{"id":2771,"date":"2017-12-30T21:04:34","date_gmt":"2017-12-30T21:04:34","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrra-p%c2%8etursbr%c2%8ef-3-kafli\/"},"modified":"2019-08-26T23:49:48","modified_gmt":"2019-08-26T23:49:48","slug":"fyrra-petursbref-3-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrra-petursbref-3-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrra P\u00e9tursbr\u00e9f 3. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Eiginkonur og eiginmenn<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Eins skulu\u00f0 \u00fei\u00f0, eiginkonur, vera eftirl\u00e1tar eiginm\u00f6nnum ykkar til \u00feess a\u00f0 jafnvel \u00feeir sem vilja ekki hl\u00fd\u00f0a or\u00f0inu geti unnist or\u00f0alaust vi\u00f0 heg\u00f0un kvenna sinna <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u00feegar \u00feeir sj\u00e1 ykkar grandv\u00f6ru og sk\u00edrl\u00edfu heg\u00f0un. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Skart ykkar s\u00e9 ekki ytra skraut, h\u00e1rgrei\u00f0slur, gullskraut og vi\u00f0hafnarb\u00faningur <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> heldur hinn huldi ma\u00f0ur hjartans, b\u00fainn \u00f3forgengilegri fegur\u00f0 h\u00f3gv\u00e6rs og hlj\u00f3\u00f0l\u00e1ts anda. \u00deetta er d\u00fdrm\u00e6tt \u00ed augum Gu\u00f0s. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00deannig skreyttu sig einnig for\u00f0um hinar helgu konur er settu von s\u00edna til Gu\u00f0s. \u00de\u00e6r voru eiginm\u00f6nnum s\u00ednum eftirl\u00e1tar <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> eins og Sara hl\u00fdddi Abraham og kalla\u00f0i hann herra. Og \u00fei\u00f0 eru\u00f0 or\u00f0nar b\u00f6rn hennar er \u00fei\u00f0 heg\u00f0i\u00f0 ykkur vel og l\u00e1ti\u00f0 ekkert skelfa ykkur. <br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Eins skulu\u00f0 \u00fei\u00f0, eiginmenn, s\u00fdna eiginkonum ykkar n\u00e6rg\u00e6tni sem hinum veikari og vir\u00f0a \u00fe\u00e6r mikils \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e6r munu erfa me\u00f0 ykkur n\u00e1\u00f0ina og l\u00edfi\u00f0. \u00de\u00e1 hindrast b\u00e6nir ykkar ekki.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">\u00d3ttaleysi \u00ed fylgd Krists<\/h3>\n<p><a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> A\u00f0 lokum, veri\u00f0 \u00f6ll samhuga, hluttekningars\u00f6m og elski\u00f0 hvert anna\u00f0, veri\u00f0 miskunns\u00f6m, au\u00f0mj\u00fak. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Gjaldi\u00f0 ekki illt me\u00f0 illu e\u00f0a illm\u00e6li fyrir illm\u00e6li heldur \u00fevert \u00e1 m\u00f3ti blessi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 eru\u00f0 til \u00feess k\u00f6llu\u00f0 a\u00f0 \u00f6\u00f0last blessunina. <br \/> <span class=\"ljodatexti\"> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_ljod\">10<\/span><\/a>S\u00e1 sem vill elska l\u00edfi\u00f0 <br \/>og sj\u00e1 g\u00f3\u00f0a daga <br \/>haldi tungu sinni fr\u00e1 vondu <br \/>og v\u00f6rum s\u00ednum fr\u00e1 svikatali. <br \/> <\/span> <span class=\"ljodatexti\"> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_ljod\">11<\/span><\/a>Hann snei\u00f0i hj\u00e1 illu og geri gott, <br \/>\u00e1stundi fri\u00f0 og keppi eftir honum. <br \/> <\/span> <span class=\"ljodatexti\"> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_ljod\">12<\/span><\/a>\u00dev\u00ed a\u00f0 augu Drottins hv\u00edla \u00e1 r\u00e9ttl\u00e1tum <br \/>og eyru hans hneigjast a\u00f0 b\u00e6num \u00feeirra. <br \/>En auglit Drottins er gegn \u00feeim sem illt gera. <\/span> <br \/> <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Hver er s\u00e1 er mun gera ykkur illt ef \u00fei\u00f0 kappkosti\u00f0 \u00fea\u00f0 sem er gott? <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> En \u00fe\u00f3tt \u00fei\u00f0 skyldu\u00f0 l\u00ed\u00f0a illt fyrir a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 sem er r\u00e9tt, \u00fe\u00e1 eru\u00f0 \u00fei\u00f0 s\u00e6l. Hr\u00e6\u00f0ist eigi og skelfist eigi fyrir neinum. