{"id":2778,"date":"2017-12-30T21:04:39","date_gmt":"2017-12-30T21:04:39","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrsta-j%c2%97hannesarbr%c2%8ef-2-kafli\/"},"modified":"2019-08-26T23:26:37","modified_gmt":"2019-08-26T23:26:37","slug":"fyrsta-johannesarbref-2-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrsta-johannesarbref-2-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrsta J\u00f3hannesarbr\u00e9f 2. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Fyrirgefning syndanna, n\u00fdtt l\u00edf<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> B\u00f6rnin m\u00edn! \u00deetta skrifa \u00e9g ykkur til \u00feess a\u00f0 \u00fei\u00f0 skuli\u00f0 ekki syndga. En ef einhver syndgar, \u00fe\u00e1 h\u00f6fum vi\u00f0 m\u00e1lsvara hj\u00e1 f\u00f6\u00f0urnum, Jes\u00fa Krist, hinn r\u00e9ttl\u00e1ta. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Hann er fri\u00f0\u00fe\u00e6ging fyrir syndir okkar og ekki einungis fyrir syndir okkar heldur l\u00edka fyrir syndir alls heimsins. <br \/> <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00de\u00e1 vitum vi\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0 \u00feekkjum hann ef vi\u00f0 h\u00f6ldum bo\u00f0or\u00f0 Gu\u00f0s. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> S\u00e1 sem segir: \u201e\u00c9g \u00feekki hann,\u201c og heldur ekki bo\u00f0or\u00f0 hans er lygari og sannleikurinn er ekki \u00ed honum. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> En hver sem var\u00f0veitir or\u00f0 Gu\u00f0s, hann elskar sannarlega Gu\u00f0 \u00e1 fullkominn h\u00e1tt. \u00deannig \u00feekkjum vi\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0 erum \u00ed honum. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00deeim sem segist vera \u00ed honum ber sj\u00e1lfum a\u00f0 breyta eins og Jes\u00fas Kristur breytti. <br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 elsku\u00f0u, \u00fea\u00f0 er ekki n\u00fdtt bo\u00f0or\u00f0 sem \u00e9g rita ykkur, heldur gamalt bo\u00f0or\u00f0 sem \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 haft fr\u00e1 upphafi. Hi\u00f0 gamla bo\u00f0or\u00f0 er or\u00f0i\u00f0 sem \u00fei\u00f0 heyr\u00f0u\u00f0. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Eigi a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur er \u00fea\u00f0 n\u00fdtt bo\u00f0or\u00f0, er \u00e9g rita ykkur, og sannindi \u00feess birtast \u00ed honum og \u00ed ykkur \u00fev\u00ed a\u00f0 myrkri\u00f0 er a\u00f0 hverfa og hi\u00f0 sanna lj\u00f3s er \u00feegar fari\u00f0 a\u00f0 sk\u00edna. <br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> S\u00e1 sem segist vera \u00ed lj\u00f3sinu og hatar br\u00f3\u00f0ur sinn, hann er enn \u00fe\u00e1 \u00ed myrkrinu. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> S\u00e1 sem elskar br\u00f3\u00f0ur sinn b\u00fdr \u00ed lj\u00f3sinu og \u00ed honum er ekkert er leitt geti hann til falls.<span class=\"nedan_mal\" title=\" E\u00f0a: leitt geti til falls.\">[<\/span> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> En s\u00e1 sem hatar br\u00f3\u00f0ur sinn er \u00ed myrkrinu og lifir \u00ed myrkrinu og veit ekki hvert hann fer \u00fev\u00ed a\u00f0 myrkri\u00f0 hefur blinda\u00f0 augu hans. <br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00c9g rita ykkur, b\u00f6rnin m\u00edn, af \u00fev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 hefur fyrirgefi\u00f0 ykkur syndir ykkar vegna Jes\u00fa Krists. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00c9g rita ykkur, foreldrar,<span class=\"nedan_mal\" title=\" Or\u00f0r\u00e9tt: fe\u00f0ur.\">[<\/span> af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00feekki\u00f0 hann sem er fr\u00e1 upphafi. \u00c9g rita ykkur, unglingar, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 sigra\u00f0 hinn vonda. <br \/> <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00c9g hef rita\u00f0 ykkur, b\u00f6rn, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00feekki\u00f0 f\u00f6\u00f0urinn. \u00c9g hef rita\u00f0 ykkur, foreldrar,<span class=\"nedan_mal\" title=\" Or\u00f0r\u00e9tt: fe\u00f0ur.\">[<\/span> af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00feekki\u00f0 hann sem er fr\u00e1 upphafi. \u00c9g hef rita\u00f0 ykkur, unglingar, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 eru\u00f0 styrkir og or\u00f0 Gu\u00f0s b\u00fdr \u00ed ykkur og \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 sigra\u00f0 hinn vonda. <br \/> <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Elski\u00f0 hvorki heiminn n\u00e9 \u00fea\u00f0 sem \u00ed heiminum er. S\u00e1 sem elskar heiminn elskar ekki f\u00f6\u00f0urinn. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 allt sem ma\u00f0urinn girnist, allt sem glepur auga\u00f0, allt ofl\u00e6ti vegna eigna er ekki fr\u00e1 f\u00f6\u00f0urnum heldur fr\u00e1 heiminum. