{"id":2545,"date":"2017-12-30T21:03:39","date_gmt":"2017-12-30T21:03:39","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/malak%c2%92-2-kafli\/"},"modified":"2024-03-19T16:27:19","modified_gmt":"2024-03-19T16:27:19","slug":"malaki-2-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/malaki-2-kafli\/","title":{"rendered":"Malak\u00ed 2. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Gegn prestum<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Prestar, taki\u00f0 \u00feetta til ykkar: <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Ef \u00fei\u00f0 hlusti\u00f0 ekki og l\u00e1ti\u00f0 ykkur ekki umhuga\u00f0 um a\u00f0 halda nafn mitt \u00ed hei\u00f0ri, segir Drottinn hersveitanna, sendi \u00e9g b\u00f6lvunina yfir ykkur og sn\u00fd blessun ykkar \u00ed b\u00f6lvun. J\u00e1, \u00e9g sn\u00fd henni \u00ed b\u00f6lvun \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 ekki g\u00e6tt \u00feessa heils hugar. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Sj\u00e1, \u00e9g \u00f3gna uppskeru ykkar<span class=\"nedan_mal\" title=\" \u00d6nnur hugsanleg \u00fe\u00fd\u00f0ing: Sj\u00e1, \u00e9g \u00f3gna ni\u00f0jum ykkar.\">[<\/span> og eys \u00e1sj\u00f3nur ykkar auri, saurnum fr\u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0um ykkar, og varpa ykkur \u00e1 haugana fr\u00e1 \u00feeim. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00de\u00e1 skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 j\u00e1ta a\u00f0 \u00e9g hef skipa\u00f0 ykkur \u00feetta svo a\u00f0 s\u00e1ttm\u00e1li minn vi\u00f0 Lev\u00ed fengi sta\u00f0ist, segir Drottinn hersveitanna. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> S\u00e1ttm\u00e1li minn var honum l\u00edf og heill, hvort tveggja gaf \u00e9g honum og gu\u00f0s\u00f3tta a\u00f0 auki. Hann \u00e1tti a\u00f0 \u00f3ttast mig og s\u00fdna nafni m\u00ednu lotningu. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> S\u00f6nn kenning var \u00ed munni hans og svik fundust ekki \u00e1 v\u00f6rum hans. Hann fylgdi m\u00e9r \u00ed fri\u00f0i og heils hugar og sneri m\u00f6rgum fr\u00e1 syndugu l\u00edferni. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 varir prestsins var\u00f0veita \u00feekkingu og menn leita l\u00f6gm\u00e1lsfr\u00e6\u00f0slu af munni hans \u00fev\u00ed a\u00f0 hann er bo\u00f0beri Drottins hersveitanna. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> En \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 viki\u00f0 af veginum og fellt marga me\u00f0 lei\u00f0s\u00f6gn ykkar. \u00dei\u00f0 hafi\u00f0 spillt s\u00e1ttm\u00e1lanum vi\u00f0 Lev\u00ed, segir Drottinn hersveitanna. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00c9g geri ykkur fyrirlitlega og ni\u00f0url\u00e6gi ykkur frammi fyrir \u00f6llu f\u00f3lkinu af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 fylgi\u00f0 ekki m\u00ednum vegum og eru\u00f0 hlutdr\u00e6gir \u00feegar \u00fei\u00f0 lei\u00f0beini\u00f0. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Rofinn s\u00e1ttm\u00e1li Gu\u00f0s og \u00cdsraels<\/h3>\n<p><a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Eigum vi\u00f0 ekki \u00f6ll sama f\u00f6\u00f0ur? Hefur einn og sami Gu\u00f0 ekki skapa\u00f0 okkur? Hvers vegna erum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 svikul hvert vi\u00f0 anna\u00f0 og vanhelgum s\u00e1ttm\u00e1la fe\u00f0ra okkar? <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> J\u00fada hefur sviki\u00f0 og sv\u00edvir\u00f0a er dr\u00fdg\u00f0 \u00ed \u00cdsrael og Jer\u00fasalem \u00fev\u00ed a\u00f0 J\u00fada hefur vanhelga\u00f0 helgid\u00f3m Drottins sem hann elskar. Hann hefur teki\u00f0 s\u00e9r d\u00f3ttur framandi gu\u00f0s fyrir konu. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Drottinn svipti \u00feann sem sl\u00edkt gerir b\u00e6\u00f0i verjanda og s\u00e6kjanda \u00ed tj\u00f6ldum Jakobs og svipti hann einnig \u00feeim sem f\u00e6rir Drottni hersveitanna f\u00f3rnargjafir. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> A\u00f0 auki geri\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00feetta: \u00dei\u00f0 hylji\u00f0 altari Drottins me\u00f0 t\u00e1rum, me\u00f0 gr\u00e1ti og kveini, \u00fev\u00ed a\u00f0 hann l\u00edtur ekki lengur vi\u00f0 f\u00f3rnargj\u00f6funum, \u00feiggur \u00fe\u00e6r ekki framar me\u00f0 gle\u00f0i \u00far h\u00f6ndum ykkar. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u201eHvers vegna?\u201c spyrji\u00f0 \u00fei\u00f0. \u00dea\u00f0 er s\u00f6kum \u00feess a\u00f0 Drottinn var vottur a\u00f0 hj\u00faskapars\u00e1ttm\u00e1la \u00fe\u00ednum og konunnar sem \u00fe\u00fa eigna\u00f0ist \u00ed \u00e6sku en \u00fe\u00fa hefur sviki\u00f0, \u00fe\u00f3tt h\u00fan s\u00e9 f\u00f6runautur \u00feinn og eiginkona. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Hefur Drottinn ekki gert \u00feau eitt, eina lifandi veru? Til hvers var \u00feessi eining? A\u00f0 eignast b\u00f6rn fr\u00e1 Gu\u00f0i. G\u00e6ti\u00f0 ykkar \u00feess vegna svo lengi sem \u00fei\u00f0 lifi\u00f0. Sv\u00edktu ekki konuna sem \u00fe\u00fa eigna\u00f0ist \u00ed \u00e6sku. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Hafi einhver and\u00fa\u00f0 \u00e1 konu sinni og sendi hana fr\u00e1 s\u00e9r, segir Drottinn, Gu\u00f0 \u00cdsraels, \u00fe\u00e1 flekkar hann kl\u00e6\u00f0i s\u00edn me\u00f0 rangl\u00e6ti, segir Drottinn hersveitanna. G\u00e6ti\u00f0 ykkar \u00fev\u00ed \u00e1 me\u00f0an \u00fei\u00f0 lifi\u00f0 og breg\u00f0i\u00f0 ekki tr\u00fana\u00f0i.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Dagur d\u00f3msins<\/h3>\n<p><a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 \u00fereyti\u00f0 Drottin me\u00f0 or\u00f0um ykkar. \u00dei\u00f0 spyrji\u00f0: \u201eMe\u00f0 hverju \u00fereytum vi\u00f0 hann?\u201c Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 segja: \u201eS\u00e9rhver illvirki er g\u00f3\u00f0ur \u00ed augum Drottins, honum \u00feykir v\u00e6nt um sl\u00edka menn,\u201c e\u00f0a: \u201eHvar er Gu\u00f0 sem d\u00e6mir?\u201c <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Gegn prestum 1 Prestar, taki\u00f0 \u00feetta til ykkar: 2 Ef \u00fei\u00f0 hlusti\u00f0 ekki og l\u00e1ti\u00f0 ykkur ekki umhuga\u00f0 um a\u00f0 halda nafn mitt \u00ed hei\u00f0ri, segir Drottinn hersveitanna, sendi \u00e9g b\u00f6lvunina yfir ykkur og sn\u00fd blessun ykkar \u00ed b\u00f6lvun. J\u00e1, \u00e9g sn\u00fd henni \u00ed b\u00f6lvun \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 ekki g\u00e6tt \u00feessa heils hugar. 3 Sj\u00e1, \u00e9g \u00f3gna uppskeru ykkar[ og eys \u00e1sj\u00f3nur ykkar auri, saurnum fr\u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0um ykkar, og varpa ykkur \u00e1 haugana fr\u00e1 \u00feeim. 4 \u00de\u00e1 skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 j\u00e1ta a\u00f0 \u00e9g hef skipa\u00f0 ykkur \u00feetta svo a\u00f0 s\u00e1ttm\u00e1li minn vi\u00f0 Lev\u00ed fengi sta\u00f0ist, segir Drottinn hersveitanna. 5 S\u00e1ttm\u00e1li <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/malaki-2-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2545","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2545","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2545"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2545\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2545"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}