{"id":2630,"date":"2017-12-30T21:04:01","date_gmt":"2017-12-30T21:04:01","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/j%c2%97hannesargu_spjall-16-kafli\/"},"modified":"2019-08-26T22:47:46","modified_gmt":"2019-08-26T22:47:46","slug":"johannesargudspjall-16-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/johannesargudspjall-16-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00f3hannesargu\u00f0spjall 16. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00deetta hef \u00e9g tala\u00f0 til y\u00f0ar svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r falli\u00f0 ekki fr\u00e1. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u00deeir munu gera y\u00f0ur samkundur\u00e6k. J\u00e1, s\u00fa stund kemur a\u00f0 hver sem l\u00edfl\u00e6tur y\u00f0ur \u00feykist veita Gu\u00f0i \u00fej\u00f3nustu. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00deetta munu \u00feeir gera af \u00fev\u00ed \u00feeir \u00feekkja hvorki f\u00f6\u00f0urinn n\u00e9 mig. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00deetta hef \u00e9g tala\u00f0 til y\u00f0ar til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e9r minnist \u00feess a\u00f0 \u00e9g sag\u00f0i y\u00f0ur \u00fea\u00f0 \u00feegar stund \u00feeirra kemur. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Verk andans<\/h3>\n<p>\u00c9g hef ekki sagt y\u00f0ur \u00feetta fr\u00e1 \u00f6ndver\u00f0u af \u00fev\u00ed \u00e9g var me\u00f0 y\u00f0ur. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> En n\u00fa fer \u00e9g til hans sem sendi mig og enginn y\u00f0ar spyr mig: Hvert fer \u00fe\u00fa? <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> En hrygg\u00f0 hefur fyllt hjarta y\u00f0ar af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g sag\u00f0i y\u00f0ur \u00feetta. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> En \u00e9g segi y\u00f0ur sannleikann: \u00dea\u00f0 er y\u00f0ur til g\u00f3\u00f0s a\u00f0 \u00e9g fari burt \u00fev\u00ed ef \u00e9g fer ekki kemur hj\u00e1lparinn ekki til y\u00f0ar. En ef \u00e9g fer sendi \u00e9g hann til y\u00f0ar. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00deegar hann kemur mun hann sanna heiminum hva\u00f0 er synd og r\u00e9ttl\u00e6ti og d\u00f3mur. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Syndin er a\u00f0 \u00feeir tr\u00fa\u00f0u ekki \u00e1 mig, <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 a\u00f0 \u00e9g fer til f\u00f6\u00f0urins og \u00fe\u00e9r sj\u00e1i\u00f0 mig ekki lengur <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> og d\u00f3murinn a\u00f0 h\u00f6f\u00f0ingi \u00feessa heims er d\u00e6mdur. <br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Enn hef \u00e9g margt a\u00f0 segja y\u00f0ur en \u00fe\u00e9r geti\u00f0 ekki skili\u00f0 \u00fea\u00f0 n\u00fa. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> En \u00feegar andi sannleikans kemur mun hann lei\u00f0a y\u00f0ur \u00ed allan sannleikann. \u00dea\u00f0 sem hann segir y\u00f0ur hefur hann ekki fr\u00e1 sj\u00e1lfum s\u00e9r heldur mun hann segja y\u00f0ur \u00fea\u00f0 sem hann heyrir og kunngj\u00f6ra y\u00f0ur \u00fea\u00f0 sem koma \u00e1. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Hann mun gera mig d\u00fdrlegan \u00fev\u00ed af m\u00ednu mun hann taka og kunngj\u00f6ra y\u00f0ur. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Allt sem fa\u00f0irinn \u00e1 er mitt. \u00dev\u00ed sag\u00f0i \u00e9g a\u00f0 hann t\u00e6ki af m\u00ednu og kunngj\u00f6r\u00f0i y\u00f0ur. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Hrygg\u00f0 mun sn\u00faast \u00ed f\u00f6gnu\u00f0<\/h3>\n<p><a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Innan skamms sj\u00e1i\u00f0 \u00fe\u00e9r mig ekki lengur og aftur innan skamms munu\u00f0 \u00fe\u00e9r sj\u00e1 mig.\u201c <br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u nokkrir l\u00e6risveina hans s\u00edn \u00e1 milli: \u201eHva\u00f0 er hann a\u00f0 segja vi\u00f0 okkur: Innan skamms sj\u00e1i\u00f0 \u00fe\u00e9r mig ekki og aftur innan skamms munu\u00f0 \u00fe\u00e9r sj\u00e1 mig, og: \u00c9g fer til f\u00f6\u00f0urins?\u201c <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> L\u00e6risveinarnir spur\u00f0u: \u201eHva\u00f0 merkir \u00feetta: Innan skamms? Vi\u00f0 vitum ekki hva\u00f0 hann er a\u00f0 fara.\u201c <br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Jes\u00fas vissi a\u00f0 \u00feeir vildu spyrja hann og sag\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u201eEru\u00f0 \u00fe\u00e9r a\u00f0 spyrjast \u00e1 um \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00e9g sag\u00f0i: Innan skamms sj\u00e1i\u00f0 \u00fe\u00e9r mig ekki og aftur innan skamms munu\u00f0 \u00fe\u00e9r sj\u00e1 mig? <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Sannlega, sannlega segi \u00e9g y\u00f0ur: \u00de\u00e9r munu\u00f0 gr\u00e1ta og kveina en heimurinn mun fagna. \u00de\u00e9r munu\u00f0 hryggjast en hrygg\u00f0 y\u00f0ar mun sn\u00faast \u00ed f\u00f6gnu\u00f0. