{"id":2710,"date":"2017-12-30T21:04:20","date_gmt":"2017-12-30T21:04:20","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/galatabr%c2%8efi_-2-kafli\/"},"modified":"2019-08-26T23:58:19","modified_gmt":"2019-08-26T23:58:19","slug":"galatabrefid-2-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/galatabrefid-2-kafli\/","title":{"rendered":"Galatabr\u00e9fi\u00f0 2. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> P\u00e1ll og postularnir \u00ed Jer\u00fasalem<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Fj\u00f3rt\u00e1n \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar f\u00f3r \u00e9g aftur upp til Jer\u00fasalem \u00e1samt Barnabasi og t\u00f3k l\u00edka T\u00edtus me\u00f0 m\u00e9r. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u00c9g f\u00f3r \u00feanga\u00f0 eftir opinberun og \u00fatsk\u00fdr\u00f0i einslega fyrir \u00feeim sem \u00ed \u00e1liti voru fagna\u00f0arerindi\u00f0 sem \u00e9g bo\u00f0a hei\u00f0ingjum. \u00dea\u00f0 m\u00e1tti ekki henda a\u00f0 starf mitt v\u00e6ri og hef\u00f0i veri\u00f0 til einskis. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Ekki einu sinni T\u00edtus, sem me\u00f0 m\u00e9r var og var gr\u00edskur ma\u00f0ur, var neyddur til a\u00f0 l\u00e1ta umskerast. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 vildu a\u00f0eins falsbr\u00e6\u00f0ur er illu heilli haf\u00f0i veri\u00f0 hleypt inn og laumast h\u00f6f\u00f0u inn til a\u00f0 nj\u00f3sna um frelsi okkar sem vi\u00f0 h\u00f6fum \u00ed Kristi Jes\u00fa. \u00deeir vildu hneppa okkur \u00ed \u00fer\u00e6ld\u00f3m. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> En undan \u00feeim l\u00e9tum vi\u00f0 ekki eitt andartak til \u00feess a\u00f0 \u00fei\u00f0 g\u00e6tu\u00f0 haft fagna\u00f0arerindi\u00f0 \u00f3brengla\u00f0. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Og \u00feeir sem \u00ed \u00e1liti voru l\u00f6g\u00f0u ekkert frekara fyrir mig. Hva\u00f0 \u00feeir einu sinni voru skiptir mig engu, Gu\u00f0 fer ekki \u00ed manngreinar\u00e1lit. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00devert \u00e1 m\u00f3ti s\u00e1u \u00feeir a\u00f0 m\u00e9r var tr\u00faa\u00f0 fyrir fagna\u00f0arerindinu til \u00f3umskorinna manna eins og P\u00e9tri til umskorinna <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00e1 sem hefur eflt P\u00e9tur til postulad\u00f3ms me\u00f0al hinna umskornu hefur einnig eflt mig til postulad\u00f3ms me\u00f0al hinna \u00f3umskornu. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Og er Jakob, Kefas og J\u00f3hannes, sem \u00e1litnir voru m\u00e1ttarst\u00f3lparnir, h\u00f6f\u00f0u komist a\u00f0 raun um hv\u00edl\u00edk n\u00e1\u00f0 m\u00e9r var veitt, \u00fe\u00e1 r\u00e9ttu \u00feeir m\u00e9r og Barnabasi h\u00f6nd s\u00edna til samkomulags: Vi\u00f0 skyldum fara til hinna \u00f3umskornu en \u00feeir til hinna umskornu. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 eitt var til skili\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0 skyldum minnast hinna f\u00e1t\u00e6ku og einmitt \u00feetta hef \u00e9g l\u00edka<span class=\"nedan_mal\" title=\" E\u00f0a: og \u00fea\u00f0 haf\u00f0i \u00e9g l\u00edka.\">[<\/span> kappkosta\u00f0 a\u00f0 gera. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">R\u00e9ttl\u00e6ting af tr\u00fa<\/h3>\n<p><a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> En \u00feegar Kefas kom til Ant\u00edokk\u00edu andm\u00e6lti \u00e9g honum upp \u00ed opi\u00f0 ge\u00f0i\u00f0 \u00fev\u00ed hann var sannur a\u00f0 s\u00f6k. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00c1\u00f0ur en menn nokkrir komu fr\u00e1 Jakobi haf\u00f0i hann seti\u00f0 a\u00f0 bor\u00f0i me\u00f0 hei\u00f0ingjum en er \u00feeir komu dr\u00f3 hann sig \u00ed hl\u00e9 og t\u00f3k sig \u00fat \u00far af \u00f3tta vi\u00f0 \u00fe\u00e1 sem h\u00e9ldu fram umskurninni. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Hinir Gy\u00f0ingarnir t\u00f3ku einnig a\u00f0 hr\u00e6sna me\u00f0 honum svo a\u00f0 jafnvel Barnabas l\u00e9t dragast me\u00f0 af hr\u00e6sni \u00feeirra. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> En \u00feegar \u00e9g s\u00e1 a\u00f0 \u00feeir gengu ekki beint eftir sannleika fagna\u00f0arerindisins sag\u00f0i \u00e9g vi\u00f0 Kefas \u00ed allra \u00e1heyrn: \u201e\u00dar \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa, sem ert Gy\u00f0ingur, lifir a\u00f0 hei\u00f0ingja si\u00f0um en eigi Gy\u00f0inga, hvernig getur \u00fe\u00fa \u00fe\u00e1 neytt \u00fe\u00e1 sem ekki eru Gy\u00f0ingar til a\u00f0 lifa eins og Gy\u00f0ingar?\u201c <br \/> <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Vi\u00f0 erum f\u00e6ddir Gy\u00f0ingar, ekki hei\u00f0nir syndarar a\u00f0 uppruna. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> En vi\u00f0 vitum a\u00f0 ma\u00f0urinn r\u00e9ttl\u00e6tist ekki af l\u00f6gm\u00e1lsverkum heldur fyrir tr\u00fa \u00e1 Jes\u00fa Krist. Og vi\u00f0 t\u00f3kum tr\u00fa \u00e1 Krist Jes\u00fa til \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ttumst af tr\u00fa \u00e1 Krist en ekki af l\u00f6gm\u00e1lsverkum. Enda r\u00e9ttl\u00e6tist enginn lifandi ma\u00f0ur af l\u00f6gm\u00e1lsverkum. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> En ef vi\u00f0 n\u00fa sj\u00e1lfir reynumst syndarar, \u00feegar vi\u00f0 leitumst vi\u00f0 a\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6tast \u00ed Kristi, er \u00fe\u00e1 Kristur farinn a\u00f0 \u00fej\u00f3na syndinni? Fjarri fer \u00fev\u00ed. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Fari \u00e9g a\u00f0 byggja upp aftur \u00fea\u00f0 sem \u00e9g braut ni\u00f0ur, \u00fe\u00e1 geri \u00e9g sj\u00e1lfan mig beran a\u00f0 afbroti. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 leiddi mig til dau\u00f0a svo a\u00f0 n\u00fa er \u00e9g ekki lengur undir valdi \u00feess heldur lifi Gu\u00f0i. \u00c9g er krossfestur me\u00f0 Kristi. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Sj\u00e1lfur lifi \u00e9g ekki framar heldur lifir Kristur \u00ed m\u00e9r. L\u00edfinu, sem \u00e9g lifi n\u00fa h\u00e9r \u00e1 j\u00f6r\u00f0, lifi \u00e9g \u00ed tr\u00fanni \u00e1 Gu\u00f0s son sem elska\u00f0i mig og lag\u00f0i sj\u00e1lfan sig \u00ed s\u00f6lurnar fyrir mig. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00c9g \u00f3n\u00fdti ekki n\u00e1\u00f0 Gu\u00f0s. Ef r\u00e9ttl\u00e6ting f\u00e6st fyrir l\u00f6gm\u00e1l \u00fe\u00e1 hefur Kristur d\u00e1i\u00f0 til einskis.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>P\u00e1ll og postularnir \u00ed Jer\u00fasalem 1 Fj\u00f3rt\u00e1n \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar f\u00f3r \u00e9g aftur upp til Jer\u00fasalem \u00e1samt Barnabasi og t\u00f3k l\u00edka T\u00edtus me\u00f0 m\u00e9r. 2 \u00c9g f\u00f3r \u00feanga\u00f0 eftir opinberun og \u00fatsk\u00fdr\u00f0i einslega fyrir \u00feeim sem \u00ed \u00e1liti voru fagna\u00f0arerindi\u00f0 sem \u00e9g bo\u00f0a hei\u00f0ingjum. \u00dea\u00f0 m\u00e1tti ekki henda a\u00f0 starf mitt v\u00e6ri og hef\u00f0i veri\u00f0 til einskis. 3 Ekki einu sinni T\u00edtus, sem me\u00f0 m\u00e9r var og var gr\u00edskur ma\u00f0ur, var neyddur til a\u00f0 l\u00e1ta umskerast. 4 \u00dea\u00f0 vildu a\u00f0eins falsbr\u00e6\u00f0ur er illu heilli haf\u00f0i veri\u00f0 hleypt inn og laumast h\u00f6f\u00f0u inn til a\u00f0 nj\u00f3sna um frelsi okkar sem vi\u00f0 h\u00f6fum <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/galatabrefid-2-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2710","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2710","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2710"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2710\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2710"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}