{"id":2471,"date":"2017-12-30T21:03:18","date_gmt":"2017-12-30T21:03:18","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/dan%c2%92el-4-kafli\/"},"modified":"2024-06-26T23:22:04","modified_gmt":"2024-06-26T23:22:04","slug":"daniel-4-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/daniel-4-kafli\/","title":{"rendered":"Dan\u00edel 4. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00c9g, Neb\u00fakadnesar, lif\u00f0i \u00ed makindum \u00ed h\u00fasi m\u00ednu og \u00e1tti g\u00f3\u00f0a daga \u00ed h\u00f6ll minni. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> En mig dreymdi draum sem skelfdi mig og hugsanirnar \u00ed rekkju minni og s\u00fdnirnar, sem fyrir mig bar, ollu m\u00e9r kv\u00ed\u00f0a. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00c9g l\u00e9t \u00fev\u00ed birta tilskipun um a\u00f0 f\u00e6ra skyldi \u00e1 minn fund alla vitringa \u00ed Bab\u00fdlon til a\u00f0 segja m\u00e9r merkingu draumsins. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Og sp\u00e1sagnamenn, s\u00e6ringamenn, Kaldear og galdramenn komu og \u00e9g sag\u00f0i \u00feeim drauminn en \u00feeir g\u00e1tu ekki r\u00e1\u00f0i\u00f0 hann fyrir mig. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00de\u00e1 kom til m\u00edn Dan\u00edel sem kalla\u00f0ur er Beltsasar eftir nafni gu\u00f0s m\u00edns. Me\u00f0 honum er andi hinna heil\u00f6gu gu\u00f0a og \u00e9g sag\u00f0i honum draum minn: <br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Beltsasar, fremstur allra sp\u00e1sagnamanna. \u00c9g veit a\u00f0 andi hinna heil\u00f6gu gu\u00f0a er me\u00f0 \u00fe\u00e9r og enginn leyndard\u00f3mur er skilningi \u00fe\u00ednum ofvi\u00f0a. Seg\u00f0u m\u00e9r s\u00fdnirnar sem m\u00e9r birtust og hva\u00f0 \u00fe\u00e6r merkja.<br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00deetta eru s\u00fdnirnar sem fyrir mig bar \u00ed rekkju minni: <br \/>\u00c9g \u00fe\u00f3ttist sj\u00e1 feikih\u00e1tt tr\u00e9 standa \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni mi\u00f0ri. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Tr\u00e9\u00f0 t\u00f3k a\u00f0 vaxa og var\u00f0 geysist\u00f3rt, svo h\u00e1tt a\u00f0 \u00fea\u00f0 nam vi\u00f0 himin <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> og m\u00e1tti sj\u00e1 \u00fea\u00f0 allt fr\u00e1 endim\u00f6rkum jar\u00f0ar. Lauf \u00feess var fagurt og \u00e1v\u00f6xturinn r\u00edkulegur svo a\u00f0 \u00fear var f\u00e6\u00f0a \u00f6llum n\u00f3g. D\u00fdr vallarins hv\u00edldu \u00ed fors\u00e6lu \u00feess, fuglar himinsins s\u00e1tu \u00e1 greinum \u00feess og af \u00fev\u00ed g\u00e1tu allar skepnur n\u00e6rt sig. <br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00cd \u00feessari hugs\u00fdn \u00ed rekkju minni \u00fe\u00f3ttist \u00e9g sj\u00e1 heilagan v\u00f6r\u00f0 st\u00edga ni\u00f0ur af himni. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Hann kalla\u00f0i h\u00e1rri r\u00f6ddu og sag\u00f0i: H\u00f6ggvi\u00f0 tr\u00e9\u00f0, sn\u00ed\u00f0i\u00f0 af greinarnar! Sl\u00edti\u00f0 burt laufi\u00f0 og tv\u00edstri\u00f0 \u00e1v\u00f6xtunum! D\u00fdr vallarins fl\u00fdi undan \u00fev\u00ed og fuglar himinsins af greinum \u00feess! <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> En l\u00e1ti\u00f0 bolinn me\u00f0 r\u00f3tum s\u00ednum vera kyrran \u00ed moldinni, bundinn j\u00e1rn- og eirfj\u00f6trum \u00ed grasi vallarins. Megi hann \u00feiggja v\u00e6tu af d\u00f6gg himinsins og deila gr\u00f6sum merkurinnar me\u00f0 d\u00fdrunum. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Hjarta hans skal breytast, \u00ed honum ver\u00f0ur ekki framar mannshjarta heldur mun hann hlj\u00f3ta d\u00fdrshjarta og sj\u00f6 t\u00ed\u00f0ir skal hann \u00fereyja. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00deessa \u00e1kv\u00f6r\u00f0un hafa ver\u00f0irnir teki\u00f0 og \u00feessi er \u00farskur\u00f0ur hinna heil\u00f6gu svo a\u00f0 hver l\u00edfvera sj\u00e1i a\u00f0 Hinn \u00e6\u00f0sti er alvaldur yfir r\u00edki mannanna; a\u00f0 hann f\u00e6r r\u00edki\u00f0 hverjum sem hann vill og getur jafnvel sett yfir \u00fea\u00f0 hinn l\u00edtilm\u00f3tlegasta me\u00f0al manna.<br \/><a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00deennan draum dreymdi mig, Neb\u00fakadnesar konung. \u00de\u00fa, Beltsasar, seg\u00f0u m\u00e9r hver merking hans er \u00fev\u00ed a\u00f0 enginn vitringur \u00ed r\u00edki m\u00ednu getur r\u00e1\u00f0i\u00f0 hann fyrir mig. En \u00fe\u00fa getur \u00fea\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e9r b\u00fdr andi hinna heil\u00f6gu gu\u00f0a.\u201c <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Dan\u00edel r\u00e6\u00f0ur drauminn<\/h3>\n<p><a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Dan\u00edel, sem kalla\u00f0ur var Beltsasar, var\u00f0 \u00fe\u00e1 agndofa um stund og honum st\u00f3\u00f0 \u00f3gn af hugsunum s\u00ednum. En konungur sag\u00f0i: \u201eBeltsasar! L\u00e1ttu hvorki drauminn n\u00e9 r\u00e1\u00f0ningu hans hr\u00e6\u00f0a \u00feig.\u201c Beltsasar svara\u00f0i: \u201e\u00deess vildi \u00e9g \u00f3ska, herra, a\u00f0 draumur \u00feessi r\u00e6ttist \u00e1 \u00f3vinum \u00fe\u00ednum og merking hans gengi eftir \u00e1 andst\u00e6\u00f0ingum \u00fe\u00ednum. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Tr\u00e9\u00f0, sem \u00fe\u00fa s\u00e1st vaxa og ver\u00f0a b\u00e6\u00f0i miki\u00f0 og sterkt og svo h\u00e1tt a\u00f0 til himins t\u00f3k og sj\u00e1 m\u00e1tti um alla j\u00f6r\u00f0ina, <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> var fagurlaufga\u00f0, \u00e1v\u00f6xturinn r\u00edkulegur og \u00f6llum n\u00e6gur til f\u00e6\u00f0u. D\u00fdr vallarins h\u00f6f\u00f0ust vi\u00f0 undir \u00fev\u00ed og fuglar himinsins hrei\u00f0ru\u00f0u um sig \u00ed greinum \u00feess. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00deetta ert \u00fe\u00fa, konungur, sem ert or\u00f0inn mikill og voldugur, tign \u00fe\u00edn svo mikil or\u00f0in a\u00f0 h\u00fan n\u00e6r til himins og veldi \u00feitt til endimarka jar\u00f0ar. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> En \u00fe\u00fa, konungur, s\u00e1st heilagan v\u00f6r\u00f0 st\u00edga ni\u00f0ur af himni og segja: H\u00f6ggvi\u00f0 tr\u00e9\u00f0 og ey\u00f0i\u00f0 \u00fev\u00ed en l\u00e1ti\u00f0 bolinn me\u00f0 r\u00f3tum s\u00ednum vera kyrran \u00ed moldinni, bundinn j\u00e1rn- og eirfj\u00f6trum \u00ed grasi vallarins. Megi hann \u00feiggja v\u00e6tu af d\u00f6gg himinsins og deila gr\u00f6sum merkurinnar me\u00f0 d\u00fdrunum og sj\u00f6 t\u00ed\u00f0ir skal hann \u00fereyja. <br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> R\u00e1\u00f0ningin er \u00fev\u00ed \u00feessi, konungur, og \u00fea\u00f0 er \u00e1kv\u00f6r\u00f0un Hins \u00e6\u00f0sta um herra minn, konunginn, sem n\u00fa er komin fram. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00de\u00fa ver\u00f0ur hrakinn burt \u00far samf\u00e9lagi manna til dvalar me\u00f0 d\u00fdrum merkurinnar. \u00de\u00e9r ver\u00f0ur fengi\u00f0 gras til matar eins og nautpeningi, d\u00f6gg himinsins mun v\u00e6ta \u00feig og sj\u00f6 t\u00ed\u00f0ir hl\u00fdtur\u00f0u a\u00f0 \u00fereyja uns \u00fe\u00fa s\u00e9r\u00f0 a\u00f0 Hinn \u00e6\u00f0sti r\u00e6\u00f0ur yfir konungd\u00f3mi mannanna og getur fengi\u00f0 hann hverjum sem hann k\u00fds. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> En jafnframt var sagt a\u00f0 bolur tr\u00e9sins og r\u00e6tur skyldu ver\u00f0a eftir og merkir \u00fea\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa munt halda r\u00edki \u00fe\u00ednu er \u00fe\u00e9r ver\u00f0ur lj\u00f3st a\u00f0 allt vald er \u00e1 himnum. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Megi \u00fe\u00e9r \u00fev\u00ed \u00fe\u00f3knast r\u00e1\u00f0 mitt, konungur: B\u00e6ttu fyrir syndir \u00fe\u00ednar me\u00f0 g\u00f3\u00f0um verkum og fyrir rangl\u00e6ti \u00feitt me\u00f0 miskunnarverkum vi\u00f0 f\u00e1t\u00e6ka. \u00de\u00e1 m\u00e1 v\u00e6nta a\u00f0 hamingja \u00fe\u00edn ver\u00f0i lang\u00e6rri.\u201c<br \/> <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Allt \u00feetta r\u00e6ttist \u00e1 Neb\u00fakadnesari konungi. <br \/> <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> T\u00f3lf m\u00e1nu\u00f0um s\u00ed\u00f0ar var konungur einhverju sinni \u00e1 gangi \u00ed konungsh\u00f6llinni \u00ed Bab\u00fdlon. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> T\u00f3k hann \u00fe\u00e1 til m\u00e1ls og sag\u00f0i: \u201eEr \u00feetta ekki Bab\u00fdlon hin mikla sem \u00e9g hef gert a\u00f0 konungssetri me\u00f0 veldisstyrk m\u00ednum til d\u00fdr\u00f0ar h\u00e1tign minni?\u201c <br \/> <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00c1\u00f0ur en konungur haf\u00f0i sleppt or\u00f0inu heyr\u00f0ist r\u00f6dd af himni: \u201eD\u00f3mur er fallinn yfir \u00fe\u00e9r, Neb\u00fakadnesar konungur: \u00de\u00fa hefur veri\u00f0 sviptur konungd\u00f3mi, <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> \u00fe\u00fa ver\u00f0ur hrakinn \u00far samf\u00e9lagi manna og munt dveljast me\u00f0al d\u00fdra merkurinnar. \u00de\u00e9r ver\u00f0ur gefi\u00f0 gras eins og nautpeningi og sj\u00f6 t\u00ed\u00f0ir hl\u00fdtur\u00f0u a\u00f0 \u00fereyja uns \u00fe\u00e9r ver\u00f0ur lj\u00f3st a\u00f0 Hinn \u00e6\u00f0sti r\u00e6\u00f0ur yfir konungd\u00f3mi manna og getur fengi\u00f0 hann hverjum sem hann k\u00fds.