{"id":2652,"date":"2017-12-30T21:04:05","date_gmt":"2017-12-30T21:04:05","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/postulasagan-17-kafli\/"},"modified":"2019-08-26T23:22:24","modified_gmt":"2019-08-26T23:22:24","slug":"postulasagan-17-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/postulasagan-17-kafli\/","title":{"rendered":"Postulasagan 17. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Upp\u00feot \u00ed \u00deessalon\u00edku<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00deeir f\u00f3ru n\u00fa um Amf\u00edp\u00f3lis og Apoll\u00f3n\u00edu og komu til \u00deessalon\u00edku. \u00dear \u00e1ttu Gy\u00f0ingar samkundu. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Eftir venju sinni gekk P\u00e1ll inn til \u00feeirra og \u00ferj\u00e1 hv\u00edldardaga r\u00e6ddi hann vi\u00f0 \u00fe\u00e1 og lag\u00f0i \u00fat af ritningunum, <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> lauk \u00feeim upp fyrir \u00feeim og setti \u00feeim fyrir sj\u00f3nir a\u00f0 Kristur \u00e1tti a\u00f0 l\u00ed\u00f0a og r\u00edsa upp fr\u00e1 dau\u00f0um. Hann sag\u00f0i: \u201eJes\u00fas, sem \u00e9g bo\u00f0a ykkur, hann er Kristur.\u201c <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Nokkrir \u00feeirra l\u00e9tu sannf\u00e6rast og gengu til fylgis vi\u00f0 P\u00e1l og S\u00edlas, auk \u00feess mikill fj\u00f6ldi gu\u00f0r\u00e6kinna Grikkja og mikils h\u00e1ttar konur eigi allf\u00e1ar. <br \/> <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> En Gy\u00f0ingar fylltust ofst\u00e6ki og fengu me\u00f0 s\u00e9r g\u00f6tuskr\u00edl, \u00e6stu til upp\u00feota og hleyptu borginni \u00ed uppn\u00e1m. \u00deustu \u00feeir a\u00f0 h\u00fasi Jasonar og vildu f\u00e6ra P\u00e1l og S\u00edlas fyrir borgarafund. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> En \u00feegar \u00feeir fundu \u00fe\u00e1 ekki dr\u00f3gu \u00feeir Jason og nokkra br\u00e6\u00f0ur fyrir borgarstj\u00f3rana og hr\u00f3pu\u00f0u: \u201eMennirnir, sem komi\u00f0 hafa allri heimsbygg\u00f0inni \u00ed uppn\u00e1m, eru n\u00fa komnir hinga\u00f0 <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> og Jason hefur teki\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim. Allir \u00feessir breyta gegn bo\u00f0um keisarans \u00fev\u00ed \u00feeir segja a\u00f0 annar s\u00e9 konungur og \u00fea\u00f0 s\u00e9 Jes\u00fas.\u201c <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Og \u00feeir v\u00f6ktu \u00f3hug me\u00f0 f\u00f3lkinu og einnig borgarstj\u00f3runum me\u00f0 \u00feessum or\u00f0um. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Slepptu \u00feeir ekki \u00feeim Jasoni fyrr en \u00feeir h\u00f6f\u00f0u l\u00e1ti\u00f0 \u00fe\u00e1 setja tryggingu. <br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> En s\u00f6fnu\u00f0urinn<span class=\"nedan_mal\" title=\" Or\u00f0r\u00e9tt: br\u00e6\u00f0urnir.\">[<\/span> sendi \u00fe\u00e1 P\u00e1l og S\u00edlas \u00feegar um n\u00f3ttina til Beroju. \u00deegar \u00feeir komu \u00feanga\u00f0 gengu \u00feeir inn \u00ed samkunduh\u00fas Gy\u00f0inga. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00deeir voru veglyndari \u00fear en \u00ed \u00deessalon\u00edku. \u00deeir t\u00f3ku vi\u00f0 or\u00f0inu me\u00f0 mesta \u00e1huga og ranns\u00f6ku\u00f0u daglega ritningarnar, hvort \u00feessu v\u00e6ri \u00feannig fari\u00f0. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Margir Gy\u00f0ingar t\u00f3ku tr\u00fa og einnig Grikkir ekki allf\u00e1ir, tignar konur og karlar. