkrir menn hafa laumast inn \u00ed s\u00f6fnu\u00f0inn. \u00dea\u00f0 eru \u00f3gu\u00f0legir menn sem misnota n\u00e1\u00f0 Gu\u00f0s okkar til taumleysis og afneita <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/judasarbrefid-1-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2784","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2784","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2784"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2784\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2784"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}