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> En helgi\u00f0 Krist sem Drottin \u00ed hj\u00f6rtum ykkar. Veri\u00f0 \u00e6t\u00ed\u00f0 rei\u00f0ub\u00fain a\u00f0 svara hverjum manni sem krefst raka fyrir voninni sem \u00fei\u00f0 eigi\u00f0. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> En geri\u00f0 \u00fea\u00f0 me\u00f0 h\u00f3gv\u00e6r\u00f0 og vir\u00f0ingu og hafi\u00f0 g\u00f3\u00f0a samvisku til \u00feess a\u00f0 \u00feeir sem n\u00ed\u00f0a g\u00f3\u00f0a heg\u00f0un ykkar sem kristinna manna ver\u00f0i s\u00e9r til skammar vegna \u00feess sem \u00feeir m\u00e6la gegn ykkur. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Ef \u00fea\u00f0 er vilji Gu\u00f0s a\u00f0 \u00fei\u00f0 l\u00ed\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 betra a\u00f0 \u00fei\u00f0 l\u00ed\u00f0i\u00f0 fyrir a\u00f0 breyta vel en fyrir a\u00f0 breyta illa. <br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Kristur d\u00f3<span class=\"nedan_mal\" title=\" Annar lesh\u00e1ttur: lei\u00f0.\">[<\/span> fyrir syndir \u00ed eitt skipti fyrir \u00f6ll, r\u00e9ttl\u00e1tur fyrir rangl\u00e1ta, til \u00feess a\u00f0 geta leitt ykkur til Gu\u00f0s. Hann var deyddur a\u00f0 l\u00edkamanum til en lifandi ger \u00ed anda. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00deannig steig hann ni\u00f0ur til andanna \u00ed var\u00f0haldi og pr\u00e9dika\u00f0i fyrir \u00feeim. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00deeir h\u00f6f\u00f0u \u00f3hl\u00fd\u00f0nast fyrrum, \u00e1 d\u00f6gum N\u00f3a, \u00feegar Gu\u00f0 s\u00fdndi bi\u00f0lund og bei\u00f0 me\u00f0an \u00f6rkin var \u00ed sm\u00ed\u00f0um. \u00cd henni frelsu\u00f0ust f\u00e1einar &#8211; \u00fea\u00f0 er \u00e1tta &#8211; s\u00e1lir \u00ed vatni. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00deetta er fyrirmyndan sk\u00edrnarinnar sem n\u00fa frelsar ykkur. H\u00fan er ekki hreinsun \u00f3hreininda \u00e1 l\u00edkamanum heldur b\u00e6n til Gu\u00f0s um g\u00f3\u00f0a samvisku fyrir upprisu Jes\u00fa Krists <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> sem steig upp til himna, situr Gu\u00f0i \u00e1 h\u00e6gri h\u00f6nd, og englar, v\u00f6ld og kraftar eru undir hann lag\u00f0ir. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Eiginkonur og eiginmenn 1 Eins skulu\u00f0 \u00fei\u00f0, eiginkonur, vera eftirl\u00e1tar eiginm\u00f6nnum ykkar til \u00feess a\u00f0 jafnvel \u00feeir sem vilja ekki hl\u00fd\u00f0a or\u00f0inu geti unnist or\u00f0alaust vi\u00f0 heg\u00f0un kvenna sinna 2 \u00feegar \u00feeir sj\u00e1 ykkar grandv\u00f6ru og sk\u00edrl\u00edfu heg\u00f0un. 3 Skart ykkar s\u00e9 ekki ytra skraut, h\u00e1rgrei\u00f0slur, gullskraut og vi\u00f0hafnarb\u00faningur 4 heldur hinn huldi ma\u00f0ur hjartans, b\u00fainn \u00f3forgengilegri fegur\u00f0 h\u00f3gv\u00e6rs og hlj\u00f3\u00f0l\u00e1ts anda. \u00deetta er d\u00fdrm\u00e6tt \u00ed augum Gu\u00f0s. 5 \u00deannig skreyttu sig einnig for\u00f0um hinar helgu konur er settu von s\u00edna til Gu\u00f0s. \u00de\u00e6r voru eiginm\u00f6nnum s\u00ednum eftirl\u00e1tar 6 eins og Sara hl\u00fdddi Abraham og kalla\u00f0i hann herra. Og \u00fei\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrra-petursbref-3-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2771","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2771","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2771"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2771\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2771"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}