\u201c <br \/> <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00deessi or\u00f0 r\u00e6ttust samstundis \u00e1 Neb\u00fakadnesari. Hann var hrakinn \u00far samf\u00e9lagi manna, \u00e1t gras eins og nautf\u00e9, l\u00edkami hans v\u00f6kna\u00f0i af d\u00f6gg himinsins uns h\u00e1r hans var\u00f0 sem arnarfja\u00f0rir og neglurnar sem fuglskl\u00e6r. <br \/> <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> \u201eA\u00f0 \u00feessum t\u00edma li\u00f0num h\u00f3f \u00e9g, Neb\u00fakadnesar, augu m\u00edn til himins og f\u00e9kk \u00fe\u00e1 aftur fullt r\u00e1\u00f0 og r\u00e6nu. \u00c9g lofa\u00f0i Hinn \u00e6\u00f0sta og vegsama\u00f0i og lofs\u00f6ng Hinn eil\u00edfa \u00fev\u00ed a\u00f0 veldi hans er eil\u00edft veldi og r\u00edki hans varir fr\u00e1 kyni til kyns. <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> Jar\u00f0arb\u00faar allir eru ekkert \u00e1 vi\u00f0 hann, sem st\u00fdrir herskara himnanna og \u00edb\u00faum jar\u00f0ar eins og hann sj\u00e1lfur k\u00fds. Enginn getur hamla\u00f0 hendi hans e\u00f0a spurt: Hva\u00f0 hefur\u00f0u gert? <br \/> <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> \u00c1 s\u00f6mu stundu f\u00e9kk \u00e9g vit mitt aftur og aftur hlotna\u00f0ist m\u00e9r tign og vegsemd r\u00edki m\u00ednu til s\u00e6mdar. R\u00e1\u00f0gjafar m\u00ednir og st\u00f3rmenni leitu\u00f0u m\u00edn, \u00e9g var settur yfir konungsr\u00edki mitt a\u00f0 n\u00fdju og enn var auki\u00f0 \u00e1 tign m\u00edna. <br \/> <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> \u00c9g, Neb\u00fakadnesar, lofa n\u00fa, tigna og vegsama konung himnanna \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00f6ll verk hans eru sannleikur, vegir hans r\u00e9ttl\u00e6ti og hann megnar a\u00f0 au\u00f0m\u00fdkja \u00fe\u00e1 sem hreykja s\u00e9r hrokafullir.\u201c<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1 \u00c9g, Neb\u00fakadnesar, lif\u00f0i \u00ed makindum \u00ed h\u00fasi m\u00ednu og \u00e1tti g\u00f3\u00f0a daga \u00ed h\u00f6ll minni. 2 En mig dreymdi draum sem skelfdi mig og hugsanirnar \u00ed rekkju minni og s\u00fdnirnar, sem fyrir mig bar, ollu m\u00e9r kv\u00ed\u00f0a. 3 \u00c9g l\u00e9t \u00fev\u00ed birta tilskipun um a\u00f0 f\u00e6ra skyldi \u00e1 minn fund alla vitringa \u00ed Bab\u00fdlon til a\u00f0 segja m\u00e9r merkingu draumsins. 4 Og sp\u00e1sagnamenn, s\u00e6ringamenn, Kaldear og galdramenn komu og \u00e9g sag\u00f0i \u00feeim drauminn en \u00feeir g\u00e1tu ekki r\u00e1\u00f0i\u00f0 hann fyrir mig. 5 \u00de\u00e1 kom til m\u00edn Dan\u00edel sem kalla\u00f0ur er Beltsasar eftir nafni gu\u00f0s m\u00edns. Me\u00f0 honum er andi <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/daniel-4-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2471","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2471","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2471"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2471\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2471"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}