{"id":2621,"date":"2017-12-30T21:04:01","date_gmt":"2017-12-30T21:04:01","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/j%c2%97hannesargu_spjall-7-kafli\/"},"modified":"2019-08-26T22:47:49","modified_gmt":"2019-08-26T22:47:49","slug":"johannesargudspjall-7-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/johannesargudspjall-7-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00f3hannesargu\u00f0spjall 7. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Jes\u00fas og br\u00e6\u00f0ur hans<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Eftir \u00feetta f\u00f3r Jes\u00fas um Gal\u00edleu. Hann vildi ekki fara um J\u00fadeu s\u00f6kum \u00feess a\u00f0 r\u00e1\u00f0amenn Gy\u00f0inga<span class=\"nedan_mal\" title=\" Or\u00f0r\u00e9tt: Gy\u00f0ingar.\">[<\/span> \u00fear s\u00e1tu um l\u00edf hans. <br \/> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> N\u00fa f\u00f3r laufsk\u00e1lah\u00e1t\u00ed\u00f0 Gy\u00f0inga \u00ed h\u00f6nd. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u br\u00e6\u00f0ur Jes\u00fa vi\u00f0 hann: \u201eFlyt \u00feig h\u00e9\u00f0an og far\u00f0u til J\u00fadeu til \u00feess a\u00f0 l\u00e6risveinar \u00fe\u00ednir sj\u00e1i l\u00edka \u00feau verk sem \u00fe\u00fa gerir. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> S\u00e1 sem vill ver\u00f0a alkunnur starfar ekki \u00ed leynum. Fyrst \u00fe\u00fa vinnur sl\u00edk verk \u00fe\u00e1 opinbera sj\u00e1lfan \u00feig heiminum.\u201c <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00dev\u00ed jafnvel br\u00e6\u00f0ur hans tr\u00fa\u00f0u ekki \u00e1 hann. <br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Jes\u00fas sag\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u201eMinn t\u00edmi er enn ekki kominn en ykkur hentar allur t\u00edmi. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Heimurinn getur ekki hata\u00f0 ykkur. Mig hatar hann af \u00fev\u00ed \u00e9g vitna um a\u00f0 verk hans s\u00e9u vond. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 fara upp eftir \u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0ina. \u00c9g fer ekki til \u00feessarar h\u00e1t\u00ed\u00f0ar \u00fev\u00ed minn t\u00edmi er enn ekki kominn.\u201c <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00deetta sag\u00f0i hann \u00feeim og var kyrr \u00ed Gal\u00edleu. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Jes\u00fas \u00e1 laufsk\u00e1lah\u00e1t\u00ed\u00f0<\/h3>\n<p><a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00deegar br\u00e6\u00f0ur Jes\u00fa voru farnir upp eftir til h\u00e1t\u00ed\u00f0arinnar f\u00f3r hann samt l\u00edka upp eftir, ekki svo menn vissu heldur n\u00e1nast \u00e1 laun. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Gy\u00f0ingar voru a\u00f0 leita a\u00f0 honum \u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0inni og spur\u00f0u hvar hann v\u00e6ri. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Manna \u00e1 me\u00f0al var margt um hann tala\u00f0. Sumir s\u00f6g\u00f0u: \u201eHann er g\u00f3\u00f0ur,\u201c en a\u00f0rir s\u00f6g\u00f0u: \u201eNei, hann lei\u00f0ir fj\u00f6ldann \u00ed villu.\u201c <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00de\u00f3 tala\u00f0i enginn opinsk\u00e1tt um hann af \u00f3tta vi\u00f0 yfirv\u00f6ldin.<span class=\"nedan_mal\" title=\" Or\u00f0r\u00e9tt: Gy\u00f0inga.