{"id":2642,"date":"2017-12-30T21:04:05","date_gmt":"2017-12-30T21:04:05","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/postulasagan-7-kafli\/"},"modified":"2019-08-26T23:22:28","modified_gmt":"2019-08-26T23:22:28","slug":"postulasagan-7-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/postulasagan-7-kafli\/","title":{"rendered":"Postulasagan 7. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> R\u00e6\u00f0a Stef\u00e1ns<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00de\u00e1 spur\u00f0i \u00e6\u00f0sti presturinn: \u201eEr \u00feessu svo fari\u00f0?\u201c <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Stef\u00e1n svara\u00f0i: \u201eHeyri\u00f0 mig, br\u00e6\u00f0ur og fe\u00f0ur. Gu\u00f0 d\u00fdr\u00f0arinnar birtist f\u00f6\u00f0ur vorum, Abraham, er hann var enn \u00ed Mes\u00f3p\u00f3tam\u00edu, \u00e1\u00f0ur en hann settist a\u00f0 \u00ed Haran, <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> og sag\u00f0i vi\u00f0 hann: Far \u00fe\u00fa burt \u00far landi \u00fe\u00ednu og fr\u00e1 \u00e6ttf\u00f3lki \u00fe\u00ednu til landsins sem \u00e9g mun v\u00edsa \u00fe\u00e9r \u00e1. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00de\u00e1 f\u00f3r hann burt \u00far Kaldealandi og settist a\u00f0 \u00ed Haran. En eftir l\u00e1t f\u00f6\u00f0ur hans leiddi Gu\u00f0 hann \u00fea\u00f0an til \u00feessa lands sem \u00fei\u00f0 n\u00fa byggi\u00f0. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Ekki gaf hann honum \u00f3\u00f0al h\u00e9r, ekki eitt \u00feverfet. En hann h\u00e9t honum a\u00f0 gefa honum landi\u00f0 til eignar og ni\u00f0jum hans eftir hann \u00fe\u00f3tt hann v\u00e6ri enn barnlaus. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Gu\u00f0 sag\u00f0i a\u00f0 ni\u00f0jar hans mundu b\u00faa sem a\u00f0komumenn \u00ed \u00f3kunnu landi og ver\u00f0a \u00fej\u00e1\u00f0ir og \u00fer\u00e6lka\u00f0ir \u00ed fj\u00f6gur hundru\u00f0 \u00e1r. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> En \u00fej\u00f3\u00f0inni, sem \u00fer\u00e6lkar \u00fe\u00e1, mun \u00e9g refsa, sag\u00f0i Gu\u00f0, og eftir \u00fea\u00f0 munu \u00feeir fara \u00fea\u00f0an og \u00fej\u00f3na m\u00e9r \u00e1 \u00feessum sta\u00f0. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Gu\u00f0 gaf honum s\u00e1ttm\u00e1la umskurnarinnar. S\u00ed\u00f0an gat Abraham \u00cdsak og umskar hann \u00e1 \u00e1ttunda degi og \u00cdsak gat Jakob og Jakob \u00e6ttfe\u00f0urna t\u00f3lf. <br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Og \u00e6ttfe\u00f0urnir \u00f6fundu\u00f0u J\u00f3sef og seldu hann til Egyptalands. En Gu\u00f0 var me\u00f0 honum, <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> frelsa\u00f0i hann \u00far \u00f6llum \u00ferengingum hans og veitti honum visku og l\u00e9t hann n\u00e1 hylli fara\u00f3s svo a\u00f0 hann skipa\u00f0i hann h\u00f6f\u00f0ingja yfir Egyptalandi og \u00f6llum eigum s\u00ednum. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> N\u00fa kom hall\u00e6ri \u00e1 \u00f6llu Egyptalandi og Kanaan og mikil \u00ferenging og fe\u00f0ur vorir h\u00f6f\u00f0u ekki l\u00edfsbj\u00f6rg. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> En er Jakob heyr\u00f0i a\u00f0 korn v\u00e6ri til \u00e1 Egyptalandi sendi hann forfe\u00f0ur vora \u00feanga\u00f0 hi\u00f0 fyrra sinn. