{"id":2564,"date":"2017-12-30T21:03:44","date_gmt":"2017-12-30T21:03:44","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/matteusargu_spjall-18-kafli\/"},"modified":"2019-08-26T22:35:28","modified_gmt":"2019-08-26T22:35:28","slug":"matteusargudspjall-18-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/matteusargudspjall-18-kafli\/","title":{"rendered":"Matteusargu\u00f0spjall 18. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Hver er mestur?<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Um \u00feetta leyti komu l\u00e6risveinarnir til Jes\u00fa og spur\u00f0u: \u201eHver er mestur \u00ed himnar\u00edki?\u201c <br \/> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Jes\u00fas kalla\u00f0i til s\u00edn l\u00edti\u00f0 barn, setti \u00fea\u00f0 me\u00f0al \u00feeirra <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> og sag\u00f0i: \u201eSannlega segi \u00e9g y\u00f0ur: \u00de\u00e9r komist aldrei \u00ed himnar\u00edki nema \u00fe\u00e9r sn\u00fai\u00f0 vi\u00f0 og ver\u00f0i\u00f0 eins og b\u00f6rn. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Hver sem au\u00f0m\u00fdkir sig og ver\u00f0ur eins og barn \u00feetta, s\u00e1 er mestur \u00ed himnar\u00edki. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Hver sem tekur vi\u00f0 einu sl\u00edku barni \u00ed m\u00ednu nafni tekur vi\u00f0 m\u00e9r. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Hverju skal til kosta?<\/h3>\n<p><a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> En hverjum \u00feeim sem t\u00e6lir til falls einn af \u00feessum sm\u00e6lingjum, sem \u00e1 mig tr\u00faa, v\u00e6ri betra a\u00f0 vera s\u00f6kkt \u00ed sj\u00e1vardj\u00fap me\u00f0 mylnustein hengdan um h\u00e1ls. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Vei heiminum vegna ginninga hans. Hj\u00e1 ginningum ver\u00f0ur eigi komist en vei \u00feeim manni sem veldur. <br \/> <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Ef h\u00f6nd \u00fe\u00edn e\u00f0a f\u00f3tur t\u00e6lir \u00feig til falls \u00fe\u00e1 sn\u00ed\u00f0 hann af og kasta fr\u00e1 \u00fe\u00e9r. Betra er \u00fe\u00e9r handarvana e\u00f0a h\u00f6ltum inn a\u00f0 ganga til l\u00edfsins en hafa b\u00e1\u00f0ar hendur og b\u00e1\u00f0a f\u00e6tur og ver\u00f0a kasta\u00f0 \u00ed hinn eil\u00edfa eld. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Og ef auga \u00feitt t\u00e6lir \u00feig til falls, \u00fe\u00e1 r\u00edf \u00fea\u00f0 \u00far og kasta fr\u00e1 \u00fe\u00e9r. Betra er \u00fe\u00e9r eineyg\u00f0um inn a\u00f0 ganga til l\u00edfsins en hafa b\u00e6\u00f0i augu og ver\u00f0a kasta\u00f0 \u00ed eldsv\u00edti\u00f0. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">T\u00fdndur, fundinn<\/h3>\n<p><a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Varist a\u00f0 forsm\u00e1 nokkurn \u00feessara sm\u00e6lingja. \u00c9g segi y\u00f0ur a\u00f0 englar \u00feeirra \u00e1 himnum nj\u00f3ta jafnan n\u00e1vistar m\u00edns himneska f\u00f6\u00f0ur. [ <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 Mannssonurinn er kominn a\u00f0 frelsa hi\u00f0 t\u00fdnda.] <span class=\"nedan_mal\" title=\" Vantar \u00ed sum handrit.\">[<\/span> <br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Hva\u00f0 vir\u00f0ist y\u00f0ur? Ef einhver \u00e1 hundra\u00f0 sau\u00f0i og einn \u00feeirra villist fr\u00e1, skilur hann ekki \u00fe\u00e1 n\u00edut\u00edu og n\u00edu eftir \u00ed fjallinu og fer a\u00f0 leita \u00feess sem villtur er? <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Og au\u00f0nist honum a\u00f0 finna hann, \u00fe\u00e1 segi \u00e9g y\u00f0ur me\u00f0 sanni a\u00f0 hann fagnar meir yfir honum en \u00feeim n\u00edut\u00edu og n\u00edu sem villtust ekki fr\u00e1. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00deannig er \u00fea\u00f0 eigi vilji y\u00f0ar himneska f\u00f6\u00f0ur a\u00f0 nokkur \u00feessara sm\u00e6lingja glatist. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Ef br\u00f3\u00f0ir \u00feinn syndgar<\/h3>\n<p><a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Ef br\u00f3\u00f0ir \u00feinn syndgar [gegn \u00fe\u00e9r]<span class=\"nedan_mal\" title=\" Vantar \u00ed sum handrit.\">[<\/span> skaltu fara og tala um fyrir honum og s\u00e9 \u00fea\u00f0 ykkar einna \u00ed milli. L\u00e1ti hann s\u00e9r segjast hefur \u00fe\u00fa endurheimt br\u00f3\u00f0ur \u00feinn. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> En l\u00e1ti hann s\u00e9r ekki segjast skaltu taka me\u00f0 \u00fe\u00e9r einn e\u00f0a tvo a\u00f0 \u201ehvert or\u00f0 s\u00e9 sta\u00f0fest me\u00f0 frambur\u00f0i tveggja e\u00f0a \u00feriggja vitna\u201c. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Ef hann skeytir \u00feeim ekki \u00fe\u00e1 seg \u00fea\u00f0 s\u00f6fnu\u00f0inum. Skeyti hann ekki s\u00f6fnu\u00f0inum heldur, s\u00e9 hann \u00fe\u00e9r sem hei\u00f0ingi e\u00f0a tollheimtuma\u00f0ur. <br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Sannlega segi \u00e9g y\u00f0ur: Hva\u00f0 sem \u00fe\u00e9r bindi\u00f0 \u00e1 j\u00f6r\u00f0u mun bundi\u00f0 \u00e1 himni og hva\u00f0 sem \u00fe\u00e9r leysi\u00f0 \u00e1 j\u00f6r\u00f0u mun leyst \u00e1 himni. <br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Enn segi \u00e9g y\u00f0ur: Ef tveir y\u00f0ar ver\u00f0a einhuga h\u00e9r \u00e1 j\u00f6r\u00f0 \u00ed b\u00e6n sinni mun fa\u00f0ir minn \u00e1 himnum veita \u00feeim allt sem \u00feeir bi\u00f0ja um. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 hvar sem tveir e\u00f0a \u00fer\u00edr eru saman komnir \u00ed m\u00ednu nafni \u00fear er \u00e9g mitt \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra.\u201c <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Hve oft?<\/h3>\n<p><a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00de\u00e1 gekk P\u00e9tur til hans og spur\u00f0i: \u201eDrottinn, hve oft \u00e1 \u00e9g a\u00f0 fyrirgefa br\u00f3\u00f0ur m\u00ednum ef hann misgerir vi\u00f0 mig? Svo sem sj\u00f6 sinnum?\u201c <br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Jes\u00fas svara\u00f0i: \u201eEkki segi \u00e9g \u00fe\u00e9r sj\u00f6 sinnum heldur sj\u00f6t\u00edu sinnum sj\u00f6.<span class=\"nedan_mal\" title=\" E\u00f0a: sj\u00f6t\u00edu og sj\u00f6 sinnum.\">[<\/span> <br \/> <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 l\u00edkt er um himnar\u00edki og konung sem vildi l\u00e1ta \u00fej\u00f3na s\u00edna gera skil. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Hann h\u00f3f reikningsskilin og var f\u00e6r\u00f0ur til hans ma\u00f0ur er skulda\u00f0i t\u00edu \u00fe\u00fasund talentur.<span class=\"nedan_mal\" title=\" Ein talenta jafngilti sex \u00fe\u00fasund den\u00f6rum en einn denar var \u00fe\u00e1 venjuleg daglaun landb\u00fana\u00f0arverkamanns, sbr. Matt 20.2.\">[<\/span> <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> S\u00e1 gat ekkert borga\u00f0 og bau\u00f0 konungur \u00fe\u00e1 a\u00f0 hann skyldi seldur \u00e1samt konu og b\u00f6rnum og \u00f6llu sem hann \u00e1tti til l\u00fakningar skuldinni. