{"id":2761,"date":"2017-12-30T21:04:34","date_gmt":"2017-12-30T21:04:34","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/hebreabr%c2%8efi_-11-kafli\/"},"modified":"2019-08-27T00:15:36","modified_gmt":"2019-08-27T00:15:36","slug":"hebreabrefid-11-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/hebreabrefid-11-kafli\/","title":{"rendered":"Hebreabr\u00e9fi\u00f0 11. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Fyrir tr\u00fa<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Tr\u00fain er fullvissa um \u00fea\u00f0 sem menn vona, sannf\u00e6ring um \u00fe\u00e1 hluti sem eigi er au\u00f0i\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Fyrir tr\u00fa hlutu mennirnir fyrr \u00e1 t\u00ed\u00f0um vel\u00fe\u00f3knun Gu\u00f0s. <br \/> <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Fyrir tr\u00fa skiljum vi\u00f0 a\u00f0 Gu\u00f0 skapa\u00f0i heimana me\u00f0 or\u00f0i s\u00ednu og a\u00f0 hi\u00f0 s\u00fdnilega var\u00f0 til af hinu \u00f3s\u00fdnilega. <br \/> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Fyrir tr\u00fa bar Abel fram fyrir Gu\u00f0 betri f\u00f3rn en Kain af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann treysti Gu\u00f0i, og fyrir tr\u00fa f\u00e9kk hann \u00feann vitnisbur\u00f0 a\u00f0 hann v\u00e6ri r\u00e9ttl\u00e1tur er Gu\u00f0 bar vitni um f\u00f3rn hans. Me\u00f0 tr\u00fa sinni talar hann enn \u00fe\u00f3tt d\u00e1inn s\u00e9. <br \/> <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Fyrir tr\u00fa var Enok burt numinn til \u00feess a\u00f0 hann skyldi ekki deyja eins og rita\u00f0 er: <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u201eEkki var hann framar a\u00f0 finna af \u00fev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 haf\u00f0i numi\u00f0 hann burt.\u201c \u00c1\u00f0ur en hann var burt numinn haf\u00f0i hann fengi\u00f0 \u00feann vitnisbur\u00f0 \u201ea\u00f0 hann hef\u00f0i veri\u00f0 Gu\u00f0i \u00fe\u00f3knanlegur\u201c. \u00d3gerlegt er a\u00f0 \u00fe\u00f3knast Gu\u00f0i \u00e1n tr\u00faar \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00e1 sem vill n\u00e1lgast Gu\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 tr\u00faa \u00fev\u00ed a\u00f0 hann s\u00e9 til og a\u00f0 hann umbuni \u00feeim er leita hans. <br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Fyrir tr\u00fa f\u00e9kk N\u00f3i bendingu um \u00fea\u00f0 sem enn \u00fe\u00e1 var ekki au\u00f0i\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1. Hann hl\u00fdddi Gu\u00f0i og sm\u00ed\u00f0a\u00f0i \u00f6rk til \u00feess a\u00f0 bjarga heimilisf\u00f3lki s\u00ednu. Me\u00f0 tr\u00fa sinni s\u00fdndi hann a\u00f0 heimurinn haf\u00f0i \u00e1 r\u00f6ngu a\u00f0 standa og var\u00f0 erfingi r\u00e9ttl\u00e6tisins af tr\u00fanni. <br \/> <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Fyrir tr\u00fa hl\u00fdddi Abraham, er hann var kalla\u00f0ur, og f\u00f3r burt til sta\u00f0ar sem hann \u00e1tti a\u00f0 f\u00e1 til eignar. Hann f\u00f3r burt og vissi ekki hvert lei\u00f0in l\u00e1. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Fyrir tr\u00fa settist hann a\u00f0 \u00ed hinu fyrirheitna landi eins og \u00fatlendingur og haf\u00f0ist vi\u00f0 \u00ed tj\u00f6ldum \u00e1samt \u00cdsak og Jakobi sem Gu\u00f0 haf\u00f0i heiti\u00f0 \u00fev\u00ed sama og honum. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 hann v\u00e6nti \u00feeirrar borgar sem hefur traustan grunn, \u00feeirrar sem Gu\u00f0 hanna\u00f0i og reisti. <br \/> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Fyrir tr\u00fa \u00f6\u00f0la\u00f0ist Abraham kraft til a\u00f0 eignast son og \u00fe\u00f3 var Sara \u00f3byrja og hann kominn yfir aldur. Hann treysti \u00feeim sem fyrirheiti\u00f0 haf\u00f0i gefi\u00f0.