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Og \u00ed s\u00ed\u00f0ara skipti\u00f0 gaf J\u00f3sef sig fram vi\u00f0 br\u00e6\u00f0ur s\u00edna og fara\u00f3 var\u00f0 kunn \u00e6tt J\u00f3sefs. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> En J\u00f3sef sendi eftir Jakobi f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum og \u00f6llu \u00e6ttf\u00f3lki s\u00ednu, sj\u00f6t\u00edu og fimm manns, <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> og Jakob f\u00f3r su\u00f0ur til Egyptalands. \u00dear anda\u00f0ist hann og forfe\u00f0ur vorir. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00deeir voru fluttir til S\u00edkem og lag\u00f0ir \u00ed grafreitinn er Abraham haf\u00f0i keypt fyrir silfur af sonum Hemors \u00ed S\u00edkem. <br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> N\u00fa t\u00f3k a\u00f0 n\u00e1lgast s\u00e1 t\u00edmi er r\u00e6tast skyldi fyrirheiti\u00f0 sem Gu\u00f0 haf\u00f0i gefi\u00f0 Abraham. F\u00f3lkinu haf\u00f0i fj\u00f6lga\u00f0 og \u00fea\u00f0 margfaldast \u00ed Egyptalandi. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00de\u00e1 h\u00f3fst til r\u00edkis \u00fear annar konungur er eigi vissi skyn \u00e1 J\u00f3sef. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Hann beitti kyn okkar sl\u00e6g\u00f0 og l\u00e9k forfe\u00f0ur vora illa. Hann l\u00e9t \u00fe\u00e1 bera \u00fat ungb\u00f6rn s\u00edn til \u00feess a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0in skyldi eigi l\u00edfi halda. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Um \u00feessar mundir f\u00e6ddist M\u00f3se og var forkunnarfr\u00ed\u00f0ur. \u00derj\u00e1 m\u00e1nu\u00f0i var hann f\u00f3stra\u00f0ur \u00ed h\u00fasi f\u00f6\u00f0ur s\u00edns. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> En er hann var \u00fat borinn t\u00f3k d\u00f3ttir fara\u00f3s hann og f\u00f3stra\u00f0i sem sinn son. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> M\u00f3se var fr\u00e6ddur \u00ed allri speki Egypta og hann var m\u00e1ttugur \u00ed or\u00f0um s\u00ednum og verkum. <br \/> <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00deegar hann var fertugur a\u00f0 aldri kom honum \u00ed hug a\u00f0 vitja \u00e6ttmenna sinna, \u00cdsraelsmanna. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Hann s\u00e1 einn \u00feeirra ver\u00f0a fyrir \u00f3j\u00f6fnu\u00f0i og r\u00e9tti hlut hans, hefndi \u00feess sem meingj\u00f6r\u00f0ina \u00feoldi og drap Egyptann. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Hann hug\u00f0i a\u00f0 br\u00e6\u00f0ur hans mundu skilja a\u00f0 Gu\u00f0 \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 nota hann til a\u00f0 bjarga \u00feeim en \u00feeir skildu \u00fea\u00f0 ekki. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> N\u00e6sta dag kom hann \u00fear a\u00f0 sem tveir \u00feeirra sl\u00f3gust. Hann reyndi a\u00f0 stilla til fri\u00f0ar me\u00f0 \u00feeim og sag\u00f0i: G\u00f3\u00f0ir menn, \u00fei\u00f0 eru\u00f0 br\u00e6\u00f0ur, hv\u00ed eigist \u00fei\u00f0 illt vi\u00f0? <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> En s\u00e1 sem beitti n\u00e1unga sinn \u00f3r\u00e9tti hratt honum fr\u00e1 s\u00e9r og sag\u00f0i: Hver skipa\u00f0i \u00feig h\u00f6f\u00f0ingja og d\u00f3mara yfir okkur? <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00de\u00fa \u00e6tlar \u00fe\u00f3 ekki a\u00f0 drepa mig eins og \u00fe\u00fa drapst Egyptann \u00ed g\u00e6r? <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Vi\u00f0 \u00feessi or\u00f0 fl\u00fd\u00f0i M\u00f3se og settist a\u00f0 sem \u00fatlendingur \u00ed Mid\u00edanslandi. \u00dear gat hann tvo sonu. <br \/> <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> A\u00f0 fj\u00f6rut\u00edu \u00e1rum li\u00f0num birtist honum engill \u00ed ey\u00f0im\u00f6rk S\u00edna\u00edfjalls \u00ed logandi \u00feyrnirunna. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> M\u00f3se undra\u00f0ist s\u00fdnina, gekk n\u00e6r og vildi hyggja a\u00f0. \u00de\u00e1 hlj\u00f3ma\u00f0i r\u00f6dd Drottins: <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> \u00c9g er Gu\u00f0 forfe\u00f0ra \u00feinna, Gu\u00f0 Abrahams, \u00cdsaks og Jakobs. En M\u00f3se skelfdist og \u00feor\u00f0i ekki a\u00f0 hyggja frekar a\u00f0. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> En Drottinn sag\u00f0i vi\u00f0 hann: Leys af \u00fe\u00e9r sk\u00f3 \u00fe\u00edna \u00fev\u00ed a\u00f0 sta\u00f0urinn, sem \u00fe\u00fa stendur \u00e1, er heil\u00f6g j\u00f6r\u00f0. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> \u00c9g hef s\u00e9\u00f0 \u00e1\u00fej\u00e1n f\u00f3lks m\u00edns \u00e1 Egyptalandi og heyrt andv\u00f6rp \u00feess og er ofan kominn a\u00f0 frelsa \u00fea\u00f0. Kom n\u00fa. \u00c9g sendi \u00feig til Egyptalands.<br \/> <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> \u00deennan M\u00f3se, sem \u00cdsraelsmenn h\u00f6fnu\u00f0u me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 segja: Hver skipa\u00f0i \u00feig h\u00f6f\u00f0ingja og d\u00f3mara? hann sendi Gu\u00f0 sem h\u00f6f\u00f0ingja og lausnara me\u00f0 fulltingi engilsins er honum birtist \u00ed \u00feyrnirunnanum. <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 var M\u00f3se sem leiddi \u00fe\u00e1 \u00fat \u00far Egyptalandi og ger\u00f0i undur og t\u00e1kn \u00e1 Egyptalandi, \u00ed Rau\u00f0ahafinu og \u00e1 ey\u00f0im\u00f6rkinni \u00ed fj\u00f6rut\u00edu \u00e1r, <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> \u00feessi sami M\u00f3se sem sag\u00f0i vi\u00f0 \u00cdsraelsmenn: Sp\u00e1mann eins og mig mun Gu\u00f0 l\u00e1ta koma fram \u00far h\u00f3pi \u00e6ttmenna ykkar. <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 var hann sem var \u00ed s\u00f6fnu\u00f0inum \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni, \u00e1samt englinum sem tala\u00f0i vi\u00f0 hann \u00e1 S\u00edna\u00edfjalli, og me\u00f0 fe\u00f0rum vorum. Hann t\u00f3k \u00e1 m\u00f3ti lifandi or\u00f0um a\u00f0 gefa okkur. <a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> Eigi vildu forfe\u00f0ur vorir hl\u00fd\u00f0nast honum heldur hrundu honum fr\u00e1 s\u00e9r og \u00fer\u00e1\u00f0u \u00ed hj\u00f6rtum s\u00ednum Egyptaland. <a name=\"40\"><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span><\/a> \u00deeir s\u00f6g\u00f0u vi\u00f0 Aron: Ger okkur gu\u00f0i sem geta fari\u00f0 fyrir okkur \u00fev\u00ed a\u00f0 ekki vitum vi\u00f0 hva\u00f0 or\u00f0i\u00f0 er af M\u00f3se \u00feeim sem leiddi okkur brott af Egyptalandi. <a name=\"41\"><span class=\"versanumer_2007\">41<\/span><\/a> Og \u00e1 \u00feeim d\u00f6gum sm\u00ed\u00f0u\u00f0u \u00feeir k\u00e1lf, f\u00e6r\u00f0u skur\u00f0go\u00f0inu f\u00f3rn og gl\u00f6ddust yfir verki handa sinna. <a name=\"42\"><span class=\"versanumer_2007\">42<\/span><\/a> En Gu\u00f0 sneri s\u00e9r fr\u00e1 \u00feeim og l\u00e9t \u00feeim eftir a\u00f0 d\u00fdrka her himinsins eins og rita\u00f0 er \u00ed sp\u00e1mannab\u00f3kinni:<br \/> <span class=\"ljodatexti\"> Ekki f\u00e6r\u00f0u\u00f0 \u00fe\u00e9r m\u00e9r sl\u00e1turd\u00fdr og f\u00f3rnir <br \/>\u00e1rin fj\u00f6rut\u00edu \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni, \u00cdsraelsmenn.