{"id":2686,"date":"2017-12-30T21:04:15","date_gmt":"2017-12-30T21:04:15","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrra-korintubr%c2%8ef-7-kafli\/"},"modified":"2019-08-26T23:45:15","modified_gmt":"2019-08-26T23:45:15","slug":"fyrra-korintubref-7-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrra-korintubref-7-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrra Korintubr\u00e9f 7. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Um samb\u00fa\u00f0<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> En svo a\u00f0 \u00e9g minnist \u00e1 \u00fea\u00f0 sem \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 rita\u00f0, \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 gott fyrir mann a\u00f0 vera ekki vi\u00f0 konu kenndur. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> En til \u00feess a\u00f0 for\u00f0ast saurl\u00edfi hafi hver karlma\u00f0ur s\u00edna eiginkonu og hver kona sinn eiginmann. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Karlma\u00f0urinn g\u00e6ti skyldu sinnar gagnvart konunni og s\u00f6mulei\u00f0is konan gagnvart karlmanninum. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Ekki hefur konan vald yfir eigin l\u00edkama heldur karlma\u00f0urinn. S\u00f6mulei\u00f0is hefur og karlma\u00f0urinn ekki heldur vald yfir eigin l\u00edkama heldur konan. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Haldi\u00f0 ykkur eigi hvort fr\u00e1 \u00f6\u00f0ru nema \u00fe\u00e1 eftir samkomulagi um stundarsakir til \u00feess a\u00f0 \u00fei\u00f0 geti\u00f0 haft n\u00e6\u00f0i til b\u00e6nahalds og taki\u00f0 svo saman aftur til \u00feess a\u00f0 Satan freisti ykkar ekki vegna \u00edst\u00f6\u00f0uleysis ykkar. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00deetta er ekki neitt valdbo\u00f0 heldur \u00e1bending. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> En \u00feess \u00f3ska \u00e9g a\u00f0 allir menn v\u00e6ru eins og \u00e9g er sj\u00e1lfur en hver hefur s\u00edna n\u00e1\u00f0argj\u00f6f fr\u00e1 Gu\u00f0i, einn \u00feessa og annar hina. <br \/> <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Hinum \u00f3giftu og ekkjunum segi \u00e9g a\u00f0 \u00feeim er best a\u00f0 halda \u00e1fram a\u00f0 vera ein eins og \u00e9g. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> En hafi \u00feau ekki taumhald \u00e1 sj\u00e1lfum s\u00e9r, \u00fe\u00e1 gangi \u00feau \u00ed hj\u00f3naband \u00fev\u00ed a\u00f0 betra er a\u00f0 ganga \u00ed hj\u00f3naband en a\u00f0 brenna af girnd. <br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00deeim sem gengi\u00f0 hafa \u00ed hj\u00f3naband b\u00fd\u00f0 \u00e9g, \u00fe\u00f3 ekki \u00e9g heldur Drottinn, a\u00f0 konan skuli ekki skilja vi\u00f0 mann sinn, <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> en hafi h\u00fan skili\u00f0 vi\u00f0 hann, \u00fe\u00e1 s\u00e9 h\u00fan \u00e1fram \u00f3gift e\u00f0a s\u00e6ttist vi\u00f0 manninn. Ma\u00f0urinn \u00e1 ekki heldur a\u00f0 skilja vi\u00f0 konuna. <br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> En vi\u00f0 hina segi \u00e9g, ekki Drottinn: Ef br\u00f3\u00f0ir nokkur \u00e1 vantr\u00faa\u00f0a konu og h\u00fan l\u00e6tur s\u00e9r \u00fea\u00f0 vel l\u00edka a\u00f0 b\u00faa saman vi\u00f0 hann, \u00fe\u00e1 skilji hann ekki vi\u00f0 hana. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Og kona, sem \u00e1 vantr\u00faa\u00f0an mann og hann l\u00e6tur s\u00e9r vel l\u00edka a\u00f0 b\u00faa saman vi\u00f0 hana, skilji ekki vi\u00f0 hann. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 vantr\u00faa\u00f0i ma\u00f0urinn er helga\u00f0ur af konunni og vantr\u00faa\u00f0a konan er helgu\u00f0 af br\u00f3\u00f0urnum. Annars v\u00e6ru b\u00f6rn ykkar \u00f3hrein en n\u00fa eru \u00feau hrein.<span class=\"nedan_mal\" title=\" Or\u00f0r\u00e9tt: heil\u00f6g.\">[<\/span> <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> En ef hinn vantr\u00faa\u00f0i vill skilja, \u00fe\u00e1 f\u00e1i hann skilna\u00f0. Hvorki br\u00f3\u00f0ir n\u00e9 systir eru \u00fer\u00e6lbundin \u00ed sl\u00edkum efnum. Gu\u00f0 hefur kalla\u00f0 ykkur a\u00f0 lifa \u00ed fri\u00f0i. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 hva\u00f0 veist \u00fe\u00fa, kona, hvort \u00fe\u00fa munir geta frelsa\u00f0 mann \u00feinn? E\u00f0a hva\u00f0 veist \u00fe\u00fa, ma\u00f0ur, hvort \u00fe\u00fa munir geta frelsa\u00f0 konu \u00fe\u00edna? <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Ver\u00f0i keyptir<\/h3>\n<p><a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00de\u00f3 skal hver og einn lifa \u00fev\u00ed l\u00edfi sem Drottinn hefur \u00fathluta\u00f0 honum og vera \u00e1fram \u00ed \u00feeirri st\u00f6\u00f0u sem hann var \u00ed \u00feegar Gu\u00f0 kalla\u00f0i hann. \u00deannig m\u00e6li \u00e9g fyrir \u00ed \u00f6llum s\u00f6fnu\u00f0unum. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> S\u00e1 sem var umskorinn, \u00feegar hann var kalla\u00f0ur, breyti \u00fev\u00ed ekki. S\u00e1 sem var \u00f3umskorinn l\u00e1ti ekki umskera sig. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 skiptir ekki m\u00e1li hvort ma\u00f0ur er umskorinn e\u00f0a ekki, heldur a\u00f0 hann haldi bo\u00f0or\u00f0 Gu\u00f0s. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Hver og einn s\u00e9 kyrr \u00ed \u00feeirri st\u00f6\u00f0u sem hann var kalla\u00f0ur \u00ed. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Varst \u00fe\u00fa \u00fer\u00e6ll er \u00fe\u00fa varst kalla\u00f0ur? Set \u00fea\u00f0 ekki fyrir \u00feig en ef \u00fe\u00fa getur or\u00f0i\u00f0 frj\u00e1ls, \u00fe\u00e1 kj\u00f3s \u00fea\u00f0 heldur.<span class=\"nedan_mal\" title=\" Annar lesh\u00e1ttur: en gj\u00f6r \u00fe\u00e9r gott \u00far \u00fev\u00ed enda \u00fe\u00f3tt \u00fe\u00fa getir or\u00f0i\u00f0 frj\u00e1ls.\">[<\/span> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 s\u00e1 sem var \u00fer\u00e6ll er Drottinn kalla\u00f0i hann er frelsingi Drottins. \u00c1 sama h\u00e1tt er s\u00e1 sem var frj\u00e1ls er Drottinn kalla\u00f0i hann \u00fer\u00e6ll Krists. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 eru\u00f0 ver\u00f0i keyptir. Ver\u00f0i\u00f0 ekki \u00fer\u00e6lar manna. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Br\u00e6\u00f0ur, s\u00e9rhver ver\u00f0i frammi fyrir Gu\u00f0i kyrr \u00ed \u00feeirri st\u00e9tt sem hann var \u00ed \u00feegar Gu\u00f0 kalla\u00f0i hann.<br \/> <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Um einl\u00edfi hef \u00e9g enga skipun fr\u00e1 Drottni. En \u00e1lit mitt l\u00e6t \u00e9g \u00ed lj\u00f3s eins og s\u00e1 er hloti\u00f0 hefur \u00fe\u00e1 n\u00e1\u00f0 af Drottni a\u00f0 vera tr\u00far. <br \/> <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> M\u00edn sko\u00f0un er a\u00f0 vegna yfirstandandi ney\u00f0ar s\u00e9 \u00fea\u00f0 gott fyrir mann a\u00f0 vera \u00feannig. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Ertu vi\u00f0 konu bundinn? Leitast \u00fe\u00e1 ekki vi\u00f0 a\u00f0 ver\u00f0a laus. Ertu laus or\u00f0inn vi\u00f0 konu? Leita \u00fe\u00e1 ekki kvonfangs. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> En \u00fe\u00f3tt \u00fe\u00fa kvongist syndgar \u00fe\u00fa ekki og ef \u00f3gifta konan giftist syndgar h\u00fan ekki. En erfitt ver\u00f0ur sl\u00edkum l\u00edfi\u00f0 h\u00e9r \u00e1 j\u00f6r\u00f0u. Vi\u00f0 \u00fev\u00ed vildi \u00e9g hl\u00edfa ykkur. <br \/> <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> En \u00fea\u00f0 segi \u00e9g, systkin,<span class=\"nedan_mal\" title=\" Or\u00f0r\u00e9tt: br\u00e6\u00f0ur.\">[<\/span> t\u00edminn er or\u00f0inn naumur. H\u00e9r eftir skulu jafnvel \u00feau sem gift eru vera eins og \u00feau v\u00e6ru \u00fea\u00f0 ekki, <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00feau sem gr\u00e1ta eins og \u00feau gr\u00e9tu ekki, \u00feau sem fagna eins og \u00feau f\u00f6gnu\u00f0u ekki, \u00feau sem kaupa eins og \u00feau h\u00e9ldu ekki \u00fev\u00ed sem \u00feau keyptu, <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> og \u00feau sem nj\u00f3ta heimsins g\u00e6\u00f0a eins og \u00feau f\u00e6r\u00f0u s\u00e9r \u00feau ekki \u00ed nyt. \u00dev\u00ed a\u00f0 heimurinn \u00ed n\u00faverandi mynd l\u00ed\u00f0ur undir lok, <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> en \u00e9g vil a\u00f0 \u00fei\u00f0 s\u00e9u\u00f0 \u00e1hyggjulaus. Hinn \u00f3kv\u00e6nti ber fyrir brj\u00f3sti hvernig hann megi \u00fe\u00f3knast Drottni. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> En hinn kv\u00e6nti ber fyrir brj\u00f3sti veraldleg efni svo a\u00f0 hann geti \u00fe\u00f3knast konunni. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> Hann er tv\u00edskiptur. \u00d3gifta konan og m\u00e6rin bera fyrir brj\u00f3sti a\u00f0 vera heilagar \u00e1 s\u00e1l og l\u00edkama svo a\u00f0 \u00fe\u00e6r geti \u00fe\u00f3knast Drottni. En gifta konan ber fyrir brj\u00f3sti veraldlega hluti svo a\u00f0 h\u00fan geti \u00fe\u00f3knast manni s\u00ednum. <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> \u00deetta segi \u00e9g sj\u00e1lfum ykkur til gagns, ekki til \u00feess a\u00f0 valda ykkur \u00f3\u00fe\u00e6gindum heldur til \u00feess a\u00f0 \u00fei\u00f0 geti\u00f0 \u00fej\u00f3na\u00f0 Drottni af al\u00fa\u00f0 og einl\u00e6gni. <br \/> <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> Ef einhver telur sig ekki geta vansalaust b\u00fai\u00f0 me\u00f0 heitmey sinni, enda \u00e1 mannd\u00f3msskei\u00f0i,<span class=\"nedan_mal\" title=\" Sumir telja h\u00e9r um f\u00f6\u00f0ur og \u00f3gifta d\u00f3ttur a\u00f0 r\u00e6\u00f0a: Ef hann telur a\u00f0 hann geri henni vansa og ef h\u00fan er \u00e1 giftingaraldri \u00fe\u00e1 geri hann sem hann vill og gifti hana \u2026 og \u00ed 38. versi: s\u00e1 sem giftir d\u00f3ttur s\u00edna og hinn sem giftir hana ekki \u2026\">[<\/span> \u00fe\u00e1 geri hann sem hann vill ef ekki ver\u00f0ur hj\u00e1 \u00fev\u00ed komist. Hann syndgar ekki. Giftist \u00feau. <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> S\u00e1 \u00fear \u00e1 m\u00f3ti sem er sta\u00f0fastur \u00ed hjarta s\u00ednu og \u00f3\u00fevinga\u00f0ur en hefur fullt vald \u00e1 vilja s\u00ednum og hefur afr\u00e1\u00f0i\u00f0 \u00ed hjarta s\u00ednu a\u00f0 h\u00fan ver\u00f0i \u00e1fram mey gerir vel. <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> \u00deannig gera \u00fe\u00e1 b\u00e1\u00f0ir vel, s\u00e1 sem kv\u00e6nist heitmey sinni og hinn sem kv\u00e6nist henni ekki, hann gerir enn betur. <br \/> <a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> Konan er bundin me\u00f0an ma\u00f0ur hennar er \u00e1 l\u00edfi. En ef ma\u00f0urinn deyr er henni frj\u00e1lst a\u00f0 giftast hverjum sem h\u00fan vill, a\u00f0eins a\u00f0 hann s\u00e9 tr\u00faa\u00f0ur. <a name=\"40\"><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span><\/a> \u00de\u00f3 er h\u00fan s\u00e6lli ef h\u00fan heldur \u00e1fram a\u00f0 vera eins og h\u00fan er, \u00fea\u00f0 er m\u00edn sko\u00f0un. En \u00e9g \u00feykist og hafa anda Gu\u00f0s. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Um samb\u00fa\u00f0 1 En svo a\u00f0 \u00e9g minnist \u00e1 \u00fea\u00f0 sem \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 rita\u00f0, \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 gott fyrir mann a\u00f0 vera ekki vi\u00f0 konu kenndur. 2 En til \u00feess a\u00f0 for\u00f0ast saurl\u00edfi hafi hver karlma\u00f0ur s\u00edna eiginkonu og hver kona sinn eiginmann. 3 Karlma\u00f0urinn g\u00e6ti skyldu sinnar gagnvart konunni og s\u00f6mulei\u00f0is konan gagnvart karlmanninum. 4 Ekki hefur konan vald yfir eigin l\u00edkama heldur karlma\u00f0urinn. S\u00f6mulei\u00f0is hefur og karlma\u00f0urinn ekki heldur vald yfir eigin l\u00edkama heldur konan. 5 Haldi\u00f0 ykkur eigi hvort fr\u00e1 \u00f6\u00f0ru nema \u00fe\u00e1 eftir samkomulagi um stundarsakir til \u00feess a\u00f0 \u00fei\u00f0 geti\u00f0 haft n\u00e6\u00f0i til b\u00e6nahalds og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrra-korintubref-7-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2686","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2686","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2686"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2686\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2686"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}