<span class=\"nedan_mal\" title=\" Annar lesh\u00e1ttur: Fyrir tr\u00fa \u00f6\u00f0la\u00f0ist Sara \u2026 og \u00fe\u00f3 var h\u00fan \u00f3byrja og komin yfir aldur. H\u00fan \u2026\">[<\/span> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00deess vegna kom \u00fat af honum, einum manni, og \u00fea\u00f0 mj\u00f6g ellihrumum, sl\u00edk ni\u00f0jamerg\u00f0 sem stj\u00f6rnur eru \u00e1 himni og sandkorn \u00e1 sj\u00e1varstr\u00f6nd er ekki ver\u00f0ur t\u00f6lu \u00e1 komi\u00f0. <br \/> <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Allir \u00feessir menn d\u00f3u \u00ed tr\u00fa \u00e1n \u00feess a\u00f0 hafa \u00f6\u00f0last fyrirheitin. \u00deeir s\u00e1u \u00feau \u00e1lengdar og f\u00f6gnu\u00f0u \u00feeim og j\u00e1tu\u00f0u a\u00f0 \u00feeir v\u00e6ru gestir og \u00fatlendingar \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00deeir sem sl\u00edkt m\u00e6la s\u00fdna me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir eru a\u00f0 leita eigin \u00e6ttjar\u00f0ar. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Hef\u00f0u \u00feeir haft \u00ed huga \u00e6ttj\u00f6r\u00f0ina sem \u00feeir f\u00f3ru fr\u00e1, hef\u00f0u \u00feeir haft t\u00edma til a\u00f0 sn\u00faa \u00feanga\u00f0 aftur. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> En n\u00fa \u00fer\u00e1\u00f0u \u00feeir betri \u00e6ttj\u00f6r\u00f0 og himneska. \u00deess vegna blyg\u00f0ast Gu\u00f0 s\u00edn ekki fyrir a\u00f0 kallast Gu\u00f0 \u00feeirra \u00fev\u00ed a\u00f0 borg bj\u00f3 hann \u00feeim. <br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Fyrir tr\u00fa f\u00f3rnf\u00e6r\u00f0i Abraham \u00cdsak er hann var reyndur. Og Abraham, sem fengi\u00f0 haf\u00f0i fyrirheitin, var rei\u00f0ub\u00fainn a\u00f0 f\u00f3rnf\u00e6ra einkasyni s\u00ednum. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Vi\u00f0 Abraham haf\u00f0i Gu\u00f0 m\u00e6lt: \u201eAfkomendur \u00cdsaks munu taldir ver\u00f0a ni\u00f0jar \u00fe\u00ednir.\u201c <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Hann hug\u00f0i a\u00f0 Gu\u00f0 v\u00e6ri \u00feess jafnvel megnugur a\u00f0 vekja upp fr\u00e1 dau\u00f0um og hann heimti l\u00edka son sinn \u00far helju ef svo m\u00e1 a\u00f0 or\u00f0i komast. <br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Fyrir tr\u00fa blessa\u00f0i \u00cdsak \u00fe\u00e1 Jakob og Esa\u00fa einnig fyrir \u00f3komna t\u00edma. <br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Fyrir tr\u00fa blessa\u00f0i Jakob, a\u00f0 dau\u00f0a kominn, b\u00e1\u00f0a sonu J\u00f3sefs, \u201elaut fram \u00e1 stafsh\u00faninn og ba\u00f0st fyrir\u201c. <br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Fyrir tr\u00fa minntist J\u00f3sef vi\u00f0 \u00e6vilokin \u00e1 brottf\u00f6r \u00cdsraelsmanna og ger\u00f0i r\u00e1\u00f0st\u00f6fun fyrir beinum s\u00ednum. <br \/> <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Fyrir tr\u00fa leyndu foreldrar M\u00f3se honum \u00ed \u00ferj\u00e1 m\u00e1nu\u00f0i eftir f\u00e6\u00f0ingu hans af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir s\u00e1u a\u00f0 sveinninn var fr\u00ed\u00f0ur og l\u00e9tu eigi skelfast af skipun konungsins. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Fyrir tr\u00fa hafna\u00f0i M\u00f3se \u00fev\u00ed er hann var or\u00f0inn fullt\u00ed\u00f0a ma\u00f0ur a\u00f0 vera talinn d\u00f3ttursonur fara\u00f3s <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> og kaus fremur a\u00f0 \u00feola illt me\u00f0 l\u00fd\u00f0 Gu\u00f0s en nj\u00f3ta skammvinns una\u00f0ar af syndinni. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Hann taldi h\u00e1\u00f0ung vegna Krists meiri au\u00f0 en fj\u00e1rsj\u00f3\u00f0u Egyptalands \u00fev\u00ed a\u00f0 hann horf\u00f0i fram til launanna. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Fyrir tr\u00fa yfirgaf hann Egyptaland og \u00f3tta\u00f0ist ekki rei\u00f0i konungsins en var \u00f6ruggur eins og hann s\u00e6i hinn \u00f3s\u00fdnilega. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Fyrir tr\u00fa h\u00e9lt hann p\u00e1ska og l\u00e9t rj\u00f3\u00f0a bl\u00f3\u00f0inu \u00e1 h\u00fasin til \u00feess a\u00f0 ey\u00f0andinn snerti ekki frumbur\u00f0ina. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Fyrir tr\u00fa gengu \u00feeir gegnum Rau\u00f0ahafi\u00f0 sem um \u00feurrt land og er Egyptar freistu\u00f0u \u00feess drukknu\u00f0u \u00feeir. <br \/> <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> Fyrir tr\u00fa hrundu m\u00farar Jer\u00edk\u00f3borgar er menn h\u00f6f\u00f0u gengi\u00f0 \u00ed kringum \u00fe\u00e1 \u00ed sj\u00f6 daga. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> Fyrir tr\u00fa t\u00f3k sk\u00e6kjan Rahab vinsamlega \u00e1 m\u00f3ti nj\u00f3snarm\u00f6nnunum og fyrir brag\u00f0i\u00f0 f\u00f3rst h\u00fan ekki \u00e1samt hinum \u00f3hl\u00fd\u00f0nu. <br \/> <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> Hva\u00f0 \u00e1 \u00e9g a\u00f0 or\u00f0lengja framar um \u00feetta? Mig mundi skorta t\u00edma ef \u00e9g f\u00e6ri a\u00f0 segja fr\u00e1 G\u00eddeon, Barak, Samson og Jefta og af Dav\u00ed\u00f0, Sam\u00fael og sp\u00e1m\u00f6nnunum. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Fyrir tr\u00fa unnu \u00feeir sigur \u00e1 konungsr\u00edkjum, i\u00f0ku\u00f0u r\u00e9ttl\u00e6ti, \u00f6\u00f0lu\u00f0ust fyrirheit. \u00deeir byrg\u00f0u gin lj\u00f3na, <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> sl\u00f6kktu eldsb\u00e1l, komust undan sver\u00f0seggjum. \u00deeir ur\u00f0u styrkir \u00fe\u00f3tt \u00e1\u00f0ur v\u00e6ru \u00feeir veikir, ger\u00f0ust \u00f6flugir \u00ed str\u00ed\u00f0i og st\u00f6kktu fylkingum \u00f3vina \u00e1 fl\u00f3tta. <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> Konur heimtu s\u00edna framli\u00f0nu \u00far helju. A\u00f0rir voru pynda\u00f0ir og \u00fe\u00e1gu ekki lausn til \u00feess a\u00f0 \u00f6\u00f0last betri upprisu. <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> A\u00f0rir ur\u00f0u a\u00f0 s\u00e6ta h\u00e1\u00f0syr\u00f0um og h\u00fa\u00f0strokum og \u00fear \u00e1 ofan fj\u00f6trum og fangelsi. <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> \u00deeir voru gr\u00fdttir, saga\u00f0ir \u00ed sundur,<span class=\"nedan_mal\" title=\" Sum handrit b\u00e6ta vi\u00f0 or\u00f0unum: \u00feeirra var freista\u00f0.\">[<\/span> h\u00f6ggnir me\u00f0 sver\u00f0i. \u00deeir r\u00e1fu\u00f0u \u00ed g\u00e6rum og geitaskinnum, alls vana, a\u00f0\u00ferengdir og illa haldnir. <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> Ekki \u00e1tti heimurinn sl\u00edka menn skili\u00f0. \u00deeir reiku\u00f0u um \u00f3bygg\u00f0ir og fj\u00f6ll og h\u00e9ldust vi\u00f0 \u00ed hellum og gj\u00f3tum. <br \/> <a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> En \u00fe\u00f3 a\u00f0 allir \u00feessir menn fengju g\u00f3\u00f0an vitnisbur\u00f0 fyrir tr\u00fa s\u00edna fengu \u00feeir \u00fe\u00f3 ekki a\u00f0 sj\u00e1 fyrirheiti\u00f0 r\u00e6tast. <a name=\"40\"><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span><\/a> Gu\u00f0 haf\u00f0i s\u00e9\u00f0 okkur fyrir \u00fev\u00ed sem betra var: \u00c1n okkar skyldu \u00feeir ekki fullkomnir ver\u00f0a. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fyrir tr\u00fa 1 Tr\u00fain er fullvissa um \u00fea\u00f0 sem menn vona, sannf\u00e6ring um \u00fe\u00e1 hluti sem eigi er au\u00f0i\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1. 2 Fyrir tr\u00fa hlutu mennirnir fyrr \u00e1 t\u00ed\u00f0um vel\u00fe\u00f3knun Gu\u00f0s. 3 Fyrir tr\u00fa skiljum vi\u00f0 a\u00f0 Gu\u00f0 skapa\u00f0i heimana me\u00f0 or\u00f0i s\u00ednu og a\u00f0 hi\u00f0 s\u00fdnilega var\u00f0 til af hinu \u00f3s\u00fdnilega. 4 Fyrir tr\u00fa bar Abel fram fyrir Gu\u00f0 betri f\u00f3rn en Kain af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann treysti Gu\u00f0i, og fyrir tr\u00fa f\u00e9kk hann \u00feann vitnisbur\u00f0 a\u00f0 hann v\u00e6ri r\u00e9ttl\u00e1tur er Gu\u00f0 bar vitni um f\u00f3rn hans. Me\u00f0 tr\u00fa sinni talar hann enn \u00fe\u00f3tt d\u00e1inn s\u00e9. 5 Fyrir tr\u00fa <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/hebreabrefid-11-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2761","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2761","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2761"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2761\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2761"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}