<br \/> <\/span> <span class=\"ljodatexti\"> <a name=\"43\"><span class=\"versanumer_ljod\">43<\/span><\/a> Nei, \u00fe\u00e9r b\u00e1ru\u00f0 tjaldb\u00fa\u00f0 M\u00f3loks <br \/>og stj\u00f6rnu gu\u00f0sins Refans, myndirnar sem \u00fe\u00e9r sm\u00ed\u00f0u\u00f0u\u00f0 til \u00feess a\u00f0 tilbi\u00f0ja \u00fe\u00e6r. <br \/>\u00c9g mun herlei\u00f0a y\u00f0ur austur fyrir Bab\u00fdlon. <\/span> <br \/> <a name=\"44\"><span class=\"versanumer_2007\">44<\/span><\/a> Forfe\u00f0ur vorir h\u00f6f\u00f0u vitnisbur\u00f0artjaldb\u00fa\u00f0ina me\u00f0 s\u00e9r \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni. Gu\u00f0, sem tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se, haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 honum a\u00f0 gera hana og hann l\u00e9t gera hana eftir \u00feeirri fyrirmynd sem hann s\u00e1. <a name=\"45\"><span class=\"versanumer_2007\">45<\/span><\/a> Forfe\u00f0ur vorir t\u00f3ku vi\u00f0 henni og fluttu hana me\u00f0 s\u00e9r undir stj\u00f3rn J\u00f3s\u00faa inn \u00ed landi\u00f0 sem \u00feeir t\u00f3ku til eignar af hei\u00f0ingjunum sem Gu\u00f0 rak brott undan \u00feeim. Hver n\u00fd kynsl\u00f3\u00f0 t\u00f3k vi\u00f0 henni allt til daga Dav\u00ed\u00f0s. <a name=\"46\"><span class=\"versanumer_2007\">46<\/span><\/a> Hann fann n\u00e1\u00f0 hj\u00e1 Gu\u00f0i og ba\u00f0 a\u00f0 hann m\u00e6tti finna b\u00fasta\u00f0 fyrir Jakobs Gu\u00f0.<span class=\"nedan_mal\" title=\" Annar lesh\u00e1ttur: h\u00fas, \u00fe.e. \u00e6tt.\">[<\/span> <a name=\"47\"><span class=\"versanumer_2007\">47<\/span><\/a> En Sal\u00f3mon reisti honum h\u00fas. <br \/> <a name=\"48\"><span class=\"versanumer_2007\">48<\/span><\/a> En eigi b\u00fdr Hinn h\u00e6sti \u00ed \u00fev\u00ed sem me\u00f0 h\u00f6ndum er gert. Sp\u00e1ma\u00f0urinn segir:<br \/> <span class=\"ljodatexti\"> <a name=\"49\"><span class=\"versanumer_ljod\">49<\/span><\/a> Himinninn er h\u00e1s\u00e6ti mitt <br \/>og j\u00f6r\u00f0in sk\u00f6r f\u00f3ta minna. <br \/>Hva\u00f0a h\u00fas munu\u00f0 \u00fe\u00e9r reisa m\u00e9r, segir Drottinn, <br \/>e\u00f0a hver er hv\u00edldarsta\u00f0ur minn? <br \/> <\/span> <span class=\"ljodatexti\"> <a name=\"50\"><span class=\"versanumer_ljod\">50<\/span><\/a> Hefur ekki h\u00f6nd m\u00edn skapa\u00f0 allt \u00feetta? <\/span> <br \/> <a name=\"51\"><span class=\"versanumer_2007\">51<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 har\u00f0sv\u00edra\u00f0ir og \u00f3umskornir \u00ed hj\u00f6rtum og \u00e1 eyrum, \u00fei\u00f0 standi\u00f0 \u00e1vallt gegn heil\u00f6gum anda eins og fe\u00f0ur ykkar. <a name=\"52\"><span class=\"versanumer_2007\">52<\/span><\/a> Hver var s\u00e1 sp\u00e1ma\u00f0ur sem fe\u00f0ur ykkar ofs\u00f3ttu eigi? \u00deeir dr\u00e1pu \u00fe\u00e1 er bo\u00f0u\u00f0u fyrir fram komu Hins r\u00e9ttl\u00e1ta og n\u00fa hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 sviki\u00f0 hann og myrt. <a name=\"53\"><span class=\"versanumer_2007\">53<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 sem fengu\u00f0 l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 um hendur engla hafi\u00f0 samt eigi haldi\u00f0 \u00fea\u00f0.