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> En er Gy\u00f0ingar \u00ed \u00deessalon\u00edku fr\u00e9ttu a\u00f0 P\u00e1ll hef\u00f0i einnig bo\u00f0a\u00f0 or\u00f0 Gu\u00f0s \u00ed Beroju egndu \u00feeir l\u00edka m\u00faginn \u00fear til upp\u00feota. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sendi s\u00f6fnu\u00f0urinn<span class=\"nedan_mal\" title=\" Or\u00f0r\u00e9tt: br\u00e6\u00f0urnir.\">[<\/span> jafnskj\u00f3tt P\u00e1l af sta\u00f0 til sj\u00e1var en S\u00edlas og T\u00edm\u00f3teus ur\u00f0u eftir. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Lei\u00f0s\u00f6gumenn P\u00e1ls fylgdu honum allt til A\u00feenu og sneru aftur me\u00f0 bo\u00f0 til S\u00edlasar og T\u00edm\u00f3teusar a\u00f0 koma hi\u00f0 br\u00e1\u00f0asta til hans. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">P\u00e1ll \u00ed A\u00feenu<\/h3>\n<p><a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Me\u00f0an P\u00e1ll bei\u00f0 \u00feeirra \u00ed A\u00feenu var honum mikil skapraun a\u00f0 sj\u00e1 a\u00f0 borgin var full af skur\u00f0go\u00f0um. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Hann r\u00e6ddi \u00fe\u00e1 \u00ed samkundunni vi\u00f0 Gy\u00f0inga og gu\u00f0r\u00e6kna menn og daglega \u00e1 torginu vi\u00f0 \u00fe\u00e1 sem ur\u00f0u \u00e1 vegi hans. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> En nokkrir heimspekingar, Ep\u00edk\u00faringar og St\u00f3umenn, \u00e1ttu og \u00ed or\u00f0akasti vi\u00f0 hann. S\u00f6g\u00f0u sumir: \u201eHva\u00f0 mun skraffinnur s\u00e1 hafa a\u00f0 flytja?\u201c <br \/>A\u00f0rir s\u00f6g\u00f0u: \u201eHann vir\u00f0ist bo\u00f0a \u00f3kunna gu\u00f0i,\u201c \u00fev\u00ed a\u00f0 hann flutti fagna\u00f0arerindi\u00f0 um Jes\u00fa og upprisuna. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Og \u00feeir t\u00f3ku hann og f\u00f3ru me\u00f0 hann \u00e1 Aresarh\u00e6\u00f0<span class=\"nedan_mal\" title=\" E\u00f0a: fram fyrir Areopagusd\u00f3minn, sbr. Post 17.34.\">[<\/span> og s\u00f6g\u00f0u: \u201eGetum vi\u00f0 fengi\u00f0 a\u00f0 vita hver \u00feessi n\u00fdja kenning er sem \u00fe\u00fa fer\u00f0 me\u00f0? <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 eitthva\u00f0 n\u00fdst\u00e1rlegt flytur \u00fe\u00fa okkur til eyrna og okkur f\u00fdsir a\u00f0 vita hva\u00f0 \u00feetta er.\u201c <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> En allir A\u00feeningar og a\u00f0komumenn \u00fear g\u00e1fu s\u00e9r ekki t\u00f3m til annars fremur en a\u00f0 segja e\u00f0a heyra einhver n\u00fdm\u00e6li. <br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00de\u00e1 st\u00e9 P\u00e1ll fram \u00e1 mi\u00f0ri Aresarh\u00e6\u00f0 og t\u00f3k til m\u00e1ls: \u201eA\u00feeningar, \u00fei\u00f0 komi\u00f0 m\u00e9r svo fyrir sj\u00f3nir a\u00f0 \u00fei\u00f0 s\u00e9u\u00f0 \u00ed \u00f6llum greinum miklir tr\u00famenn <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g gekk h\u00e9r um og hug\u00f0i a\u00f0 helgid\u00f3mum ykkar og fann \u00fe\u00e1 me\u00f0al annars altari sem \u00e1 er rita\u00f0: \u00d3kunnum gu\u00f0i. \u00deetta sem \u00fei\u00f0 n\u00fa d\u00fdrki\u00f0 og \u00feekki\u00f0 ekki, \u00fea\u00f0 bo\u00f0a \u00e9g ykkur. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Gu\u00f0, sem sk\u00f3p heiminn og allt sem \u00ed honum er, hann, sem er herra himins og jar\u00f0ar, b\u00fdr ekki \u00ed musterum sem me\u00f0 h\u00f6ndum eru ger\u00f0. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Ekki ver\u00f0ur honum heldur \u00fej\u00f3na\u00f0 me\u00f0 h\u00f6ndum manna, eins og hann \u00feyrfti nokkurs vi\u00f0, \u00fear sem hann sj\u00e1lfur gefur \u00f6llum l\u00edf og anda og alla hluti. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Hann sk\u00f3p og af einum allar \u00fej\u00f3\u00f0ir manna og l\u00e9t \u00fe\u00e6r byggja allt yfirbor\u00f0 jar\u00f0ar er hann haf\u00f0i \u00e1kve\u00f0i\u00f0 setta t\u00edma og m\u00f6rk b\u00f3lsta\u00f0a \u00feeirra. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Hann vildi a\u00f0 \u00fe\u00e6r leitu\u00f0u Gu\u00f0s ef ver\u00f0a m\u00e6tti \u00fe\u00e6r \u00fereifu\u00f0u sig til hans og fyndu hann. En eigi er hann langt fr\u00e1 neinum af okkur. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00cd honum lifum, hr\u00e6rumst og erum vi\u00f0. Svo hafa og sum sk\u00e1ld ykkar sagt: \u00dev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 erum l\u00edka hans \u00e6ttar. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Fyrst vi\u00f0 erum n\u00fa Gu\u00f0s \u00e6ttar megum vi\u00f0 eigi \u00e6tla a\u00f0 gu\u00f0d\u00f3murinn s\u00e9 l\u00edkur sm\u00ed\u00f0i af gulli, silfri e\u00f0a steini, ger\u00f0ri me\u00f0 hagleik og hugviti manna. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> Gu\u00f0 hefur umbori\u00f0 vanvisku li\u00f0inna t\u00edma. En n\u00fa bo\u00f0ar hann m\u00f6nnum hvarvetna a\u00f0 allir skuli sn\u00faa s\u00e9r til hans <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> \u00fev\u00ed a\u00f0 hann hefur sett dag er hann mun l\u00e1ta mann, sem hann hefur fyrirhuga\u00f0, d\u00e6ma heimsbygg\u00f0ina me\u00f0 r\u00e9ttv\u00edsi. \u00deetta hefur hann sanna\u00f0 \u00f6llum m\u00f6nnum me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 reisa hann fr\u00e1 dau\u00f0um.\u201c <br \/> <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> \u00deegar \u00feeir heyr\u00f0u nefnda upprisu dau\u00f0ra ger\u00f0u sumir gys a\u00f0 en a\u00f0rir s\u00f6g\u00f0u: \u201eVi\u00f0 munum hlusta \u00e1 \u00feetta hj\u00e1 \u00fe\u00e9r \u00f6\u00f0ru sinni.\u201c <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> \u00deannig skildi P\u00e1ll vi\u00f0 \u00fe\u00e1. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> En nokkrir menn sl\u00f3gust \u00ed fylgd hans. \u00deeir t\u00f3ku tr\u00fa. Me\u00f0al \u00feeirra var D\u00ed\u00f3n\u00fds\u00edus, einn \u00far Areopagusd\u00f3minum, og kona nokkur, Damaris a\u00f0 nafni, og a\u00f0rir fleiri. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Upp\u00feot \u00ed \u00deessalon\u00edku 1 \u00deeir f\u00f3ru n\u00fa um Amf\u00edp\u00f3lis og Apoll\u00f3n\u00edu og komu til \u00deessalon\u00edku. \u00dear \u00e1ttu Gy\u00f0ingar samkundu. 2 Eftir venju sinni gekk P\u00e1ll inn til \u00feeirra og \u00ferj\u00e1 hv\u00edldardaga r\u00e6ddi hann vi\u00f0 \u00fe\u00e1 og lag\u00f0i \u00fat af ritningunum, 3 lauk \u00feeim upp fyrir \u00feeim og setti \u00feeim fyrir sj\u00f3nir a\u00f0 Kristur \u00e1tti a\u00f0 l\u00ed\u00f0a og r\u00edsa upp fr\u00e1 dau\u00f0um. Hann sag\u00f0i: \u201eJes\u00fas, sem \u00e9g bo\u00f0a ykkur, hann er Kristur.\u201c 4 Nokkrir \u00feeirra l\u00e9tu sannf\u00e6rast og gengu til fylgis vi\u00f0 P\u00e1l og S\u00edlas, auk \u00feess mikill fj\u00f6ldi gu\u00f0r\u00e6kinna Grikkja og mikils h\u00e1ttar konur eigi allf\u00e1ar. 5 En Gy\u00f0ingar fylltust <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/postulasagan-17-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2652","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2652","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2652"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2652\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2652"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}