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00de\u00e1 f\u00e9ll \u00fej\u00f3nninn til f\u00f3ta honum og sag\u00f0i: Haf bi\u00f0lund vi\u00f0 mig og \u00e9g mun borga \u00fe\u00e9r allt. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Og herra \u00fej\u00f3nsins kenndi \u00ed brj\u00f3sti um hann, l\u00e9t hann lausan og gaf honum upp skuldina. <br \/> <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00deegar \u00fej\u00f3nn \u00feessi kom \u00fat hitti hann einn sam\u00fej\u00f3n sinn sem skulda\u00f0i honum hundra\u00f0 denara. Hann greip hann, t\u00f3k fyrir kverkar honum og sag\u00f0i: Borga \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00fa skuldar! <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Sam\u00fej\u00f3nn hans f\u00e9ll \u00fe\u00e1 til f\u00f3ta honum og ba\u00f0 hann: Haf bi\u00f0lund vi\u00f0 mig og \u00e9g mun borga \u00fe\u00e9r. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> En hann vildi \u00fea\u00f0 ekki, heldur f\u00f3r og l\u00e9t varpa honum \u00ed fangelsi uns hann hef\u00f0i borga\u00f0 skuldina. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> \u00deegar sam\u00fej\u00f3nar hans s\u00e1u hva\u00f0 or\u00f0i\u00f0 var ur\u00f0u \u00feeir mj\u00f6g hryggir og s\u00f6g\u00f0u herra s\u00ednum allt sem gerst haf\u00f0i. <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> Konungurinn kallar \u00fe\u00e1 \u00fej\u00f3ninn fyrir sig og segir vi\u00f0 hann: Illi \u00fej\u00f3nn, alla \u00feessa skuld gaf \u00e9g \u00fe\u00e9r upp af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa ba\u00f0st mig. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Bar \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 ekki einnig a\u00f0 miskunna sam\u00fej\u00f3ni \u00fe\u00ednum eins og \u00e9g miskunna\u00f0i \u00fe\u00e9r? <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> Og konungur var\u00f0 rei\u00f0ur og afhenti hann b\u00f6\u00f0lunum uns hann hef\u00f0i goldi\u00f0 allt sem hann skulda\u00f0i honum. <br \/> <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> \u00deannig mun og fa\u00f0ir minn himneskur gera vi\u00f0 y\u00f0ur nema \u00fe\u00e9r fyrirgefi\u00f0 af hjarta hvert \u00f6\u00f0ru.\u201c <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hver er mestur? 1 Um \u00feetta leyti komu l\u00e6risveinarnir til Jes\u00fa og spur\u00f0u: \u201eHver er mestur \u00ed himnar\u00edki?\u201c 2 Jes\u00fas kalla\u00f0i til s\u00edn l\u00edti\u00f0 barn, setti \u00fea\u00f0 me\u00f0al \u00feeirra 3 og sag\u00f0i: \u201eSannlega segi \u00e9g y\u00f0ur: \u00de\u00e9r komist aldrei \u00ed himnar\u00edki nema \u00fe\u00e9r sn\u00fai\u00f0 vi\u00f0 og ver\u00f0i\u00f0 eins og b\u00f6rn. 4 Hver sem au\u00f0m\u00fdkir sig og ver\u00f0ur eins og barn \u00feetta, s\u00e1 er mestur \u00ed himnar\u00edki. 5 Hver sem tekur vi\u00f0 einu sl\u00edku barni \u00ed m\u00ednu nafni tekur vi\u00f0 m\u00e9r. Hverju skal til kosta? 6 En hverjum \u00feeim sem t\u00e6lir til falls einn af \u00feessum sm\u00e6lingjum, sem \u00e1 mig tr\u00faa, <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/matteusargudspjall-18-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2564","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2564","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2564"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2564\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2564"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}