{"id":2762,"date":"2017-12-30T21:04:34","date_gmt":"2017-12-30T21:04:34","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/hebreabr%c2%8efi_-12-kafli\/"},"modified":"2019-08-27T00:15:36","modified_gmt":"2019-08-27T00:15:36","slug":"hebreabrefid-12-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/hebreabrefid-12-kafli\/","title":{"rendered":"Hebreabr\u00e9fi\u00f0 12. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Drottinn agar<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Fyrst vi\u00f0 erum umkringd sl\u00edkum fj\u00f6lda votta l\u00e9ttum \u00fe\u00e1 af okkur allri byr\u00f0i og vi\u00f0lo\u00f0andi synd og \u00fereytum \u00feolg\u00f3\u00f0 \u00fea\u00f0 skei\u00f0 sem vi\u00f0 eigum fram undan. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Beinum sj\u00f3num okkar til Jes\u00fa, h\u00f6fundar og fullkomnara tr\u00faarinnar. Hann lei\u00f0 me\u00f0 \u00feolinm\u00e6\u00f0i \u00e1 krossi og mat sm\u00e1n einskis af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann vissi hva\u00f0a gle\u00f0i bei\u00f0 hans og hefur n\u00fa sest til h\u00e6gri handar h\u00e1st\u00f3li Gu\u00f0s. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Vir\u00f0i\u00f0 hann fyrir ykkur sem \u00feola\u00f0 hefur sl\u00edkan fjandskap gegn s\u00e9r af syndurum, til \u00feess a\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00fereytist ekki og l\u00e1ti\u00f0 hugfallast. <br \/> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Enn sem komi\u00f0 er hefur bar\u00e1tta ykkar vi\u00f0 syndina ekki kosta\u00f0 ykkur l\u00edfi\u00f0. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 gleymt hvernig Gu\u00f0 hvetur ykkur eins og b\u00f6rn s\u00edn:<span class=\"nedan_mal\" title=\" Or\u00f0r\u00e9tt: syni.\">[<\/span> <br \/> <span class=\"ljodatexti\"> Barni\u00f0 mitt, <span class=\"nedan_mal\" title=\" Or\u00f0r\u00e9tt: Sonur minn.\">[<\/span> l\u00edtilsvir\u00f0 ekki aga Drottins<br \/>og l\u00e1t ekki heldur hugfallast er hann tyftar \u00feig. <br \/> <\/span> <span class=\"ljodatexti\"> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_ljod\">6<\/span><\/a>\u00dev\u00ed a\u00f0 Drottinn agar \u00feann sem hann elskar <br \/>og hirtir har\u00f0lega hvert \u00fea\u00f0 barn <span class=\"nedan_mal\" title=\" Or\u00f0r\u00e9tt: hvern \u00feann son.\">[<\/span> er hann tekur a\u00f0 s\u00e9r. <\/span> <br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00deoli\u00f0 aga. Gu\u00f0 fer me\u00f0 ykkur eins og b\u00f6rn s\u00edn.<span class=\"nedan_mal\" title=\" Or\u00f0r\u00e9tt: syni.\">[<\/span> \u00d6ll b\u00f6rn b\u00faa vi\u00f0 aga. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Ef Gu\u00f0 agar ykkur ekki \u00fe\u00e1 eru\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki b\u00f6rn hans heldur \u00fer\u00e6lborin. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Vi\u00f0 bjuggum vi\u00f0 aga jar\u00f0neskra foreldra og b\u00e1rum vir\u00f0ingu fyrir \u00feeim. Skyldum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 ekki miklu fremur l\u00fata aga himnesks f\u00f6\u00f0ur okkar og lifa? <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Foreldrar okkar \u00f6gu\u00f0u okkur um f\u00e1a daga eftir \u00fev\u00ed sem \u00feeim leist en okkur til gagns agar Gu\u00f0 okkur svo a\u00f0 vi\u00f0 ver\u00f0um heil\u00f6g eins og hann. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Um stundar sakir vir\u00f0ist allur agi a\u00f0 v\u00edsu ekki vera gle\u00f0iefni heldur hrygg\u00f0ar en eftir \u00e1 veitir hann \u00feeim er alist hafa upp vi\u00f0 hann fri\u00f0samt og r\u00e9ttl\u00e1tt l\u00edf. <br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> R\u00e9tti\u00f0 \u00fev\u00ed \u00far m\u00e1ttvana h\u00f6ndum og magn\u00ferota knj\u00e1m. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> L\u00e1ti\u00f0 f\u00e6tur ykkar feta beinar brautir til \u00feess a\u00f0 hi\u00f0 fatla\u00f0a vindist ekki \u00far li\u00f0i en ver\u00f0i heilt. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Hvatningar og fyrirm\u00e6li<\/h3>\n<p><a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Stundi\u00f0 fri\u00f0 vi\u00f0 alla menn og heilagt l\u00edferni \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1n \u00feess f\u00e6r enginn liti\u00f0 Drottin. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Hafi\u00f0 g\u00e1t \u00e1 a\u00f0 enginn missi af n\u00e1\u00f0 Gu\u00f0s, a\u00f0 engin beiskjur\u00f3t renni upp sem truflun valdi og margir saurgist af. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> G\u00e6ti\u00f0 \u00feess a\u00f0 eigi s\u00e9 neinn h\u00f3rkarl e\u00f0a vanheilagur eins og Esa\u00fa sem fyrir einn m\u00e1lsver\u00f0 l\u00e9t af hendi frumbur\u00f0arr\u00e9tt sinn. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 viti\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 f\u00f3r l\u00edka svo fyrir honum a\u00f0 hann var r\u00e6kur ger \u00feegar hann s\u00ed\u00f0ar vildi \u00f6\u00f0last blessunina \u00fe\u00f3 a\u00f0 hann gr\u00e1tb\u00e6ndi um hana. Hann f\u00e9kk ekki f\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 i\u00f0rast. <br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 eru\u00f0 ekki komin til fjalls sem \u00e1 ver\u00f0ur \u00fereifa\u00f0, ekki til brennandi elds og sorta, myrkurs, ofvi\u00f0ris <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> og b\u00e1s\u00fanuhlj\u00f3ms og raustar sem tala\u00f0i svo a\u00f0 \u00feeir sem hana heyr\u00f0u b\u00e1\u00f0ust undan \u00fev\u00ed a\u00f0 meira v\u00e6ri til s\u00edn tala\u00f0. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeir \u00feoldu ekki \u00fea\u00f0 sem fyrir var skipa\u00f0: \u201e\u00de\u00f3 a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 ekki nema skepna, sem snertir fjalli\u00f0, skal h\u00fan gr\u00fdtt ver\u00f0a.\u201c <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Svo \u00f3gurlegt var \u00fea\u00f0 sem fyrir augu bar a\u00f0 M\u00f3se sag\u00f0i: \u201e\u00c9g er mj\u00f6g hr\u00e6ddur og skelfdur.\u201c <br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Nei, \u00fei\u00f0 eru\u00f0 komin til S\u00edonfjalls og borgar Gu\u00f0s lifanda, hinnar himnesku Jer\u00fasalem, til tug\u00fe\u00fasunda engla, til h\u00e1t\u00ed\u00f0arsamkomu og <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> safna\u00f0ar frumgetinna, sem \u00e1 himnum eru skr\u00e1\u00f0ir, til Gu\u00f0s, sem d\u00e6mir alla, og til anda r\u00e9ttl\u00e1tra manna, sem fullkomnir eru or\u00f0nir, <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> og til Jes\u00fa, me\u00f0algangara n\u00fds s\u00e1ttm\u00e1la, og til bl\u00f3\u00f0sins sem hreinsar og talar kr\u00f6ftuglegar en bl\u00f3\u00f0 Abels. <br \/> <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> G\u00e6ti\u00f0 \u00feess a\u00f0 \u00fei\u00f0 hafni\u00f0 ekki \u00feeim sem talar. \u00deeir sem h\u00f6fnu\u00f0u \u00feeim er gaf gu\u00f0lega bendingu \u00e1 j\u00f6r\u00f0u komust ekki undan. Miklu s\u00ed\u00f0ur munum vi\u00f0 komast undan ef vi\u00f0 gerumst fr\u00e1hverf honum er gefur gu\u00f0lega bendingu fr\u00e1 himnum. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Raust hans l\u00e9t j\u00f6r\u00f0ina bifast fyrrum. En n\u00fa hefur hann lofa\u00f0: \u201eEnn einu sinni mun \u00e9g hr\u00e6ra j\u00f6r\u00f0ina og ekki hana eina heldur og himininn.\u201c <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Or\u00f0in: \u201eEnn einu sinni\u201c s\u00fdna a\u00f0 \u00fea\u00f0 sem bifast er skapa\u00f0 og hverfur til \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 standi st\u00f6\u00f0ugt sem eigi bifast. <br \/> <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00dear sem vi\u00f0 \u00fev\u00ed f\u00e1um r\u00edki, sem ekki getur bifast, skulum vi\u00f0 \u00feakka \u00fea\u00f0 og \u00fej\u00f3na Gu\u00f0i, svo sem honum \u00fe\u00f3knast, me\u00f0 lotningu og \u00f3tta. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 okkar Gu\u00f0 er ey\u00f0andi eldur. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Drottinn agar 1 Fyrst vi\u00f0 erum umkringd sl\u00edkum fj\u00f6lda votta l\u00e9ttum \u00fe\u00e1 af okkur allri byr\u00f0i og vi\u00f0lo\u00f0andi synd og \u00fereytum \u00feolg\u00f3\u00f0 \u00fea\u00f0 skei\u00f0 sem vi\u00f0 eigum fram undan. 2 Beinum sj\u00f3num okkar til Jes\u00fa, h\u00f6fundar og fullkomnara tr\u00faarinnar. Hann lei\u00f0 me\u00f0 \u00feolinm\u00e6\u00f0i \u00e1 krossi og mat sm\u00e1n einskis af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann vissi hva\u00f0a gle\u00f0i bei\u00f0 hans og hefur n\u00fa sest til h\u00e6gri handar h\u00e1st\u00f3li Gu\u00f0s. 3 Vir\u00f0i\u00f0 hann fyrir ykkur sem \u00feola\u00f0 hefur sl\u00edkan fjandskap gegn s\u00e9r af syndurum, til \u00feess a\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00fereytist ekki og l\u00e1ti\u00f0 hugfallast. 4 Enn sem komi\u00f0 er hefur bar\u00e1tta ykkar vi\u00f0 syndina <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/hebreabrefid-12-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2762","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2762","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2762"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2762\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2762"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}