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Og heimurinn fyrirferst og f\u00fdsn hans en s\u00e1 sem gerir Gu\u00f0s vilja varir a\u00f0 eil\u00edfu.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Andkristur<\/h3>\n<p><a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> B\u00f6rn m\u00edn, hin s\u00ed\u00f0asta stund er runnin upp. \u00dei\u00f0 hafi\u00f0 heyrt a\u00f0 andkristur kemur og n\u00fa eru l\u00edka margir andkristar komnir fram. Af \u00fev\u00ed vitum vi\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 er hin s\u00ed\u00f0asta stund. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00deeir komu \u00far okkar h\u00f3pi en heyr\u00f0u okkur ekki til. Ef \u00feeir hef\u00f0u heyrt okkur til \u00fe\u00e1 hef\u00f0u \u00feeir \u00e1fram veri\u00f0 me\u00f0 okkur. En \u00feetta var\u00f0 til \u00feess a\u00f0 auglj\u00f3st yr\u00f0i a\u00f0 enginn \u00feeirra heyr\u00f0i okkur til. <br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 \u00feekki\u00f0 \u00f6ll sannleikann \u00fev\u00ed a\u00f0 Hinn heilagi hefur smurt ykkur anda s\u00ednum. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00c9g hef ekki skrifa\u00f0 ykkur vegna \u00feess a\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00feekki\u00f0 ekki sannleikann heldur af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00feekki\u00f0 hann og af \u00fev\u00ed a\u00f0 engin lygi getur komi\u00f0 fr\u00e1 sannleikanum. <br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Hver er lygari ef ekki s\u00e1 sem neitar a\u00f0 Jes\u00fas s\u00e9 Kristur? S\u00e1 er andkristurinn sem afneitar f\u00f6\u00f0urnum og syninum. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Hver sem afneitar syninum hefur ekki heldur fundi\u00f0 f\u00f6\u00f0urinn. S\u00e1 sem j\u00e1tar soninn hefur og fundi\u00f0 f\u00f6\u00f0urinn. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> En haldi\u00f0 \u00e1fram a\u00f0 \u00edgrunda bo\u00f0skapinn sem \u00fei\u00f0 heyr\u00f0u\u00f0 \u00ed upphafi. Ef \u00fei\u00f0 haldi\u00f0 st\u00f6\u00f0uglega vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00fei\u00f0 heyr\u00f0u\u00f0 \u00ed upphafi, \u00fe\u00e1 munu\u00f0 \u00fei\u00f0 einnig vera st\u00f6\u00f0ug \u00ed samf\u00e9lagi vi\u00f0 soninn og f\u00f6\u00f0urinn. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Og \u00feetta er fyrirheiti\u00f0 sem hann gaf okkur: Hi\u00f0 eil\u00edfa l\u00edf. <br \/> <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00deetta hef \u00e9g skrifa\u00f0 ykkur um \u00fe\u00e1 sem eru a\u00f0 lei\u00f0a ykkur afvega. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Andinn, sem Kristur smur\u00f0i ykkur me\u00f0, b\u00fdr \u00ed ykkur og \u00fei\u00f0 \u00feurfi\u00f0 \u00feess ekki a\u00f0 neinn kenni ykkur \u00fev\u00ed andi hans fr\u00e6\u00f0ir ykkur um allt, hann er sannleiki en engin lygi. Veri\u00f0 st\u00f6\u00f0ug \u00ed honum eins og hann kenndi ykkur. <br \/> <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Og n\u00fa, b\u00f6rnin m\u00edn, lifi\u00f0 \u00ed samf\u00e9lagi vi\u00f0 hann til \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 getum, \u00feegar hann birtist, \u00e1tt dj\u00f6rfung og blyg\u00f0umst okkar ekki fyrir honum \u00feegar hann kemur. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 viti\u00f0 a\u00f0 hann er r\u00e9ttl\u00e1tur. \u00de\u00e1 skilji\u00f0 \u00fei\u00f0 einnig a\u00f0 hver sem i\u00f0kar r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 er barn Gu\u00f0s. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fyrirgefning syndanna, n\u00fdtt l\u00edf 1 B\u00f6rnin m\u00edn! \u00deetta skrifa \u00e9g ykkur til \u00feess a\u00f0 \u00fei\u00f0 skuli\u00f0 ekki syndga. En ef einhver syndgar, \u00fe\u00e1 h\u00f6fum vi\u00f0 m\u00e1lsvara hj\u00e1 f\u00f6\u00f0urnum, Jes\u00fa Krist, hinn r\u00e9ttl\u00e1ta. 2 Hann er fri\u00f0\u00fe\u00e6ging fyrir syndir okkar og ekki einungis fyrir syndir okkar heldur l\u00edka fyrir syndir alls heimsins. 3 \u00de\u00e1 vitum vi\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0 \u00feekkjum hann ef vi\u00f0 h\u00f6ldum bo\u00f0or\u00f0 Gu\u00f0s. 4 S\u00e1 sem segir: \u201e\u00c9g \u00feekki hann,\u201c og heldur ekki bo\u00f0or\u00f0 hans er lygari og sannleikurinn er ekki \u00ed honum. 5 En hver sem var\u00f0veitir or\u00f0 Gu\u00f0s, hann elskar sannarlega Gu\u00f0 \u00e1 fullkominn h\u00e1tt. \u00deannig \u00feekkjum <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrsta-johannesarbref-2-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2778","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2778","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2778"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2778\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2778"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}