\">[<\/span> <br \/> <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Er h\u00e1t\u00ed\u00f0in var \u00feegar h\u00e1lfnu\u00f0 f\u00f3r Jes\u00fas upp \u00ed helgid\u00f3minn og t\u00f3k a\u00f0 kenna. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Menn<span class=\"nedan_mal\" title=\" Or\u00f0r\u00e9tt: Gy\u00f0ingar.\">[<\/span> ur\u00f0u undrandi og s\u00f6g\u00f0u: Hvernig getur \u00feessi ma\u00f0ur veri\u00f0 svona l\u00e6r\u00f0ur? Hann hefur ekki noti\u00f0 fr\u00e6\u00f0slu.\u201c <br \/> <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Jes\u00fas svara\u00f0i \u00feeim: \u201eKenning m\u00edn er ekki m\u00edn heldur hans er sendi mig. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> S\u00e1 sem vill gera vilja hans mun komast a\u00f0 raun um hvort kenningin er fr\u00e1 Gu\u00f0i e\u00f0a \u00e9g tala af sj\u00e1lfum m\u00e9r. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> S\u00e1 sem talar af sj\u00e1lfum s\u00e9r leitar eigin hei\u00f0urs, en s\u00e1 sem leitar hei\u00f0urs \u00feess er sendi hann er sannor\u00f0ur og \u00ed honum ekkert rangl\u00e6ti. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Gaf M\u00f3se y\u00f0ur ekki l\u00f6gm\u00e1li\u00f0? Samt heldur enginn y\u00f0ar l\u00f6gm\u00e1li\u00f0. Hv\u00ed sitji\u00f0 \u00fe\u00e9r um l\u00edf mitt?\u201c <br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> F\u00f3lki\u00f0 ansa\u00f0i: \u201e\u00de\u00fa ert haldinn illum anda. Hver situr um l\u00edf \u00feitt?\u201c <br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Jes\u00fas svara\u00f0i \u00fev\u00ed: \u201eEitt verk ger\u00f0i \u00e9g og \u00fe\u00e9r undrist \u00fea\u00f0 \u00f6ll. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> M\u00f3se gaf y\u00f0ur umskurnina, sem er a\u00f0 v\u00edsu ekki fr\u00e1 honum heldur fe\u00f0runum, og \u00fe\u00e9r umskeri\u00f0 syni y\u00f0ar jafnvel \u00e1 hv\u00edldardegi. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Fyrst drengur er umskorinn \u00e1 hv\u00edldardegi til \u00feess a\u00f0 l\u00f6gm\u00e1l M\u00f3se ver\u00f0i ekki broti\u00f0, hv\u00ed rei\u00f0ist \u00fe\u00e9r m\u00e9r a\u00f0 \u00e9g ger\u00f0i manninn allan heilan \u00e1 hv\u00edldardegi? <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> D\u00e6mi\u00f0 ekki eftir \u00fatliti, d\u00e6mi\u00f0 r\u00e9ttl\u00e1tan d\u00f3m.\u201c <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Hver er Jes\u00fas?<\/h3>\n<p><a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u nokkrir Jer\u00fasalemb\u00faar: \u201eEr \u00feetta ekki s\u00e1 sem \u00feeir sitja um a\u00f0 l\u00edfl\u00e1ta? <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Og n\u00fa er hann a\u00f0 tala \u00e1 almannaf\u00e6ri og \u00feeir segja ekkert vi\u00f0 hann. Skyldu n\u00fa h\u00f6f\u00f0ingjarnir hafa komist a\u00f0 raun um a\u00f0 hann s\u00e9 Kristur? <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Nei, vi\u00f0 vitum hva\u00f0an \u00feessi ma\u00f0ur er. \u00deegar Kristur kemur veit enginn hva\u00f0an hann er.\u201c <br \/> <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Jes\u00fas var a\u00f0 kenna \u00ed helgid\u00f3minum og n\u00fa kalla\u00f0i hann: \u201eB\u00e6\u00f0i \u00feekki\u00f0 \u00fei\u00f0 mig og viti\u00f0 hva\u00f0an \u00e9g er. \u00de\u00f3 er \u00e9g ekki kominn \u00e1 eigin vegum. En s\u00e1 er sannur sem sendi mig og hann \u00feekki\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> \u00c9g \u00feekki hann \u00fev\u00ed \u00e9g er fr\u00e1 honum og hann sendi mig.