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00deegar konan f\u00e6\u00f0ir er h\u00fan \u00ed nau\u00f0 \u00fev\u00ed stund hennar er komin. \u00deegar h\u00fan hefur ali\u00f0 barni\u00f0 minnist h\u00fan ekki framar \u00ferauta sinna af f\u00f6gnu\u00f0i yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 ma\u00f0ur er \u00ed heiminn borinn. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Eins eru\u00f0 \u00fe\u00e9r n\u00fa hryggir en \u00e9g mun sj\u00e1 y\u00f0ur aftur og hjarta y\u00f0ar mun fagna og enginn tekur f\u00f6gnu\u00f0 y\u00f0ar fr\u00e1 y\u00f0ur. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00c1 \u00feeim degi munu\u00f0 \u00fe\u00e9r ekki spyrja mig neins. Sannlega, sannlega segi \u00e9g y\u00f0ur: Hva\u00f0 sem \u00fe\u00e9r bi\u00f0ji\u00f0 f\u00f6\u00f0urinn um \u00ed m\u00ednu nafni mun hann veita y\u00f0ur. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Hinga\u00f0 til hafi\u00f0 \u00fe\u00e9r einskis be\u00f0i\u00f0 \u00ed m\u00ednu nafni. Bi\u00f0ji\u00f0 og \u00fe\u00e9r munu\u00f0 \u00f6\u00f0last svo a\u00f0 f\u00f6gnu\u00f0ur y\u00f0ar ver\u00f0i fullkominn. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">\u00c9g hef sigra\u00f0 heiminn<\/h3>\n<p><a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00deetta hef \u00e9g sagt y\u00f0ur \u00ed l\u00edkingum. S\u00fa stund kemur a\u00f0 \u00e9g tala ekki framar vi\u00f0 y\u00f0ur \u00ed l\u00edkingum heldur mun \u00e9g berum or\u00f0um segja y\u00f0ur fr\u00e1 f\u00f6\u00f0urnum. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00c1 \u00feeim degi munu\u00f0 \u00fe\u00e9r bi\u00f0ja \u00ed m\u00ednu nafni. \u00c9g segi y\u00f0ur ekki a\u00f0 \u00e9g muni bi\u00f0ja f\u00f6\u00f0urinn fyrir y\u00f0ur <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u00fev\u00ed sj\u00e1lfur elskar fa\u00f0irinn y\u00f0ur \u00fear e\u00f0 \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 elska\u00f0 mig og tr\u00faa\u00f0 a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 fr\u00e1 Gu\u00f0i kominn. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00c9g er kominn \u00ed heiminn fr\u00e1 f\u00f6\u00f0urnum. \u00c9g yfirgef heiminn aftur og fer til f\u00f6\u00f0urins.\u201c <br \/> <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> L\u00e6risveinar hans s\u00f6g\u00f0u: \u201eN\u00fa talar \u00fe\u00fa berum or\u00f0um og m\u00e6lir enga l\u00edking. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> N\u00fa vitum vi\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00fa veist allt og \u00fearft eigi a\u00f0 nokkur spyrji \u00feig. \u00deess vegna tr\u00faum vi\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00fa s\u00e9rt fr\u00e1 Gu\u00f0i kominn.\u201c <br \/> <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> Jes\u00fas svara\u00f0i: \u201eTr\u00fai\u00f0 \u00fe\u00e9r n\u00fa? <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> S\u00fa stund kemur og er komin a\u00f0 \u00fe\u00e9r tv\u00edstrist hver til s\u00edn og skilji\u00f0 mig einan eftir. \u00de\u00f3 er \u00e9g ekki einn \u00fev\u00ed fa\u00f0irinn er me\u00f0 m\u00e9r. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> \u00deetta hef \u00e9g tala\u00f0 vi\u00f0 y\u00f0ur svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r eigi\u00f0 fri\u00f0 \u00ed m\u00e9r. \u00cd heiminum hafi\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00ferenging. En veri\u00f0 hughraustir. \u00c9g hef sigra\u00f0 heiminn.\u201c <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1 \u00deetta hef \u00e9g tala\u00f0 til y\u00f0ar svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r falli\u00f0 ekki fr\u00e1. 2 \u00deeir munu gera y\u00f0ur samkundur\u00e6k. J\u00e1, s\u00fa stund kemur a\u00f0 hver sem l\u00edfl\u00e6tur y\u00f0ur \u00feykist veita Gu\u00f0i \u00fej\u00f3nustu. 3 \u00deetta munu \u00feeir gera af \u00fev\u00ed \u00feeir \u00feekkja hvorki f\u00f6\u00f0urinn n\u00e9 mig. 4 \u00deetta hef \u00e9g tala\u00f0 til y\u00f0ar til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e9r minnist \u00feess a\u00f0 \u00e9g sag\u00f0i y\u00f0ur \u00fea\u00f0 \u00feegar stund \u00feeirra kemur. Verk andans \u00c9g hef ekki sagt y\u00f0ur \u00feetta fr\u00e1 \u00f6ndver\u00f0u af \u00fev\u00ed \u00e9g var me\u00f0 y\u00f0ur. 5 En n\u00fa fer \u00e9g til hans sem sendi mig og enginn y\u00f0ar spyr mig: Hvert fer <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/johannesargudspjall-16-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2630","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2630","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2630"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2630\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2630"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}