\u201c <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Stef\u00e1n gr\u00fdttur<\/h3>\n<p><a name=\"54\"><span class=\"versanumer_2007\">54<\/span><\/a> \u00deegar r\u00e1\u00f0sherrarnir heyr\u00f0u \u00feetta trylltust \u00feeir og gn\u00edstu t\u00f6nnum gegn Stef\u00e1ni. <a name=\"55\"><span class=\"versanumer_2007\">55<\/span><\/a> En hann horf\u00f0i til himins, fullur af heil\u00f6gum anda og leit d\u00fdr\u00f0 Gu\u00f0s og Jes\u00fa standa til h\u00e6gri handar Gu\u00f0i <a name=\"56\"><span class=\"versanumer_2007\">56<\/span><\/a> og sag\u00f0i: \u201e\u00c9g s\u00e9 himnana opna og Mannssoninn standa til h\u00e6gri handar Gu\u00f0i.\u201c <br \/> <a name=\"57\"><span class=\"versanumer_2007\">57<\/span><\/a> \u00de\u00e1 \u00e6ptu \u00feeir h\u00e1st\u00f6fum, h\u00e9ldu fyrir eyrun og r\u00e9\u00f0ust a\u00f0 honum, allir sem einn ma\u00f0ur. <a name=\"58\"><span class=\"versanumer_2007\">58<\/span><\/a> \u00deeir hr\u00f6ktu hann \u00fat \u00far borginni og t\u00f3ku a\u00f0 gr\u00fdta hann. En vottarnir l\u00f6g\u00f0u yfirhafnir s\u00ednar a\u00f0 f\u00f3tum ungum manni er S\u00e1l h\u00e9t. <a name=\"59\"><span class=\"versanumer_2007\">59<\/span><\/a> \u00deannig gr\u00fdttu \u00feeir Stef\u00e1n. En hann \u00e1kalla\u00f0i Drottin og sag\u00f0i: \u201eDrottinn Jes\u00fas, me\u00f0tak \u00fe\u00fa anda minn.\u201c <a name=\"60\"><span class=\"versanumer_2007\">60<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an f\u00e9ll hann \u00e1 kn\u00e9 og hr\u00f3pa\u00f0i h\u00e1rri r\u00f6ddu: \u201eDrottinn, l\u00e1t \u00fe\u00e1 ekki gjalda \u00feessarar syndar.\u201c \u00deegar hann haf\u00f0i \u00feetta m\u00e6lt sofna\u00f0i hann.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>R\u00e6\u00f0a Stef\u00e1ns 1 \u00de\u00e1 spur\u00f0i \u00e6\u00f0sti presturinn: \u201eEr \u00feessu svo fari\u00f0?\u201c 2 Stef\u00e1n svara\u00f0i: \u201eHeyri\u00f0 mig, br\u00e6\u00f0ur og fe\u00f0ur. Gu\u00f0 d\u00fdr\u00f0arinnar birtist f\u00f6\u00f0ur vorum, Abraham, er hann var enn \u00ed Mes\u00f3p\u00f3tam\u00edu, \u00e1\u00f0ur en hann settist a\u00f0 \u00ed Haran, 3 og sag\u00f0i vi\u00f0 hann: Far \u00fe\u00fa burt \u00far landi \u00fe\u00ednu og fr\u00e1 \u00e6ttf\u00f3lki \u00fe\u00ednu til landsins sem \u00e9g mun v\u00edsa \u00fe\u00e9r \u00e1. 4 \u00de\u00e1 f\u00f3r hann burt \u00far Kaldealandi og settist a\u00f0 \u00ed Haran. En eftir l\u00e1t f\u00f6\u00f0ur hans leiddi Gu\u00f0 hann \u00fea\u00f0an til \u00feessa lands sem \u00fei\u00f0 n\u00fa byggi\u00f0. 5 Ekki gaf hann honum \u00f3\u00f0al h\u00e9r, ekki eitt \u00feverfet. En <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/postulasagan-7-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2642","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2642","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2642"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2642\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2642"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}