\u201c <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> N\u00fa \u00e6tlu\u00f0u \u00feeir a\u00f0 gr\u00edpa hann en enginn lag\u00f0i hendur \u00e1 hann \u00fev\u00ed stund hans var ekki enn komin. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> En af al\u00fe\u00fd\u00f0u manna t\u00f3ku margir a\u00f0 tr\u00faa \u00e1 hann og s\u00f6g\u00f0u: \u201eMun Kristur gera fleiri t\u00e1kn \u00feegar hann kemur en \u00feessi ma\u00f0ur hefur gert?\u201c <br \/> <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> Far\u00edsear heyr\u00f0u a\u00f0 f\u00f3lk var a\u00f0 skrafa \u00feetta um hann og \u00e6\u00f0stu prestar og far\u00edsear sendu \u00fej\u00f3na a\u00f0 taka hann h\u00f6ndum. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i Jes\u00fas: \u201eEnn ver\u00f0 \u00e9g hj\u00e1 ykkur skamma stund og \u00fe\u00e1 fer \u00e9g aftur til \u00feess sem sendi mig. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 munu\u00f0 leita m\u00edn og eigi finna. \u00dei\u00f0 geti\u00f0 ekki komist \u00feanga\u00f0 sem \u00e9g er.\u201c <br \/> <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u menn<span class=\"nedan_mal\" title=\" Or\u00f0r\u00e9tt: Gy\u00f0ingar.\">[<\/span> s\u00edn \u00e1 milli: \u201eHvert skyldi hann \u00e6tla a\u00f0 fara svo a\u00f0 vi\u00f0 finnum hann ekki? Hann \u00e6tlar \u00fe\u00f3 ekki a\u00f0 fara til Gy\u00f0inga sem dreif\u00f0ir eru me\u00f0al Grikkja og kenna Grikkjum? <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> Hva\u00f0 var hann a\u00f0 segja: \u00dei\u00f0 munu\u00f0 leita m\u00edn og eigi finna og \u00fei\u00f0 geti\u00f0 ekki komist \u00feanga\u00f0 sem \u00e9g er?\u201c <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">L\u00e6kir lifandi vatns<\/h3>\n<p><a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0asta daginn, h\u00e1t\u00ed\u00f0ardaginn mikla, st\u00f3\u00f0 Jes\u00fas \u00fear og kalla\u00f0i: \u201eEf nokkurn \u00feyrstir \u00fe\u00e1 komi hann til m\u00edn og drekki. <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> Fr\u00e1 hjarta \u00feess sem tr\u00fair \u00e1 mig munu renna l\u00e6kir lifandi vatns, eins og ritningin segir.\u201c <a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> \u00dearna \u00e1tti hann vi\u00f0 andann er \u00feau skyldu hlj\u00f3ta sem \u00e1 hann tr\u00faa. \u00dev\u00ed enn var andinn ekki gefinn \u00fear e\u00f0 Jes\u00fas var ekki enn d\u00fdrlegur or\u00f0inn. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Menn greindi \u00e1<\/h3>\n<p><a name=\"40\"><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span><\/a> \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u nokkrir \u00far mannfj\u00f6ldanum sem hl\u00fdddu \u00e1 \u00feessi or\u00f0: \u201e\u00deessi er sannarlega sp\u00e1ma\u00f0urinn.\u201c <br \/> <a name=\"41\"><span class=\"versanumer_2007\">41<\/span><\/a> A\u00f0rir m\u00e6ltu: \u201eHann er Kristur.\u201c En sumir s\u00f6g\u00f0u: \u201eMundi Kristur \u00fe\u00e1 koma fr\u00e1 Gal\u00edleu? <a name=\"42\"><span class=\"versanumer_2007\">42<\/span><\/a> Hefur ekki ritningin sagt a\u00f0 Kristur komi af kyni Dav\u00ed\u00f0s og fr\u00e1 Betlehem, \u00feorpinu \u00fear sem Dav\u00ed\u00f0 var?\u201c <a name=\"43\"><span class=\"versanumer_2007\">43<\/span><\/a> \u00deannig greindi menn \u00e1 um hann. <a name=\"44\"><span class=\"versanumer_2007\">44<\/span><\/a> Nokkrir \u00feeirra vildu gr\u00edpa hann en \u00fe\u00f3 lag\u00f0i enginn hendur \u00e1 hann. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">H\u00f6f\u00f0ingjar og far\u00edsear<\/h3>\n<p><a name=\"45\"><span class=\"versanumer_2007\">45<\/span><\/a> N\u00fa komu \u00fej\u00f3narnir til \u00e6\u00f0stu prestanna og far\u00edseanna sem s\u00f6g\u00f0u vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u201eHvers vegna komu\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki me\u00f0 hann?\u201c <br \/> <a name=\"46\"><span class=\"versanumer_2007\">46<\/span><\/a> \u00dej\u00f3narnir sv\u00f6ru\u00f0u: \u201eAldrei hefur nokkur ma\u00f0ur tala\u00f0 \u00feannig.\u201c <br \/> <a name=\"47\"><span class=\"versanumer_2007\">47<\/span><\/a> \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u far\u00edsearnir: \u201eL\u00e9tu\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00fe\u00e1 einnig lei\u00f0ast afvega? <a name=\"48\"><span class=\"versanumer_2007\">48<\/span><\/a> \u00c6tli nokkur af h\u00f6f\u00f0ingjunum hafi fari\u00f0 a\u00f0 tr\u00faa \u00e1 hann e\u00f0a \u00fe\u00e1 af far\u00edseum? <a name=\"49\"><span class=\"versanumer_2007\">49<\/span><\/a> \u00deessi alm\u00fagi sem veit ekkert \u00ed l\u00f6gm\u00e1linu, hann er b\u00f6lva\u00f0ur!\u201c <br \/> <a name=\"50\"><span class=\"versanumer_2007\">50<\/span><\/a> Nik\u00f3demus, sem kom til hans fyrrum og var einn af \u00feeim, segir vi\u00f0 \u00fe\u00e1: <a name=\"51\"><span class=\"versanumer_2007\">51<\/span><\/a> \u201eMundi l\u00f6gm\u00e1l okkar d\u00e6ma mann nema hann s\u00e9 yfirheyr\u00f0ur \u00e1\u00f0ur og a\u00f0 \u00fev\u00ed komist hva\u00f0 hann hefur a\u00f0hafst?\u201c <a name=\"52\"><span class=\"versanumer_2007\">52<\/span><\/a> \u00deeir sv\u00f6ru\u00f0u honum: \u201eErt \u00fe\u00fa n\u00fa l\u00edka fr\u00e1 Gal\u00edleu? G\u00e1\u00f0u a\u00f0 og sj\u00e1\u00f0u a\u00f0 enginn sp\u00e1ma\u00f0ur kemur \u00far Gal\u00edleu.\u201c <a name=\"53\"><span class=\"versanumer_2007\">53<\/span><\/a> [N\u00fa f\u00f3r hver heim til s\u00edn. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Jes\u00fas og br\u00e6\u00f0ur hans 1 Eftir \u00feetta f\u00f3r Jes\u00fas um Gal\u00edleu. Hann vildi ekki fara um J\u00fadeu s\u00f6kum \u00feess a\u00f0 r\u00e1\u00f0amenn Gy\u00f0inga[ \u00fear s\u00e1tu um l\u00edf hans. 2 N\u00fa f\u00f3r laufsk\u00e1lah\u00e1t\u00ed\u00f0 Gy\u00f0inga \u00ed h\u00f6nd. 3 \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u br\u00e6\u00f0ur Jes\u00fa vi\u00f0 hann: \u201eFlyt \u00feig h\u00e9\u00f0an og far\u00f0u til J\u00fadeu til \u00feess a\u00f0 l\u00e6risveinar \u00fe\u00ednir sj\u00e1i l\u00edka \u00feau verk sem \u00fe\u00fa gerir. 4 S\u00e1 sem vill ver\u00f0a alkunnur starfar ekki \u00ed leynum. Fyrst \u00fe\u00fa vinnur sl\u00edk verk \u00fe\u00e1 opinbera sj\u00e1lfan \u00feig heiminum.\u201c 5 \u00dev\u00ed jafnvel br\u00e6\u00f0ur hans tr\u00fa\u00f0u ekki \u00e1 hann. 6 Jes\u00fas sag\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u201eMinn t\u00edmi er enn ekki kominn <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/johannesargudspjall-7-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2621","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2621","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2621"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2621\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2621"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}