{"id":2688,"date":"2017-12-30T21:04:15","date_gmt":"2017-12-30T21:04:15","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrra-korintubr%c2%8ef-9-kafli\/"},"modified":"2019-08-26T23:45:16","modified_gmt":"2019-08-26T23:45:16","slug":"fyrra-korintubref-9-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrra-korintubref-9-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrra Korintubr\u00e9f 9. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Allt vegna fagna\u00f0arerindisins<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Er \u00e9g ekki frj\u00e1ls? Er \u00e9g ekki postuli? Hef \u00e9g ekki s\u00e9\u00f0 Jes\u00fa, Drottin vorn? Eru\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki verk mitt sem \u00e9g hef unni\u00f0 me\u00f0 hj\u00e1lp Drottins? <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u00de\u00f3tt \u00e9g v\u00e6ri ekki postuli fyrir a\u00f0ra, \u00fe\u00e1 er \u00e9g \u00fea\u00f0 fyrir ykkur. \u00dei\u00f0 eru\u00f0 sta\u00f0festing Drottins \u00e1 postulad\u00f3mi m\u00ednum. <br \/> <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00deetta er v\u00f6rn m\u00edn gagnvart \u00feeim sem vilja d\u00e6ma um mig. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Hef \u00e9g ekki r\u00e9tt til a\u00f0 eta og drekka? <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Hef \u00e9g ekki r\u00e9tt til a\u00f0 fer\u00f0ast um me\u00f0 kristna eiginkonu alveg eins og hinir postularnir og br\u00e6\u00f0ur Drottins og Kefas? <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> E\u00f0a erum vi\u00f0 Barnabas \u00feeir einu sem eru ekki undan\u00feegnir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 vinna fyrir uppihaldi? <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Hver fer nokkurn t\u00edma \u00ed str\u00ed\u00f0 \u00e1 eigin kostna\u00f0? Hver plantar v\u00edngar\u00f0 og neytir ekki \u00e1vaxtar hans? Hver g\u00e6tir hjar\u00f0ar og neytir ekki af mj\u00f3lk hjar\u00f0arinnar? <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Segi \u00e9g \u00feetta af mannlegri reynslu e\u00f0a segir ekki einnig l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 \u00fea\u00f0? <br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Rita\u00f0 er \u00ed l\u00f6gm\u00e1li M\u00f3se: \u201e\u00de\u00fa skalt ekki m\u00falbinda uxann er hann \u00fereskir.\u201c Er Gu\u00f0 h\u00e9r a\u00f0 tala um uxana? <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> E\u00f0a segir hann \u00fea\u00f0 ekki \u00f6llu heldur okkar vegna? J\u00fa, okkar vegna stendur skrifa\u00f0 a\u00f0 s\u00e1 sem pl\u00e6gir og s\u00e1 sem \u00fereskir eigi a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 me\u00f0 von um hlutdeild \u00ed uppskerunni. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Ef \u00e9g n\u00fa hef s\u00e1\u00f0 hj\u00e1 ykkur \u00fev\u00ed sem andlegt er, er \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 of miki\u00f0 a\u00f0 \u00e9g uppskeri hj\u00e1 ykkur \u00fea\u00f0 sem l\u00edkamlegt er? <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Ef a\u00f0rir hafa \u00feennan r\u00e9tt hj\u00e1 ykkur, hef \u00e9g hann \u00fe\u00e1 ekki miklu fremur? <br \/>En \u00e9g hef ekki hagn\u00fdtt m\u00e9r \u00feennan r\u00e9tt heldur s\u00e6tti mig vi\u00f0 allt til \u00feess a\u00f0 t\u00e1lma ekki fagna\u00f0arerindinu um Krist. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Viti\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki a\u00f0 \u00feeir sem vinna vi\u00f0 helgid\u00f3minn lifa af \u00fev\u00ed sem kemur \u00far helgid\u00f3minum og \u00feeir sem starfa vi\u00f0 altari\u00f0 f\u00e1 hlut af \u00fev\u00ed sem f\u00f3rna\u00f0 er \u00e1 altarinu? <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00deannig hefur og Drottinn fyrirskipa\u00f0 a\u00f0 \u00feeir sem bo\u00f0a fagna\u00f0arerindi\u00f0 skuli lifa af fagna\u00f0arerindinu. <br \/> <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> En \u00e9g hef ekki hagn\u00fdtt m\u00e9r neitt af \u00feessu og \u00e9g skrifa \u00feetta ekki heldur til \u00feess a\u00f0 svo ver\u00f0i vi\u00f0 mig gert. M\u00e9r v\u00e6ri betra a\u00f0 deyja. Enginn skal \u00f3n\u00fdta \u00fea\u00f0 sem \u00e9g tel m\u00e9r til gildis. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00de\u00f3tt \u00e9g s\u00e9 a\u00f0 bo\u00f0a fagna\u00f0arerindi\u00f0, \u00fe\u00e1 gefur \u00fea\u00f0 m\u00e9r enga \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 miklast af \u00fev\u00ed. \u00c9g er kn\u00fainn til \u00feess. Vei m\u00e9r ef \u00e9g bo\u00f0a \u00fea\u00f0 ekki. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Geri \u00e9g \u00feetta af frj\u00e1lsum vilja ber m\u00e9r a\u00f0 f\u00e1 laun. En finni \u00e9g mig til \u00feess kn\u00fainn hefur Gu\u00f0 fali\u00f0 m\u00e9r r\u00e1\u00f0smennsku. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Hver eru \u00fe\u00e1 laun m\u00edn? \u00deau a\u00f0 \u00e9g bo\u00f0a fagna\u00f0arerindi\u00f0 \u00e1n endurgjalds og hagn\u00fdti m\u00e9r ekki \u00fea\u00f0 sem \u00e9g \u00e1 r\u00e9tt \u00e1. <br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00de\u00f3tt \u00e9g s\u00e9 \u00f6llum \u00f3h\u00e1\u00f0ur hef \u00e9g gert sj\u00e1lfan mig a\u00f0 \u00fer\u00e6li allra til \u00feess a\u00f0 \u00e1vinna sem flesta. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00c9g hef veri\u00f0 Gy\u00f0ingum sem Gy\u00f0ingur til \u00feess a\u00f0 \u00e1vinna Gy\u00f0inga. \u00de\u00f3tt \u00e9g lifi ekki eftir l\u00f6gm\u00e1li M\u00f3se breyti \u00e9g eftir \u00fev\u00ed til \u00feess a\u00f0 \u00e1vinna \u00fe\u00e1 sem fara eftir \u00fev\u00ed. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Til \u00feess a\u00f0 \u00e1vinna \u00fe\u00e1 sem \u00feekkja ekki l\u00f6gm\u00e1l M\u00f3se breyti \u00e9g ekki eftir \u00fev\u00ed enda \u00fe\u00f3tt \u00e9g s\u00e9 ekki laus vi\u00f0 l\u00f6gm\u00e1l Gu\u00f0s heldur bundinn l\u00f6gm\u00e1li Krists. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Hinum \u00f3styrku hef \u00e9g veri\u00f0 \u00f3styrkur til \u00feess a\u00f0 \u00e1vinna hina \u00f3styrku. \u00c9g hef veri\u00f0 \u00f6llum allt til \u00feess a\u00f0 \u00e9g geti a\u00f0 minnsta kosti frelsa\u00f0 nokkra. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Allt geri \u00e9g vegna fagna\u00f0arerindisins til \u00feess a\u00f0 \u00e9g f\u00e1i hlutdeild \u00ed blessun \u00feess. <br \/> <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Viti\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki a\u00f0 \u00feeir sem keppa \u00e1 \u00ed\u00fer\u00f3ttavelli hlaupa a\u00f0 s\u00f6nnu allir en einn f\u00e6r sigurlaunin? Hlaupi\u00f0 \u00feannig a\u00f0 \u00fei\u00f0 f\u00e1i\u00f0 sigurlaun. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> S\u00e9rhver sem tekur \u00fe\u00e1tt \u00ed kappleikjum leggur hart a\u00f0 s\u00e9r. \u00deeir sem keppa gera \u00fea\u00f0 til \u00feess a\u00f0 hlj\u00f3ta forgengilegan sigursveig en vi\u00f0 \u00f3forgengilegan. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00deess vegna hleyp \u00e9g ekki stefnulaust. \u00c9g berst eins og hnefaleikama\u00f0ur sem engin vindh\u00f6gg sl\u00e6r. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u00c9g aga l\u00edkama minn og geri hann a\u00f0 \u00fer\u00e6li m\u00ednum til \u00feess a\u00f0 \u00e9g, sem hef pr\u00e9dika\u00f0 fyrir \u00f6\u00f0rum, skuli ekki reynast \u00f3h\u00e6fur. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Allt vegna fagna\u00f0arerindisins 1 Er \u00e9g ekki frj\u00e1ls? Er \u00e9g ekki postuli? Hef \u00e9g ekki s\u00e9\u00f0 Jes\u00fa, Drottin vorn? Eru\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki verk mitt sem \u00e9g hef unni\u00f0 me\u00f0 hj\u00e1lp Drottins? 2 \u00de\u00f3tt \u00e9g v\u00e6ri ekki postuli fyrir a\u00f0ra, \u00fe\u00e1 er \u00e9g \u00fea\u00f0 fyrir ykkur. \u00dei\u00f0 eru\u00f0 sta\u00f0festing Drottins \u00e1 postulad\u00f3mi m\u00ednum. 3 \u00deetta er v\u00f6rn m\u00edn gagnvart \u00feeim sem vilja d\u00e6ma um mig. 4 Hef \u00e9g ekki r\u00e9tt til a\u00f0 eta og drekka? 5 Hef \u00e9g ekki r\u00e9tt til a\u00f0 fer\u00f0ast um me\u00f0 kristna eiginkonu alveg eins og hinir postularnir og br\u00e6\u00f0ur Drottins og Kefas? 6 E\u00f0a erum vi\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrra-korintubref-9-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2688","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2688","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2688"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2688\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2688"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}